Morgunblaðið - 10.09.2005, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 2005 41
DAGBÓK
Léleg þjónusta Símans
ÉG vil taka undir það sem Víkverji
skrifaði í Morgunblaðinu mánudag-
inn 3. september um lélega þjónustu
í þjónustuveri Símans. Ég er á átt-
ræðisaldri og hef tileinkað mér tölv-
una á heimilinu, bæði til gagns og
gamans. En við lentum í vanda-
málum með tölvuna okkar og ætl-
uðum að leita aðstoðar í þjón-
ustuveri Símans. Það var ekki
auðvelt mál og máttum við bíða í
langri röð í símanum eftir að fá af-
greiðslu og þegar svo loksins náðist
samband var manni vísað fram og til
baka. Loksins var okkur boðið að
hringt yrði í okkur og var það á
mánudegi í síðustu viku. Það hefur
ekki enn verið hringt rúmri viku síð-
ar.
Ég vil taka það fram að við erum
búin að fara með tölvuna á verkstæði
og þar var okkur sagt að ekkert væri
að henni, þetta væri tengingar-
vandamál hjá Símanum. Þessi síma-
þjónusta sem boðið er upp á er verri
en engin og finnst mér illa farið með
okkur sem erum viðskiptamenn
Símans.
Eins vil ég þakka Morgunblaðinu
fyrir að birta kvartanir neytenda,
það er svo sannarlega þörf á því.
Halldóra Kristjánsdóttir.
Lægstu laun og
bætur 150 þús.
ÉG var að lesa í Blaðinu 6. sept. sl.
grein eftir Björgvin Guðmundsson
viðskiptafræðing um málefni ör-
yrkja og eldri borgara. Þar talar
hann m.a. um að skattleysismörkin
séu 71.296 kr. í ár en ættu að vera
114.015 kr. ef þau hefðu fylgt launa-
vísitölu. Það yrði aðeins auðveldara
fyrir öryrkja og aldraða að skrimta
af bótum sínum ef skattleysismörkin
yrðu hækkuð. Eftir að hafa séð
tekjublað Frjálsrar verslunar í sum-
ar þar sem laun eru allt frá 3–400
þús. upp í milljónir á mánuði sér
maður best að það verður að brúa
hið mikla bil sem er orðið í launa-
málum hér því fólk sem vinnur lág-
launastörfin ber varla meira úr být-
um en bótaþegar. Lægstu laun ættu
að hækka í 150 þús. á mánuði, það er
mjög sanngjörn krafa sem ætti að
setja á oddinn fyrir næstu kosn-
ingar.
Sigrún Reynisdóttir.
Skinntrefill í óskilum
SKINNTREFILL fannst í Laugar
dalnum um verslunarmannahelg-
ina. Upplýsingar í síma 552 5259.
Armbandsúr í óskilum
ARMBANDSÚR fannst við bíla-
slóðina upp að Heklu í síðustu viku
júlí. Upplýsingar í síma 581 4681.
Oliver er týndur
OLIVER,
sem er
rauður og
hvítur,
týndist við
Dýraspít-
alann í
Víðidal.
Hans er
sárt sakn-
að. Þeir sem hafa orðið hans varir
vinsamlega hafið samband við Sig-
rúnu í síma 846 1915. Fundarlaun.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Haldin verður dagana 18. til 20. sept-ember norræn ráðstefna um fram-kvæmda-, bygginga- og skipulags-mál undir yfirskriftinni
„Heilsulandið Ísland –Hið manngerða um-
hverfi“.
Einn af skipuleggjendum ráðstefnunnar er
Þorvaldur S. Þorvaldsson borgararkitekt:
„Ráðstefnan er haldin á vegum NBD, Norræns
byggingardags, samtaka sem stofnuð voru 1927
í Stokkhólmi og eru elstu starfandi sam-
norrænu samtökin í dag.“ Aðild að NBD eiga
fagfélög og fyrirtæki tengd byggingariðnaði og
skipulagi, samtök, sveitarfélög og stofnanir.
Ráðstefnur NBD voru í upphafi haldnar
þriðja hvert ár og síðar annað hvert ár og voru
Íslendingar aðilar frá upphafi. Fyrsta NBD
ráðstefnan var hins vegar ekki haldin hér á
landi fyrr en ’68 og næst ’83, ’99 og loks í ár:
„Okkur þykir vera svo mikið að gerast í skipu-
lagsmálum á Íslandi almennt, ekki síst hér í
höfuðborginni og eins í orkumálum. Því langaði
okkur að halda ráðstefnu sem fjallar um svona
breitt svið: tekur á manngerða umhverfinu í
heild sinni,“ segir Þorvaldur. „Við viljum gjarna
með þessari ráðstefnu sýna vissa forystu í um-
ræðunni um hvað hið manngerða umhverfi er
þýðingarmikið fyrir okkur. Við gerum okkur
ljóst að við, og mannkynið allt, lifum og munum
lifa meira og minna í manngerðu umhverfi. En
umhverfið hefur áhrif á okkur, bæði líkamlega
og andlega nauðsynlegt að menn geri sér grein
fyrir mikilvægi þess.“
Margt góðra gesta verður á ráðstefnunni en
alls taka 14 fyrirlesarar til máls: „Meðal ann-
arra halda erindi Paul Simons og Kaarin Taip-
ale: „Paul er breskur arkitekt sem sá um end-
urgerð og uppbyggingu á heilsuborginni Bath í
Suður-Englandi. Hann segir okkur frá þeirri
reynslu og hvaða möguleika hann sjái hjá Ís-
landi í þessu sambandi. Kaarin er finnskur
arkitekt og háskólakennari og hefur fjallað
mikið um áhrif manngerðs umhverfis á fólk,
m.a. á vettvangi Sameinuðu þjóðanna.“
Einnig má nefna í hópi fyrirlesara Magnús
Jóhannesson ráðuneytisstjóra í umhverfisráðu-
neytinu, Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur alþing-
ismann og Guðna Jóhannesson sem fengist hef-
ur sérstaklega við rannsóknir á áhrifum
byggingarefnis á heilsu. Eru þá aðeins nokkrir
taldir úr stórum hópi vandaðra fyrirlesara.
Ráðstefnan fer fram á Nordica Hótel en
verður með því sniði að fyrri hluta dags verða
fyrirlestrar en seinni hluta dagsins hægt að
velja um kynnisferðir tengdar efni ráðstefn-
unnar. Nánari upplýsingar er að finna á heima-
síðunni www.nbd.is en sérstök athygli er vakin
á að háskólanemum býðst ríflegur afsláttur af
þátttökugjaldi.
Ráðstefna | Norrænn byggingardagur í Reykjavík 18. til 20 september
Hugað að manngerðu umhverfi
Þorvaldur S. Þor-
valdsson fæddist 21.
mars 1933 í Reykjavík.
Hann lauk arkitekta-
námi frá Konunglega
listaháskólanum í
Kaupmannahöfn 1962.
Hann hefur fengist við
margskonar arkitekta-
störf og rak stofu með
Mannfreð Vilhjálmssyni
til ársins 1984. Þor-
valdur var skipulagsstjóri Reykjavíkurborgar
1984–1999 og skipaður borgararkitekt 2002.
Þorvaldur er kvæntur Steinunni Jónsdóttur
og eiga þau þrjú börn. Jón Þór, Herdísi og Þor-
vald Bjarna.
KVARTETT Sigurðar Flosasonar
leikur á sex tónleikum víðsvegar
um landið á næstunni. Tónleikarn-
ir eru síðbúnir útgáfutónleikar
vegna geisladisksins „Leiðin heim“
en hann kom út í hér á landi í maí
síðastliðnum og í Japan í júlí. Ekki
hefur unnist tími til útgáfutónleika
fyrr en nú, en þess má geta að
kvartettinn lék á heimssýningunni
í Japan og þrennum vel heppn-
uðum tónleikum í Tókýó í sumar.
„Leiðin heim“ hefur fengið góð-
ar viðtökur. Vernharður Linnet,
jazzgagnrýnandi Morgunblaðsins,
kallaði diskinn m.a. „meistara-
verk!“
Kvartettinn skipa, auk Sigurðar
sem leikur á saxófón, þeir Eyþór
Gunnarsson á píanó, Valdimar K.
Sigurjónsson á kontrabassa og
Pétur Östlund á trommur.
Tónleikastaðir eru eftirfarandi:
Neskaupstaður, sunnudag 11.9. –
Blúskjallarinn kl. 20.30; Reykjavík,
mánudag 12.9. – Þjóðleikhúskjall-
arinn kl. 20.30; Ísafjörður, þriðju-
dag 13.9. – Hamrar kl. 20; Garða-
bær, miðvikudag 14.9. – Salur
Tónlistarskólans í Garðabæ kl.
20.30; Eyjafjörður, fimmtudag
15.9. – Laugarborg kl. 20.30;
Reykjanesbær, föstudag 16.9. –
Listasal, Duushúsum kl. 20.30.
Morgunblaðið/ÞÖK
Kvartett
Sigurðar
Flosasonar
á faralds-
fæti
SÝNINGIN Stefnumót við safnara
II var opnuð í Gerðubergi í apríl sl.
og stendur til 11. september. Fjöl-
breytt dagskrá hefur verið frá opn-
un og nú síðustu sýningarhelgi
verður endað með fjölbreyttri dag-
skrá báða dagana.
Í dag kl. 13–16 verður haldið
málþing í Reykjavíkurakademíunni
undir yfirskriftinni Söfn og safn-
arar.
Í Hoffmannsgalleríi og Mynd-
listaskóla Reykjavíkur í dag kl.
16.00 verður opnuð sýning í
tengslum við söfnun og safnara.
Verkin á sýningunni eru af ýmsum
toga en allir listamennirnir voru
valdir með því hugarfari að verk
þeirra kæmu á einhvern hátt inn á
safnaraþemað. Sýnendur eru: Árni
Ragnar Georgsson, Birgir Andr-
ésson, Einar Garibaldi, Grétar
Reynisson, Guðrún Gunnarsdóttir,
Guðrún Öyahals, Lóa Hlín Hjálm-
týsdóttir, Magnús Pálsson, Olga
Bergmann, Ósk Vilhjálmsdóttir,
Ralf Weißleder, Rúrí, Sjafnar
Gunnarsson, Sólveig Aðalsteins-
dóttir, Tómas Ponzi og Willie Bell
Á morgun kl. 14–17 verður opnað
Markaðstorg safnarans í Gerðu-
bergi. Þar verður hægt að selja,
kaupa og skipta og er skráning í
Gerðubergi í síma 5757700 eða
info@gerduberg.is.
Á morgun kl. 15–16 flytur Ólöf
Gerður Sigfúsdóttir fyrirlesturinn
Ævi og örlög safngripa.
Safnaradagskrá á vegum Gerðubergs
TÓNVERK eftir Hauk Tómasson
verða leikin á tónlistarhátíð til-
einkaðri nýrri norrænni tónlist,
sem hefst í St. Pétursborg í Rúss-
landi í dag og stendur út næstu
viku. Flytjendur á hátíðinni
koma jafnt frá Rússlandi sem
Norðurlöndum.
Haukur Tómasson hlaut Tón-
listarverðlaun Norðurlandaráðs
árið 2004 fyrir óperuna Fjórði
söngur Guð-
rúnar.
Á heimasíðu
dagblaðsins St.
Petersburg
Times er sagt
að hann sé einn
hinna mest lof-
andi tónskálda
sem sæki hátíð-
ina heim í ár.
Verk Hauks í St. Pétursborg
Haukur
Tómasson
Calsíum og
magnesíum
FRÁ
A
ll
ta
f
ó
d
ýr
ir
Nr. 1 í Ameríku
APÓTEK OG HEILSUBÚÐIR
Góð heilsa - Gulli betri
fyrir bein, tennur
og liðamót
H
á
g
æ
ð
a
fra
m
le
ið
sla
Þetta er Invita
Sígildur glæsileiki með dökkri eik
Athena dökk eik er létt og glæsilegt eldhús frá Invita
þar sem hönnun og nýting mætast skemmtilega
í sígildri dökkri eik í bland við ný og spennandi efni.
Á heimasíðu okkar www.eldaskalinn.is
sýnum við enn fleiri skemmtilegar lausnir.
Eldaskálinn | Brautarholti 3 | 105 Reykjavík
sími: 562 1420 | eldaskalinn@eldaskalinn.is | www.invita.com
Opið hús
laugardaginn 10/9 kl. 11–16
og sunnudaginn 11/9 kl. 11–16