Morgunblaðið - 10.09.2005, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 2005 35
MESSUR Á MORGUN
ÁSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Félagar
úr kór Áskirkju syngja, organisti Kári
Þormar.
BÚSTAÐAKIRKJA: Barna- og fjölskyldu-
guðsþjónusta kl. 11. Léttir söngvar, bibl-
íusögur, bænir, umræður og leikir við hæfi
barnanna. Hljómsveit ungmenna spilar í
messunni, stjórnandi Guðmundur Sig-
urðsson. Foreldrar, afar og ömmur eru
sérstaklega hvött til þátttöku með börn-
unum. Guðsþjónusta kl. 14. Kirkjukór Bú-
staðakirkju syngur. Organisti Guðmundur
Sigurðsson. Molasopi eftir messu. Sr.
Pálmi Matthíasson.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11. Sr. Jakob
Ágúst Hjálmarsson predikar. Dómkórinn
syngur. Organisti Marteinn H. Friðriksson.
Barnastarf á kirkjuloftinu meðan á messu
stendur.
GRENSÁSKIRKJA: Barnastarf kl. 11 í
umsjá Jóhönnu Sesselju Erludóttur og
unglinga úr kirkjustarfinu. Guðsþjónusta
kl. 11. Kirkjukór Grensáskirkju syngur.
Organisti Árni Arinbjarnarson. Samskot í
líknarsjóð. Kaffisopi að lokinni guðsþjón-
ustu. Ólafur Jóhannsson.
GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili:
Guðsþjónusta kl. 14. Organisti Kjartan
Ólafsson. Sr. Ólafur Jens Sigurðsson.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa og barna-
starf kl. 11. Sr. Sigurður Pálsson predikar
og þjónar fyrir altari. Umsjón barnastarfs
Magnea Sverrisdóttir djákni. Hópur úr
Mótettukór Hallgrímskirkju syngur. Organ-
isti Friðrik Vignir Stefánsson.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa og barnaguðs-
þjónusta kl. 11:00. Organisti Douglas A.
Brotchie. Umsjón barnaguðsþjónustu Erla
Guðrún Arnmundardóttir, Þóra Marteins-
dóttir, Hrafnhildur Héðinsdóttir og Annika
Neumann. Léttar veitingar eftir messu.
Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir.
LANDSPÍTALI – HÁSKÓLASJÚKRAHÚS:
Landakot: Guðsþjónusta kl. 11.30. Sr.
Sigfinnur Þorleifsson, organisti Birgir Ás
Guðmundsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guðbrands
biskups. Messa og barnastarf kl. 11.
Prestur sr. Bára Friðriksdóttir. Organisti
Jón Stefánsson. Félagar úr Kór Langholts-
kirkju leiða safnaðarsöng. Barnastarfið
hófst síðasta sunnudag og eru foreldrar,
afar og ömmur hvött til að koma með börn
sín í barnastarfið. Umsjón hafa Rut,
Steinunn og Arnór. Kaffisopi eftir messu.
LAUGARNESKIRKJA: Messa og sunnu-
dagaskóli kl. 11:00. Umsjón sunnudaga-
skóla er í höndum Hildar Eirar Bolladóttur,
Heimis Haraldssonar og Þorvaldar Þor-
valdssonar. Kór Laugarneskirkju syngur
við messuna, Gunnar Gunnarsson leikur
á orgelið. Sr. Bjarni Karlsson og Sig-
urbjörn Þorkelsson meðhjálpari þjóna,
fulltrúar lesarahóps flytja ritningarlestra
og messukaffi Sigríðar kirkjuvarðar bíður
svo allra að messu lokinni. Við þessa
guðsþjónustu eru fermingarbörn komandi
vors og fjölskyldur þeirra sérstaklega köll-
uð til kirkju og að messu lokinni verður
haldinn stuttur fundur um ferming-
arstarfið sem framundan er. Kvöldmessa
kl. 20.30. Djasskvartett Gunnars Gunn-
arssonar leikur í kirkjuskipi frá kl. 20. Kór
Laugarneskirkju leiðir gospelsönginn, en
sóknarprestur og meðhjálpari þjóna að
venju ásamt hópi safnaðarfólks. Að
messu lokinni er fyrirbænaþjónusta í
umsjá bænahóps kirkjunnar og messu-
kaffi í safnaðarheimilinu.
NESKIRKJA: Messa og barnastarf kl. 11.
Félagar úr Kór Neskirkju leiða safn-
aðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhalls-
son. Sr. Örn Bárður Jónsson predikar og
þjónar fyrir altari. Fermingarbörn eru sér-
staklega minnt á messusókn í vetur.
Börnin byrja í kirkjunni en fara síðan í
safnaðarheimilið. Brúður, söngur, sögur,
leikir og margt fleira. Öll börn fá kirkjubók
og límmiða. Umsjónarfólk er Guðmunda,
Björg og Ari. Kaffi, djús og spjall í safn-
aðarheimilinu eftir messu.
SELTJARNARNESKIRKJA: Messa kl. 11.
Kammerkór Seltjarnarneskirkju leiðir
sálmasöng. Organisti Pavel Manasek. Sr.
Arna Grétarsdóttir. Sunnudagaskólinn á
sama tíma. Verið öll hjartanlega velkomin.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN: Guðsþjónusta kl.
14.00. Barnastarf á sama tíma. Sýnt
verður barnaleikritið „Kamilla og þjóf-
urinn“. Maul eftir messu.
FRÍKIRKJAN í Reykjavík: Guðsþjónusta
sunnudag kl. 14. Athugið breyttan messu-
tíma. Nýr prestur safnaðarins, Ása Björk
Ólafsdóttir, leiðir guðsþjónustuna. Ferm-
ingarbörn vorsins 2006 aðstoða. Anna
Sigga, Carl Möller og Fríkirkjukórinn sjá
um tónlistina. Allir hjartanlega velkomnir.
ÁRBÆJARKIRKJA: Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 11. Söngur, sögur, Rebbi refur,
Gulla gæs, Trína tröllastelpa og fleiri góðir
gestir. Stund fyrir alla fjölskylduna,
mömmu, pabba, ömmu og afa og litlu
börnin. Kaffi og ávaxtasafi og ómissandi
kirkjukexið.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Messa kl. 11.
Prestur sr. Gísli Jónasson. Organisti Keith
Reed. Barnaguðsþjónusta kl. 11. Þóra
Jenny, Sólveig og Jóhann sjá um börnin.
Léttar veitingar eftir messuna.
DIGRANESKIRKJA: Útvarpsmessa kl. 11.
Prestur sr. Magnús B. Björnsson. Organ-
isti Kjartan Sigurjónsson. Kór Digranes-
kirkju. Einsöngur Vilborg Helgadóttir.
Sunnudagaskóli á sama tíma í kapellu á
neðri hæð. Súpa í safnaðarsal að messu
lokinni. (www.digraneskirkja.is).
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðsþjónusta
með altarisgöngu kl. 11. Prestur Sr. Guð-
mundur Karl Ágústsson. Sunnudagaskóli
á sama tíma í umsjá Sigríðar Rúnar
Tryggvadóttur. Organisti Lenka Mateova.
Þriðjudaginn 13. september: kyrrðarstund
kl. 12, að stundinni lokinni er boðið upp á
súpu og brauð á vægu verði. Kl. 13.–16
er opið hús fyrir fullorðna. Barna- og
æskulýðsstarfið er hafið, sjá nánar á
heimasíðu kirkjunnar (www.kirkjan.is/
fella-holakirkja) og í Mbl. (staður og
stund).
GRAFARVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11. Séra Vigfús Þór Árnason predikar og
þjónar fyrir altari ásamt séra Önnu Sigríði
Pálsdóttur. Kór Grafarvogskirkju syngur.
Organisti: Hörður Bragason. Fermingar-
börnum úr Foldaskóla, Hamraskóla og
Húsaskóla og foreldrum þeirra er sér-
staklega boðið til messu. Dregið verður
um væntanlega fermingardaga. Að lokinni
guðsþjónustu verður haldinn fundur, þar
sem verður meðal annars rætt um ferm-
ingarfræðsluna, ferminguna sjálfa og það
sem henni tengist. Að loknum fundinum
verður hádegisverðarhlaðborð en hver
fjölskylda kemur með veitingar á það
hlaðborð. Foreldrar eru beðnir að koma
með veitingar í kirkjuna kl. 10.30. Barna-
guðsþjónusta í Grafarvogskirkju kl. 11.
Prestur séra Bjarni Þór Bjarnason. Um-
sjón: Hjörtur og Rúna. Undirleikari: Stefán
Birkisson. Barnaguðsþjónusta í Borg-
arholtsskóla kl. 11.00. Prestur séra El-
ínborg Gísladóttir. Umsjón: Gummi, Ing-
ólfur og Tinna. Undirleikari: Guðlaugur
Viktorsson.
HJALLAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Sr.
Sigfús Kristjánsson þjónar. Félagar úr kór
kirkjunnar syngja og leiða safnaðarsöng.
Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Barna-
guðsþjónusta kl. 13. Við minnum á bæna-
og kyrrðarstund á þriðjudag kl. 18 og opið
hús á fimmtudag kl. 12 (sjá einnig á
www.hjallakirkja.is).
KÓPAVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11.00. Séra Sigurjón Árni Eyjólfsson hér-
aðsprestur predikar og þjónar fyrir altari.
Félagar úr kór Kópavogskirkju syngja og
leiða safnaðarsöng. Organisti Sigrún
Steingrímsdóttir. Kaffisopi að lokinni
guðsþjónustu. Barnastarf í kirkjunni kl.
12.30 í umsjón Önnu Kristínar, Péturs
Þórs og Sigríðar. Bæna- og kyrrðarstund á
þriðjudag kl. 12.10.
LINDASÓKN í Kópavogi: Guðsþjónusta
og sunnudagaskóli í Lindaskóla kl. 11.
Kórinn leiðir safnaðarsöng, organisti
Hannes Baldursson. Sr. Guðmundur Karl
Brynjarsson þjónar.
SELJAKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl. 11.
Söngur, sögur, líf og fjör! Guðsþjónusta kl.
14. Sr. Bolli Pétur Bollason prédikar. Kór
Seljakirkju leiðir söng. Organisti Jón
Bjarnason. Gerður Bolladóttir syngur ís-
lensk trúarlög við fiðluleik Hlínar Erlends-
dóttur.
ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN: Morgun-
guðsþjónusta kl. 11. Friðrik Schram kenn-
ir um efnið: Hvert er hlutverk okkar í áætl-
un Guðs? 2. hluti – Söfnuðurinn og við.
Sérstakt barnastarf á sama tíma. Sam-
koma kl. 20 með mikilli lofgjörð og fyrir-
bænum. Friðrik Schram predikar. Kynn-
ingarkvöld fyrir næsta Alfa-námskeið á
þriðjudag kl. 20.
BOÐUNARKIRKJAN, Hlíðasmára 9, Kóp.:
Samkomur alla laugardaga kl. 11. Bæna-
stund alla miðvikudaga kl. 20. Biblíu-
fræðsla allan sólarhringinn á Útvarp Boð-
un FM 105,5. Allir alltaf velkomnir.
FÆREYSKA SJÓMANNAHEIMILIÐ: Sam-
koma sunnudag kl. 20.30. Kaffi á eftir.
Allir velkomnir.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Samkoma sunnu-
dag kl. 20. Umsjón Harold Reinholdtsen.
FRÍKIRKJAN KEFAS, Fagraþingi 2a:
Sunnudaginn 11. september er samkoma
kl. 14. Sigrún Einarsdóttir talar. Lofgjörð
og fyrirbænir. Kaffi og samfélag eftir sam-
komu. Allir velkomnir. Þriðjudaginn 13.
september er bænastund kl. 20.30. Allir
eru velkomnir. Föstudaginn 16. sept-
ember er unglingasamkoma kl. 20. Allir
unglingar velkomnir.
KFUM og KFUK v. Holtaveg: Fjölskyldu-
samkoma í félagsheimili KFUM og KFUK
við Holtaveg 11. sept. kl. 17. Stelpur úr
Vindáshlíð syngja. Ávarp: Hesturinn
Djákni (lifandi hestur). Stoppleikhópurinn:
Atriði úr leikritinu Kamilla og þjófurinn.
Gospelkór KFUM og KFUK. Stuttmynd.
Hugleiðing: Anna Magnúsdóttir og söng-
hópur kvenna. Grillveisla á eftir sam-
komu. Hestar ganga með börnin um lóð
KFUM og KFUK á meðan.
FÍLADELFÍA: Almenn samkoma kl.
16.30. Ræðumaður Vörður Leví Trausta-
son. Gospelkór Fíladelfíu leiðir söng. Allir
eru hjartanlega velkomnir. Barnakirkja, öll
börn velkominn frá 1–12 ára. Hægt er að
hlusta á beina útsendingu á Lindinni fm
102,9 eða horfa á www.gospel.is – Miðvi-
kud. 14. sept. Kl. 18–20 er fjölskyldu-
samvera, „súpa og brauð“. Vörður Leví
Traustason sér um biblíulestur. Fimmtu-
daginn 15. sept. kl. 15 er samvera eldri
borgara. Alla miðvikudaga kl. 12–13 er
hádegisbænastund. Allir velkomnir. fila-
delfia@gospel.is, www.gospel.is
KROSSINN: Almenn samkoma að Hlíða-
smára 5 kl. 16.30.
BETANÍA, Lynghálsi 3: Samkoma kl. 11
sunnudaga. Einnig samkomur kl. 19.30 á
föstudögum.
KAÞÓLSKA KIRKJAN:
Reykjavík, Kristskirkja í Landakoti, dóm-
kirkja og basilíka: Sunnudaga: Messa kl.
10.30. Messa á ensku kl. 18. Alla virka
daga: Messa kl. 18. Sunnudaginn 11.
september kl. 10.30: Biskupar Norður-
landanna lesa þessa messu sameig-
inlega. Þeir sitja haustfund sinn frá 9. til
14. september í Landakoti. „Ár altaris-
sakramentisins“: Tilbeiðslustund er hald-
in í Kristskirkju á hverju fimmtudagskvöldi
að messu lokinni, þ.e. frá kl. 18.30 til
19.15. Trúfræðsla barnanna hefst að
nýju laugardaginn 10. september kl. 13 í
Landakotsskóla. Barnamessan er kl. 14 í
Kristskirkju. Reykjavík, Maríukirkja við
Raufarsel: Sunnudaga: Messa kl. 11.
Laugardaga: Messa á ensku kl. 18.30.
Virka daga: Messa kl. 18.30. „Ár alt-
arissakramentisins“: Tilbeiðslustund á
mánudögum frá kl. 19 til 20. Riftún í
Ölfusi: Sunnudaga: Messa kl. 16. Mið-
vikudaga kl. 20. Hafnarfjörður, Jósefs-
kirkja: Sunnudaga: Messa kl. 10.30. Alla
virka daga: Messa kl. 18.30. „Ár alt-
arissakramentisins“: Tilbeiðslustund á
hverjum degi kl. 17.15. Karmelklaustur:
Sunnudaga: Messa kl. 8.30. Virka daga:
Messa kl. 8. Keflavík, Barbörukapella:
Skólavegi 38. Sunnudaga: Messa kl. 14.
Akranes, Kapella Sjúkrahúss Akraness:
Sunnudaginn 11. september: Messa kl.
15. Stykkishólmur, Austurgötu 7: Alla
virka daga: Messa kl. 18.30. Sunnudaga:
Messa kl. 10. Ísafjörður: Sunnudaga:
Messa kl. 11. Flateyri: Laugardaga:
Messa kl. 18. Bolungarvík: Sunnudaga
kl. 16. Suðureyri: Sunnudaga: Messa kl.
19. Akureyri, Kaþólska kirkjan: Péturs-
kirkja, Hrafnagilsstræti 2: Laugardaga:
Messa kl. 18. Sunnudaga: Messa kl. 11.
„Ár altarissakramentisins“: Tilbeiðslu-
stund á hverjum föstudegi kl. 17 og
messa kl. 18.
KIRKJA SJÖUNDA DAGS AÐVENTISTA:
Laugardagur:
Aðventkirkjan, Ingólfsstræti 19, Reykja-
vík. Biblíufræðsla kl. 10. Guðsþjónusta
kl. 11. Ræðumaður: Anne-May Wollan.
Loftsalurinn, Hólshrauni 3, Hafnarfirði:
Guðsþjónusta/biblíufræðsla kl. 11.
Ræðumaður: Björgvin Snorrason. Safn-
aðarheimili aðventista, Gagnheiði 40,
Selfossi: Biblíufræðsla kl. 10:00. Safn-
aðarheimili aðventista, Blikabraut 2,
Keflavík: Biblíufræðsla kl. 10.15. Guð-
þjónusta kl. 11. Ræðumaður: Stefán
Rafn Stefánsson. Aðventkirkjan, Breka-
stíg 17, Vestmannaeyjum: Biblíufræðsla
kl. 10. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður
Halldór Engilbertsson.
LANDAKIRKJA í Vestmannaeyjum: Kl.
11: Sunnudagaskóli. ,,Jesús kallar læri-
sveina sína!“ Við heyrum sögu úr Skýja-
borg, fáum nýjan límmiða og andlits-
myndir af þátttakendum
sunnudagaskólans verða sjálfsagt komn-
ar á skýið okkar. Barnafræðarar og prest-
ar. Kl. 11 Kirkjuprakkarar. Fyrsti fundur í
prakkarastarfinu. Hann hefst í sunnu-
dagaskólanum en síðan verður gengið til
áframhaldandi dagskrár í nýrri stofu Safn-
aðarheimilisins undir leiðsögn Völu og
Birkis. Kl. 12.30: TTT-starf í kirkjunni og
safnaðarheimilinu. Gengið inn um kirkju-
dyr og niður í fræðslustofu safnaðarheim-
ilis. Vala og Birkir halda utan um dag-
skrána.
Kl. 13: Guðsþjónusta í Landakirkju, at-
hugið óvenjulegan messutíma. Ferming-
arbörn og foreldrar boðuð sérstaklega til
þátttöku. Fyrsti fermingarfundur vetrarins
strax á eftir guðsþjónustu. Kór Landa-
kirkju syngur undir stjórn Guðmundar H.
Guðjónssonar, báðir prestar, sr. Kristján
og sr. Þorvaldur, þjóna fyrir altari. Þess
má geta að guðsþjónusta næsta sunnu-
dags, og komandi sunnudaga, verður kl.
14.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Fjöl-
skylduhátíð sunnudag kl. 11. Hljómsveit
leiðtoga leikur undir söng. Barnakór kirkj-
unnar syngur, stjórnandi er Helga Lofts-
dóttir. Sr. Þórhallur fer með alla fjölskyld-
una í kirkjuleikinn. Eftir guðsþjónustuna
er boðið upp á góðgæti í safnaðarheim-
ilinu. Allir velkomnir.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði: Sunnu-
dagaskólinn kl. 11. Nú hefst barnastarf
vetrarins með nýju og spennandi efni. Ver-
ið með frá upphafi. Allir sem mæta á
sunnudaginn fá endurskinsmerki.
Guðsþjónusta kl. 13. Kór Víðistaðasókn-
ar flytur létta söngva undir stjórn Úlriks
Ólasonar.
FRÍKIRKJAN í Hafnarfirði: Barna-
samkoma kl. 11. Kvöldvaka við kertaljós
kl. 20. Kór og hljómsveit Fríkirkjunnar
leiða tónlist og söng. Kvöldvakan hefur að
þessu sinni alþjóðlegt yfirbragð og verða
sungin lög frá ólíkum löndum.
ÁSTJARNARKIRKJA í samkomusal
Hauka, Ásvöllum: Barnastarf kl. 11–12,
kaffi, djús og ávextir eftir helgihaldið.
KÁLFATJARNARKIRKJA: Messa kl. 14.
Léttar kaffiveitingar eftir helgihaldið.
VÍDALÍNSKIRKJA: Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 11. Rannveig Káradóttir og Hjör-
dís Rós Jónsdóttir tala til unga fólksins í
orði og söng. Jóhann Baldvinsson leikur
undir á orgel og gítar. Sr. Birgir Ásgeirsson
þjónar. Allir velkomnir.
GARÐAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 14.
Organisti er Jóhann Baldvinsson. Kór Ví-
dalínskirkju leiðir söng. Sr. Birgir Ásgeirs-
son þjónar. Allir velkomnir. Prestarnir.
GRINDAVÍKURKIRKJA: Kvöldguðsþjón-
usta sunnudag kl. 20. Væntanleg ferm-
ingarbörn og foreldrar sérstaklega hvött
til að mæta. Stuttur fundur um ferming-
arundirbúninginn strax eftir athöfn. Kór og
hljómsveit Grindavíkurkirkju. Stjórnandi
Örn Falkner.
ÞORLÁKSKIRKJA: Hátíðarmessa sunnu-
dag kl. 14. Sr. Sigurður Sigurðarson
vígslubiskup messar ásamt sr. Kristni
Ágústi Friðfinnssyni. Jónas Ingimund-
arson spilar í messunni ásamt Julian
Edwards organista. Kirkjukórinn syngur.
Kaffi og konfekt eftir messu. Á undan
messu kl. 13.30 mun sr. Sigurður Sigurð-
arson flytja fyrirlestur um Þorlák biskup
helga.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Fjölskylduguðsþjón-
usta og sunnudagaskóli kl. 11 árdegis.
Prestur sr. Sigfús Baldvin Ingvason. Lauf-
ey Gísladóttir, umsjónarmaður sunnu-
dagaskólans. Arnhildur H. Arnbjörnsdóttir,
Sigríður Helga Karlsdóttir, Sara Valbergs-
dóttir. Kór Keflavíkurkirkju leiðir söng.
Organisti Hákon Leifsson. Meðhjálpari
Leifur Ísaksson. Kaffi og djús eftir
messu.
HVALSNESKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.
Fermingarbörn og foreldrar þeirra eru sér-
staklega hvött til þess að koma. Kór
Hvalsneskirkju leiðir söng. Organisti
Steinar Guðmundsson. Prestur sr. Lilja
Kristín Þorsteinsdóttir.
ÚTSKÁLAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 14.
Fermingarbörn og foreldrar þeirra eru sér-
staklega hvött til þess að koma. Kór Út-
skálakirkju leiðir söng. Organisti Steinar
Guðmundsson. Prestur sr. Lilja Kristín
Þorsteinsdóttir.
BORGARPRESTAKALL: Borgarneskirkja.
Messa kl. 14. Akrakirkja. Messa kl. 16.
GLERÁRKIRKJA: Kvöldmessa kl. 20.30.
AKUREYRARKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
14. Séra Jóna Lísa Þorsteinsdóttir kveður
söfnuðinn. Kór Akureyrarkirkju og Stúlkna-
kór Akureyrarkirkju syngja. Stjórnendur:
Björn Steinar Sólbergsson og Eyþór Ingi
Jónsson. Kaffiveitingar í safnaðarsal á
eftir. Æðruleysismessa kl. 20.30. Séra
Jóna Lísa Þorsteinsdóttir. Arna Valsdóttir,
Eiríkur Bóasson og Stefán Ingólfsson
leiða almennan söng og annast undirleik.
Kaffi í safnaðarsal eftir messu. Allir vel-
komnir.
HJÁLPRÆÐISHERINN á Akureyri: Fjöl-
skyldusamkoma sunnudag kl. 11. Allir
velkomnir. Allt starf byrjar aftur 12. sept.
EGILSSTAÐAKIRKJA: Messa kl. 14 –
sameiginleg fyrir Héraðið allt. Gunnar
Steingrímsson guðfræðinemi predikar og
þátttakendur úr fermingarbúðum við Eiða-
vatn taka virkan þátt. 12. sept. (mánud.):
Kyrrðarstund kl. 18. Sóknarprestur.
VÍKURKIKJA í Mýrdal: Guðsþjónusta
sunnudag kl. 11. Kristín Waage leikur á
orgelið og stjórnar kór kirkjunnar. Gaman
væri að sjá sem flesta í kirkju þegar
hauststarfið er að hefjast. Sóknarprestur.
HRUNAPRESTAKALL: Messa í Hruna
sunnudag kl. 11. Þema verður upp-
skeran. Á þessu mesta framleiðslusvæði
grænmetis á landinu er vel við hæfi að
koma saman í þakkargjörð og bæn undir
lok uppskerutímans. Eftir messu munu
garðyrkjubændur bjóða fólki að bragða á
afurðum sínum.
STÓRA-NÚPSKIRKJA: Guðsþjónusta
sunnudag kl. 11. Fermingarbörnum boðið
til að taka á móti biblíum frá kirkjunni.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA: Messa sunnu-
dag kl. 11. Sóknarprestur.
TORFASTAÐAKIRKJA: Guðsþjónusta
sunnudag kl. 14. Sóknarprestur.
SELFOSSKIRKJA: Messa kl. 11. Prófast-
ur Árnesprófastsdæmis, séra Úlfar Guð-
mundsson, sóknarprestur á Eyrarbakka,
predikar og þjónar fyrir altari í sumarleyfi
sóknarprestsins á Selfossi, sem stendur
til 14. september næstkomandi. Kirkju-
kór Selfoss syngur. Organisti: Glúmur
Gylfason. Léttur hádegisverður í safn-
aðarheimilinu eftir messu. Barna-
samkoma sama dag kl. 11.15 í lofti safn-
aðarheimilisins. Evangelísk-lúthersk
morguntíð sungin þriðjudaga til föstudaga
kl. 10 ásamt fyrirbæn. Einnig tekið við fyr-
irbænarefnum. Eftir bænagjörðina er
drukkinn kaffisopi. Miðvikudaginn 14.
september er foreldramorgunn Selfoss-
kirkju kl. 11. Opið hús, spjall og hressing.
VILLINGAHOLTSKIRKJA: Kvöldmessa
sunnudag kl. 21. Organisti Ingi Heiðmar
Jónsson. Kristinn Á. Friðfinnsson.
STOKKSEYRARKIRKJA: Guðsþjónusta
sunnudag kl. 14.
HVERAGERÐISKIRKJA: Orgelstund kl.
20. Jörg Sondermann leikur orgelverk
meistaranna. Ritningarlestur, bæn og
hugleiðing.
Heilsustofnun NLFÍ: Guðsþjónusta kl. 11.
Organisti Ester Ólafsdóttir.
Guðspjall dagsins:
Sonur ekkjunnar í Nain.
(Lúk. 7).
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Dalvíkurkirkja, Eyjafjarðarsýslu.