Morgunblaðið - 28.10.2005, Blaðsíða 22
22 FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
Klæddu þig vel
Ný sending
kápur, jakkar, pils, bolir og margt fleira
Hafnarstræti 97, 600 Akureyri.
Sími 462 3505
Opið virka daga 10-18
laugardaga kl. 10-16
AKUREYRI
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Reykjavík | Engin rök hníga að því
að banna kajakmönnum að æfa í
Elliðaánum yfir vetrartímann að
mati formanns Kayakklúbbsins, sem
vonast til þess að æfingar í ánum
hefjist á hefðbundnum tíma eftir ára-
mót, eins og þær hafa gert sl. 25 ár.
Stefán Jón Hafstein, borgar-
fulltrúi og formaður samráðshóps
um Elliðaárnar, sagði á fundi borg-
arráðs fyrr í mánuðinum að rétt væri
að setja reglur um umgengni við
árnar til að vernda þær fyrir ágangi
manna, enda ljóst að vaxandi ásókn
væri í að nota Elliðaárnar sem „leik-
völl af ýmsu tagi fyrir bæði íþrótta-
og útivistarfólk“.
Þorsteinn Guðmundsson, formað-
ur Kayakklúbbsins, segir að kajak-
áhugamenn taki þetta ekki sér-
staklega til sín, kajakræðarar hafi
undanfarin 25 ár æft í Elliðaánum
frá áramótum fram til 1. maí, og
muni vonandi halda því áfram.
Þorsteinn segir að eftir samtal við
Stefán Jón í haust hafi hann góða
von um að fá að nýta árnar áfram án
vandræða, enda sé ljóst að umferð
kajaka um árnar yfir vetrartímann
hafi engin áhrif á árnar eða fiski-
gengd í þeim. Kajakmenn séu á af-
mörkuðu svæði fyrir neðan virkj-
unina, á þeim árstíma sem engin
veiði sé í ánum. Ennfremur sé það
skýrt í landslögum að bátaumferð
um ár og vötn sé heimil.
Engin lagastoð bak við bann
Nokkurt upphlaup varð í vor þeg-
ar Orkuveita Reykjavíkur sendi
Kayakklúbbnum bréf þar sem kaj-
akmönnum var bannað að róa í
Elliðaánum. Þorsteinn segir að eftir
að bréfið barst hafi skipuleg starf-
semi á vegum klúbbsins verið stöðv-
uð, en kajakmenn hafi þó áfram æft í
ánum sem einstaklingar. Lögregla
var kölluð til í tvígang en Þorsteinn
segir að ekki hafi fundist nokkur
lagastoð bak við bannið og lögreglan
hafi ekki aðhafst neitt vegna máls-
ins.
Hann segist þó ekki mótfallinn því
að einhverjar reglur verði settar um
umgengni við árnar. „Ég er hlynntur
því að það þurfi ekki að setja reglur
um alla skapaða hluti, en sennilega
þarf nú að stjórna þessu eitthvað.
Menn verða nú samt að gæta hófs í
því.“
Engin rök fyrir því að
banna kajaka í Elliðaám
Ljósmynd/Blátt áfram
Andafleyting Formaður samráðshóps segir ásókn í Elliðaárnar aukast. Hér keppa gúmmíendur í kappsundi í ánum.
Hafnarfjörður | Nýleg yfirlýsing um
fjárstuðning menntamálaráðuneyt-
isins við víkingasafn í Reykjanesbæ
vekur upp spurningar um eðlilega
samkeppnishætti að mati bæjar-
stjórnar Hafnarfjarðar, sem beinir
þeim tilmælum til menntamálaráð-
herra og fjármálaráðherra að
tryggja að jafnræðis sé gætt þegar
kemur að styrkveitingum til safna og
ferðamannastaða.
Bæjarstjórn bendir á að á sama
tíma og menntamálaráðuneyti lofi
120 milljónum króna til uppbygging-
ar víkingasafns á Reykjanesi hafi
einkaaðilar í Hafnarfirði um árabil
rekið víkingasetur og víkingaþorp án
styrkja. Þar hafi verið sýndir munir
og minjar frá víkingatíð, haldnar ár-
legar víkingahátíðir, auk einstaka
uppákoma og fræðslustarfsemi um
víkingatíma, að ógleymdum veit-
inga- og hótelrekstri.
„Víkingaþorpið í Hafnarfirði hefur
dregið að tugþúsundir gesta, inn-
lendra og erlendra, á hverju ári.
Óviðunandi er að hið opinbera ætli
með einhliða hætti að stuðla að upp-
byggingu hjá samkeppnisaðila í
Reykjanesbæ á sambærilegu verk-
efni í samkeppni við kraftmikinn
einkaaðila í Hafnarfirði,“ segir í
ályktun bæjarstjórnar.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Óeðlilegir
samkeppnis-
hættir?
Hafnarfjörður | Hafnarfjarðarbær
undirritaði nýverið samstarfs-
samning um bankaviðskipti við
KB banka. Samningurinn er
gerður í framhaldi af útboði
Hafnarfjarðarbæjar á banka-
viðskiptum sl. vor.
Felur samningurinn í sér að
KB banki verður aðalvið-
skiptabanki Hafnarfjarðarbæjar
og fyrirtækja hans. Hafnarfjarð-
arbær færir öll sín viðskipti til
KB banka sem þar með tekur að
sér að veita bæjarfélaginu heild-
stæða fjármálaþjónustu, segir í
fréttatilkynningu.
Á myndinni eru sitjandi: Ing-
ólfur Helgason forstjóri KB
banka og Lúðvík Geirsson bæj-
arstjóri Hafnarfjarðar. Stand-
andi: Róbert B. Agnarsson við-
skiptastjóri á Fyrirtækjasviði KB
banka, Sveinn Bragason fjár-
málastjóri Hafnarfjarðar, Rúnar
Gíslason útibússtjóri KB banka í
Hafnarfirði, Gunnar Svavarsson
formaður bæjarráðs og Björk
Þórarinsdóttir aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Fyrirtækjasviðs KB
banka.
Hafnarfjarðar-
bær færir
viðskipti sín
til KB banka
Samið Samningar undirritaðir.
NEMENDUR og starfsfólk Gilja-
skóla fögnuðu 10 ára afmæli skólans
í gær og var mikið um dýrðir. Dag-
skráin hófst með skrúðgöngu, þar
sem gengið var fylktu liði um Gilja-
hverfið. Að lokinni skrúðgöngu var
haldið aftur í skólann, þar sem þess-
um merku tímamótum var fagnað
enn frekar með viðeigandi hætti.
Í Giljaskóla eru um 410 nem-
endur, sem er svipaður fjöldi og á
síðasta skólaári og starfsmenn eru
um 70 talsins. Á vef Giljaskóla er
saga hans rakin og þar kemur m.a.
fram að skólinn hóf starfsemi í hús-
næði leikskólans Kiðagils haustið
1995 með þrjár kennslustofur, lítið
rými fyrir undirbúningsaðstöðu
kennara og skrifstofu skólastjóra.
Annað starfsmannarými var sameig-
inlegt með leikskólanum svo og
skólalóð. Fyrsta starfsár skólans
voru nemendur 44. Þegar á öðru ári
var húsnæðið orðið of lítið og var þá
bætt við lausri kennslustofu. Í upp-
hafi var stefnt að því að fyrsti hluti
byggingaráfanga nýs Giljaskóla yrði
tilbúinn haustið 1997 en það gekk
ekki eftir. Það var ekki fyrr en í
febrúar 1998 að flutt var inn í fyrri
hluta fyrsta áfanga skólans. Haustið
1998 var tilbúinn til notkunar seinni
hluti fyrsta áfanga, stjórnunarrými
og skólavistun. Haustið 2002 var
skólinn loks fullbyggður, fyrir utan
íþróttahús, og voru þá teknar í
gagnið langþráðar sérgreinastofur.
Morgunblaðið/Kristján
Afmæli Nemendur og starfsfólk Giljaskóla fögnuðu 10 ára afmæli skólans í gær og fóru m.a. í skrúðgöngu.
Tíu ára afmæli Giljaskóla fagnað
HÉRAÐSDÓMUR Norðurlands
eystra hefur dæmt karlmann í 18
mánaða fangelsi fyrir nokkur brot,
þar á meðal alvarlega líkamsárás
sem framin var á þjóðveginum í
Öxnadal í ágúst í fyrra, en maðurinn
sló annan mann eitt eða fleiri högg í
höfuðið með hafnaboltakylfu svo að
hann missti meðvitund og féll í jörð-
ina. Sá sem fyrir höggunum varð
höfuðkúpubrotnaði og fékk heila-
blæðingu og tapaði heyrn á vinstra
eyra.
Maðurinn var einnig dæmdur til
að greiða manninum sem hann sló
rúma 1 milljón króna í bætur og
tæpa milljón í málskostnað.
Maðurinn var að auki fundinn sek-
ur um aðra líkamsárás, fyrir að hafa
rúm 63 grömm af hassi í fórum sín-
um. Þá var hann fundinn sekur um
brot gegn valdstjórninni með því að
hafa hótað lögreglumanni lífláti.
Fram kemur í dómnum, að maðurinn
var úrskurðaður í gæsluvarðhald í
kjölfar líkamsárásarinnar sem áður
er getið. Þegar lögreglumaður og
fangavörður kynntu manninum
gæsluvarðhaldsúrskurðinn brást
hann mjög illa við, henti frá sér afriti
því sem honum var afhent, rauk til
og sparkaði í klefahurð og sagði að
þegar hann yrði laus myndi hann
fara í næstu holu og finna sér vopn
og ganga frá lögreglumanni. Þessar
hótanir margítrekaði maðurinn á
næstu dögum og í símtali við verj-
anda sinn las hann honum svipaðar
hótanir.
Fram kemur í dómnum, að mað-
urinn hafi 12 sinnum verið dæmdur
til refsingar frá árinu 1998 fyrir brot
gegn lögum um ávana- og fíkniefni,
umferðarlögum, vopnalögum og al-
mennum hegningarlögum.
18 mánaða
fangelsi fyr-
ir alvarlega
líkamsárás
Fyrirlestur| Helgi Áss Grétarsson
flytur fyrirlestur sem nefnist Lög-
fræði og lífið sjálft í stofu L203 á Sól-
borg kl. 12 í dag, föstudag.
Menning | Fyrirlestrar á haustdög-
um nefnist fyrirlestraröð sem list-
námsbraut Verkmenntaskólans á
Akureyri hefur skipulagt í samvinnu
við menningarmiðstöðina í Gróf-
argili og mun fara fram næstu fjóra
föstudaga. Hún hefst með fyrirlestri
Yean Fee Quay, myndlistarmanns
og sýningarstjóra frá Singpore, en
hún hefur búið á Akureyri frá árinu
2000. Fyrirlesturinn verður í Ketil-
húsinu og hefst kl. 15 í dag.
Yfirskrift fyrirlesturs hennar er
Menning í menningareyðimörk og
verður gefið yfirlit yfir þróun menn-
ingarmála í borgríkinu Singapore,
en yfirvöld þar eru staðráðin í að
eyða því orðspori að landið sé
„menningarleg eyðimörk“.
Námstefna | Skólastjórafélag Ís-
lands stendur fyrir námstefnu í
Brekkuskóla á Akureyri í dag og á
morgun, í tengslum við ársfund fé-
lagsins, sem fram fer á sama stað
seinni partinn í dag. Námstefnan
verður sett kl. 13 í dag og lýkur með
pallborðsumræðum eftir hádegi á
morgun.
Ein áskrift... ...mörg blöð