Morgunblaðið - 28.10.2005, Qupperneq 10
10 FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
VÍTAHRINGUR ofbeldis hjá alkó-
hólistum, hvort sem um er að ræða
andlegt, líkamlegt eða félagslegt of-
beldi, og alkóhólistann sem þolanda
eða geranda er meginumfjöllunar-
efni tólf spora ráðstefnu sem haldin
verður nú um helgina í Félagsheim-
ili Seltjarnarness. Ráðstefnan er
ætluð öllum konum sem áhuga hafa
á málefninu og stendur hún allan
laugardaginn frá kl. 9 og sunnu-
dagsmorguninn kl. 10–12.
Tvær bandarískar konur, þær
Polly og Michael, en nöfn þeirra
verða ekki nánar tilgreind, munu
flytja erindi og veita konum hand-
leiðslu og sína innsýn í það hvernig
ganga skal hvert hinna tólf spora,
enda er að sögn Polly mikilvægt að
bregða hvergi út frá þeirri leið sem
mörkuð er í AA-bókinni.
Polly er frískleg kona í kringum
sextugt. Hún er brosmild og stutt í
hláturinn. „Ef ég hefði ekki hætt að
drekka væri ég ekki hér í dag,“ seg-
ir Polly og greinilegt að merkingin
er á fleiri en einn hátt. Polly er búin
að vera edrú í tuttugu og átta ár og
eftir að hún settist í helgan stein
fyrir nokkrum árum hefur hún eytt
næstum öllum sínum frítíma í starf
með öðrum alkóhólistum, flutt er-
indi og veitt handleiðslu í vinnuhóp-
um á atburðum tengdum samtök-
unum. Hún hefur verið að heiman
45 helgar á þessu ári, starfandi á
vettvangi hinna tólf spora. „Þetta er
mín ástríða í lífinu og mannsins
míns líka, en hann er búinn að vera
edrú í 29 ár. Við eigum tuttugu og
fimm ára brúðkaupsafmæli í dag,
27. október, en fögnuðum því í gær,
þar sem ég var á leið til Íslands.“
Taki ábyrgð á eigin gjörðum
Polly segir misnotkun og ofbeldi
algenga fylgifiska alkóhólisma, enda
feli alkhólisminn í sér ákveðna mis-
notkun á áfengi og einnig það að
alkóhólistinn veldur fólki í kringum
sig skaða. Þá geti margar konur fest
sig í vítahring þolandans og jafnvel
fengið útrás fyrir sársauka sinn á
börnum eða öðrum. „Fólk hefur
kannski upplifað ofbeldi í æsku og
þegar það kemur á fullorðinsár upp-
lifir það ofbeldið frá maka sínum,“
segir Polly. „En það að þola ofbeldi
er lærð hegðun og hægt er að leysa
hana með tólf spora kerfinu.“
Fyrstu skrefin snúast, að sögn
Polly, um það að taka ábyrgð og
gera upp fortíðina og nútíðina.
„Börn bera auðvitað ekki ábyrgð á
því ofbeldi sem þau verða fyrir, en
þegar við komumst á fullorðinsár
berum við sjálf ábyrgð á því að
losna úr vítahring ofbeldisins,“ segir
Polly. „Það þarf að skoða reiðina og
finna okkar eigin mistök. Aðeins
með því að taka ábyrgð á okkar eig-
in gjörðum getum við komist út. Þar
koma tólf sporin inn í, en þau snúast
um að skilgreina vandamálin, bæta
þau, leita sáttargjörðar og finna
andlega vakningu til að halda bata
okkar lifandi.“
Þetta er önnur heimsókn Polly til
Íslands, en hún kom hingað fyrir
fjórum árum og heimsótti tólf spora
ráðstefnu. „Þar kynntist ég meðal
annars konunni sem nú er gestgjafi
minn og það gleður mig að hún skuli
enn vera edrú eftir þessi fjögur ár,“
segir Polly. „Margar þeirra kvenna
sem ég hitti þá eru einmitt enn
edrú, þökk sé tólf spora kerfinu, og
það er líka mikið fagnaðarefni.“
Vanræksla og afleiðingar
Á meðan áfengissýkin réð lífi
Polly kveðst hún hafa verið full af
reiði og pirringi, sjálfselsk og sjálf-
hverf. „Ég vanrækti syni mína tvo,
sem voru fjórtán og sextán ára þeg-
ar ég hætti að drekka, svo þeir ólust
megnið af æsku sinni upp með móð-
ur sem var alkóhólisti,“ segir Polly.
„Það hafði hræðileg áhrif á þá, og
annar þeirra varð alkóhólisti, en
hætti að drekka með hjálp tólf spora
kerfisins. Hinn sonur minn hefur
aldrei átt við áfengisvandamál að
stríða en honum líður engu að síður
mjög illa enn í dag. Hann er fjörutíu
og fimm ára.“
Sonurinn sem deilir reynslu Polly
hefur að hennar sögn náð góðum
sáttum við móður sína, en hinn
glímir enn við reiðina. „Ég er viss
um að ef hann færi í Al Anon-
samtökin, sem eru samtök aðstand-
enda alkóhólista, myndi honum líða
betur,“ segir Polly. „Ég sé mjög eft-
ir því hvernig ég kom fram við þá á
sínum tíma og ég hef reynt að bæta
þeim það, en nú er sonur minn full-
orðinn og það er á hans ábyrgð að
glíma við sína reiði. Ég get ekkert
gert nema reyna að vera eins góð
manneskja og ég get. Sem betur fer
er það manneskjunni eðlislægt að
fyrirgefa og þess vegna getum við
alkóhólistar hætt að drekka og
leitað sáttargjörðar við fólkið sem
við höfum sært. Guði sé lof að fólk
fyrirgefur.“
Ofbeldi er umfjöllunarefni tólf spora ráðstefnu fyrir konur nú um helgina
„Guði sé lof að
fólk fyrirgefur“
Morgunblaðið/Kristinn
Polly hefur séð tímana tvenna og leiðbeinir nú konum um veginn sem í
senn er beinn og vandrataður. Hún segir uppgjör við mistökin mikilvæg.
Eftir Svavar Knút Kristinsson
svavar@mbl.is
44. sambandsþing Ung-
mennafélags Íslands,
UMFÍ, var haldið á Eg-
ilsstöðum sl. helgi. 84
þingfulltrúar af öllu
landinu sóttu þingið og
49 málefni lágu fyrir til
afgreiðslu.
Björn B. Jónsson,
formaður UMFÍ, sagði í
samtali við Morgunblað-
ið að þingið hefði gengið vel fyrir
sig og mörg mál verið afgreidd.
„Stóru málin eru að í fyrsta
skipti reynir ungmennahreyfingin
að fanga ungmennafélagsandann
og skilgreina hann. Þá var
samþykkt tillaga um að
hreyfingin kæmi yfir sig
nýjum aðalstöðvum í höfuð-
borginni á afmælisárinu
2007 þegar við verðum 100
ára.
Síðan var samþykkt að
setja af stað útilífs- og lista-
búðir að Skógum undir
Eyjafjöllum í anda UMFÍ,
sem væru hugsaðar fyrir 8. bekk
grunnskóla. Við erum farin af stað
með svipað á Laugum í Sælings-
dal, raunar íþrótta- og tómstunda-
búðir, en á Skógum viljum við
höfða meira til menningar og úti-
lífs.“ Björn segir að þingið hafi
ályktað um áskorun til yfirvalda
um að tryggja veru flugvallarins
þar sem hann er í Reykjavík. „Sú
umræða spratt upp í framhaldi af
því að við erum að staðsetja okkur
í Reykjavík til langs tíma og máli
skiptir að samgöngurnar verði í
góðu lagi fyrir okkur, því við kom-
um með stóra hópa í hverri viku
inn til Reykjavíkur utan af lands-
byggðinni.“
Björn var spurður nánar um
skilgreiningu ungmennafélagsand-
ans og hvernig hann fléttist inn í
nútímann. „Ungmennafélagsand-
inn hefur aldrei virkað betur en í
dag, í nútímaþjóðfélaginu, þegar
alls staðar leynast hættur fyrir
ungt fólk. Andinn virkar þannig að
mörg þúsund ungmennafélagar
vinna sjálfboðavinnu um allt land
og svo virðist sem ungmennafélög-
in séu tilbúin til að leggja mikið á
sig til að unga fólkið fái sín tæki-
færi.“
Meðal annarra málefna þingsins
var Lottó og skipting tekna af því
niður í grasrótina. Ályktanir voru
m.a. samþykktar um átaksverkefni
vegna vaxandi offitu barna, verk-
efni við uppsetningu vatnspósta til
almenningsnota við íþróttasvæði
og samstarf varðandi heilsurækt
eldri borgara.
Björn B. Jónsson var endurkjör-
inn formaður félagsins á sam-
bandsþinginu.
UMFÍ byggir nýjar aðalstöðvar í Reykjavík og vill flugvöllinn kyrran á sínum stað
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Hátt í 50 þingmál voru tekin fyrir á líflegu þingi Ungmennafélagsins.Björn B. Jónsson
Ungmenna-
félagsandinn
skilgreindur
ÍSLAND er á kafi í Evrópusamrunanum, að mati
Eiríks Bergmanns Einarssonar, forstöðumanns
Evrópufræðaseturs á Bifröst. „Við tökum nú þegar
upp megnið af þeim lagareglum Evrópusambands-
ins (ESB) sem við þyrftum að taka upp við fulla að-
ild að sambandinu,“ sagði Eiríkur.
Þetta er á meðal niðurstaðna rannsóknar Eiríks
á því hve mikið af regluverki ESB ratar nú inn í ís-
lenska löggjöf. Hann mun gera grein fyrir rann-
sókninni í fyrirlestri sem haldinn verður á félagsvís-
indaráðstefnunni Þjóðarspeglinum 2005 í Háskóla
Íslands í dag. Á ráðstefnunni, sem stendur kl. 9–17,
verða fluttir alls 122 fyrirlestrar í 33 málstofum.
Kveikjan að umræddri rannsókn voru ólíkar nið-
urstöður tveggja utanríkisráðherra sömu ríkis-
stjórnar, þeirra Halldórs Ásgrímssonar og Davíðs
Oddssonar. „Halldór Ásgrímsson, þáverandi
utanríkisráðherra, sagði árið 2003 að samkvæmt
niðurstöðu utanríkisráðuneytisins tækju um 80% af
regluverki Evrópusambandsins gildi hér á landi.
Tveimur árum síðar var Davíð Oddsson orðinn ut-
anríkisráðherra og sama utanríkisráðuneyti sagði
þá að þetta hlutfall væri 6,5%. Það er langt milli
þessara tveggja hlutfallstalna,“ segir Eiríkur.
Hlutfallstölur ráðherra um upptöku rangar
Eiríkur ákvað að rannsaka hvað ylli þessum mun
á niðurstöðum sama ráðuneytis undir stjórn
tveggja ráðherra í sömu ríkisstjórn með óbreytta
Evrópustefnu. Ekkert hafði breyst í EES-
samningnum sem gat skýrt þennan mikla mun.
Eins kveðst hann hafa skoðað hvort eitthvað hefði
breyst í talnameðferð, en of mikill munur hafi verið
á niðurstöðunum til að það gæti verið útskýringin.
„Eini munurinn er hin pólitíska breyta, það að kom-
inn var utanríkisráðherra sem hafði mun
neikvæðari afstöðu til aðildar Íslands að Evrópu-
sambandinu,“ sagði Eiríkur.
Frekari athugun leiddi í ljós að báðar hlutfallstöl-
urnar voru rangar, að sögn Eiríks. „Íslendingar
taka ekki yfir 80% af reglugerðaverki ESB. En það
gera aðildarríki ESB ekki heldur, eins og þó mátti
skilja af svari Davíðs Oddssonar á Alþingi. Stór
hluti af reglugerðaverki ESB á við um einstök að-
ildarríki eða einstaka aðila og er ekki tekinn upp í
lagasöfn allra aðildarríkja.“
Íslendingar taka upp rúmlega 80% af þeim
reglum ESB sem Svíar taka yfir frá sambandinu, að
sögn Eiríks. Hann segir að samkvæmt sænskri
rannsókn frá 2001 hafi Svíar þá tekið upp 36% af
regluverki ESB.
Meðal niðurstaðna rannsóknar Eiríks er að það
sé marklaust að telja einfaldlega reglugerðir, sem
Íslendingar taka upp frá ESB, til að meta hve náin
tengsl okkar eru við sambandið. Leggja verði
efnislegt mat á reglur sem teknar eru upp hér á
landi.
Ísland á kafi í Evrópusamrunanum
VEGNA fréttar um synjun Vinnu-
málastofnunar á veitingu atvinnu-
leyfa fyrir 36 Pólverja sem starfs-
mannaleigan 2 B sótti um, sem
birtist í Morgunblaðinu í gær, vilja
forsvarsmenn Völvusteins á Ak-
ureyri taka fram að þeim hafi ekki
borist kæra vegna málsins, né hafi
fulltrúar stéttarfélags litið í heim-
sókn til þeirra.
Ottó Eiríksson, verkefnastjóri
hjá Völvusteini, segir það ekki rétt
sem fram kom í tilkynningu frá
Samiðn að fyrirtæki sitt hafi fengið
heimsókn frá fulltrúum Samiðnar.
Hann segir það engu að síður ljóst
að það sé ekki sitt mál að afla at-
vinnuleyfa fyrir starfsmenn und-
irverktaka síns, og segir afskipti
stéttarfélaganna af þessu máli
óeðlileg. Starf þeirra ætti frekar að
miða að því að hjálpa honum að út-
vega þau leyfi sem þurfi frekar en
að hóta að senda starfsmennina úr
landi.
Þorbjörn Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Samiðnar, segir ljóst
að kæra vegna Völvusteins sé kom-
in til Sýslumannsins á Akureyri,
það sé svo sýslumanns að taka
næstu skref í málinu.
Völvusteini hefur
ekki borist kæra
ELLEFU þingmenn Samfylking-
arinnar hafa lagt fram á Alþingi til-
lögu til þingsályktunar um að rík-
isstjórninni verði falið að láta
undirbúa og leggja fyrir Alþingi
skýrslu um stöðu og framtíð ís-
lensku krónunnar. Fyrsti flutnings-
maður tillögunnar er Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir, formaður
Samfylkingarinnar. Lagt er til að í
skýrslunni verði einnig „gerður
samanburður við þann möguleika að
taka upp annan gjaldmiðil hér á
landi,“ eins og segir í tillögunni.
Í greinargerð segir m.a. að flutn-
ingsmenn telji að nú sé kominn tími
til að meta árangur hagstjórn-
arinnar á síðustu árum með sérstöku
tilliti til gjaldmiðilsins og vaxtaþró-
unar. „Markmið tillögunnar er að
stjórnvöld og landsmenn allir geti
gert sér sem ljósasta grein fyrir þró-
un þessara mála á liðnum árum og í
framtíðinni að óbreyttu. Til að hægt
sé að leggja skynsamlegt mat á
hvernig til hefur tekist og hvort
óbreytt stjórntæki í hagstjórninni
skili þjóðinni mestum ávinningi er
nauðsynlegt að bera þá leið saman
við aðra kosti, svo sem upptöku
evru. Þá þarf einnig að huga að öðr-
um leiðum sem til greina koma að
mati þeirra sem besta þekkingu hafa
í peninga- og efnahagsmálum,“ seg-
ir í greinargerðinni.
Skýrsla verði
gerð um stöðu
krónunnar