Morgunblaðið - 28.10.2005, Page 54
54 FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DANSKI LEIKSTJÓRINN Per
Fly er nú staddur hér á landi en
hann veitti viðtöku kvikmyndaverð-
launum Norðurlandaráðs síðastlið-
inn miðvikudag fyrir kvikmynd sína
Drabet. Þá var hann jafnframt við-
staddur opnun kvikmyndahátíð-
arinnar Októberbíófest sem hófst í
fyrradag, en Drabet var opn-
unarmynd hátíðarinnar. Með Fly í
för voru framleiðandi myndarinnar,
Ib Tardini, og meðhandritshöfundar
Flys, þær Dorte Høgh og Kim
Leona.
Fjórmenningarnir voru sammála
um að heiðurinn væri mikill að veita
verðlaununum viðtöku, og þá sér-
staklega með tilliti til fyrri verð-
launahafa Norðurlandaráðs í hinum
ýmsu flokkum.
Kvikmyndin Drabet hefur enn
ekki verið sýnd víða, hefur einungis
verið fáeinar vikur í kvikmynda-
húsum í Danmörku til dæmis. Til
stendur að frumsýna hana síðla árs
í Svíþjóð og í Noregi í febrúar á
næsta ári. Þau segja myndina þó
hafa fengið góðar viðtökur þar sem
hún hafi verið sýnd.
„Hún hefur fengið mjög góða
dóma í Danmörku og svo vorum við
að koma með hana frá London þar
sem henni var líka mjög vel tekið,“
upplýsir Fly.
Aðspurð hvort þeim finnist gam-
an að fylgja myndum sínum eftir
um heim allan eða hvort þau líti á
það sem kvöð sem fylgi því að gera
bíómynd eru fjórmenningarnir ekki
alveg á einu máli.
„Mér finnst það ótrúlega gaman,“
segir Leona. „Ég held þó að það sé
öðruvísi fyrir okkur Dorte til dæmis
þar sem við gerum þetta ekki oft.
Ég er ekki viss um að Per sé á sama
máli.“
„Jú, auðvitað getur verið gaman
að sýna fólki myndina,“ segir Fly.
„Sá tími sem fer í það að kynna út-
komnar myndir gengur þó á þann
tíma sem maður vildi heldur eyða í
að vera að gera aðra mynd.“
Þau Fly, Tardini og Leona vinna
nú í sameiningu að gerð sex sjón-
varpsmynda sem gerðar eru með
þeim hætti að sami atburður er
sýndur frá sjónarhóli sex ólíkra að-
ila. Áætlað er að þættirnir verði
sýndir í danska ríkissjónvarpinu
(DR1) á næsta ári.
Stéttir eru bannorð
Drabet segir frá Carsten, kenn-
ara á miðjum aldri, sem á í ást-
arsambandi við Pil, fyrrverandi
nemanda sinn, sem er öfgafullur
vinstrisinni. Nótt eina tekur Pil þátt
í árás sem fer úr böndunum með
þeim afleiðingum að lögreglumaður
lætur lífið. Þegar Pil er handtekin
yfirgefur Carsten eiginkonu sína til
að standa með ástkonunni.
Í aðalhlutverkum eru Jesper
Christensen (Italiensk for Begynd-
ere), Beate Bille (Nicolaj og Julie),
Charlotte Fich (Rejseholdet), sem
jafnframt er eiginkona Flys, og
Pernilla August (Fanny og Alexand-
er).
Drabet er síðasti hluti þríleiks
Flys sem fjallar um þrjár stéttir
dansks þjóðfélags. Í fyrstu mynd-
inni, Bænken (Bekkurinn), var sjón-
um beint að lágstéttinni og í annarri
myndinni, Arven (Arfurinn), var
fjallað um yfirstéttina. Drabet ein-
blínir svo á málefni millistétt-
arinnar.
Finnst þeim danskt þjóðfélag
vera stéttaskipt?
„Já og nei,“ svarar Fly. „Ástandið
er hreint ekki eins slæmt og til
dæmis í Bretlandi en það eimir
vissulega eftir af stéttaskiptingu í
Danmörku. Fólk hefur því miður
ekki sömu tækifæri í lífinu eftir því
hvernig aðstæður það fæðist inn í.
Það hefur líka hvílt mikil bannhelgi
á umræðum um þessi málefni í Dan-
mörku. Í síðustu kosningum um for-
mannsefni hjá sósíaldemókrötum
varð öðrum frambjóðandanum það á
að nefna orðið stétt í framboðsræðu
og eftir það átti hann ekki séns.“
Fjórmenningarnir eru sammála
um mikilvægi þess að sýna danskan
veruleika í kvikmyndum sínum.
„Þó að sagan sé ekki endilega
byggð á sannsögulegum atburðum
gerist hún í þannig umhverfi að fólk
getur samsamað sig aðstæðunum,“
sagði Tardini.
„Ég held að þessi nálgun við
raunveruleikann sé ein af ástæð-
unum fyrir því að danskar myndir
eru eins vinsælar og raun ber vitni,“
bætir Leona við.
Kvikmyndir | Leikstjórinn Per Fly er staddur hér á landi ásamt samstarfsmönnum
Morgunblaðið/Sverrir
Dorte Høgh, Ib Tardini, Kim Leona og Per Fly virða fyrir sér kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs.
Morgunblaðið/Þorkell
Leikstjóri Drabet, Per Fly.
Eftir Birtu Björnsdóttur
birta@mbl.is
Danskar,
raunsæjar
og vinsælar
Sýnd kl. 6
Þeir eru hér til að
spila fótbolta,
ekki til að gera mistök
“Fótfrá gamanmynd”
Variety
Ný Íslensk heimildarmynd sem
hefur farið sigurför um heiminn
Africa
United
S.V. Mbl.
Sjáið Wallace & Gromit í sinni fyrstu bíómynd.
ENGINN SLEPPUR LIFANDI
FARÐU TIL
HELVÍTIS!
Hörku hasarmynd byggð á einum
vinsælasta og hrottalegast tölvuleik
allra tíma!
Sýnd kl. 8 og 10 B.i. 16 ára
ENGINN SLEPPUR LIFANDI
Hörku hasarmynd byggð á einum vinsælasta
og hrottalegast tölvuleik allra tíma!
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 B.i. 16 ára
FÓR BEINT
Á TOPPINN
Í USA
450
kr.
Sýnd kl. 3.50
HÖRKU SPENNUTRYLLIR FRÁ WES CRAVEN
LEIKSTJÓRA SCREAM MYNDANNA.
kl. 10
Sýnd kl. 4, 6 og 8
Africa
United
“Fótfrá
gamanmynd”
Variety
S.V. Mbl.
Ný Íslensk
heimildarmynd
sem hefur farið
sigurför um
heiminn
Þeir eru hér til að spila fótbolta,
ekki til að gera mistök
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20
DREW
BARRYMORE
JIMMY
FALLON
"Fyrirtaks
skemmtun
sem hægt er
að mæla með"
MMJ - kvikmyndir.com
“Fótfrá
gamanmynd”
Variety
Þeir eru hér til að spila fótbolta,
ekki til að gera mistök
Ný Íslensk
heimildarmynd
sem hefur farið
sigurför um
heiminn
S.V. Mbl.
H.J. Mbl.
Sýnd kl. 5.30, 8 og KRAFTSÝNING 10.30 B.i. 12 ára
VJV Topp5.is
Kóngurinn og Fíflið, XFM
HEIMSFRUMSÝND
HEIMSFRUMSÝND
Sýnd kl. 5, 8 og 10.45 B.i. 12 ára
Frá leikstjórum There´s Something About
Mary, eftir bók frá höfundi About a Boy
kl. 5, 8 og 10.45
SÁ BESTI Í BRANSANUM
ER MÆTTUR AFTUR!
HEIMSFRUMSÝND
KRAFT
SÝNING
KL. 10.3
0
Sími 564 0000
Miða sala opn ar kl. 15.30
S.V. / MBL
TOPP5.is
„Meistarastykki“
H.E. Málið
TOPP5.is
„Meistarastykki“
H.E. Málið
TOPP5.is
„Meistarastykki“
H.E. Málið