Morgunblaðið - 28.10.2005, Qupperneq 57
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2005 57
Kalli og
sælgætisgerðin
KRINGLANÁLFABAKKI
Spenntu beltin og undirbúðu þig undir háspennumynd
ársins með Óskarsverðlaunahafanum Jodie Foster.
ATH! Á undan myndinn er stuttmyndin “Madagascar
Mörgæsirnar halda í jólaleiðangur sýnd.
Sjáið Wallace & Gromit í sinni fyrstu bíómynd.
Frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna
OG
FRÁ FRAMLEIÐENDUM
Með Steve Carell úr “Anchorman”
og “Bruce Almighty”
SÉRHVER DRAUMUR Á SÉR UPPHAF
Vinsælasta myndin í USA og
á BRETLANDI Í dag.
Frá leikstjórum There´s Something About
Mary, eftir bók frá höfundi About a Boy
DREW BARRYMORE JIMMY FALLON
Hún fílar vinnuna, Hann íþróttir .
Munu þau fíla hvort annað?
TOPPMYNDIN Í USA 2 VIKUR Í RÖÐ
ENGINN SLEPPUR LIFANDI
FARÐU TIL HELVÍTIS!
M.M.J. / Kvikmyndir.com
Kvikmyndir.is
Roger Ebert
S.V. / MBL
V.J.V. TOPP5.IS
KISS KISS BANG... kl. 6 - 8.15 - 10.30 B.i. 16 ára.
PERFECT CATCH kl. 8.15 - 10.30
FLIGHT PLAN kl. 8 - 10.15 B.i. 12 ára.
WALLACE AND GROMIT - m/Ísl. tali kl. 4 - 6
MUST LOVE DOGS kl. 6
VALIANT m/Ísl. tali kl. 4
SKY HIGH kl. 4
VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG
KISS KISS BANG BANG kl. 6 - 8.15 - 10.30 B.i. 16 ára
KISS KISS BANG BANG VIP kl. 3.45 - 6 - 8.15 - 10.30
FLIGHT PLAN kl. 3.50 - 6 - 8.15 - 10.30 B.i. 12 ára
WALLACE AND GROMIT - Ísl. tali kl. 4 - 6
WALLACE AND GROMIT - m/ensku tali kl. 6 - 8.15 - 10.30
CINDERELLA MAN kl. 10.30 B.i. 14 ára.
THE 40 YEAR OLD VIRGIN kl. 5.30 - 8 - 10.30 B.i. 14 ára.
GOAL kl. 8.15
VALIANT m/Ísl. tali kl. 3.40
SKY HIGH kl. 3.50
CHARLIE AND THE... kl. 3.50
FRUMSÝNING
M.M.J. / Kvikmyndir.com
Kvikmyndir.is
Roger Ebert
S.V. / MBL
S.V. / MBL
"Fyrirtaks
skemmtun
sem hægt er
að mæla með"
MMJ - kvikmyndir.com
GRÍMUKLÆDDA hetjan Zorro er mörg-
um kunnur úr bókum, blöðum og sjón-
varpi. Í dag verður heimsfrumsýnd kvik-
myndin The Legend of Zorro, sem er
framhaldsmynd The Mask of Zorro sem
kom út árið 1998.
Það eru sem fyrr þau Antonio Banderas
og Catherine Zeta Jones sem eru í hlu-
verkum hjónakornanna Don Alejandro de
la Vega (Zorro) og Elenu.
Leikstjórinn Martin Campbell sest
einnig á ný við stjórnvölinn líkt og í fyrri
myndinni.
Í The Legend of Zorro er þráðurinn
tekinn upp að nýju þegar Zorro hefur
komið sér fyrir í San Francisco ásamt fjöl-
skyldu sinni. Sonur hans, Jouqauin, er nú
tíu ára gamall og hefur ekki hugmynd um
hina leyndu hetju sem faðir hans hefur að
geyma.
Zorro neyðist fljótlega til að bregða
sverði sínu á loft til að berjast fyrir rétt-
læti heimsins með eiginkonuna, Elenu, sér
við hlið.
Þau Catherine Zeta Jones og Antonio
Banderas í hlutverkum sínum í The Leg-
end of Zorro.
Frumsýning | The
Legend of Zorro
Goðsögnin
snýr aftur
ERLENDIR DÓMAR:
Metacritic.com 51/100
Empire 60/100
Hollywood Reporter 70/100
Variety 70/100 (skv. metacritic)
Danshöfundurinn JimmyLocust heldur nám-skeið í DansstúdíóiWorld Class í dag og
á morgun. Locust kemur hingað
ásamt samlanda sínum og koll-
ega, Bandaríkjamanninum Darr-
in Henson, og halda þeir nám-
skeiðin í sameiningu. Er þetta í
þriðja sinn sem Henson kemur
hingað til lands í þessum erinda-
gjörðum en í fyrsta sinn sem
Locust sækir landið heim. Hann
kvaðst í samtali við Morg-
unblaðið vera mjög spenntur fyr-
ir ferðinni og námskeiðunum,
sem hann lofaði að yrðu áhuga-
verð og skemmtileg.
Jackson, Abdul og Jones
Locust segist hafa kynnst
dansinum fyrir alvöru í mennta-
skóla og hafa verið dansandi síð-
an.
Hann hefur komið víða við á
löngum ferli, unnið fyrir stjörnur
á borð við Michael Jackson,
Paula Abdul, Quincy Jones og
fleiri og séð um danshönnun fyr-
ir fjölda auglýsinga og sjónvarps-
þátta. Hann er auk þess einn af
danshöfundum „Rhythm Nation“
sem Janet Jackson flutti og hef-
ur jafnan verið talið tímamóta-
verk í danslistinni. Auk þess rek-
ur hann sinn eigin dansskóla þar
sem hann deilir reynslu sinni og
færni með misfótfráum nem-
endum.
Hann segir dansinn sannarlega
sína ástríðu í lífinu. „Það er hægt
að tjá allar tilfinningar sínar í
gegnum dansinn og koma ýmiss
konar boðskap á framfæri í gegn-
um hann,“ segir Locust en hann
hefur einmitt nýtt sér síðarnefnda
kostinn til hins ýtrasta.
„Ég byrjaði með verkefni sem
fjallar um einelti sem við sýnum í
skólum víðsvegar um Bandaríkin.
Í verkinu koma fram skaðlegar af-
leiðingar eineltis og á það að
vekja krakka til umhugsunar um
afleiðingar gjörða sinna.“
Fjölbreytt starf
Locust segist sækja innblástur
sinn við danssmíðina úr umhverfi
sínu. „Ef ég sé fallegt sólarlag eða
kyrrlátan vetrarmorgun fæ ég
alltaf löngun til að tjá mig með
dansi,“ segir hann.
„Þegar ég er svo að semja fyrir
auglýsingar eða sjónvarp reyni ég
að kynna mér efnið eins vel og ég
get áður en ég byrja að semja.“
Sem dæmi um þetta nefnir hann
að á dögunum vann hann að sjón-
varpsauglýsingum fyrir Speedo-
sundfatnað. Til að undirbúa sig
fyrir verkefnið hengdi hann upp í
íbúðinni sinni fjöldann allan af
sundfötum úr hinni nýju línu sem
átti að kynna.
„Ég held að fáir geri sér grein
fyrir hvað danshöfundar koma
víða við. Ég var til dæmis að
þjálfa Nicolas Cage fyrir sjón-
varpsþátt um daginn. Danshöf-
unda er þörf við gerð næstum
allra auglýsinga, sjónvarpsþátta
og bíómynda sem gerð eru,“ full-
yrðir Locust.
Þeir Locust og Hanson bjóða
sem fyrr segir fram krafta sína í
Dansstúdíói World Class í dag og
á morgun. Bæði verður boðið upp
á námskeið fyrir byrjendur sem
og lengra komna.
„Við ætlum að kenna nýjustu
straumana frá New York, götustíl
(street-style), hip hop, fönk, djass-
fönk, freestyle og fleira og fleira,“
upplýsir Locust. „Þarna verða
ýmsar hressilegar nýjungar í
danslistinni kynntar og við kenn-
um brot af því besta sem við höf-
um verið að gera.“
Dans | Danshöfundurinn Jimmy Locust með námskeið hér á landi
Dansinn
er ástríða
Jimmy Locust hlakkar til að kenna Íslendingum að dansa.
Eftir Birtu Björnsdóttur
birta@mbl.is
www.worldclass.is