Morgunblaðið - 30.10.2005, Page 1
STOFNAÐ 1913 294. TBL. 93. ÁRG. SUNNUDAGUR 30. OKTÓBER 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Popplög í
hátíðarbúningi
Daníel Ágúst tók nýju plötuna upp á
nokkrum stöðum | 12
Tímaritið og Atvinna í dag
Tímarit | Glæsikvöld og götuhátíð Erkitöffarinn er liðin tíð Frumleg
föt á Fróni Morðinginn tákn innri hræðslu Atvinna | Greinileg merki
launaskriðs Aukinni framleiðni fylgir meiri vinna
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
SUNNUDAGUR VERÐ KR. 350
GELDNEYTIN innan við Tíðaskarð á Kjalarnesi
létu ekki á sig fá þótt hvasst og hráslagalegt
væri í áhlaupinu á föstudag. Þau tóku væna
harðastur og mikill galsi í gripunum. Líklega
hafa nautgripirnir þó bara verið að hlaupa úr
sér hrollinn.
spretti um úthagann meðan slydduhríðin buldi á
þeim og brynjaði aðeins feldinn. Á stundum virt-
ist þetta vera keppni um það hver væri sprett-
Morgunblaðið/RAX
Blautir bolar hlaupa úr sér hrollinn
SMÁRAGARÐUR, fasteignafélag
Norvíkur, hefur samið um 42 þúsund
fermetra lóð í landi Urriðaholts ehf. í
Garðabæ og hyggst reisa þar 12 þús-
und fermetra verslunarhús fyrir
BYKO. Að sögn Jóns Pálma Guð-
mundssonar, framkvæmdastjóra
Urriðaholts ehf., er einnig búið að
semja um ríflega 10 þúsund fermetra
lóð þar sem reisa á 3.300 m2 versl-
unarhús fyrir raftækjaverslun. Sam-
kvæmt annarri heimild Morgun-
blaðsins kemur erlend raftækjakeðja
þar við sögu, en nafn hennar fæst
ekki gefið upp að sinni.
Framkvæmdir eru þegar hafnar
við 21 þúsund fermetra verslunarhús
IKEA á 56 þúsund fermetra lóð fyr-
irtækisins, sem er við hlið lóðar
BYKO. Búið er að steypa sökkla og
reiknað með að verslun IKEA verði
opnuð næsta haust, að sögn Jóns
Pálma. Viðræður stóðu lengi yfir við
þýsku verslunarkeðjuna Bauhaus,
um lóð hjá Urriðaholti ehf., en þær
báru ekki árangur, að sögn Jóns
Pálma.
Á byggingasvæði Urriðaholts ehf.
er heimilt að reisa allt að 50 þúsund
fermetra húsnæði. Eftir er að ráð-
stafa lóðum fyrir um 13 þúsund fer-
metra. „Þarna safnast saman stórar
verslanir á rúmgóðu svæði og mynda
„kauptún“, sem er þýðing Hallgríms
Helgasonar á enska hugtakinu „retail
park“. Það er mikið í farvatninu, en
ekki hægt að upplýsa nú um hvaða
fleiri verslanir gætu komið þarna,“
sagði Jón Pálmi.
BYKO-verslun með nýju sniði
BYKO stefnir að því að opna versl-
un sína í kauptúninu á Urriðaholti ár-
ið 2007, að sögn Ásdísar Höllu Braga-
dóttur, forstjóra BYKO. „Við erum
rétt að hefja undirbúning að bygg-
ingu verslunarinnar,“ sagði Ásdís
Halla og taldi óvarlegt að áætla nánar
hvenær ársins 2007 verslunin yrði
opnuð. Hún sagði víst að fyrirtækið
myndi nýta byggingaréttinn upp á 12
þúsund fermetra að fullu. Ásdís Halla
sagði einnig að þessi verslun yrði
nokkuð frábrugðin núverandi versl-
unum BYKO.
„Þessi verslun verður töluvert
stærri en við höfum áður starfrækt.
Þarna er gert ráð fyrir að öll þjónusta
okkar verði undir einu þaki, jafnt
grófari byggingavara og almenn
verslunarvara,“ sagði Ásdís Halla.
BYKO á einnig lóð við Vestur-
landsveg ásamt fleirum. Þar er ráð-
gert að nokkrar stórverslanir rísi og
tengist í einum kjarna. Að sögn Ás-
dísar Höllu eru þessi áform enn á
undirbúningsstigi og ekki ljóst hve-
nær framkvæmdir geta hafist við
verslunarhúsið við Vesturlandsveg.
BYKO byggir 12.000
fermetra stórverslun
Þrjú fyrirtæki hafa gengið frá samningum um lóðir fyrir
verslunarhús í kauptúninu á Urriðaholti í Garðabæ
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
Viðræður við verslunarkeðjuna Bauhaus báru ekki árangur
Teheran. AFP. | Stjórnvöld í Íran hafa
engin áform um að ráðast gegn Ísr-
aelsríki, að því er segir í yfirlýsingu
frá utanríkisráðuneytinu í Teheran í
gær. Á hinn bóginn sagði ráðuneytið
að fordæming öryggisráðs SÞ á þeim
ummælum Mahmoud Ahmadinejads
forseta í vikunni að eyða bæri Ísrael
væri „óviðunandi“.
Ummæli Ahmadinejads, sem
sagði að „þurrka bæri Ísrael af
landakortinu“, vöktu hörð viðbrögð
leiðtoga um allan heim og gilti það
einnig um hefðbundna stuðnings-
menn Írana. Ísraelar kröfðust þess
að Íran yrði vikið úr SÞ. Talsmenn
Palestínumanna hvöttu Írana til að
hóta ekki stríði heldur styðja áætlun
SÞ um að bæði Ísraelar og Palest-
ínumenn réðu sér sjálfir í eigin ríki.
„Íslamska lýðveldið Íran er skuld-
bundið samkvæmt stofnsáttmála
Sameinuðu þjóðanna og hefur aldrei
beitt eða hótað að beita vopnavaldi
gegn annarri þjóð,“ sagði í yfirlýs-
ingu ráðuneytisins.
Íranar
draga
í land
Veligonda, AP. | Vitað er að minnst 77
manns létu lífið í sambandsríkinu
Andra Pradesh í Indlandi í gær-
morgun þegar farþegalest fór út af
sporinu. Nokkrir vagnar lentu í á
sem flætt hafði yfir bakka sína. Ótt-
ast var að tala látinna myndi hækka.
Um 500 farþegar voru í lestinni.
Hermenn og sjálfboðaliðar björguðu
tugum farþega sem voru innilokaðir
í vögnunum en björgunaraðgerðir
voru erfiðar vegna aðstæðna. Vatna-
vextirnir hafa sópað burt mörgum
vegum í héraðinu.
Yfir 70 dóu
í lestarslysi
♦♦♦
Havana. AFP. | Fidel Castro, forseti
Kúbu, segir að ráðamenn Evrópu-
sambandsins séu „hræsnarar“ og í
vasanum á Bandaríkjastjórn. Þing
ESB veitti í vikunni hópi eigin-
kvenna, mæðra og systra fangels-
aðra andófs-
manna á Kúbu
árleg mannrétt-
indaverðlaun
sem kennd eru
við Andrei
Sakharov.
„Það eruð þið
sem komuð á nú-
tímalegu þræla-
haldi á síðustu
öldum eftir það
sem kallað var uppgötvun Amer-
íku,“ sagði hinn 79 ára gamli
Castro um Evrópumenn í ræðu á
fundi með nýútskrifuðum kennur-
um. „Þið funduð upp nýlendu-
stefnuna og haldið fast við hana
jafnvel enn í dag, þið komuð á
ósanngjörnum viðskiptum, þið stel-
ið auðæfum.“
Hann fjallaði um það sem hann
nefndi „siðleysi og ósvífni heims-
veldisins“ [bandaríska] og kvartaði
yfir því að Evrópumenn væru í vas-
anum á Bandaríkjamönnum.
Evrópa í
vasanum
á Bush?
Fidel Castro