Morgunblaðið - 10.09.2005, Page 48
48 LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Sýningartímar sambíóunum
BARA HRAÐI. ENGIN TAKMÖRK.
ÁLFABAKKI
HANN ER RÖNG HESTATEGUND...
EN MEÐ RÉTTU SAMBÖNDIN!
HANN ER RÖNG HESTATEGUND... EN
MEÐ RÉTTU SAMBÖNDIN!
SÝND MEÐ ENSKU TALI
S.V. / Mbl.. . / l.
S.V. / Mbl.. . / l.
HÁDEGISBÍÓ 400 KR MIÐAVERÐ Á ALLA
DÝRLEGT GRÍN OG GAMAN OG FRÁBÆR SKEMMTUN
FYRIR ALLA. DÝRIN TALA OG ÞAÐ MEÐ STÆL.
SEBRAHESTUR ER ÁKVEÐINN AÐ GERAST
VEÐHLAUPAHESTUR HVAÐ SEM TAUTAR.
Dramatísk, rómantísk og stórbrotin eðalmynd með
Óskarsverðlaunahafanum,Charlize Theron og
spænsku blómarósinni, Penelope Cruz.
Charlie and the Chocolate .. kl. 3 - 5.40 - 8 og 10.20
Strákarnir Okkar kl. 4 - 6 - 8 og 10 b.i. 14
Racing Stripes m/ensku tali kl. 3 - 5
Head in the Clouds kl. 8 og 10.30 b.i. 16
The Skeleton Key kl. 8 og 10.10 b.i. 16
Herbie Fully Loaded kl. 6
The Island kl. 9 b.i. 16
Madagascar kl. 3 m/ísl.tali
Búið ykkur undir bragðbestu skemmtun ársins.
Sat tvær vikur á toppnum í USA.
Með hinum eina sanna Johnny Depp (“Pirates of
the Caribbean”) og frá snillingnum Tim Burton
kemur súkkulaðiskemmtun ársins.
S.V. / Mbl.
langt síðan að vel heppnuð íslensk gamanmynd
kom í bíó og ættu landsmenn að fagna með því
að fjölmenna í kvikmyndahúsin
DV
NÝ GAMANMYND FRÁ LEIKSTJÓRA ÍSLENSKA
DRAUMSINS OG MAÐUR EINS OG ÉG
CHARLIE AND THE CHOCOLATE FACTORY
kl. 1.15 - 3.30 - 6 - 8.20 - 10.10
CHARLIE AND THE CHOCOLATE FACTORY
VIP kl. 1.15 - 3.30 - 6 - 8.20
STRÁKARNIR OKKAR b.i. 14 kl. 4 - 6 - 8 - 10.40
STRÁKARNIR OKKAR VIP kl. 4 - 6 - 8 - 10.40
RACING... m/ensku tali kl. 6 - 8.15 - 10.30
RACING STRIPES m/ísl.tali kl. 3.50 - 6
SKELETON KEY kl. 10.30 B.i. 16 ára.
DUKES OF HAZZARD kl. 8.15 - 10.30
HINN eini sanni Raggi Bjarna sendi frá sér
fantagóða plötu fyrir jólin síðustu; þar sem
hann sýndi það og sannaði svo um munaði að
hann væri hvergi nærri af baki dottinn, ætti
nóg inni. Karlinn er heldur ekkert að tvínóna
við hlutina heldur er hann búinn að hrista aðra
plötu til fram úr erminni, liðlega hálfu ári síð-
ar. Með hangandi hendi er ef eitthvað hressi-
legri en Vertu ekki að horfa, sumpart sumar-
legri. Upphafslagið „Í fínu formi“ gefur þar
rækilega tóninn; vel heppnuð útgáfa af hinum
enduruppgötvaða slagara Tony Christies, „(Is
this the way to) Amarillo“, sem sló í gegn í
Bretlandi fyrr á árinu þegar það var gefið út í
tengslum við fjársöfnun fyrir langveik börn.
Mesta furða að viðeigandi íslensk útgáfa
Ragnars við skemmtilegan texta Kristjáns
Hreinssonar hafi ekki orðið að meiri smelli
hérlendis.
Flest ef ekki öll lögin á plötunni ættu að
vera mönnum vel kunn. Góð og gild dægurlög
– „Undarlegt með unga menn“, „Ó blessuð
vertu sumarsól“, „Til eru fræ“, „Heyr mitt
ljúfasta lag“ –
sem Ragnar
ber auðheyri-
lega hlýhug
til. Það má
merkja á inni-
legum flutn-
ingnum. Og
röddin, þessi
óviðjafnan-
lega söng-
rödd hans,
sem er ein-
hver sú dýrmætasta í íslenskri dægurtónlist-
arsögu, virðist bara ætla að verða betri og
betri. Rétt eins og rödd annars kollega Ragn-
ars í raularageiranum („crooners“), Tonys
Bennetts. Þetta má hvað best greina í helstu
perlunni á plötunni, hinu ægifallega „Hver vill
sigla?“, sænsku þjóðlagi sem Kristján hefur
samið góðan og innihaldsríkan texta við og
Ragnar syngur hreint einstaklega vel, trega-
fullri og hlýrri röddu.
En Ragnar er ekki einasta góður söngvari,
hann hefur einnig lært það á löngum og far-
sælum ferli, hvernig velja skal rétta sam-
starfsfólkið. Það var þannig einkar vel til fund-
ið hjá honum að fá Óskar Einarsson, hinn
stórsnjalla kórstjóra, til að útsetja og stjórna
upptökum. Óskar, sem einkum starfar í
gospel-geiranum, hefur tekist að heimfæra
lífsþróttinn og gleðina í þeirri tónlist, yfir á
dægurlögin margfrægu. Útsetningar flestar
hefðbundnar (sígildar) og góðar en hefðu þó
sumar að ósekju mátt vera svolítið blæ-
brigðaríkar og ævintýralegri.
Þá hefði lagavalið að ósekju mátt vera
skipulagðara því plötuna skortir vissan heild-
arsvip, einkum sökum þess að annars ágætir
smellir á borð við „Ég fer í fríið“ í flutningi
Ragnars og Þorgeirs Ástvaldssonar, „Te-
quila“, við nýjan texta Ragnars og „Eiki
bleiki“, íslensk útgáfa af sveitasmellinum
hvimleiða „Achy, Breaky Heart“ sem Billy
Ray Cyrus gerði fyrst vinsælan, falla engan
veginn að öðrum klassameiri lögum á plötunni.
En hvað um það. Með hangandi hendi er
skemmtileg plata. Vitnisburður um að Ragnar
er enn í fínu formi.
Í fínu formi
TÓNLIST
Íslenskar plötur
Sólóplata Ragnars Bjarnasonar. Með honum leika
og syngja Óskar Einarsson, píanó, hljómborð, Jó-
hann Ásmundsson bassi, Gunnlaugur Briem, tromm-
ur og slagverk, Guðmundur Pétursson gítarar, Sig-
urður Flosason, saxófónar og klarínett, Samúel
Samúelsson básúna, Kjartan Hákonarson, trompet
og flugelhorn, Agnar Már Magnússon, Hammond-
orgel, Sigrún Hjálmtýsdóttir söngur, Þorgeir Ást-
valdsson söngur, Félagar úr Karlakórnum Fóst-
bræður kór, Hrönn Svansdóttir, Edna Varðardóttir,
Fanny K. Tryggvadóttir, Þóra Gísladóttir bakraddir.
Útsetningar og upptökustjórn Óskar Einarsson. Þór-
ir Baldursson útsetti „Til eru fræ“ og „Megi dagur
hver fegurð þér færa“. Útgefandi RB hljómplötur.
Raggi Bjarna – Með hangandi hendi
Skarphéðinn Guðmundsson