Morgunblaðið - 28.10.2005, Page 43

Morgunblaðið - 28.10.2005, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2005 43 MINNINGAR ur systkinin eins og frændur okkar. Nei, við héldum sko með okkar liði, Manchester, og Elísu fannst ekkert skemmtilegra en að mæta í Man- chester-búningnum til þín, því þú fussaðir og sveiaðir og tókst fyrir augun. Við höfðum líka gaman af því að leika og syngja fyrir þig, þó sérstak- lega Eyþór, og það var svo gaman, elsku afi, að þú skyldir geta séð Ey- þór í Oliver þó að þú værir svona veikur. Það er honum svo dýrmætt að hafa getað sagt þér frá sínu næsta hlutverki sem er Jesú og þú brostir og sagðir að það yrði líklega stór geislabaugur yfir honum. Afi var svo stoltur af Ellen þegar hún fékk viðurkenningu í skólanum síðastliðið vor og hve vel gekk hjá henni í íþróttum. Það voru ómetan- legar stundir í sumar þegar Ellen fór með honum á golfvöllinn í sumar og dró fyrir hann kerruna. Þar tók hún margar, margar myndir sem eru okkur mikils virði í dag. Elsku afi, við hugsum vel um hana ömmu Jóhönnu fyrir þig og minning- arnar um þig ylja okkur um alla ævi. Stundin líður tíminn tekur toll af öllu hér sviplegt brottfall söknuð vekur sorg í hjarta mér. Þó veitir yl í veröld kaldri vermir ætíð mig að hafa þó á unga aldri eignast vin sem þig. Þú varst ljós á villuvegi, viti á minni leið, þú varst skil á dökkum degi, dagleið þín var greið. Þú barst tryggð á traustri hendi, tarin straukst af kinn, þér ég mínar þakkir sendi, þú varst afi minn. (Hákon Aðalsteinsson.) Þín barnabörn, Eyþór Ingi, Ellen Ýr og Elísa Rún. Elsku afi Toni. Það er sárt að fá ekki að kynnast þér meir. Frá fyrsta degi hef ég laðast að þér og viljað draga þig í leik með mér. Það var mikil tilhlökkun sem fylgdi því að setjast upp í bílinn og keyra lengi lengi til afa Tona og ömmu Jóhönnu á Dalvík. Þú varst svo duglegur að lesa fyrir mig og kenna mér aðeins á spilastokkinn. Ég þurfti nú líka stundum að segja þér margt í símann þegar ég heyrði í þér. Ég skil það nú ekki alveg að þú sért farinn frá mér en veit að þú ert engill á himnum eins og mamma hennar Línu langsokks. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil svo ég sofi rótt. (Þýð. S. Egilsson.) Þín Auður Lára Mei. Elsku afi. Sárt verður fyrir mig að hafa ekki fengið að kynnast þér, en mamma og pabbi ætla að segja mér sögur af þér. Svo get ég spurt frænk- ur mínar og frændur um hvernig afi minn var. Takk fyrir, Guð, að þú leyfðir afa að sjá mig og halda á mér og fyrir þann fjársjóð að ég eigi myndir af mér með afa mínum. Við burtför þína er sorgin sár af söknuði hjörtun blæða. En horft skal í gegnum tregatár í tilbeiðslu á Drottin hæða. Og fela honum um ævi ár undina dýpstu að græða. (Guðrún Jóh. frá Brautarholti.) Vonandi vakir þú yfir mér, afi minn, og Guð yfir þér. Lárus Anton Freysson. Kær frændi og vinur er horfinn á braut. Það er líklega eðlilegt á svona stundum þegar einhver sem er manni kær hverfur úr þessari jarðvist að í gegnum huga okkar renni margar ljúfar og notalegar minningar frá samverustundum liðinna ára. Fyrsta minning mín sem tengist Tona föð- urbróður mínum er á jólum fyrir rúmlega 40 árum er hann þá tæplega tvítugur kom heim úr siglingu fær- andi okkur systkinunum gjafir. Seinna gerði maður sér grein fyrir því að eðlilegra hefði verið að Toni hefði haft hugann við eitthvað annað en okkur krakkana þegar hann var kominn á erlenda grund. En það var honum tamt að hugsa um aðra og sá kærleikur og ræktarsemi sem hefur alltaf verið á milli föðursystkina minna er einstakur og notalegur. Fleiri minningar koma upp í hug- ann: Toni og Svenni á nýja bílnum sem þeir keyptu saman, Toni að koma með Jóhönnu fyrst heim í Brattavelli, Toni kominn að hjálpa til við heyskapinn á góðum þurrkdegi eða sitjandi hjá afa inn í herbergi að ræða sjósókn og nýjustu aflatölur. Seinna þegar allir voru komnir með bíla var farið í dagsferðir um næstu sveitir, haft með sér kaffi, farið í fótbolta eða setið og spjallað. Þegar maður varð eldri og kominn með fjöl- skyldu sjálfur hélt maður áfram að fylgja hópnum í þessar ferðir og þá var farið um helgi og tjaldað í Hljóða- klettum eða upp við Ánavatn. Ógleymanlegar eru líka allar veiði- ferðirnar í Mýrarkvísl sem voru fjöl- margar og árvissar. Þar var ekki bara veiðigleðin ríkjandi heldur gleðin yfir að vera saman og rifja upp gamlar stundir og segja góðar sögur. Við höldum áfram að hittast þó ein- staklingar falli úr hópnum og bjóðum nýja ættingja velkomna þegar fjölgar í ættinni. En skörð þeirra sem farnir eru verða aldrei fyllt og skarðið hans Tona er stórt. Við eigum minningu um mætan mann sem setti sterkan svip á ættina með kímni sinni og hjartahlýju. Elsku Jóhanna og þið öll. Við vott- um ykkur okkar dýpstu samúð. Megi Guð styðja ykkur og styrkja í sorg- inni. Svanfríður Sigurðardóttir og fjölskylda. Það stendur skrifað að söngurinn göfgi. Sannleikur er í þessum orðum, því allir hafa gaman af söng. Hans er notið af miklum innileik, hrifist er með, fundið til mikillar gleði eða sorgar, eftir því um hvað er sungið og hve góð túlkun er á lagi og texta. Að vera í kór er gefandi fyrir þá sem það stunda og það gera menn af öllum stigum þjóðfélagsins. Þeir koma saman og njóta æfinganna og um leið þeirrar samveru sem þær bjóða upp á við aðra söngbræður og taka við leiðsögn frá söngstjóra af miklum áhuga. Þegar Anton eða Toni, eins og við kölluðum hann alltaf, kom í land og hóf störf hjá Hafnasamlagi Eyja- fjarðar lét hann undan þeirri löngun sem ég minntist á hér að framan. Hann gerðist félagi í kór og gekk til liðs við Karlakór Dalvíkur og söng með honum í allmörg ár. Toni og Jóhanna fóru í söngferðir með kórnum og sú síðasta var sl. sumar, þegar Karlakór Dalvíkur fór í söngferð til Danmerkur, Svíþjóðar og Noregs. Þessi söngferð var hreint ævintýri fyrir alla sem þátt tóku í henni. Það var sérstaklega ánægju- legt þegar Toni ákvað að koma með í ferðina því hann hafði verið veikur um tíma. Það er ógleymanlegt að hugsa til þess að Toni, orðinn eins veikur og raun bar vitni, skyldi syngja með okkur á sviðinu í Tívoli í Kaupmannahöfn og njóta síðan kvöldsins og reyndar ferðarinnar allrar með okkur, söngbræðrum hans. Mér þótti gaman að sjá glettinn svip hans, þegar við vorum um borð í skemmtiferðaskipinu á leið til Óslóar, er ég spurði hann í stríðni hvort hann, skipstjórinn, væri ekki sjóveik- ur. Hann svaraði bara nei og ég skildi vel svarið. Þetta var ekki svaravert, en svona var Toni, ekki orðmargur en það skildist vel það sem hann meinti. Tona verður sárt saknað af okkur kórfélögum hans. Fyrir hönd söng- bræðra hans í Karlakór Dalvíkur og eiginkvenna þeirra vil ég þakka Tona þær stundir sem við áttum með hon- um. Við sendum Jóhönnu og fjöl- skyldu hennar okkar innilegustu samúðarkveðjur. Megi Guð styrkja þau á þessum erfiðu tímum. Þorsteinn Björnsson, formaður Karlakórs Dalvíkur. Enn einu sinni er höggvið skarð í þann hóp sem fyrir um 15 árum hófst handa við að byggja upp golfklúbb og eigin völl í Svarfaðardal. Anton Gunnlaugsson varð fljótt einn af máttarstólpunum í klúbbnum og handtök og viðvik þeirra hjóna Jó- hönnu og Tona eru mörg. Í klúbb eins og okkar þar sem svo margt er unnið í sjálfboðavinnu teng- ist fólk gjarnan og verður nánara. Toni hafði góða nærveru og var eft- irsóttur sem félagi og meðspilari. Góðmennskan og léttleikinn var hon- um svo eiginleg. Að slá á létta strengi var eitthvað sem maður vissi að fylgdi Tona og þegar alvaran kallaði eða vandamálin hrönnuðust upp var gott að leita til Tona og rökræða mál- in. Lausn fannst þá fljótt og gjarnan var klykkt út með hnyttnu orðavali eða gamansömu tilsvari. Í mörg ár var hann fastur maður í liði klúbbsins í sveitakeppni og eru ferðirnar sem farnar voru mjög minnisstæðar. Ferðirnar voru margar og sumar langar því farið var sem dæmi til Hornafjarðar og vestur í Ólafsvík. Þá var gott að vita af Tona með í för. Klúbbfélagar geyma fjölda minninga um skemmtilegan og góðan dreng. Minnignar sem gleðja og ylja við áframhaldandi uppbyggingu þess sem var honum mikils virði og hann átti sinn þátt í. Klúbbfélagar votta Jóhönnu, sonum og fjölskyldum þeirra innilega samúð og biðja þeim blessunar. F.h. Golfklúbbsins Hamars, Guðm. Ingi Jónatansson. Við fráfall Lárusar, móðurbróður míns, lýkur ákveðnum kafla í fjölskyldusögunni þar sem hann kveður nú síðastur níu systkina og maka þeirra. Lárus var yngstur í hópnum og ólst upp hjá dugmikilli móður sinni eftir skilnað foreldranna þegar hann var enn barn að aldri. Lárus var Reykvíkingur, vesturbæ- ingur og íhaldsmaður í bestu merk- ingu þessara orða og átti heimili í yfir 50 ár á Sólvallagötu 5a. Lárus var í miklu uppáhaldi hjá móður minni og tíður gestur heima. Hann og faðir minn voru báðir málm- iðnaðarmenn og áttu það sameigin- legt að hafa mannaforráð á stórum vinnustöðum, í Héðni og Hamri, á blómaskeiði þeirrar iðngreinar á sjötta og sjöunda áratug síðustu ald- ar. Þeim mágum sveið báðum sárt skammsýni stjórnvalda um hag greinarinnar og það að upplifa þá hnignum og miklu verkþekkingu sem glataðist þegar opnað var fyrir, án nokkurrar aðlögunar, sem heitið gæti, óhefta erlenda samkeppni, og sjá á bak þeim fjölmörgu störfum sem í einu vetfangi fluttust úr landi. Ég á ótal góðar minningar úr æsku um þennan frænda minn sem í raun- inni var mér stóri bróðirinn sem allir strákar vilja eiga. Á þessum árum var Lalli, eins og ég vandist að kalla hann, í siglingum sem nýútskrifaður vél- stjóri og mér áskotnuðust frá honum ýmsir hlutir upprunnir úr fjarlægum heimsálfum sem brugðu hæfilegum LÁRUS BENEDIKT BJÖRNSSON ✝ Lárus BenediktBjörnsson yfir- vélstjóri fæddist í Reykjavík 18. apríl 1923. Hann lést á Landakotsspítala 4. október síðastliðinn og fór útför hans fram frá Dómkirkj- unni í Reykjavík miðvikudaginn 12. október. ævintýrabjarma á manninn í augum leik- félaganna. Enn í dag er í fórum mínum „gamla lestin“ sem ungir dótt- ursynir mínir fá á góð- um stundum að leika sér með í stað nútíma- legri hluta og þeir horfa opinmynntir á hana bruna hring eftir hring. Þeir fá líka að heyra frásögnina um gefandann sem sigldi um heimsins höf. Ég hef því áreiðanlega verið nokkuð áhyggjufullur rétt inn- an við 10 ára aldurinn þegar ég frétti að Lalli væri komin með kærustu og talið það nokkra ógn við stöðu mína í tilveru hans. Þær áhyggjur reyndust að sjálfsögðu ástæðulausar því öll mín uppvaxtar- og námsár fylgdist Lalli grannt með gangi mála og gauk- aði ýmsu að mér án sýnilegs tilefnis. Hann hvatti mig í námi, var innvígður KR-ingur og fastagestur í stúkunni þegar ég var að keppa fyrir það félag. Sama viðmót mætti mér strax frá byrjun frá hans elskulegu eiginkonu, Helgu Sigurðardóttur, og mín fjöl- skylda hefur notið þess alla tíð að hafa átt þau og börn þeirra að vinum og þátttakendum í helstu hátíða- stundum okkar. Helga lést fyrir liðlega ári síðan og eftir það hallaði fljótt undan fæti hjá Lalla og er ég nokkuð viss um að hann kvaddi þetta líf vel sáttur við ævistarfið og var stoltur af börnum sínum, tengdabörnum og afkomend- um öllum og framgöngu þeirra í líf- inu. Við Áslaug systir mín og fjölskyld- ur okkar þökkum að leiðarlokum Lárusi frænda langa og trygga sam- fylgd og vináttu og vottum frænd- systkinum okkar, Þórhildi og Ólafi Birni og fjölskyldum þeirra samúð okkar. Guð blessi minningu Lárusar Benedikts Björnssonar. Þórður Jónsson. Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, ÞORLEIFS S. KRISTJÁNSSONAR frá Norðureyri við Súgandafjörð, áður til heimilis á Traðarstíg 5, Bolungarvík. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Uppsölum, Fáskrúðsfirði. Fjölskyldan. Þökkum innilega fyrir auðsýnda samúð og vinar- hug við andlát og útför SIGRÚNAR GUNNARSDÓTTUR, Austurgötu 24, Keflavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks Fríhafnarinnar, Hol- taskóla og Félags leiðsögumanna á Suður- nesjum. Fyrir hönd sona, foreldra, systra og annarra vandamanna, Þórarinn Þórarinsson. Ástkær móðir mín, tengdamóðir mín, amma okkar og langamma, SIGRÍÐUR GUÐRÚN BENÓNÝSDÓTTIR, Fossagötu 10, Reykjavík, sem lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni mánudaginn 17. október, verður jarðsungin frá Háteigskirkju þriðjudaginn 1. nóvember kl. 13.00. Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Minningarsjóð Kvenfélags Háteigssóknar. Elísabet S. Magnúsdóttir, Sigríður Dóra Jóhannsdóttir, Sigríður Erla Eysteinsdóttir, Jóhannes Hermannsson, Magnús Þór Gylfason, Elva Dögg Melsteð, Þóra Björk Eysteinsdóttir, Gunnar Wedholm Helgason, Helga Björg Gylfadóttir, Gunnar Theodór Eggertsson og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, LARS HÖJLUND ANDERSEN, Vesturgötu 24B, Akranesi, andaðist á Sjúkrahúsi Akraness miðvikudaginn 26. október. Útförin fer fram frá Akraneskirkju þriðjudaginn 1. nóvember kl. 14.00. Gæflaug Björnsdóttir og fjölskylda.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.