Morgunblaðið - 28.10.2005, Page 14
14 FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
!"#$
! "
#
%&$ '"( )
*& '"( )
+ '"( )
+, '"( )
* '- )
.$ -$! )
/#!" )
0(1 * )
0 )
,-$! .$ -$ )
2 )
3.+ )
34*#5$ +65! )
7$$ )
" '"( )
+$4# .$ -$ )
4(#6 )
8% -% '"( )
2"$% +$)"$ )
9:) 6 )
; 6$( )
<=+ % < " 4
4#$# )
$ $# )
!
+$ - >66# )
3 5? 3# -$ $&
@@ )
"# $%
8A>B
3C#$
&#$& #
* 5
&#$& #
D EF
D
EF
D EF
D EF
D EF
D EF
D EF
D EF
D EF
D
EF
-&#$(
-$$
!"# C " -$
0( 3
#$( C 1G$
H ) $ +6 -
&#$(
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
● HLUTABRÉF lækkuðu í verði í
Kauphöll Íslands í dag. Úrvals-
vísitalan lækkaði um 0,16% og er
4.676 stig. Viðskipti með hlutabréf
námu 3,8 milljörðum króna, þar af
1,4 milljörðum með bréf Össurar.
Bréf Mosaic hækkuðu um 3,9%,
bréf SÍF um 0,69% og bréf FL Group
um 0,36%. Bréf Tækifæris lækkuðu
um 4,6% og bréf Atorku um 1,75%.
Mosaic hækkar
um 3,9%
● BÚIÐ er að afskrá hlutabréf
Landssíma Íslands hf. úr Kauphöll
Íslands en félagið uppfyllir ekki leng-
ur skilyrði skráningar um dreifingu
hlutafjár. Yfirtökutilboð Skipta ehf. í
bréf Símans rann út á þriðjudag og
að því loknu á félagið Skipti 98,88%
í félaginu.
Síminn afskráður
● EIGANDI og stofnandi easyJet,
Grikkinn Stelios Haji-Ionnou, sem á
ásamt fjölskyldu sinni um 40% í fé-
laginu, upplýsir í Børsen í gær að
hann hafi engin
áform um að
selja FL Group
hlut sinn og hefur
afstaða hans að
þessu leyti verið
óbreytt í nær því
eitt ár, eða allt frá
því Hannes
Smárason, for-
stjóri FL Group,
fundaði með Stelios um easyJet.
Í samþykktum félagsins er kveðið
á um að Stelios haldi sæti sínu sem
stjórnarformaður þótt hlutur hans
fari niður í 10%. Þá er Stelios einnig
eigandi að nafninu easyJet en leigir
félaginu það, segir í frétt Børsen.
Gengi bréfa í easyJet lækkaði um
5,5% í gær, í 291 pens, en er þó enn
hærra en í upphafi vikunnar er það
var 268,75.
Hyggst ekki
selja í easyJet
ÝMISLEGT bendir til þess að rekst-
ur Flögu Group sé nú að taka við sér
en félagið skilaði 824 þúsund dollara
hagnaði á þriðja fjórðungi ársins.
Jafngildir það tæplega 50 milljónum
íslenskra króna og er meira en tvö-
földun frá sama tímabili í fyrra. Það
sem af er ári er afkoma félagsins
hins vegar enn neikvæð en fyrsti
fjórðungur var afar slakur og er af-
koma fyrstu níu mánaða ársins nei-
kvæð um 12,5 milljónir króna.
Sölutekjur á þriðja ársfjórðungi
námu um 8,9 milljónum dollara og
jukust þær um ríflega 800 þúsund
dollara á milli ára. Gjöld jukust hins
vegar um 120 þúsund dollara sem
skýrir að mestu leyti afkomubatann.
Það sem af er ári hafa heildareign-
ir Flögu Group aukist um ríflega 3
milljónir dollara en skuldir dregist
saman um nær hálfa milljón þannig
að eiginfjárhlutfall hefur aukist og er
það nú 69% sem verður að teljast
mjög gott.
Heilt yfir verður uppgjörið að telj-
ast ágætt og skili skipulagsbreyting-
ar þeim árangri sem til er ætlast má
telja að bjartari tímar séu framund-
an hjá félaginu.
Ágætt upp-
gjör Flögu
-
!
.!*
'/0(0
112(
3//04
+(13
5('
#
6
7'317
3(1/7
#
!* ) 8 !* ) 419
3:5(
30(//
0327
33/34
+530
43/
!"
50/13
317/'
!"
449
3:/1
!"#$ #!
%&'&$
! $!
#
#$
! %%(#)*$ #! #
ICELAND Express hefur samið um
leigu á þremur flugvélum af gerðinni
Boeing MD90 af svissneska flug-
félaginu Hello. Vélarnar, sem voru
framleiddar árið 1997, eru tíu árum
yngri en núverandi vélar félagsins.
Samningurinn er til þriggja ára og
hljóðar upp á rúma þrjá milljarða
króna, að sögn Birgis Jónssonar, for-
stjóra Iceland Express. Hann segir
að samningurinn sé í tengslum við
fjölgun á áfangastöðum sem greint
hefur verið frá, en þeir eru: Alicante,
Berlín, Friedrichshafen, Gautaborg,
Stokkhólmur og Frankfurt Hahn.
Félagið hefur frá upphafi flogið til
London og Kaupmannahafnar.
Birgir segir að svissneskir flug-
menn muni að hluta fljúga hinum
nýju flugvélum. Íslenskir flugmenn
og flugfreyjur verði hins vegar einn-
ig ráðin til starfa á næstunni.
Stolt af árangrinum
„Þessar þrjár flugvélar taka 167
sæti,“ segir Birgir. „Við verðum með
eina vélina í þeim fjölda sæta en
tvær þeirra verða hins vegar með
150 sæti. Það verður því mun rýmra
fyrir farþegana. Með þessu erum við
að koma til móts við þá gagnrýni sem
stundum heyrist á lággjaldaflug-
félögin, að það sé þröngt í vélunum.“
Að sögn Birgis mun Iceland Ex-
press bjóða upp á flug til helstu
áfangastaða félagsins yfir næstu
páska. „Ég á von á því að flugmiðinn
t.d. til Alicante lækki um tugi þús-
unda á markaðinum þegar þetta fer í
sölu í næstu viku hjá okkur. Núna er
verðið 30–35 þúsund krónur hjá
ferðaskrifstofunum, en þær byrjuðu
að bjóða sætin á umtalsvert lægra
verði þegar við tilkynntum flug til
Alicante.“ Hann bætir við að það sé
gaman þegar eins mikill árangur
komi í ljós og raun ber vitni þegar
hægt sé að lækka markaðsverð á
flugmiða til áfangastaðar um
kannski 15 þúsund krónur á einum
degi, bara með því að hefja sam-
keppni á flugleiðinni. Þá sé tilgangi
Iceland Express í raun náð, og af því
séu starfsmenn félagsins stoltir.
„Við erum nú þegar búin að selja
u.þ.b. þrjú þúsund miða til Alicante á
tveimur vikum, sem segir mér það að
markaðurinn taki þessu opnum örm-
um.“
Birgir segir að það hafi verið mjög
góður gangur hjá Iceland Express
að undanförnu og mikil eftirspurn.
Því hafi verið ákveðið að bæta við
ferðum til Kaupmannahafnar, Lond-
on og Frankfurt Hahn.
Fyrsta flugvélin samkvæmt hin-
um nýja samningi Iceland Express
kemur hingað til lands hinn 1. mars
næstkomandi, önnur vélin kemur 7.
apríl og sú þriðja 15. maí.
Iceland Express
leigir þrjár flugvélar
Eftir Grétar Júníus Guðmundsson
gretar@mbl.is
BROT Kaupthing Fonder, dóttur-
félags KB banka í Svíþjóð, var svo al-
varlegt að sænska fjármálaeftirlitið,
FI, íhugaði að svipta félagið leyfi til
þess að leggja stund á sjóðaviðskipti.
Frá þessu er greint í sænska
blaðinu Dagens Nyheter í gær en
eins og fram kom í Morgunblaðinu í
gær fékk Kaupthing Fonder áminn-
ingu frá FI vegna mismats á gengi
óskráðs fyrirtækis í tveimur af sjóð-
um sínum.
Helena Östman, upplýsingastjóri
FI, staðfestir í samtali við Morgun-
blaðið í gær að stofnunin hafi íhugað
að svipta Kaupthing Fonder leyfinu
en að hennar sögn liggur sami
grundvöllur fyrir því að áminna félög
og að svipta þau leyfinu. „Við
ákváðum að láta áminningu nægja að
þessu sinni en munum fylgja málinu
eftir,“ segir Östman.
Í Morgunblaðinu í gær er jafn-
framt greint frá því að stórir hlut-
hafar í sjóðunum hafi verið varaðir
við því að afskrifa ætti hluta af virði
hins óskráða fyrirtækis og höfðu
hluthafarnir því tækifæri til þess að
selja hlut sinn. Sjóðsstjóri sá er bar
ábyrgð á sjóðnum Kaupthing Bas
veitti samkvæmt skýrslu FI trygg-
ingafélaginu innherjaupplýsingar og
hefði Kaupthing Fonder átt að til-
kynna brotið til annaðhvort FI eða
lögreglu þegar það komst upp.
Er þetta í annað sinn sem dótt-
urfyrirtæki KB banka á Norðurlönd-
um er áminnt, en norska fjármálaeft-
irlitið gerði í sumar athugasemdir
við atriði í rekstri Kaupthing Norge.
Íhuguðu
leyfis-
sviptingu
● DANSKA fjármálaráðuneytið hefur
hafnað tilboði ástralska fjárfestinga-
félagsins, Macquarie Airports, í flug-
völlinn í Kaupmannahöfn, en félagið
lagði fram tilboð í öll hlutabréf CPH,
sem m.a. á Kastrupflugvöll, flugvöll-
inn í Hróarskeldu og fleiri alþjóðlega
flugvelli.
Tilboðið hljóðaði upp á 2.000
danskar krónur á hvern hlut, sem er
33% yfir núverandi gengi bréfanna.
Alls var ástralska félagið tilbúið að
greiða 16 milljarða danskra króna
fyrir hlutabréfin og höfðu tveir stórir
fagfjárfestar þegar samþykkt til-
boðið þegar fjármálaráðuneytið hafn-
aði því.
Danska ríkið á 39,2 prósent í flug-
vellinum og hefði tilboðið skilað rík-
issjóði 6,2 milljörðum danskra
króna. Thor Pedersen, fjármála-
ráðherra, sagði hins vegar að Kaup-
mannahafnarflugvöllurinn væri of
mikilvægur hluti af innra skipulagi
Danmerkur til þess að verða seldur.
Danir hafna
tilboði í Kastrup
Uppgjör
Flaga Group hf.
sverrirth@mbl.is
● SJÁLFKJÖRIÐ verður í stjórn FL
Group á hluthafafundi félagsins sem
haldinn verður þriðjudaginn 1. nóv-
ember næstkomandi.
Þeir sem gefa kost á sér til setu í
aðalstjórn FL Group eru: Skarphéð-
inn Berg Steinarsson, Jón Ásgeir Jó-
hannesson, Magnús Ármann, Smári
S. Sigurðsson og Þorsteinn M. Jóns-
son. Tveir hafa gefið kost á sér til
setu í varastjórn, en þeir eru: Krist-
inn Bjarnason og Þórður Bogason.
Sjálfkjörið í
stjórn FL Group
9$-I
3J<
E
E
+
3>
KL
E
E
AA ;2L
E
E
0+L
9
E
E
8A>L K"M /" $
E
E