Morgunblaðið - 28.10.2005, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2005 37
Ertu viðbúinn
vetrinum?
Glæsilegt sérblað
um veturinn fylgir
Morgunblaðinu
á morgun
Í dag er borinn til hinstu hvílu
elskulegur móðurbróðir okkar Páll
Stefánsson eða Palli eins og hann var
kallaður. Hann var næstur móður
okkar í aldri og alltaf mjög kært á
milli þeirra. Á æskuárum vorum við
systkinin sumarlangt á heimili hans í
góðu yfirlæti við leik og störf. Á
kveðjustund reikar hugurinn og
margar dýrmætar minningar koma
fram.
Palli var fæddur í Vestri-Miðbæ á
Hnappavöllum í Öræfum og ólst upp
í stórum systkinahópi. Á Hnappa-
völlum bjó hann allan sinn aldur fé-
lagsbúi með bræðrum sínum og
systrum, þeim Þorláki, Þórði, Guð-
rúnu og Kristínu ásamt mágkonu
sinni Sigrúnu Bergsdóttur og síðar
Guðmundi, syni Þórðar og Sigrúnar.
Hans yndi var sauðfjárbúskapur-
inn. Sauðfjárbóndinn Páll var ein-
staklega fjárglöggur og natinn við
hjörðina sína og þekkti sitt eigið fé og
annarra úr mikilli fjarlægð. Stundaði
hann sauðfjárrækt af áhuga og leit-
aði eftir fjölbreytni í byggingu og lit-
arafbrigðum. Hann talaði stundum
um að sauðfé vantaði fjárbragð. Féð
átti að vera líflegt og sviphreint. Palli
hafði mikinn áhuga á uppgræðslu
lands og lagði sig fram um að græða
upp ógróna aurana og fékk okkur
kaupstaðarbörnin með sér í það að
veita lækjum yfir þá og dreifa moði
og áburði í brekkur og uppblásin
börð.
Á fjölmennu heimili skipta menn
með sér verkum. Palli var lítið fyrir
PÁLL SIGURÐUR
STEFÁNSSON
✝ Páll SigurðurStefánsson
fæddist á Hnappa-
völlum í Öræfum 30.
maí 1918. Hann lést
á Hjúkrunarheim-
ilinu á Hornafirði
17. október síðast-
liðinn. Foreldrar
hans voru Stefán
Þorláksson, f. á
Hnappavöllum
1878, d. 1969, og
kona hans Ljótunn
Pálsdóttir, f. í
Svínafelli í Öræfum,
1882, d. 1955. Páll var fimmti elst-
ur í hópi ellefu systkina, tvö dóu í
frumbernsku. Auk hans eru nú
látin Páll Arnljótur, Kristín, Guð-
rún, Þóra Ingibjörg, Helgi og Þor-
lákur en eftir lifa Sigríður og
Þórður.
Útför Páls Sigurðar verður
gerð frá Hofskirkju í Öræfum í
dag og hefst athöfnin klukkan 14.
að stjórna vélum og
tækjum, ferðaðist
frekar gangandi eða á
hestbaki en að skrölta
um á vélum, hann lét
aðra um það. Hann
lagði mikið upp úr heil-
brigðum lífsstíl og var
þeirrar skoðunar að
andleg og líkamleg
heilsa byggðist á því
að stunda hreyfingu,
borða íslenskan sveita-
mat og hitta annað
fólk. Hann lifði sam-
kvæmt þessu alla tíð.
Hann tók daginn snemma og fór í
góðar göngur á hverjum degi. Til að
líta eftir kindum eins og hann sagði. Í
sauðburðinum á vorin kom hann oft
heim með kjóaegg í húfunni og á
sumrin veiddi hann silung í net.
Það var alltaf líf og fjör í kringum
Palla og hann bjó yfir þeim hæfileika
að njóta lífsins hér og nú. Hann var
sérlega þægilegur í umgengni, skap-
góður og tilfinningaríkur. Hann lét
sig ekki vanta á mannamót og sótti
stórhátíðir hvar sem var á landinu.
Hann átti auðvelt með og hafði gam-
an af að gefa sig á tal við ókunnuga
og spyrja þá frétta, og spurði þá að
gömlum íslenskum sið hverra manna
þeir væru.
Á haustin, eftir lok sláturtíðar og
annarra haustverka í sveitinni, kom
Palli árum saman suður og fékk sér
launavinnu á mölinni fram að jólum.
Um leið naut hann félagslífs og
skemmtunar sem borgarlífið bauð
uppá. Og þó hann hætti að koma suð-
ur til vinnu á efri árum hélt hann
áfram að koma í frí sér til skemmt-
unar.
Nú er ný kynslóð farin að venja
komur sínar að Hnappavöllum og
löðuðust börnin okkar líka að Palla.
Hann lagði mikið upp úr því að þau
færu með góðar minningar úr sveit-
inni sinni kæru og fannst mikilvægt
að þau skoðuðu sig um og hvíldu sig
frá borgarþysnum. Hjá þeim var allt-
af hápunkturinn þegar hann tók þau
með sér á hestbak. Við öll kveðjum
nú kæran frænda með söknuði og
virðingu og þökkum honum sam-
fylgdina. Blessuð sé minning hans.
Sæmundur, Unnur Stefanía,
Helga, Björk og Stefán.
Í dag kveðjum við kæran frænda,
hann Palla. Við systkinin vorum svo
heppin að alast upp á sama heimili og
hann bjó á. Hann var bóndi af lífi og
sál, þekkti hverja kind og ættir
þeirra. Það var upplifun að ganga
með honum út í haga og sjá kind-
urnar koma til hans þegar hann kall-
aði á þær. Og við vorum ekki há í loft-
inu þegar hann fór að drífa okkur á
hestbak með sér.
Hann upplifði tímana tvenna
ásamt systkinum sínum. Og lagði
hann mikinn metnað í að breyta jörð-
inni úr örreytiskoti í stórbýli ásamt
bræðum sínum.
Palli var léttur á fæti og göngu-
maður mikill. Hann var eitt sinn
spurður að því hvernig hann færi að
því að halda heilsunni svo vel, kom-
inn yfir áttrætt. Þá svaraði hann:
„Með því að hreyfa sig og hitta fólk.“
Hann var mjög félagslyndur og tók
þátt í félagsstörfum í sveitinni sinni
af lífi og sál.Hann hafði yndi af söng
og söng með kirkjukór Hofskirkju
alla tíð á meðan heilsan leyfði. Og
taldi hann það ekki eftir sér að mæta
á söngæfingar og vildi veg kirkjunn-
ar sem mestan.
Palli hafði yndi af því að ferðast
um landið sitt og fór á ýmis manna-
mót og hátíðir. Hann var mjög mann-
glöggur og ófeiminn að taka fólk tali
hvert sem hann fór og ekki fór hann í
manngreinarálit í þeim efnum.
Síðustu tvö árin fór sjónin að dapr-
ast hjá Palla og fór hann ekki eins
mikið af bæ eins og hann langaði. En
var þó duglegur að mæta á spila-
kvöld og voru spilafélagarnir dugleg-
ir að aðstoða hann ungir sem aldnir
og var hann mjög þakklátur fyrir það
að geta verið með. Síðasta vor veikt-
ist Palli svo hastarlega og dvaldist á
Hjúkrunarheimilinu Höfn allt síðast
sumar. Hann tók veikindum sínum
með miklu æðruleysi og hugarró þar
til yfir lauk. Við systkinin þökkum
fyrir allar dýrmætu minningarnar
um yndislegan frænda og vin. Guð
geymi minningu hans.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
(V. Briem.)
Guðmundur B. Þórðarson,
Stefanía L. Þórðardóttir.
MINNINGAR
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar alla útgáfudagana.
Skil Minningargreinar skal senda í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins:
mbl.is (smellt á reitinn Morgun-
blaðið í fliparöndinni – þá birtist
valkosturinn „Senda inn minning-
ar/afmæli“ ásamt frekari upplýs-
ingum).
Skilafrestur Ef birta á minning-
argrein á útfarardegi verður hún
að berast fyrir hádegi tveimur
virkum dögum fyrr (á föstudegi ef
útför er á mánudegi eða þriðju-
degi).
Minningargreinar
Gullsmárabrids
Bridsdeild FEBK í Gullsmára spil-
aði tvímenning á 12 borðum mánu-
daginn 4. október. Miðlungur 220.
Efst voru í NS:
Dóra Friðleifsdóttir – Jón Stefánsson 298
Kristinn Guðmss. – Guðm. Magnússon 258
Einar Markússon – Sigurður Pétursson 244
AV
Jón Stefánsson – Eysteinn Einarsson 308
Karl Gunnarss. – Gunnar Sigurbjörnss. 268
Dagný Gunnarsd. – Steindór Árnason 237
Bridsfélag Selfoss og nágrennis
Fimmtudaginn 20. október sl. var
annað kvöldið í Suðurgarðsmótinu
spilað. Eitt par bættist í hópinn og
eru pörin því orðin 13 sem taka þátt í
mótinu. Þessi pör skoruðu mest um
kvöldið:
Guðjón Einarsson – Ólafur Steinason 44
Gunnar Helgason – Össur Friðgeirss. 28
Staða efstu para í mótinu er þessi:
Guðjón Einarsson –
Ólafur Steinason/Vilhjálmur Þ. Pálsson 41
Gunnar B. Helgason – Össur Friðgeirsson 37
Garðar Garðarsson – Gunnar Þórðarson 29
Bridsfélag Suðurnesja
og Bridsfélagið Muninn
Hafinn er þriggja kvölda Baromet-
er tvímenningur hjá bridsfélögunum
og taka 12 pör þátt í keppninni.
Vignir Sigursveinsson og Úlfar
Kristinsson byrjuðu best og eru með
35 stig yfir meðalskor. Heiðar Sig-
urjónsson og Kristján Ö. Kristjáns-
son eru í öðru sæti með 31 og feðg-
arnir Kjartan Ólason og Óli Þór
Kjartansson þriðju með 19.
Spilað er í félagsheimilinu við
Sandgerðisveg og eru spilarar hvatt-
ir til að mæta snemma því spila-
mennskan hefst á mínútunni 19.30
og spila þarf 32 spil.
Bridsdeild FEB í Reykjavík
Tvímenningskeppni var spiluð í
Ásgarði, Stangarhyl, mánud. 24.10.
Spilað var á 10 borðum. Meðalskor
216 stig.
Árangur N-S
Helgi Hallgrímss. – Jón Hallgrímss. 263
Vilhjálmur Sigurðs. – Magnús Halldórs. 240
Magnús Oddss. – Oliver Kristóferss. 236
Árangur A-V
Hjálmar Gíslason – Hilmar Valdimarss. 239
Ægir Ferdinands. – Jóhann Lútherss. 235
Gunnar Jónsson – Guðbjörn Axelsson 222
Bridsdeild Barðstrendinga
og Bridsfélag kvenna
Halldór Svanbergsson og Jón Ing-
þórsson voru í miklu stuði á öðru
spilakvöldinu í butlertvímenningi fé-
lagsins og skoruðu hvorki meira né
minna en 95 impa, 53 impum fleiri en
næsta par.
Af þremur kvöldum verða tvö
bestu látin gilda til verðlauna. Pör
geta bæst inn í þriðja spilakvöldið ef
þau vilja, en verða þá að mæta tím-
anlega. Eftirtalin pör hafa náð bestu
skorinu samanlagt á tveimur spila-
kvöldum af þremur:
Halldór Svanbergsson – Jón Ingþórsson 114
Guðjón Sigurjónsson – Stefán Stefánsson 83
Jón Stefánsson – Magnús Sverrisson 64
Sigurður Ólafsson – Karl Ómar Jónsson 38
Eftirtalin pör náðu hæsta skorinu
á öðru spilakvöldinu:
Halldór Svanbergsson – Jón Ingþórsson 95
Gróa Guðnadóttir – Sigrún Þorvarðard. 42
Sigurður Ólafsson – Karl Ómar Jónsson 38
Guðjón Sigurjónsson – Stefán Stefánsson 29
Bridsfélag Reykjavíkur
Dræm aðsókn var á spilakvöldi fé-
lagsins síðasta föstudag, 21. október,
væntanlega vegna deildakeppninnar
sem spiluð var um helgina. Dræm
aðsókn kom þó ekki í veg fyrir mikla
baráttu á toppnum og munaði aðeins
örfáum stigum á efstu mönnum í lok-
in. Lokastaða efstu para:
Oddur Hannesson – Árni Hannesson 152
Rúnar Gunnarsson – Jón Ingþórsson 151
Hjálmar Pálsson – Eiríkur Sigurðsson 146
Baldur Bjartmarsson – Eggert Bergsson142
Bridsfélag Hafnarfjarðar
Mánudaginn 24. október var spil-
að fyrsta kvöldið af þremur í A.
Hansen tvímenningnum.
Staðan eftir fyrsta kvöldið:
Guðlaugur Bessason – Stefán Garðarss. 61
Svala Pálsdóttir – Ólöf Þorsteinsd. 42
Ársæll Vignisson – Eiríkur Kristófersson 36
Gísli Steingrímss. – Harpa Fold Ingólfsd. 34
Eins og sést komu konur hressar
til leiks eftir góðan kvennafrídag og
sitja í efstu sætum. Verðlaunin í
mótinu eru mjög góð, t.d. málsverð-
ur fyrir 4 hjá A.Hansen.
FEBK Gjábakka
Það var spilað á átta borðum sl.
föstudag. Hörkukeppni var í báðum
riðlum og urðu úrslit þessi í N/S-riðl-
inum:
Hrafnhildur Skúlad. – Þórður Jörundss. 207
Magnús Halldórss. – Oliver Kristófss. 203
Ólafur Ingvarss. – Jóhann Lúthersson 188
A/V:
Vigdís Sigurjónsd. – Ólafur Lárusson 223
Sigrún Pétursd. – Unnar A. Guðmss. 220
Jón Hallgrímss. – Bjarni Þórarinss. 183
Bridsfélag Borgarfjarðar
Mánudaginn 17. október var spil-
aður tvímenningur hjá félaginu á 8
borðum. Úrslit voru skemmtilega
óvænt og ljóst að nokkrir af okkar
ágætu spilurum hafa notað rigning-
arkvöldin í ágúst vel til að byggja sig
upp fyrir átök vetrarins.
Þeir Guðmundur á Grímsstöðum
og Ásgeir á Þorgautsstöðum hljóta
að vera í þeim hópi því þeir unnu
glæstan sigur. Úrslit kvöldsins urðu
annars sem hér segir:
Guðm. Kristinsson – Ásgeir Ásgeirsson 164
Flemming Jessen – Guðm. Þorsteinsson 154
Ragna og Guðrún Sigurðardætur 141
Jón Eyjólfsson – Baldur Björnsson 135
Frá eldri borgurum
í Hafnarfirði
Föstudaginn 21 október var spilað
á 8 borðum.
Meðalskor var 168. Úrslit urðu
þessi í N/S
Helgi Einarsson – Ingimundur Jónsson 202
Friðrik Hermannss. – Jón Ó. Bjarnason 194
Einar Markússon – Sverrir Gunnarsson 173
A/V
Jón Sævaldsson – Þorvarður S. Guðmss. 207
Knútur Björnsson – Elín Björnsdóttir 202
Anton Jónsson – Einar Sveinsson 202
Bridsdeild Breiðfirðinga
– leiðrétting
Nett mistök urðu í frásögn þátt-
arins sl. þriðjudag þá er sagt var frá
spilamennsku hjá Breiðfirðingum
16. okt. sl. Þar sagði að Sveinn Krist-
insson og Haukur Guðbjartsson
hefðu orðið efstir í N/S-riðli. Hið
rétta er að það var Reynir Haralds-
son sem spilaði við Svein.
Breiðfirðingar spila á sunnudags-
kvöldum kl. 19 í Breiðfirðingabúð.
Bridsfélag Hreyfils
Bílstjórarnir eru komnir á fullt
skrið í vetrarstarfinu og spiluðu 10
para tímenning sl. mánudagskvöld.
Lokastaða efstu para:
Birgir Sigurðss. - Sigurrós Gissurard. 136
Dagur Halldórss. - Björn Stefánss. 133
Jón Sigtryggss. - Skafti Björnss. 121
Næstkomandi mánudag hefst
fimm kvölda tvímenningur. Spilað er
í Hreyfilshúsinu við Grensásveg og
hefst spilamennskan kl. 19.30.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson