Morgunblaðið - 28.10.2005, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2005 49
DAGBÓK
GRUNNMENNTASKÓLINN er nafn á 300
stunda námi sem stéttarfélagið Efling hleypti af
stokkunum í byrjun mánaðarins í samvinnu við
Mími – símenntun. Námið er metið til eininga á
framhaldsskólastigi og ætlað fullorðnu fólki sem
hefur grunnskólapróf eða minna.
Garðar Vilhjálmsson, fræðslustjóri Eflingar,
segir 17 nemendur stunda nám við Grunn-
menntaskólann sem stendur. „Þeir sækja tíma
um eftirmiðdaginn og annan hvern laugardag.
Námið er hugsað fyrir þá sem hafa ekki sótt
skóla um langt skeið og vilja auka við menntun
sína en hafa kannski ekki áhuga á að sækja í
formlegt skólakerfi aftur. Þarna geta þeir bætt
við sig þekkingu í námsgreinum eins og íslensku,
tungumálum, stærðfræði og tölvum auk þess
sem farið er yfir þætti eins og samskipti, at-
vinnuviðtöl, vinnuumsóknir og fleira í þeim dúr.“
Hann segir einnig farið yfir svokallaða færni-
möppu í Grunnmenntaskólanum. „Í henni er
dregin saman sú raunfærni sem fólk hefur því
þó það sé ekki með formlegt prófskírteini hefur
það oft aðra reynslu og þekkingu sem nýtist, hef-
ur t.d skipulagt ferðir fyrir kvenfélagið, verið
gjaldkeri í íþróttafélagi eða eitthvað slíkt.“ Hann
bætir því við að í gegnum Fræðslumiðstöð at-
vinnulífsins sé námið metið til framhalds-
skólaeininga.
Þá hóf Efling námsráðgjöf á vinnustöðum í
vor. „Námsráðgjöfin er afurð alþjóðlegs Leon-
ardo–verkefnis sem við tókum þátt í. Í stað þess
að auglýsa námsráðgjöf á vinnustaðnum eða hjá
stéttarfélaginu getur fólk nú hitt námsráðgjaf-
ana á kaffistofunni á vinnustaðnum sínum. Þetta
gengur þannig fyrir sig að við auglýsum kynn-
ingarfund á kaffistofunni t.d. í hádeginu þar sem
farið er yfir hvað námsráðgjöf er. Eftir það setj-
ast námsráðgjafarnir niður á kaffistofunni til að
tala við fólkið. Ef einhver biðröð er eftir samtali
getur viðkomandi pantað sér tíma og rætt svo
síðar um daginn við námsráðgjafana á vinnu-
staðnum um þá námsmöguleika sem eru í stöð-
unni, hvort heldur er nám á vegum hinna ýmsu
aðila eða innan hefðbundins skólakerfis.“
Loks nefnir Garðar Landnemaskólann sem
Efling hefur starfrækt í á fjórða ár og er ætl-
aður félagsmönnum Eflingar sem eru af erlendu
bergi brotnir. Um er að ræða 120 stunda menn-
ingartengt íslenskunám sem líkt og Grunn-
menntaskólinn er metið til eininga á framhalds-
skólastigi.
„Við erum með yfir 2000 erlenda félagsmenn
og þarna viljum við gjarnan að atvinnurekendur
komi til móts við nemendurna því þessi menntun
gerir þá tvímælalaust að betri starfsmönnum.“
Nánari upplýsingar er að finna á www.efl-
ing.is.
Stéttarfélagið Efling | Býður ýmsa kosti fyrir þá félagsmenn sem vilja auka menntun sína
Mikilvægt að bæta þekkinguna
Garðar Vilhjálmsson
útskrifaðist frá Fjöl-
brautaskóla Suð-
urnesja árið 1987.
Hann lauk BA-prófi í
stjórnmálafræði frá
Háskóla Íslands árið
1990 og MSc.-prófi í
stjórnmálafræði frá
London School of
Economics árið 1992.
Að loknu námi starfaði
Garðar sem skrif-
stofustjóri Iðju sem síðar sameinaðist Eflingu
þar sem Garðar gegnir nú starfi fræðslustjóra.
Garðar er kvæntur Ástu Steinunni Eiríks-
dóttur og eiga þau þrjú börn.
Þakkir til Icelandair
OKKUR langar að þakka fyrir mjög
góða ferð fyrir eldri borgara með
Icelandair til St. Petersbourg á Flór-
ída í byrjun október. Fararstjórinn,
Gunnar Þorláksson, var alveg frá-
bær og ferðafélagar allir svo sam-
hentir um að gera ferðina sem
ánægjulegasta. Hlökkum til að sjá
sem flesta á Hótel Örk 8. desember.
Lilja og Halldóra.
Kjör aldraðra og öryrkja
STJÓRNVÖLD láta hjálparstofn-
anir, t.d. Hjálparstofnun kirkjunnar,
Fjölskylduhjálpina eða Mæðra-
styrksnefnd sjá um aldraða og ör-
yrkja í staðinn fyrir að sjá þessum
hópum fyrir mannsæmandi kjörum
hjá þeirri þjóð sem er ein ríkasta
þjóð í Evrópu.
Þetta er mikil hneisa fyrir ríkis-
stjórnina. Afnám lífeyrisgreiðslna
frá lífeyrissjóðum er ekki til að bæta
hag öryrkja. Þetta er vegna þess að
tekjur öryrkja og aldraðra frá
Tryggingastofnun ríkisins eru tekju-
tengdar við greiðslur úr lífeyris-
sjóðum. Halda stjórnvöld og þing-
menn að þetta sé hvatning til að fara
út á vinnumarkaðinn fyrir aldraða og
öryrkja? Það er síður en svo.
Hækkun skattleysismarka og
hækkun ellilífeyris- og örorkubóta er
það sem stjórnvöld verða að skoða.
Senn líður að kosningum, fyrst til
sveitarstjórnar, svo til Alþingis. Þeir
sem nú stjórna geta fengið frí ef þeir
eru orðnir þreyttir.
Gunnar G. Bjartmarsson,
Hátúni 10.
Nýja veðurspáin
ÉG vil koma á framfæri athugasemd
vegna nýja útlitsins á veðurspánni í
sjónvarpinu. Mér finnst þetta ekki
eins gott og gamla útgáfan, bæði
vegna þess að það er farið of hratt
yfir og svo sakna ég þess að sjá
aldrei hitamælingarnar á Grænlandi.
Með góðum kveðjum.
Eldri borgari.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
HM í Portúgal.
Norður
♠D4
♥DG76 V/Allir
♦DG743
♣K9
Vestur Austur
♠G852 ♠K76
♥Á109 ♥3
♦109 ♦Á652
♣8743 ♣ÁDG102
Suður
♠Á1093
♥K8542
♦K8
♣65
Suður spilar þrjú hjörtu eftir opn-
un austurs á Precision-tígli. Á sagn-
hafi möguleika eftir tígultíuna út?
Vestur Norður Austur Suður
Meckstroth Lambardi Rodwell Madala
Pass Pass 1 tígull 1 hjarta
Pass 2 tíglar * Pass 2 hjörtu
Pass 3 hjörtu Allir pass
Spilið er frá HM í Estoril, en
sagnröðin er úr leik Argentínu og
Bandaríkjanna í opna flokknum.
Argentínumaðurinn Lambardi sýnir
góða hækkun í tvö hjörtu með því að
melda ofan í opnunarlit austurs, en
þykir það ekki nóg að gert og reynir
aftur við geimið með þremur hjört-
um.
Meckstroth kom út með tígultíuna
og Rodwell tók á ásinn og spilaði
tígulsexu til baka (sem er viðsnúið
hliðarkall í laufi í þeirra varnar-
kerfi). Madala fékk á kónginn og
spilaði trompi að blindum. Hann
fékk að eiga slaginn á hjartagosa og
henti þá laufi niður í tíguldrottningu.
Meckstroth trompaði og skipti yfir
í lauf. Rodwell fékk þar einn slag, en
Madala stakk næsta lauf og spilaði
trompi. Þar með var Meckstroth
fastur inni á blönkum trompás og
varð að hreyfa spaðann. Madala hitti
á að láta lítinn spaða úr borði og
fangaði þannig kónginn ódýrt undir
ásinn, sem dugði í níu slagi.
Sami samningur var spilaður á
hinu borðinu og vörnin rann í svip-
aðan farveg. En þó með þeim mikil-
væga mun að þar tók vestur á
hjartaásinn áður en hann spilaði
laufi og kom þannig í veg fyrir inn-
kastið.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
SÝNING Haraldar Jónssonar í 101
Gallery, Hverfisgötu 18a, verður
opnuð í dag kl. 17.
Verk Haraldar hafa verið áber-
andi í myndlistarlífinu að und-
anförnu. Skemmst er að minnast
ljósmyndasýningar hans á Þjóð-
minjasafninu og sýningar hans í
Hafnarhúsinu sem var hluti af
Listahátíð í Reykjavík 2005. Um
þessar mundir eru verk Haraldar til
sýnis á alþjóðlegum tvíæringi í Belg-
íu og í nóvember verður hann einn af
fulltrúum Íslands á sýningunni Myt-
hos und Melankolie í Köln í Þýska-
landi.
101 Gallery er opið fimmtudaga til
laugardaga frá kl. 14.00–17.00 eða
eftir samkomulagi.
Sýning Haraldar Jónssonar
stendur yfir til 26. nóvember næst-
komandi.
Haraldur sýnir
í 101 Gallery
Í SÝNINGARSAL Gallerís Foldar
sýnir Þorsteinn Helgason 19 olíu-
málverk undir yfirskriftinni „Lit-
vörp“. Eru verkin í nokkuð beinu
framhaldi af því sem á undan er
gengið í sýningarhaldi hjá honum.
Þorsteinn sækir innblástur sinn til
náttúrunnar og raðar formum og
litarfletum til hliðar við hver annan
og fyllir þannig myndflötinn. Hér
er þó ekki um hreina geometríu að
ræða heldur minna verkin sitthvað
á evrópska abstraktsjón eftir-
stríðsáranna. Cobra-málverkið er
augljós áhrifavaldur hvað lita-
meðferð varðar. Svartar línur
skerpa á teikningunni sem er einn-
ig kunnuglegt innan Cobra-
hefðarinnar. Er Þorsteinn nokkuð
naskur á að skapa óræðan ritma
með litarspili sínu en formrænan er
fremur einhæf og átakalaus. Virkar
svolítið eins og jazz án lagstúfs.
Í myndlistarnámi í Hollandi var
undirritaður skammaður af einum
kennara sínum, sem tengdist
Cobra-málurunum á sínum yngri
árum, fyrir að mála of mikið með
sama penslinum. Mér sýnist svipað
vera upp á teningnum hjá Þor-
steini. Fjölbreyttari og ákveðnari
efniskennd getur vegið til móts við
einhæfa formrænu og þannig hrist
upp í myndfletinum. Eins og er
vantar hér herslumuninn, að mínu
mati.
Jazz án lagstúfs
MYNDLIST
Gallerí Fold
Opið á virkum dögum frá 10–18, á laug-
ardögum til 17 og á sunnudögum frá 14–
16. Sýningu lýkur 30. október.
Þorsteinn Helgason
Jón B.K. Ransu
Eitt verka Þorsteins á sýningunni í Galleríi Fold.
• Gírmótorar • Iðnaðargírar • Riðabreytar •
• Sjálfvirkni • Þjónusta •
Bolholti 8, 3h • 105 Reykjavík
Sími: 568 3536 • Fax: +354 568 3537
velaverk@velaverk.is • www.velaverk.is
Ég emblaði
þetta ...
ALADÁR Racz
leikur Goldberg-
tilbrigðin eftir
Johann Sebast-
ian Bach á tón-
leikum í Hvera-
gerðiskirkju á
morgun kl. 17.
Tónleikarnir eru
samstarfsverk-
efni Tónlistar-
félags Hveragerðis og Ölfuss og
Félags íslenskra tónlistarmanna
með styrk frá menntamálaráðu-
neytinu.
Bach samdi Goldberg-tilbrigðin
árið 1741 fyrir nemanda sinn
Goldberg og njóta þau mikillar
hylli. Goldberg-tilbrigðin eru afar
krefjandi í flutningi og sjaldan
flutt í heild. Aladár hefur leikið
tilbrigðin víðs vegar um land, m.a.
í Salnum í Kópavogi í maí síðast-
liðnum.
Aladár Racz í
Hveragerðiskirkju
Aladár Racz