Morgunblaðið - 28.10.2005, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2005 23
MINNSTAÐUR
H Æ Ð A S M Á R A 4 • S Í M I 5 4 4 5 9 5 9
H v e R A f o l d 1 - 3 , g R A f A R v o g I • S Í M I 5 7 7 4 9 4 9
Ný SeNdINg
Nýtt koRtAtÍMAbIl
SUÐURNES
Grindavík | Gengið hefur verið frá
samningi Ungmennafélags Grinda-
víkur við Grindavíkurbæ um fyrir-
komulag á veitingu styrkja vegna
ferðalaga íþróttafólks úr Grindavík
til útlanda. Gunnlaugur J. Hreins-
son, formaður UMFN, og Ólafur
Örn Ólafsson bæjarstjóri skrifuðu
undir samning þessa efnis í nýrri
skrifstofu aðalstjórnar UMFG en
stjórnin hefur fengið inni á efri hæð
Kvennó.
Gunnlaugur var kampakátur með
samninginn, sagði að tími hafi verið
kominn til að finna formlegan farveg
fyrir þessi mál. „Mér líst vel á þetta
enda fyrsti samningurinn sem við
höfum gert í háa herrans tíð. Þessi
sjóður er samvinnuverkefni fyrir-
tækja, aðalstjórnar UMFG og
Grindavíkurbæjar. Vonandi tekst
okkur að fá fyrirtækin inn líka og þá
getum við styrkt afreksfólkið dyggi-
lega.“
Gunnlaugur sagði að mikið væri
að gerast á íþróttasviðinu í Grinda-
vík um þessar mundir.
„Nú er á næstu dögum ætlunin að
taka formlega í notkun sparkvöll
sem byggður er í samstarfi KSÍ og
Grindavíkurbæjar. Þá mun nefnd
sem hefur verið að störfum skila af
sér á næstu dögum tillögum sínum
um framtíðarskipulag og framtíðar-
óskir deildanna til bæjarstjórnar,“
sagði Gunnlaugur.
Þess má geta að í dag eru fimm
deildir starfandi innan UMFG og
þar af eru tvær nýlegar en það eru
sunddeild og fimleikadeild. Allar
deildir eru með öflugt starf en mesta
athygli vekur þessa dagana nýjasta
deildin sem þegar er með yfir 100
iðkendur þrátt fyrir aðstöðuleysi
fimleikafólksins.
Morgunblaðið/Garðar Páll Vignisson
Skrifað undir Ólafur Örn Ólafsson og Gunnlaugur J. Hreinsson ganga frá samningi um afrekssjóð.
Samið um styrki til afreksfólks
Innihaldið skiptir máli