Morgunblaðið - 28.10.2005, Síða 32

Morgunblaðið - 28.10.2005, Síða 32
32 FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN SAMRÆMING starfs og fjöl- skyldulífs verður sífellt mikilvægari þáttur í lífsgæðum landsmanna. Mikilvægt er að hið opinbera hafi slíka samræmingu að leiðarljósi í störfum sínum í þágu borg- aranna og reyni stöð- ugt að bæta sig. Slík samræming kemur ekki einungis fjöl- skyldufólki vel heldur er hún einnig í þágu at- vinnulífsins. Oft geta einföld ráð stuðlað að lausn mála sem við fyrstu sýn virðast erfið úrlausnar. Skulu hér nefnd tvö dæmi sem snúa að starfsemi mik- ilvægra þjónustustofnana borg- arinnar, leikskóla, grunnskóla og frí- stundaheimila. Þessi ráð leysa auðvitað ekki allan vanda en verða vonandi lóð á vogarskálar bættrar þjónustu borgarinnar og gera þar með fjölskyldum og fyrirtækjum auðveldara að samræma starf og fjölskyldulíf. Mannekla Mannekla hefur sett svip sinn á starf frístundaheimila og leikskóla borgarinnar það sem af er hausti. Hefur það reynst miklum erf- iðleikum bundið að manna lausar stöður hjá borginni og skv. síðustu fregnum eru enn 300 börn á biðlista eftir rými á frístundaheimili og 70 eftir rými á leikskóla. Hefur þetta ástand komið mörgum illa, ekki síst einstæðum foreldrum. Fjölmargir starfsmenn frístunda- heimila og leikskóla hafa lagt á sig ómælt erfiði, langt umfram samn- ingsbundnar skyldur, til að koma til móts við börnin og aðstandendur þeirra í þessum vandræðum. Fyrir það ber borgaryfirvöldum að þakka af heilum hug og geri ég það hér með fyrir hönd borgarfulltrúa Sjálf- stæðisflokksins. Ljóst er að leita þarf nýrra leiða til að fullmanna þessar mikilvægu stofnanir og reyna að koma í veg fyrir að slíkt ástand skapist að nýju næsta haust. Á þessu er vafalaust eng- in einhlít lausn en mik- ilvægt er að nýta reynslu undangeng- inna mánaða í þessum efnum. Á fundi íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur 8. sept- ember sl. lagði und- irritaður fram eftirfar- andi tillögu sem var samþykkt einróma: „Íþrótta- og tómstundaráð sam- þykkir að taka upp viðræður við Kennaraháskóla Íslands og e.t.v. fleiri skóla á framhalds- og há- skólastigi á sviði kennslu- og barna- starfs með það að markmiði að störf á frístundaheimilum verði að ein- hverju leyti metin til námseininga í viðkomandi skólum. Ef slíkt sam- starf tekst á milli Reykjavík- urborgar og viðkomandi skóla myndi það án efa hvetja nemendur úr þessum skólum til að koma til starfa á frístundaheimilum borg- arinnar og draga þannig úr mann- eklu.“ Fróðlegt verður að sjá hvaða við- tökur tillagan fær hjá umræddum menntastofnunum. Ég leyfi mér að vera bjartsýnn enda hefur hlutur námstengdrar starfsreynslu og raunhæfra verkefna aukist í há- skólanámi á undanförnum árum og ætti vinna með börnum ekki að vera undanskilin í því sambandi. Þannig vill til að háskólanemar eru nú þegar uppistaðan í starfsliði frístunda- heimila borgarinnar. Slíkt samstarf við ákveðnar námsbrautir í fram- haldsskólum gæti einnig verið ákjós- anlegt. Samræming starfsdaga Starfsdagar eru haldnir reglulega í grunnskólum og leikskólum borg- arinnar og þá daga fá börnin „frí“ eins og sagt er. Ljóst er að foreldrar yngstu barnanna, ekki síst einstæðir foreldrar, eiga ekki allir jafn auðvelt með að losa sig úr vinnu eða útvega börnum sínum aðra vistun. Nú er vali starfsdaga háttað þann- ig að hver leikskóli og grunnskóli tekur sína eigin ákvörðun um slíkt. Mörg dæmi eru því um að foreldrar, með börn á báðum skólastigum, hafi þurft að taka sér frí úr vinnu með fárra daga millibili vegna þess að frí- daga barnanna ber sjaldnast upp á sömu daga. Á síðasta borgarstjórn- arfundi vakti undirritaður máls á þessu og beindi þeim tilmælum til menntaráðs Reykjavíkurborgar að starfsdagar og skipulagsdagar í leik- skólum og grunnskólum borg- arinnar yrðu samræmdir, fjöl- skyldufólki og atvinnulífi til hægðarauka. Er það von mín að þessi sjálfsagða úrbót komi sem fyrst til framkvæmda enda eru leik- skólar og grunnskólar nú undir sömu rekstrarstjórn eftir síðustu stjórnbreytingar hjá borginni. Borgin stuðli að samræm- ingu starfa og fjölskyldulífs Eftir Kjartan Magnússon ’Samræming skóla,starfs og fjölskyldulífs er í þágu almennings og atvinnulífsins.‘ Kjartan Magnússon Höfundur er borgarfulltrúi og gefur kost á sér í 3. sæti Sjálfstæðisflokks- ins í Reykjavík. Prófkjör Reykjavík ÞAÐ VAR með stolti og hrifningu sem ég horfði á skag- firskar konur streyma að úr öllum áttum til kröfugöngu á Sauð- árkróki á kvennafrí- daginn 24. október. 400 konur, ungar, mið- aldra og í eldri kant- inum, lögðu undir sig Skagfirðingabrautina, þrömmuðu undir trumbuslætti, hvatn- ingarhrópum og söng til baráttufundar á Kaffi Krók, sem reyndist of lítill þegar til kom svo fundurinn var haldinn uti undir beru lofti. Sér- staklega var ánægjulegt að sjá hve margar ungar konur mættu á stað- inn. Það er ástæða til að minnast samtakamáttar íslenskra kvenna sem vakti heimsathygli fyrir 30 ár- um og meta árangur baráttunnar. Eitthvað hefur áunnist en sorglega lítið samt og svo virðist sem um afturför sé að ræða á vissum sviðum. Augu okkar hafa opn- ast fyrir heimilis- ofbeldi og misnotkun á konum, börnum og unglingum. Í dag er klámiðnaður og man- sal, verslun með konur, börn og unglinga, talið velta meiri fjármunum í heiminum en verslun með fíkniefni. Atvinnuþátttaka ís- lenskra kvenna er mest af OECD- ríkjunum eða 83%. Íslenskar konur ljúka í meira mæli framhaldsskóla-, sérskóla- og háskólanámi en karlar en 63% þeirra sem ljúka háskóla- prófi eru konur. Menntun íslenskra kvenna vegur því meira fyrir mann- auð þjóðarinnar en hann er talinn undirstaða samkeppnishæfni þjóða. Þrátt fyrir það er launamisréttið lít- ið breytt, konur sjást varla í stjórn- um fyrirtækja, hlutdeild kvenna á Alþingi og í sveitarstjórnum er rétt um 30%. Við eigum sannarlega langt í land enn og ríkulegt tilefni til að konur láti í sér heyra. Á Sauðárkróki var eftirfarandi ályktun samþykkt og send til ráðu- neyta, vinnuveitenda og stétt- arfélaga: „Baráttufundur kvennafrídagsins 24. október 2005 í Skagafirði skorar á atvinnurekendur á Íslandi að taka höndum saman um að útrýma launamun kynjanna. Sá kynbundni launamunur sem fyrir hendi er á Ís- landi er óásættanlegur og skorar fundurinn á þá sem semja um kaup og kjör að beita sér fyrir því að laga þetta í næstu samningum. Jafn- framt að gera það sem í þeirra valdi stendur til að ná fram raunveruleg- um kjarabótum til þeirra sem minnst mega sín í þjóðfélaginu. Fundurinn skorar einnig á skag- firskar konur og allar konur á Ís- landi að standa saman í baráttunni fyrir jafnrétti og láta í sér heyra.“ Það á ekki að skipta máli fyrir kaup og kjör hvort viðkomandi starfsmaður klæðist jakkafötum, með öðrum orðum kynferði á ekki að skipta máli. Við sem látum okkur jafnrétt- ismál varða verðum að bretta upp ermar. Framfarir verða ekki af sjálfu sér, þær kosta vinnu. Næsta vor gefst tækifæri til breytinga en þá verður kosið til sveitarstjórna næstu fjögurra ára. En breytingar verða aðeins ef konur gefa kost á sér. Tími breytinga er núna! Það væri bragur að því að við tækjum sveitarstjórnirnar yfir, konur. Tökum höndum saman og breyt- um – fyrir okkur og fyrir framtíð- ina. Áfram stelpur! Gerum jakkafötin að aukaatriði Anna Kristín Gunnarsdóttir skrifar í tilefni af nýafstöðnum kvennafrídegi ’Eitthvað hefur áunnisten sorglega lítið samt …‘ Anna Kristín Gunnarsdóttir Höfundur er alþingismaður Samfylk- ingarinnar í Norðvesturkjördæmi. Skólavörðustíg 21, Reykjavík sími 551 4050 Glæsileg brúðarrúmföt í úrvali Í NÓVEMBER árið 2002 und- irritaði heilbrigðis- og trygginga- málaráðherra sér- staka viljayfirlýs- ingu þar sem m.a. kom fram að hann hefði hug á því að beita sér fyrir því að læknar fengju kost á að starfa á lækna- stofum utan heilsu- gæslustöðva. Gera átti nýjan samning um störf á lækna- stofum sem byggðist á gildandi samn- ingum sjálfstætt starfandi heim- ilislækna. Ráð- herrann átti að meta þörf fyrir heim- ilislækna með hlið- sjón af fjölda heilsu- gæslulækna og heimilislækna á við- komandi svæði. Skemmst er frá því að segja að ennþá hafa engar efndir orðið, en þó hafa embættismenn ráð- herrans einstaka sinnum mátt vera að því að ræða málin án þess að niðurstaða sé í sjónmáli. Hefur eitt viðkvæðið verið að ef gerður verði nýr samningur um störf á læknastofum, sem byggist á gild- andi lokuðum samn- ingi, sé hætta á því að læknar muni í miklum mæli hverfa frá heilsugæslustöðvunum og yfir á hinn nýja samning. En væri eitthvað að því? Þessi fullyrðing og möguleg framtíðarsýn þarfnast nánari skoðunar. Í dag er skortur á heimilislæknum. Heimilislæknar hafa óskað eftir fjölbreyttari starfsumhverfisskilyrðum. Að- sókn að þjónustu þeirra fáu sjálf- stætt starfandi heimilislækna sem starfa samkvæmt lokuðum samningi er mjög mikil. Aðsókn að sjálfstæðri þjónustu Lækna- vaktarinnar er mjög mikil. Að- sókn að þjónustu annarra sjálf- stætt starfandi sérgreinalækna er mjög mikil og vitað er að sér- greinalæknar sinna umtalsverðri frumheilsugæslu, fyrst og fremst vegna skorts á aðgengi að heim- ilislæknum. Sjálfstæðisflokkurinn hefur lýst því yfir að hann vilji fjöl- breytt rekstrarform og valmögu- leika í heilsugæslu, auk tilfærslu verkefna í heilsugæslu frá ríki til annarra aðila. Framsóknarflokkurinn hefur lýst því yfir að æskilegt sé að flytja heilsugæslu til sveitarfé- laga þannig að öll nærþjónusta verði á höndum sveitarfélaganna og að efla skuli heilsugæsluna sem grundvöll heilbrigðisþjón- ustu í landinu. Samfylkingin hefur kallað eftir valfrjálsu stýrikerfi þar sem heilsugæslan á að jafnaði að vera fyrsti viðkomustaður einstaklinga sem leita heilbrigðisþjónustu. Jafnframt eigi að gefa sérfræð- ingum í heimilislækningum kost á að starfrækja sjálfir læknastofur enda óhemjumikil þörf fyrir þeirra þjónustu. Þegar sú löggjafarstefna sem nú er við lýði var mótuð árið 1973, þar sem ákveðið var að heilsugæslustöðvar skyldu vera miðstöðvar almennrar lækn- isþjónustu og heilsuverndar á landinu, var fyrirkomulagið talið sérstaklega til þess fallið að bæta læknisþjónustu í dreifbýli. Skýr- ingin var sú að í dreifbýli var erfiðast að fá lækna til starfa. Því var heilsugæslu- fyrirkomulagið talið nauðsynlegt til að unnt væri að tryggja læknum viðunandi laun af almannafé og þá jafnframt tryggt að íbúarnir hefðu að- gang að læknisþjón- ustu í heimabyggð. Engu er líkara en að þeir sem ráða skipulagningu heilsu- gæslunnar á höf- uðborgarsvæðinu sé ókunnugt um forsög- una og blindir á lausnir til úrbóta. Ekki er langt síðan sú ákvörðun var tekin að færa heilsugæsl- una í Hafnarfirði og Garðabæ stjórn- sýslulega undir Heilsugæsluna í Reykjavík, við mis- jafnar undirtektir. Óháð þeirri ráðstöfun hefur á síðustu árum mest útþensla innan Heilsugæslunnar í Reykjavík verið á stjórnsýslusviði stofn- unarinnar. Á sama tíma hefur verið við- varandi skortur á heimilislæknum á svæðinu, þótt ástand- ið hafi heldur skánað hin allra síðustu miss- eri. Það virðist því sem skipulagning heilsugæslunnar á höfuðborg- arsvæðinu gangi í þveröfuga átt við það sem segir í viljayfirlýs- ingu ráðherrans frá því í nóv- ember 2002 og áherslum þeirra þriggja stjórnmálaflokka sem nefndir hafa verið. Ef mikil tilfærsla ætti sér stað á þéttbýlisstöðum í landinu, úr heilsugæslukerfinu yfir á samn- ing sjálfstætt starfandi heim- ilislækna, mætti vel hugsa sér al- gjöra endurskipulagningu á hlutverki heilsugæslustöðvanna á þeim svæðum. Í stað þess að hlutverk heilsugæslunnar væri að veita heilsugæsluþjónustu og sjá um skipulagningu hennar myndi hlutverkið breytast yfir í að sjá um stefnumótunarvinnu, sam- ræmingu og eftirfylgni með því að markmiðum heilbrigðisyf- irvalda sé fylgt. Með því að færa rekstrarþáttinn með þessum hætti til sjálfstætt starfandi heil- brigðisstarfsmanna væri einka- framtakið virkjað til að sjá um reksturinn, sem væri eftir sem áður kostaður af almannafé, og þar með væri markmiðum stærstu stjórnmálaflokkanna náð. Yrði framvindan með þessum hætti væri eðlilegt að ganga skrefinu lengra og færa starfsemi yfirstjórna heilsugæslu á þétt- býlissvæðum inn í sjálft heil- brigðisráðuneytið. En af sam- anburði á verkefnum og mönnun einstakra ráðuneyta og að teknu tilliti til þess fjármagns sem veitt er af fjárlögum hvers árs til við- komandi málaflokka, þá virðist sem starfsmenn heilbrigðisráðu- neytisins séu of fáir til að þeir geti sinnt þeim verkum sem þeim er ætlað á þann hátt sem gera má kröfu um og fram kemur í verkefnaskrá ráðuneytisins. Er heilsugæsla á höfuðborgarsvæð- inu á villigötum? Gunnar Ármannsson fjallar um heilsugæsluna í Reykjavík Gunnar Ármannsson ’Ef mikil til-færsla ætti sér stað á þétt- býlisstöðum í landinu, úr heilsugæslu- kerfinu yfir á samning sjálf- stætt starfandi heimilislækna, mætti vel hugsa sér algjöra end- urskipulagningu á hlutverki heilsugæslu- stöðvanna á þeim svæðum.‘ Höfundur er framkvæmdastjóri Læknafélags Íslands.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.