Morgunblaðið - 28.10.2005, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2005 51
DAGBÓK
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Bingó kl. 14. Söngur
og samvera, Arnbjörg við píanóið frá
kl. 15.30. Ath. frjáls spilamennska alla
daga.
Árskógar 4 | Bað kl. 8–16. Handa-
vinna kl. 9–12. Smíði/útskurður kl. 9–
16.30. Bingó kl. 13.30.
Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa-
vinna, hárgreiðsla, böðun, frjálst að
spila í sal, fótaaðgerðir.
FEBÁ, Álftanesi | Haukshús, föstu-
daga kl. 13–16. Handverksklúbbur fyr-
ir konur og karla. Kaffi að hætti
FEBÁ. Akstur annast Auður og Lindi,
sími 565 0952.
Félag eldri borgara í Kópavogi |
Brids í Gjábakka í dag kl. 13.15. Fé-
lagsvist verður spiluð í kvöld kl.
20.30 í Gjábakka.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Árshátíð FEB verður haldin 4. nóv. í
Akogessalnum við Sigtún, fjölbreytt
dagskrá. Veislustjóri er Árni Norð-
fjörð, hátíðarræðu flytur Guðrún Ás-
mundsdóttir, danssýning, söngur o.fl.
Skráning og uppl. á skrifstofu FEB s.
588 2111.
Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 |
Gleðigjafarnir Gullsmára. Eldri borg-
arar safnast saman í Félagsheimilinu
Gullsmára 13, Kópavogi, á föstudag
kl. 14–15 og syngja saman ljóð og lög.
Stjórnandi Guðmundur Magnússon.
Kaffi og heimabakað meðlæti fáan-
legt.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ |
Slökunarjóga og teygjur kl. 10.30 og
bútasaumur kl. 13.30 í Kirkjuhvoli. Fé-
lagsvist í Garðabergi kl. 13 á vegum
FEBG og FAG.
Furugerði 1 | Í dag kl. 9, aðstoð við
böðun, smíðar og útskurður. Ennþá
eru laus pláss í útskurði. Frá kl. 14.15
og fram að kaffi verður Aðalheiður
Þorsteinsdóttir við píanóið og leikur
undir fjöldasöng.
Hraunbær 105 | Kl. 9 kaffi, spjall,
dagblöðin, almenn handavinna, út-
skurður, baðþjónusta, fótaaðgerðir
(annan hvern föstudag), hárgreiðsla.
Kl. 10 pútt. Kl. 11 Spurt og sjallað. Kl.
12 hádegismatur. Kl. 14.45 bókabíll.
Kl. 15 kaffi. Kl. 14 bingó.
Hraunsel | Moggi, rabb og kaffi klukk-
an 9. Leikfimi kl. 11.30. Tréskurður kl.
13. Boccia kl. 13.30. Félagsmenn,
munið ferð á leiksýninguna í kvöld á
Lífsins tré, rúta frá Höfn, Hraunseli
kl. 19.
Hvassaleiti 56–58 | Frjáls aðgangur
að opinni vinnustofu, postulínsmáln-
ing klukkan 9–12. Böðun fyrir hádegi.
Fótaaðgerðir, s. 588 2320. Hár-
snyrting 517 3005.
Hæðargarður 31 | Félagsstarfið er
öllum opið. Fastir liðir eins og venju-
lega. Elsa E. Guðjónsson, textíl– og
búningafræðingur spjallar um ís-
lenskan útsaum kl. 13.30. Út í bláinn
kl. 10 árdegis í fyrramálið. Nánari
upplýsingar í síma 568 3132.
Norðurbrún 1 | Kl. 9 opin hárgreiðslu-
stofa, sími 588 1288, kl. 9 myndlist,
kl. 14 leikfimi.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla
og fótaaðgerðir. Kl. 9.15–14.30 hann-
yrðir. Kl. 11.45–12.45 hádegisverður.
Kl. 14.30–15.45 kaffiveitingar. Kl.
13.30 sungið við flygilinn við undirleik
Sigurgeirs. Kl. 14.30–16 dansað við
undirleik Sigvalda. Kl. 15 kemur Gísli
Marteinn Baldursson í heimsókn.
Eplakaka með rjóma í kaffitímanum.
Kirkjustarf
Breiðholtskirkja | Foreldramorgunn
kl. 10. Allir velkomnir.
Hallgrímskirkja | Starf fyrir eldri
borgara alla þriðjudaga og föstudaga
kl. 11–14. Leikfimi, súpa, kaffi og spjall.
Háteigskirkja | Starf eldri borgara.
Brids-aðstoð frá kl. 13 og kaffi.
Íslenska Kristskirkjan | Laugardag-
inn 29. okt. verður námskeið um
samskipti kynjanna, hjónabandið og
skyld efni. Kennari á námskeiðinu
verður ráðgjafinn Eivind Fröen frá
Noregi. Eivind kennir á norsku en allt
verður túlkað á íslensku. Námskeiðið
er frá kl. 10–17. Námskeiðsgjald
2.000 kr. Skráning á skrifstofu og í
síma 567 8800.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Morgunblaðið/Ásdís
HÍ og Norrænu Afríkustofnunarinnar og er
kl. 12.30–13.30.
Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur | Hildur
Halldórsdóttir heldur fyrirlestur 28. okt. kl.
12.15, í stofu 201 í Árnagarði, á vegum
stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur. Fyrir-
lesturinn fjallar um fyrsta íslenska þýð-
anda danska þjóðskáldsins H. C. Ander-
sens á íslensku sem vitað er um, Jónas
Hallgrímsson.
Skemmtanir
Cafe Catalina | Garðar Garðars spilar.
Classic Rock | Fótboltinn í beinni alla
helgina.
Classic Rock | Idol keppnin sýnd á 4 skjá-
vörpum alla föstudaga í vetur.
Classic Rock | Hljómsveitin Feik frá Grund-
arfirði spilar um helgina.
Kringlukráin | Hljómsveitin Upplyfting í
kvöld kl. 23.
Vélsmiðjan Akureyri | Hljómsveit Rúnars
Þór leikur um helgina föstudag og laug-
ardag. Húsið opnar kl. 22, frítt inn til mið-
nættis. Gestasöngvari á laugardagskvöld
er Herbert Guðmundsson.
Mannfagnaður
Breiðfirðingafélagið | Félagsvist, annar
dagur í fjögurra daga keppni spiluð í Breið-
firðingabúð, Faxafeni 14, 30. okt. kl. 14.
Fréttir
Kringlan | Jórunn Frímannsdóttir, hjúkr-
unarfræðingur og ritstjóri heilsuvefsins
doktor.is, býður öllum í ókeypis blóðsykurs-
og blóðþrýstingsmælingu í Kringlunni, í
dag, kl. 16–18. Jórunn verður staðsett á 1.
hæð.
Fundir
Kvennaskólinn | Kynningarfundur fyrir
unglinga sem áhuga hafa á borgaralegri
fermingu og aðstandendur þeirra verður
haldinn 29. október kl. 11–12, í Kvennaskól-
anum, Fríkirkjuvegi 9 nýbyggingu, 1. hæð.
Næsta fermingarnámskeið Siðmenntar
verður kynnt og gerð grein fyrir væntan-
legri athöfn.
Nordica Hótel | „Hvers mega fagmenn á
rafmagnssviði vænta?“ Morgunverðar-
fundur 28. október Tilefnið er nýr íslenskur
staðall, ÍST 200 Raflagnir bygginga. Stað-
allinn mun að stórum hluta leysa af hólmi
reglugerð um raforkuvirki sem fagmenn á
rafmagnssviði hafa notað um árabil. Nánar
á www.stadlar.is.
Kynning
Lýðheilsustöð | Frítt til Evrópu fyrir reyk-
lausa er keppni ætluð ungu fólki á aldrinum
15–20 ára. Allir sem verða reyklausir frá
10. nóvember–10. desember eiga þess kost
að vinna utanlandsferð. Hægt er að skrá
sig til leikswww.lydheilsustod.is.
Málstofur
Háskóli Íslands | Málstofa í Lögbergi, stofu
102, kl. 9–11. Fjórar nýjar rannsóknir um Ís-
land og Evrópu og völd og áhrif smáríkja
innan Evrópusambandsins. 1 Áhrif smáríkja
á sáttmálagerð ESB. 2 Á kafi í Evrópusam-
runanum. 3 Geta og leiðir smáríkja til
áhrifa í alþjóðasamstarfi. 4 Evrópuumræð-
an á Íslandi og á Möltu 2002–2003.
Málþing
Lögberg | Í ár eru liðin 100 ár frá fæðingu
Björns Guðfinnssonar málfræðings. Ís-
lenska málfræðifélagið og Málvísindastofn-
un HÍ efna til málþings í minningu hans þar
sem fluttir verða fyrirlestrar sem tengjast
starfi Björns, námsefni í málfræði, mál-
lýskum, málvöndun o.fl. Málþingið fer fram
29. okt. kl. 10–16.30. Dagskrá á vefslóð:
http://imf.hi.is/.
Ráðstefnur
Háskóli Íslands | Þjóðarspegillinn 2005,
fjallað verður um það sem efst er á baugi í
félagsvísindum á Íslandi. Ráðstefnan er
haldin af félags-, laga- og viðskipta- og
hagfræðideildum HÍ og verður í dag, kl. 9–
17. Er hún öllum opin hvort sem er á ein-
staka fyrirlestra eða alla ráðstefnuna.
OA-samtökin | Helgina 28.–30. október
verður haldin OA ráðstefna í Kristniboðs-
salnum, Háaleitisbraut 58, Reykjavík. Þar
munu m.a. þrír OA félagar frá Bandaríkj-
unum segja frá reynsu sinni. Einnig verður
fjallað um 12 spora kerfið, þjónustu og
trúnað o.fl. Nánari uppl. er að finna á
heimasíðu samtakanna: www.oa.is.
Viðskipta- og hagfræðideild HÍ | Opin ráð-
stefna um rannsóknir í félagsvísindum VI
verður kl. 9 – 17. Að ráðstefnunni standa
félagsvísindadeild, lagadeild og viðskipta-
og hagfræðideild. Á ráðstefnunni verða 33
málstofur með 122 fyrirlestrum um ólík
viðfangsefni. Nánari uppl. um dagskrá á
www.vidskipti.hi.is.
Þjóðminjasafn Íslands | Vísindafélag Ís-
lendinga og Þjóðminjasafn Íslands gangast
fyrir ráðstefnu um jarð– og landafræði vís-
indamanninn Þorvald Thoroddsen (1855–
1921) Fjallað verður um ævi hans og rann-
sóknir. Sýndir verða munir úr minjasafni
Þorvalds í Þjóðminjasafni Íslands. Aðgang-
ur er ókeypis og öllum heimill. Fer fram 29.
okt. kl. 13.30–17.
Íþróttir
Víkingur | Unglingameistaramótið í kumite
(frjálsum bardaga) verður haldið í íþrótta-
húsinu í Víkinni sunnudaginn 30. október.
Mótið hefst kl. 10 og lýkur um kl. 14.
Útivist
Laugardalurinn | Námskeið fyrir byrjendur
í stafgöngu hefst 1. nóvember kl. 17.30,
gengið er á þriðju– og fimmtudögum.
Skráning og upplýsingar á www.stafganga-
.is eða í símum 6168595/6943571.
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
90 ÁRA afmæli. Í dag, 28. október,er níræður Óskar Herbert
Alfreð Hraundal, Hvassaleiti 56,
Reykjavík. Óskar er giftur Pálínu
Hraundal og dvelja þau hjónin í faðmi
fjölskyldunnar í dag.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
80 ÁRA afmæli. Í dag, föstudag-inn 28. október, er áttræður
Kristján Blær Ásmundsson, bifreiða-
stjóri og bóndi í Lindahlíð, Aðaldal.
Hann verður að heiman á afmælis-
daginn.
60 ÁRA afmæli. Í dag, föstudaginn28. október, er sextugur Örvar
Sigurðsson, Laugarnesvegi 78,
Reykjavík. Hann er í vinnu í dag og
tekur á móti kveðjum á póstfangi sínu
orvar.sigurdsson@equant.com.
„TENGSL listaskáldsins góða og
ljóta andarungans“ nefnist fyrir-
lestur sem Hildur Halldórsdóttir,
M.A. í þýðingum og kennari við Fjöl-
brautaskólann í Ármúla, heldur í
stofu 201 í Árnagarði í dag kl. 12.15 á
vegum stofnunar Vigdísar Finn-
bogadóttur. Fyrirlesturinn fjallar
um fyrsta íslenska þýðanda danska
þjóðskáldsins H. C. Andersens á ís-
lensku sem vitað er um, Jónas Hall-
grímsson.
Að sögn Hildar þýddi Jónas ekki
aðeins ævintýri Andersens, heldur
staðfærði þau einnig og gerði þau
þar með aðgengilegri fyrir íslenska
lesendur, sem fyrir voru lítt hrifnir
af ævintýraforminu. „Dæmi um það
er Leggur og skel, þar sem hann
þýðir ekki beint ævintýrið Toppen
og bolden, en nýtir sér textann heil-
mikið og staðfærir fyrir íslenskt
samfélag,“ segir hún og segir Jónas
hafa unnið þar mikið brautryðj-
andastarf.
Æviskeið Jónasar var á árunum
1807–1845 og Andersen lifði á ár-
unum 1805–1875. Þeir voru því ungir
menn á svipuðum aldri þegar Jónas
var í Danmörku. Jónas fylgdist
greinilega með skrifum Andersens
meðan hann dvaldist í Kaupmanna-
höfn og hann nýtti sér verk hans í
vinnu sinni við að kynna landanum
nýjungar á bókmennta-, menningar-
og þýðingasviðinu, bæði hvað form
og inntak varðaði. Í fyrirlestrinum
mun Hildur bera saman texta
beggja höfundanna til að sýna fram
á tengsl í textum þeirra.
Hún segir ljóst að H.C. Andersen
hafði mikil áhrif á Jónas og verk
hans og það komi meðal annars fram
í einu kvæða hans, Tak for Snee-
dronningen. „Það er óður til H.C.
Andersens, þar sem kemur fram að
hann hafi sjálfur fylgt í fótspor hans.
Það var mjög gaman að finna það,
því það vitnar um að Jónas hafi verið
meðvitaður um, að hann sótti eitt-
hvað til hans,“ segir Hildur.
Þýðingar | Málþing um þýðingar Jón-
asar Hallgrímssonar á H.C. Andersen
Listaskáldið góða
og ljóti andarunginn
Eftir Ingu Maríu Leifsdóttur
ingamaria@mbl.is
H.C. Andersen Jónas
Hallgrímsson
NÝIR leikarar taka við hlutverkum
þeirra Jóhannesar H. Jóhannes-
sonar og Guðjóns Davíðs Karls-
sonar í Kabarett í Íslensku óper-
unni í kvöld.
Atli Þór Albertsson tekur við
hlutverki Ernst Ludwig og hlut-
verk Bobby verður héðan í frá í
höndum Bjartmars Þórðarsonar.
Báðir eru nýútskrifaðir leikarar,
Atli frá LHÍ og Bjartmar frá Lond-
on.
Þá hafa tónlistarmenn komið og
farið í Kabarett, enda venja í svo
stórum söngleik. Sigtryggur Bald-
ursson hefur haldið í stóra hljóm-
leikaferð um Evrópu með Stein-
tryggi og í hans stað sest Birgir
Baldursson við trommusettið.
Nú eru auglýstar þrjár síðustu
sýningarnar á Kabarett. Þær verða
í kvöld, 5. nóvember og 11. nóvem-
ber.
Leikaraskipti
í Kabarett
1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4 cxd4 4. Rxd4
Rc6 5. Rc3 d6 6. h3 a6 7. Be3 Rf6 8. g4
Be7 9. Bg2 Rd7 10. De2 O-O 11. O-O
Dc7 12. Hfd1 Rce5 13. Bc1 He8 14. a4
Bf8 15. Dd2 b6 16. b3 Bb7 17. Bb2
Had8 18. Df4 Rg6 19. Dg3 Be7 20. g5
Dc5 21. h4 De5 22. Rf3 Dxg3 23. fxg3
Hc8 24. Rd4 Hc7 25. Rde2 Hec8 26.
Hd2 Rge5 27. Had1 g6 28. Hf1 Kg7 29.
Bh3 h6 30. gxh6+ Kxh6 31. Hdd1 Rf6
32. Hf4 Rh5 33. Hf2
Staðan kom upp í B-flokki minning-
armóts Tigrans Petrosjans sem lauk
fyrir skömmu í Nagorno Karabakh í
Armeníu. Sergey Grigoriants (2539)
hafði svart gegn Manuel Lopez Mart-
inez (2505). 33... Rxg3! 34. Rxg3 Hxc3
35. Bxc3 Hxc3 36. Kh2 Bxh4 hvíta
staðan er nú að hruni komin. 37. Hg2
Rf3+ 38. Kh1 Re5 39. Kh2 d5 40. Re2
He3 41. Rg1 dxe4 það er harla óvenju-
legt að hafa fjögur peð á þrem línum og
að þau eru öll frípeð. 42. He2 Hc3 43.
Kh1 Be7 44. Bg2 f5 45. Hed2 Rg4 46.
He2 Bd5 47. Rh3 Bc5 48. Hdd2 Be3 49.
Hd1 f4 og hvítur gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Svartur á leik.