Morgunblaðið - 28.10.2005, Síða 2
2 FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
BÓKAÚTGÁFAN HÓLAR
10.
sæti
Metsölulisti Eymundsson
Skáldverk
Karin Alvtegen er ein-
stök meðal norrænna
spennusagnahöfunda
SVIK
fádæma spennandi
bók, enda tilnefnd
glæpasaga ársins
2003 í Svíþjóð
„Þetta er bók fyrir
spennufíkla“
Dagbladet
„Svik lætur hárin rísa
á höfði manna og
endirinn hefði svo
sannarlega glatt
Hitchcock gamla“
Expressen
JAFNRÉTTI Á BIFRÖST
Viðskiptaháskólinn á Bifröst ætl-
ar að styðja konur, sem brautskrást
frá skólanum, við atvinnuleit að
loknu námi. Einnig verður þess gætt
að lágmarkshlutfall hvors kyns í
deildum skólans verði 40%. Þetta er
á meðal ákvæða í nýrri jafnréttis-
áætlun skólans.
Dreifð eign í sjávarútvegi
Dreifing veiðiréttar í sjávarútvegi
er miklu meiri en svarar dreifingu
eignaraðildar í langflestum stórum
atvinnuvegum þjóðarinnar, að mati
Einars Kr. Guðfinnssonar, sjáv-
arútvegsráðherra. Hann bendir á að
tæplega 1.000 aðilar standi fyrir
rekstri í útgerð og enginn geti átt
meira en 12% kvótans.
Fyrirtæki sökuð um mútur
Um 2.200 fyrirtæki í 66 löndum
greiddu íröskum stjórnvöldum mút-
ur eða inntu af hendi aðrar ólöglegar
greiðslur í tengslum við olíu-
söluáætlun Sameinuðu þjóðanna á
árunum 1996-2003. Þetta kemur
fram í skýrslu sem óháð rannsókn-
arnefnd birti í New York í gær.
Nefndin gagnrýnir einnig yfirstjórn
Sameinuðu þjóðanna og stofnanir
þeirra fyrir að hafa ekki komið í veg
fyrir spillinguna. Talið er að ólög-
legu greiðslurnar til stjórnar Sadd-
ams Husseins hafi numið sem sam-
svarar 108 milljörðum króna.
Miers hættir við
George W. Bush Bandaríkja-
forseti skýrði frá því í gær að
Harriet Miers, sem hann hafði til-
nefnt í embætti hæstaréttardómara,
hefði óskað eftir því að nafn hennar
yrði dregið til baka. Þykir þetta áfall
fyrir forsetann sem glímir nú við
mótlæti á mörgum vígstöðvum.
Y f i r l i t
Í dag
Fréttaskýring 8 Minningar 38/44
Viðskipti 14 Skák 50
Erlent 16/17 Brids 50
Minn staður 20 Myndasögur 48
Höfuðborgin 22 Dagbók 48/51
Akureyri 22 Staður og stund 50
Suðurnes 23 Af listum 51
Landið 24 Leikhús 52
Menning 28/29 Bíó 54/57
Umræðan 32/37 Ljósvakamiðlar 58
Bréf 37 Veður 59
Forystugrein 30 Staksteinar 59
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju-
starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
HÆSTIRÉTTUR dæmdi í gær karl-
mann á þrítugsaldri í 5 mánaða fang-
elsi, þar af þrjá mánuði skilorðsbund-
ið, fyrir kynferðisbrot gegn tveimur
ungum stúlkum með því að viðhafa
kynferðislegt og klámfengið tal í fjöl-
mörgum SMS-boðum sem hann sendi
í farsíma þeirra. Maðurinn var einnig
dæmdur til að greiða hvorri stúlkn-
anna 400 þúsund krónur í bætur.
Maðurinn var sýknaður af ákæru
fyrir að hafa sært blygðunarsemi
annarrar stúlkunnar þegar þau voru
stödd í sundlaug í desember 2003 og á
heimili hans vorið 2004.
Fram kemur í dómi Héraðsdóms
Vesturlands, sem Hæstiréttur stað-
festi, að maðurinn sendi annarri
stúlkunni 1276 SMS-boð og hinni
2444 SMS-boð en hann var þá kennari
við grunnskóla stúlknanna.
Hæstiréttur hækkaði bætur, sem
manninum var gert að greiða stúlk-
unum. Segir í dóminum að lagðar hafi
verið fram nýjar skýrslur um með-
ferðarviðtöl við stúlkurnar í Barna-
húsi og sé leitt í ljós að maðurinn hafi
valdið þeim verulegum miska.
Málið dæmdu hæstaréttardómar-
arnir Markús Sigurbjörnsson, Garðar
Gíslason, Gunnlaugur Claessen, Ingi-
björg Benediktsdóttir og Ólafur
Börkur Þorvaldsson. Verjandi var
Sveinn Andri Sveinsson hrl. og sækj-
andi Kolbrún Sævarsdóttur frá rík-
issaksóknara.
Fangelsaður fyrir
að senda klám-
fengin SMS-boð
ÍSLENSKUR hlutverkaleikur á net-
inu, sem þróaður var af Ómari Erni
Magnússyni, kennara í Hagaskóla í
Reykjavík, hlaut fyrstu verðlaun í
norrænni samkeppni um námsefni til
neytendafræðslu. Norræna ráð-
herranefndin í neytendamálum efndi
til keppninnar á síðasta ári. Alls bár-
ust 24 verkefni í keppnina, þar af
átta íslensk.
Markmið neytendafræðslu eru
m.a., að því er fram kemur í upplýs-
ingabæklingi frá Norrænu ráðherra-
nefndinni, að nemendur þekki rétt-
indi sín og skyldur sem neytendur og
að þeir læri að leita upplýsinga þegar
þeir ná ekki yfirsýn yfir vandamálin.
Valgerður Sverrisdóttir við-
skiptaráðherra veitti Ómari Erni
verðlaunin á Hótel Nordica í gær,
þar sem þing Norðurlandaráðs fór
fram, en verðlaunaféð nemur sem
svarar tæplega einni milljón ís-
lenskra króna. Leikurinn nefnist:
Raunveruleikurinn og er að sögn
Ómars Arnar í eigu Landsbanka Ís-
lands.
Fyrir 10. bekk í grunnskóla
Ómar Örn segir að leikurinn sé
hannaður fyrir nemendur tíunda
bekkjar grunnskólans. Markmið
leiksins sé að láta unglingana kynn-
ast þeim veruleika sem fullorðnir
standa frammi fyrir í lífi sínu. Í upp-
hafi leiksins eru þátttakendur 20 ára
og á leið út í lífið eftir framhalds-
skólanám. Þeir fá ákveðna fjárhæð
til ráðstöfunar en geta að öðru leyti
mótað persónu sína að vild, s.s. útlit,
nafn og persónueinkenni.
Ómar Örn segir að þátttakendur
séu svo í gegnum leikinn látnir tak-
ast á við þau verkefni sem fullorðnir
glíma við, t.d. það verkefni að láta
enda ná saman, ákvörðunina um að
eignast börn, stofna fjölskyldu og
svo framvegis. Þátttakendur þurfi
þannig að velja og hafna og standa
með vali sínu út allan leikinn. Það er,
að sögn Ómars Arnar, ekki hægt að
byrja upp á nýtt. „Tilgangurinn er
einmitt að búa unglingana undir það
val sem bíður þeirra,“ segir hann.
„Ég held þau hafi mjög gott af því að
kynnast því hvaða valmöguleika þau
hafa og velta því fyrir sér hvernig
þau munu fara með það val sitt.“
Fer af stað í nóvember
Ómar Örn segir að leikurinn hafi
verið í þróun í fjögur ár. Hann kveðst
aðspurður hafa átt frumkvæðið að
honum; hann hafi séð um hugmynda-
vinnuna, hönnunina og handritið.
Landsbankinn eigi hins vegar leik-
inn, framleiði hann og reki. Ómar
Örn segir að leikurinn muni hefjast í
næsta mánuði. Þá verði öllum kenn-
urum tíunda bekkjar grunnskólans
boðin þátttaka. Samþykki þeir að
taka þátt í leiknum verði þeim út-
hlutað aðgangsorðum fyrir nem-
endur sína. Hugmyndin er sú að leik-
urinn verði keppni og að sá bekkur
og sá einstaklingur sem standi sig
best í leiknum fái verðlaun.
„Leikurinn er í stöðugri þróun,“
segir Ómar Örn. „Þetta er efni sem
býður upp á mikla möguleika. Þar
sem hann vann norræna samkeppni,
er t.d. mögulegt að byggja hann upp
í fleiri löndum og búa til fleiri sam-
félög, svo fólk geti flust á milli
landa.“
Íslenskur hlutverkaleikur
hlýtur norræn verðlaun
Frá vinstri: Hermann Jónasson, fulltrúi Landsbankans, Valgerður Sverris-
dóttir viðskiptaráðherra og Ómar Örn Magnússon, höfundur leiksins.
Eftir Örnu Schram
arna@mbl.is
FLUTNINGABÍLL valt á hringtorginu á mótum
Vesturlandsvegar og Reykjavegar í Mosfellsbæ
upp úr hádegi í gær. Ökumaður, sem var einn í
bílnum, meiddist lítillega á hálsi og var fluttur
með sjúkrabíl á slysadeild.
Þá ökklabrotnaði ökumaður bifhjóls þegar
hann ók í veg fyrir bifreið í Þverholti í Mos-
fellsbæ og var hann fluttur á slysadeild.
Að sögn lögreglunnar í Reykjavík var töluvert
um umferðaróhöpp í gær.
Morgunblaðið/RAX
Valt á hringtorgi
FL Group ber hitann og þungann af markaðs-
setningu Íslands erlendis og ver um þremur
milljörðum króna í að selja Ísland á hverju ári
eða um þrjátíu milljörðum á tíu árum. Félagið
telur að hið opinbera eigi að stíga fram með af-
dráttarlausari hætti og leggja meira fé til þess
að markaðssetja Ísland og í raun sé það skrýtið
að ekki skuli vera eytt meira fé til þessa mála-
flokks.
Þetta kom fram í máli Hannesar Smárasonar,
forstjóra FL Group, á ferðamálaráðstefnu í gær
en þar kynnti hann meðal annars þær breytingar
sem gerðar hafa verið á uppbyggingu þess, svo
og hugsunina á bak við kaup félagsins á Sterling
Airways og þau markmið sem félagið stefnir að
því að ná.
Hannes benti á að félagið ætti í harðnandi
samkeppni og myndi því í auknum mæli beina
sjónum sínum að þeim farþegum sem skiptu fé-
lagið mestu máli. Hannes minnti á að FL Group
keppti nú við mjög stór og öflug fyrirtæki og
stórar og öflugar þjóðir og því þyrfti félagið að
beina fjármunum sínum að eigin markhópum
þannig að þeir nýttust til hagsbóta fyrir það sem
fyrirtæki og Ísland sem þjóð.
Hið opinbera taki
meiri þátt í markaðs-
setningu Íslands