Morgunblaðið - 10.09.2005, Page 42
42 LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 vandræðaleg, 8
þutum, 9 sjaldgæf, 10
bors, 11 verkfærin, 13
mannsnafn, 15 fjárrekst-
urs, 18 skriðdýrið, 21 álít,
22 fangbrögð, 23 afkom-
endur, 24 vaxtarlag.
Lóðrétt | 2 ljúf, 3 stúlkan,
4 hegna, 5 gosefnið, 6 liðið
hjá, 7 innyfli, 12 greinir,
14 væn, 15 fokka, 16 heil-
brigð, 17 bikar, 18 hafði
lifað lengur, 19 horfðu, 20
fæða.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 áræði, 4 himna, 7 óskin, 8 gæðin, 9 afl, 11 nýra, 13
hrút, 14 undir, 15 þrær, 17 ábót, 20 hin, 22 gella, 23 ennið,
24 regns, 25 ausum.
Lóðrétt: 1 ásókn, 2 æskir, 3 iðna, 4 hagl, 5 múður, 6 afnot,
10 fæddi, 12 aur, 13 hrá, 15 þægur, 16 ærleg, 18 bónus, 19
tíðum, 20 haus, 21 nema.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Sýndu þolinmæði í samskiptum við
náungann í dag. Þú þarft að hafa fyrir
því að fá vilja þínum framgengt í dag.
Þannig er þetta bara stundum.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Nautið er komið út á ystu nöf vegna
útgjalda í félagslífinu eða vegna óska-
lista smáfólksins. Peningaflæðið er
ekki það gott í dag. Sýndu ástvinum
þolinmæði.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þeir sem valdið hafa virðast eitthvað
viðkvæmir í samskiptum í dag, ekki
síst foreldrar. Farðu varlega að fólki
og ekki búast við of miklu af neinum.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Áhyggjur eru eins og ruggustóll, hann
hreyfist en kemst ekkert áleiðis.
Hafðu það í huga. Láttu sjálfs-
gagnrýni og kvíða ekki ná tökum á
þér.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Samræður við vini og í hópum ganga
ekki snurðulaust fyrir sig. Fólk er þér
einfaldlega ekki sammála. Af hverju
ekki að vera bara ósammála?
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Samskipti við aðra eru eilítið stirð
þessa dagana. Staðan verður önnur í
kvöld. Hugsanlega verður meyjan í
sviðsljósinu stutta stund.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Vogin er forvitnin uppmáluð í dag.
Hún finnur til eirðarleysis og lætur
sér leiðast auðveldlega. Heimsóknir í
bókabúðir, bókasöfn og spjall við fólk
af fjarlægum slóðum kemur henni í
gott skap aftur.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdrekinn er ekki par ánægður
með skiptingu á einhverju ótilgreindu
í dag. Hann harmar sinn hlut. Eða þá
að einhver er óhress með það hvernig
drekinn deilir einhverju. Það er líka
möguleiki.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Yfirmaðurinn eða einhver annar
stjórnandi verður allt í einu aðlaðandi í
augum bogmannsins. Kannski verður
hann skotinn í viðkomandi, bara upp
úr þurru.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Óvænt tækifæri til ferðalaga eða auk-
innar þjálfunar á einhverju sviði eru
hugsanleg. Ef þau birtast er um að
gera að grípa þau. Þannig víkkar sjón-
deildarhringurinn.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberanum hlotnast hugsanlega
hlunnindi af einhverju tagi í dag. Ekki
er þar með sagt að dragi úr önuglynd-
inu. Farðu með ströndum. Og láttu
hendur standa framúr ermum.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Samskipti við maka og vini eru nokkuð
stirð um þessar mundir. Fólk er eitt-
hvað svo ófyrirsjáanlegt núna.
Kannski gerir það eða segir hluti sem
þér líka ekki. Lætur þú slá þig út af
laginu?
Stjörnuspá
Frances Drake
Meyja
Afmælisbarn dagsins:
Margir sem fæddir eru í dag ákveða á
unga aldri hvað þeir ætla að leggja fyrir
sig í framtíðinni. Þú berð virðingu fyrir
fortíðinni og ert íhaldssemin uppmáluð út
á við, þótt persóna þín sé litrík í einkalíf-
inu. Ytra byrði þitt er fágað og virðulegt.
Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár
af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Sudoku
© Puzzles by Pappocom
Lausn síðustu gátu
Þrautin felst í því
að fylla út í reit-
ina þannig að í
hverjum 3x3-reit
birtist tölurnar
1-9. Það verður
að gerast þannig
að hver níu reita
lína bæði lárétt
og lóðrétt birti
einnig tölurnar
1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu
í röðinni.
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
GALLERÍ Fold gengst fyrir listmunauppboði á
Hótel Sögu á sunnudagskvöldið og hefst það kl.
19.00.
Boðin verða upp 130 verk af ýmsum toga. Meðal
verka eru skúlptúrar eftir Sigurjón Ólafsson og
Sæmund Valdimarsson svo og myndverk eftir
Gunnlaug Blöndal, Jón Engilberts, Ásgrím Jóns-
son, Þorvald Skúlason, Jóhannes S. Kjarval,
Sigurlaugu Jónasdóttur, Jóhann Briem og Þórarin
B. Þorláksson. Þá verður boðið upp á afar sjald-
gæft myndskreytt strandmælingakort frá 1821,
en aðeins er vitað um 2 önnur slík kort.
Verkin eru til sýnis í Galleríi Fold við Rauðar-
árstíg í dag, laugardag, frá 11–17 og sunnudag frá
12–17.
Einnig er hægt er að skoða uppboðsskrána á
heimasíðu Gallerís Foldar en slóðin er www.mynd-
list.is.
Á myndinni má sjá verkið Stúf eftir Sæmund
Valdimarsson.
Hlutavelta | Þessir duglegu strákar
söfnuðu 7.477 krónum til styrkar
Rauða krossi Íslands í Hamraborg á
dögunum. Þeir eru í efri röð frá vinstri:
Jökull Ívarsson, Lúðvík Marínó Karls-
son og Daníel Geir Steindórsson. Í
neðri röð frá vinstri: Kristinn Jóel
Magnússon, Ólafur Þorri Árnason og
Steindór Karl Eyþórsson. Á myndina
vantar Guðmund Hauksson og Kristó-
fer Hólmgeirsson.
Tónlist
Beggabar | Viðar Jónsson leikur og syngur í
kvöld kl. 22–3 á Beggabar, Hraunbergi 4.
Frítt inn.
Iðnó | Smekkleysa og Hr. Örlygur kynna
Orðið tónlist í Iðnó. Fram koma, Dalek,
Ghostdigital, Forgotten Lores, Skakkam-
anage, Donna Mess. Húsið opnað kl. 21. Verð
1.200 kr.
Pravda | Conrad Electro heldur tónleika í
kvöld. Húsið opnað kl. 21, með hljómsveitinni
leikur gestur frá Svíþjóð, klarinettuleikarinn
Maya. Einnig stíga á svið Sigurður Guð-
mundsson og Micke Svensson.
Selfosskirkja | Tónleikar kl. 17 í anda Sig-
urveigar Hjaltested og Stefáns Íslandi. Af-
komendur söngvaranna, þau Ingibjörg Aldís
Ólafsdóttir, sópransöngkona og Stefán Helgi
Stefánsson, tenór, flytja innlenda og erlenda
tónlist og endurvekja gamla góða tíma.
Undirleikari: Ólafur Vignir Albertsson. Kynn-
ir: Ólafur B. Ólafsson.
Sinfóníuhljómsveit Íslands | Rumon
Gamba stjórnar. Víkingur Heiðar Ólafsson
einleikari. Gershwin, Sjostakovitsj, Ravel og
Bernstein.
Sjallinn, Akureyri | Papar í kvöld. Miðaverð í
forsölu kr. 1.800 til kl. 1, eftir það 200 kr.
Skálholtskirkja | Svissneskur sellóleikari
Albert Roman spilar ásamt Douglasi Brotc-
hie, organista Háteigskirkju. Efnisskráin
blandar saman þekkt og óþekkt verk eftir
Johann Sebastian Bach, Olivier Messiaen
og minna þekkt tónskáld á borð við Camillo
Schumann og Joseph Rheinberger.
Smekkleysa Plötubúð – Humar eða frægð
| Laptop-rokksveitin Cotton PlúsEinn
skemmtir gestum og gangandi.
Stúdentakjallarinn | Hljómsveitin Trabant
með tónleika kl. 23. Húsið opnað kl. 22.
Ýmir | Dagana 9.–12 sept. kl. 13–18 verður
haldinn Masterclass fyrir söngvara og söng-
nemendur í Ými, tónlistarhúsinu við Skóg-
arhlíð. Kennari verður Paul Farrington. Auk
þess gefst starfandi söngvurum, söngkenn-
urum og lengra komnum nemendum kostar
á einkatíma hjá honum. Námskeiðið verður
opið áheyrendum.
Myndlist
Artótek Grófarhúsi | Ingimar Waage mynd-
listarmaður sýnir olíumálverk á 1. hæð Gróf-
arhúss, Tryggvagötu 15. Sýningin er liður í
að kynna verk þeirra listamanna sem eiga
listaverk í Artóteki – Listhlöðu í Borg-
arbókasafni. http://www.artotek.is Til 25.
sept.
Bananananas | Opnum í dag kl. 17 sýningu á
verkum Þuríðar Helgu Kristjánsdóttur og
Tinnu Ævarsdóttur. Sýningin stendur til 24.
sept.
Café Karólína | Arnar Tryggvason. Húsin í
bænum. Til. 30. september.
Eden, Hveragerði | Sigurbjörn Eldon Loga-
son sýnir til 12. sept.
Gallerí BOX | Darri Lorenzen. Stað sett.
Hljóðverk, ljósmyndir og teikning. Til 17.
sept. Opið fim. og lau. 14 til 17.
Gallerí Gyllinhæð | Sýningin Snæviþakið
Svín. Sýning nemenda LHÍ.
Gallerí Sævars Karls | Sýningu Sólveigar
Hólmarsdóttur hefur verið framlengt til 14.
sept.
Grafíksafn Íslands | Margrét Guðmunds-
dóttir til 11. sept. Fim.–sun. frá 14 til 18.
Hafnarborg | Eiríkur Smith til 26. sept-
ember.
Hrafnista Hafnarfirði | Sesselja Halldórs-
dóttir sýnir í Menningarsal málverk og út-
saum til 4. okt.
Iða | Guðrún Benedikta Elíasdóttir. Und-
irliggjandi.
Kaffi Sólon | Víðir Ingólfur Þrastarson. Olíu-
málverk á striga. Til 24. sept.
Listasafn ASÍ | Hulda Stefánsdóttir og
Kristín Reynisdóttir. Til 11. sept.
Listasafnið á Akureyri | Jón Laxdal til 23.
október.
Listasafn Íslands | Íslensk myndlist 1945–
1960 Frá abstrakt til raunsæis.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Meistari
Kjarval 120 ára. Afmælissýning úr einka-
safni Ingibjargar Guðmundsdóttur og Þor-
valdar Guðmundssonar. Til 2. október.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn |
Maðurinn og efnið. Sýning á úrvali verka úr
safneign. Til 2006.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir | Úr-
val verka frá 20. öld til 25. september.
Menningarmiðstöðin Gerðuberg | Stefnu-
mót við safnara II. Sýningin opnuð að nýju
og stendur til 11. sept. Sýning Lóu Guðjóns-
dóttur í Boganum á vatnslita- og olíuverkum
stendur til 11. sept. Ókeypis aðgangur. Opið
virka daga frá kl. 11–17. Helgar frá kl. 13–16.
Norræna húsið | Sýning 17 danskra lista-
kvenna á veggteppum í anddyri.
Skaftfell | Listamaðurinn Carl Boutard –
„Hills and drawings“ í sýningarsal Skaftfells.
Listamaðurinn Dodda Maggý með sýningu
sína „verk 19“ á vesturvegg Skaftfells. Til 18.
sept.
Skriðuklaustur | Helga Erlendsdóttir sýnir
13 olíumálverk. Opið alla daga.
Suðsuðvestur | Gjörningaklúbburinn/ The
Icelandic Love Corporation. Til. 25. sept.
Opið fim. og fös. 16–18 og helgar 14–17.
Þjóðminjasafn Íslands | Sýningin er af-
rakstur rannsókna Þóru Kristjánsdóttur á
listgripum Þjóðminjasafnsins. Markmið sýn-
ingarinnar er að kynna til sögunnar lista-
menn frá 16., 17. og 18. öld sem hægt er að
eigna ákveðin listaverk í eigu Þjóðminja-
safns Íslands. Í kjölfarið kom einnig út bók
eftir Þóru um sama efni.
Dans
Dansskóli Jóns Péturs og Köru | Boðið er
upp á námskeið í barnadönsum, freestyle,
samkvæmisdönsum, tjútti, mambó og salsa.
Einnig eru einstaklingsnámskeið fyrir full-
orðna í s.–amerískum dönsum. Innritun kl.
12–19 í síma 553 6645 eða á heimasíðu
dansskólans www.dansskoli.is. Kennsla
hefst 12. sept.
Söfn
Bókasafn Kópavogs | 11. september verk-
efnið er samvinna bókavarða um heim allan
sem hvetur til kynningar á frelsi og lýðræði.
Sjá slóðina http://www.theseptemberproj-
ect.org Safnið minnist atburðanna með
kvikmyndasýningum 7.–30. sept. o.fl. Sjá
heimas. bókasafnsins http://www.bokasafn-
kopavogs.is.
Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Gljúfra-
steinn er opinn kl. 10–17 alla daga nema
mánudaga í vetur. Hljóðleiðsögn um húsið,
margmiðlunarsýning og gönguleiðir. Nánar
á www.gljufrasteinn.is.
Þjóðmenningarhúsið | Handritin – saga
handrita og hlutverk um aldir, Þjóðminja-
safnið – svona var það, Fyrirheitna landið –
fyrstu Vestur-Íslendingarnir, Bókminjasafn.
Auk þess veitingastofa með hádegis- og
kaffimatseðli og lítil en áhugaverð safnbúð.
Þjóðmenningarhúsið | JAM–hópurinn –
haustsýning. Sýnt íslenskt bókband gert
með gamla laginu eins og það var unnið á 17.
og 18. öld. Til 12. okt.
Þjóðminjasafn Íslands | Þjóðminjasafn Ís-
lands varðveitir minjar sem veita okkur inn-
sýn í menningarsögu okkar. Grunnsýning
safnsins er hugsuð sem ferð í gegnum tím-
ann. Opið kl. 10–17 alla daga.
Skemmtanir
Cafe Catalina | Addi M. spilar í kvöld.
Klúbburinn við Gullinbrú | Hljómsveitin Six-
ties í kvöld.
Kringlukráin | Geirmundur Valtýsson og
hljómsveit skemmta gestum í kvöld kl. 23.
Veitingahús
Café Ópera | Hljómsveitin Stefnumót með
André Bachmann í kvöld kl. 21–23. Róm-
antísk stemning.
Fundir
Lækjarbrekka, veitingahús | Tryggvi V. Lín-
dal þjóðfélagsfræðingur mun halda erindið
„Grísk goðafræði í kristnum nútímaljóðum“
á morgun kl. 14.30. Síðan munu hann og
aðrir lesa úr ljóðum sínum. Allir velkomnir.
Pólýfónkórinn | Pólýfónkórinn heldur vina-
fund 13. sept. kl. 20–22, á Grand Hótel
Reykjavík við Sigtún. Gestur er Ingólfur
Guðbrandsson. Umræður um væntanlega
menningarferð á Bach-slóðir í Þýskalandi.
Listmunauppboð
á Hótel Sögu
Brúðkaup | Í dag verða gefin saman í
hjónaband í Bústaðakirkju Helga
Björg Arnardóttir, tónlistarkennari
og Andrés Björnsson, viðskiptastjóri,
Háabergi 1, Hafnarfirði. Móðurbróðir
brúðgumans, Ólafur Skúlason, biskup,
vígir brúðhjónin.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is