Morgunblaðið - 28.10.2005, Qupperneq 46
46 FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Mat á umhverfisáhrifum
Ákvörðun Skipulagsstofnunar
um matsskyldu framkvæmda
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að
eftirtaldar framkvæmdir skuli ekki háðar mati
á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum um mat
á umhverfisáhrifum nr. 106/2000 m.s.br.
Skógrækt á Jarlsstöðum í Aðaldælahreppi
580 kW virkjun í landi Gríshóls í Helga-
fellssveit
Ákvarðanirnar liggja frammi hjá Skipulags-
stofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík.
Þær er einnig að finna á heimasíðu Skipulags-
stofnunar: www.skipulag.is .
Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til um-
hverfisráðherra og er kærufrestur til 25. nóv-
ember 2005.
Skipulagsstofnun.
Félagslíf
Í kvöld kl. 20.30 heldur Geir
Rögnvaldsson erindi: „Heims-
mynd bókanna — Samræður við
Guð“ í húsi félagsins, Ingólfs-
stræti 22.
Á laugardag kl. 15-17 er opið
hús með fræðslu og umræðum,
kl. 15.30 í umsjá Emils S. Björns-
sonar sem stýrir smiðju um and-
leg viðfangsefni.
Á fimmtudögum kl. 16.30-
18.30 er bókaþjónustan opin
með miklu úrvali andlegra bók-
mennta.
Á sunnudögum kl. 10 er hug-
leiðing með leiðbeiningum.
Starfsemi félagsins er öllum
opin.
http:/gudspekifelagid.is
I.O.O.F. 1 18610288
I.O.O.F. 12 18610288½ 9.I.
Raðauglýsingar 569 1100
Atvinnuauglýsingar
sími 569 1100
Raðauglýsingar
sími 569 1100
Seyðisfjörður | Heilbrigðisstofnun Austurlands á Seyðisfirði hef-
ur boðað til fundar um málefni minnisskertra einstaklinga og að-
standenda þeirra n.k laugardag.
Í fréttatilkynningu frá stofnuninni segir að málefni aldraðra
hafi verið talsvert áberandi í samfélagsumræðunni síðastliðin ár.
Bent hefur verið á marga vankanta í þjónustu við þennan hóp.
Þjónusta við minnisskerta einstaklinga og aðstandendur þeirra
tengist þessari umræðu svo og sá þáttur þjónustunnar sem snýr
að íbúum dreifbýlisins.
Frá árinu 1998 hefur verið starfandi við Heilbrigðisstofnunina
á Seyðisfirði sérdeild fyrir minnisskerta. Þar eru í boði hvíld-
arinnlagnir í 4-6 vikur, skammtímainnlagnir, þar sem mat og
ráðleggingar eru veittar og einnig hefur verið boðið upp á dag-
vistun. Aðalstarfsemin lýtur þó að þjónustu við þá einstaklinga
sem þar búa. Deildin hefur þjónað öllum fjórðungnum og hefur
starfsemin þar fengið jákvæð viðbrögð sérfræðinga í öldrunar-
lækningum. Starfsfólk deildarinnar hefur jafnan lagt mikið upp
úr faglegri umönnun skjólstæðinga sinna sem og góðri samvinnu
við aðstandendur þeirra sem þar dvelja.
Ekki hefur verið um að ræða formlegt samband milli aðstand-
enda minnisskertra á Austurlandi. Starfsfólk deildarinnar hefur
hug á að kanna hvort áhugi fyrir slíku sambandi sé fyrir hendi og
einnig að kynna það starf sem fram fer á Seyðisfirði. Einnig að
leggja mat á þörf fyrir víðtækari þjónustu við minnisskerta og
aðstandendur þeirra í fjórðungnum. Af því tilefni var ákveðið að
efna til fundar um málefni minnisskertra og aðstandenda þeirra
á Austurlandi.
Fundurinn verður haldinn í fundarsal Heilbrigðisstofnunar-
innar á Seyðisfirði laugardaginn 29. október n.k. og hefst kl. 14,
segir í tilkynningunni.
Málefni minn-
isskertra rædd
JARÐHITAFÉLAG Íslands, Orku-
stofnun og Íslenskar orkurannsókn-
ir halda málþing til minningar um dr.
Guðmund Pálmason 2. nóvember kl.
13 í nýjum sal í Orkugarði, Grens-
ásvegi 9.
Guðmundur fæddist 1928 og lést
2004. Hann nam eðlisfræði í Svíþjóð
og Bandaríkjunum, en ævistarf hans
sem forstöðumanns jarðhitadeildar
Orkustofnunar sneri að jarðeðlis-
fræði og nýtingu jarðhita. Rann-
sóknir hans, sem skýrðu megin-
drætti í jarðskorpu landsins og
gliðnunarbeltum landrekshryggja,
öfluðu honum víðtækrar viðurkenn-
ingar. Undir forustu Guðmundar
urðu miklar framfarir í rannsóknum
og nýtingu jarðhita hér á landi, að
því er segir m.a. í fréttatilkynningu.
Guðmundur tók mjög virkan þátt í
alþjóðasamstarfi á sviði jarðhita og
jarðskorpurannsókna. Í apríl 2003
var hann kjörinn heiðursfélagi Jarð-
hitafélagsins.
Á málþinginu munu fimm nánir
samstarfsmenn hans og vinir fjalla
um nokkur sér-
svið þar sem Guð-
mundur markaði
mikilsverð spor.
Ólafur G. Flóvenz
ræðir um fræði-
manninn Guð-
mund, Sveinbjörn
Björnsson um hin
víðtæku alþjóða-
samskipti hans,
Valgarður Stefánsson um stjórnand-
ann og Friðrik Ólafsson um skák-
manninn Guðmund. Að lokum mun
Benedikt Steingrímsson sýna mynd-
ir úr lífi og starfi Guðmundar.
Síðasta stórverk Guðmundar var
að skrifa bók, sem hann nefndi Jarð-
hitabók – Eðli og nýting auðlindar.
Bókin kom út fyrr á þessu ári hjá
Hinu íslenska bókmenntafélagi.
Bókin verður til sýnis og sölu (á til-
boðsverði) í kaffihléinu.
Aðgangur að málþinginu er
ókeypis og öllum opinn. Þátttakend-
ur ská sig hjá Orkustofnun í síma
569 6000, netfang: os@os.is.
Málþing til minningar
um Guðmund Pálmason
Guðmundur
Pálmason
NÝVERIÐ var opnuð á Strikinu í
Kaupmannahöfn skartgripaversl-
unin SMAK þar sem seldir eru
handsmíðaðir gull- og silfurskart-
gripir frá Jens í Kringlunni, en
verslanirnar eru báðar reknar af
Jóni Snorra Sigurðssyni gullsmið. Í
fréttatilkynningu segir að fyrirtækið
hafi í gegnum tíðina þróað sérstakan
stíl sem meðal annars sé sóttur í ís-
lenska náttúru og því sé vonast til að
hann skapi nokkra sérstöðu á dönsk-
um markaði.
SMAK er til húsa í Skoubougade 1
við Strikið, við hliðina á Café Glace.
Á þessum stað hafa verið starf-
ræktar skartgripaverslanir í meira
en 100 ár, þar á meðal Ballin og
Georg Jensen. Rekstur verslunar-
innar er í höndum Ingibjargar
Snorradóttur, sem stundar nám við
viðskiptaháskólann í Kaupmanna-
höfn.
Jens opnar verslun
í Kaupmannahöfn
EGGERT Páll Ólafsson sem gefur
kost á sér í 7. sæti í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins vegna borgar-
stjórnarkosninganna í Reykjavík í
vor, opnar í dag, föstudaginn 28.
október kl. 17, kosningamiðstöð að
Sætúni 8, við hliðina á Heimilis-
tækjum. Boðið er upp á léttar veit-
ingar. Opið verður daglega í kosn-
ingamiðstöðinni fram að próf-
kjörinu frá kl 14 og þar til síðasti
maður fer.
Opnar kosningamiðstöð
Ein áskrift...
...mörg blöð
Drepfyndinn og rómantískur gamanleikur.
Ertu nokkurn tímann alveg viss?
Miðasala: 4 600 200 / www.leikfelag.is
Fim 27.okt kl. 20 UPPSELT
Fös 28. okt kl. 20 UPPSELT
Lau 29. okt. kl. 20 UPPSELT
Sun 30. okt. kl. 20 AUKASÝN.UPPSELT
Fös 4. nóv. kl. 20 UPPSELT
Lau 5. nóv kl. 20 UPPSELT
Lau 5. nóv. kl. 23.30 AUKASÝN.örfá sæti laus
Sun 6. nóv. kl. 20 AUKASÝN.í sölu núna
Lau 12. nóv. kl. 21. UPPSELT
Fös 18.nóv kl. 20 örfá sæti laus
Lau 19. nóv kl. 19 örfá sæti laus
Lau 19. nóv kl. 22 örfá sæti laus
Sun 20. nóv kl. 20 UPPSELT
“hættulega fyndið” - “hröð og þétt” - “fólk æpti í lokin” -
“meistaralegt” - “aðra eins snilld hef ég ekki séð í langan tíma”
Tryggðu þér miða í tíma!
Takmarkaður sýningartími!
Miðasala opin 13-17 og
allan sólarhringinn á netinu.