Morgunblaðið - 30.10.2005, Side 4
4 SUNNUDAGUR 30. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
hún kemur!
DÓTTURFYRIRTÆKI Actavis á
Indlandi greiðir Indverjum þóknun
sem, a.m.k. í sumum tilfellum, jafn-
ast á við mánaðarlaun þeirra fyrir að
taka þátt í prófunum á samheita-
lyfjum.
Framkvæmdastjóri þróunarsviðs
Actavis segir að á Indlandi sé farið
eftir alþjóðlegum reglum um klín-
ískar rannsóknir á lyfjum, þ.e.a.s.
lyfjaprófanir á fólki. Sambærilegar
rannsóknir hafi lengi verið gerðar á
Vesturlöndum og þar sé einnig
greitt fyrir þátttökuna. Stefnt sé að
því að auka hlutfall rannsókna sem
fara fram á Indlandi.
5.000 rúpíur fyrir að taka lyf
Á fréttavefnum Todayonline er
fjallað um aukinn áhuga erlendra
lyfjafyrirtækja á lyfjaprófunum í
Indlandi enda sé kostnaður þar mun
minni en í vestrænum ríkjum. Í
fréttinni er vitnað í viðtöl við tvo
Indverja sem hafa tekið þátt í lyfja-
prófunum hjá Lotus Labs, dóttur-
fyrirtæki Actavis. Kemur m.a. fram
að þeir fá greiddar 5.000 rúpíur,
jafnvirði tæplega 7.000 íslenskra
króna, fyrir tveggja daga tilraunir
og rannsóknir.
Actavis keypti Lotus Labs í byrj-
un þessa árs og hefur síðan prófað
samheitalyf fyrir Actavis og fleiri al-
þjóðleg lyfjafyrirtæki. Einnig eru
gerðar prófanir á frumlyfjum hjá
Lotus Labs.
Í greininni er fullyrt að annar
þeirra, maður sem er nafngreindur
sem M. Mahesh, hafi ekki hugmynd
um hvaða áhrif lyfin hafi á heilsu
hans. Hann sjái samt sem áður ekki
eftir neinu og hann segist munu
halda áfram þátttöku í tilraununum
svo lengi sem hann fái greitt. „Þetta
er í sjötta skipti sem ég prófa lyf á
sjálfum mér. Þeir (starfsmenn lyfja-
fyrirtækisins) sögðu mér frá auka-
verkunum lyfsins,“ er haft eftir
Mahesh. Félagi hans, hinn 19 ára
gamli Bala Kumar, sagðist fá jafn
mikið fyrir tveggja sólarhringa
vinnu við lyfjaprófanir og hann fengi
í mánaðarlaun.
Farið eftir alþjóðlegum reglum
Stefán Jökull Sveinsson, fram-
kvæmdastjóri þróunarsviðs Actavis,
sagði í samtali við Morgunblaðið að
ástæðan fyrir því að þessar klínísku
rannsóknari væru í Indlandi væri sú
að kostnaðurinn væri lægri en gæðin
fyllilega sambærileg við það sem
annars staðar gerist. Farið væri eft-
ir alþjóðlegum reglum við þessar
rannsóknir og í engu hvikað frá þeim
kröfum sem gerðar séu til sambæri-
legra rannsókna annars staðar í
heiminum.
Sjálfur hefði hann tekið þátt í slík-
um prófunum þegar hann var há-
skólanemi á Íslandi og í Kanada. Í
reglunum væri m.a. kveðið á um
þann tíma sem verði að líða milli
þess sem einstaklingar taki þátt í
slíkum rannsóknum.
Að sögn Stefáns Jökuls er einkum
um að ræða frásogsrannsóknir á
samheitalyfjum, þar sem m.a. er
rannsakað í hve miklum mæli og hve
hratt lyf skili sér inn í blóðrás heil-
brigðra einstaklinga. Aðspurður
sagði hann að Actavis gerði slíkar
rannsóknir einnig í Kanada, S-Afr-
íku, Bandaríkjunum og Evrópu.
Einungis lítill hluti þeirra færi fram
á Indlandi en stefnt væri að því að
auka hlutfallslega rannsóknir þar.
Fá nákvæmar upplýsingar
Stefán Jökull sagði að áður en
menn tækju þátt í lyfjaprófunum
fengju þeir nákvæmar upplýsingar
um virkni lyfjanna og hugsanlegar
aukaverkanir þeirra. Áður en próf-
anirnar hæfust væri gengið úr
skugga um að fólkið hefði lesið upp-
lýsingarnar og skilið þær. Þá benti
hann á að á Indlandi eins og í öðrum
löndum væri óháð siðanefnd sem
tæki afstöðu til umsókna um lyfja-
prófanir og að þær væru háðar op-
inberu eftirliti. Það stæðist því ekki
sem kæmi fram í Todayonline að
annar Indverjanna hafi ekki hug-
mynd um þau áhrif sem lyfin hefðu á
líkama hans.
Stefán Jökull sagði að það væru
mjög takmarkaðar líkur á að lyfin
hefðu neikvæð áhrif á heilsu þeirra
sem tækju þátt í prófununum, fyrir
utan þær þekktu aukaverkanir sem
hugsanlega gætu fylgt lyfjunum.
Hugsanlegar aukaverkanir séu þær
sömu og vegna frumlyfjanna sem
þegar væru á markaði. „Þegar að
þessu skrefi í þróunarferlinu er
komið höfum við fylgt lögum og
reglugerðum ESB og bandaríska
lyfjaeftirlitsins, FDA, við þróun
lyfjanna,“ sagði hann.
„Við erum búnir að fullprófa lyfin
og gera á þeim mjög ítarlegar rann-
sóknir á tilraunastofu þar sem við
rannsökum meðal annars magn hins
virka efnis, hvernig það losnar úr
töflum og skilar sér í lausn. Við
göngum úr skugga um að lyfin séu
lyfjafræðilega jafngild frumlyfinu
þegar þessar prófanir hefjast,“ sagði
Stefán Jökull Sveinsson, fram-
kvæmdastjóri þróunarsviðs Actavis.
Indverskir þátttakendur í lyfjapróf-
unum fyrir Actavis fá 5.000 rúpíur
Reuters
Frá Indlandi.
Actavis stefnir að
því að auka lyfja-
prófanir á Indlandi
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Meira á mbl.is/ítarefni
MORGUNBLAÐINU hefur borist eft-
irfarandi yfirlýsing frá Magnúsi Ólafs-
syni, forstjóra Osta- og smjörsölunnar.
„Að gefnu tilefni vill Osta- og smjör-
salan taka fram að sala og verð á und-
anrennudufti er bundin í lög og það er
ekki Osta- og smjörsölunnar að ákvarða
verð vörunnar. Ólafur Magnússon, fram-
kvæmdastjóri Mjólku, hefur í fjölmiðlum
að undanförnu haldið því fram að Osta-
og smjörsalan hafi hafnað beiðni fyr-
irtækis hans um kaup á undanrennudufti
til ostaframleiðslu. Þetta er einfaldlega
rangt. Hið rétta er að Mjólka hefur get-
að keypt allt það undanrennuduft til
framleiðslu sinnar sem fyrirtækið hefur
óskað eftir.
Framkvæmdastjóri Mjólku heldur því
einnig fram að fyrirtæki hans sitji ekki
við sama borð og aðrir framleiðendur
mjólkurafurða þegar kemur að verðlagn-
ingu á undanrennudufti. Þetta er heldur
ekki sannleikanum samkvæmt.
Allir framleiðendur í mjólkuriðnaði
kaupa duftið á sama verði. Það verð er
hins vegar um 25% hærra en framleið-
endur í matvælaiðnaði greiða. Til þess
iðnaðar teljast m.a. bakarí, kjötvinnslur
svo og allir framleiðendur á ísvörum,
kexi og sælgæti.
Rétt er að ítreka að Osta- og smjörsal-
an stjórnar ekki verði á mjólkur- og und-
anrennudufti. Verð á því er ákvarðað af
Verðlagsnefnd búvara sem starfar sam-
kvæmt lögum frá Alþingi, nr. 99/1993.
Ólafur hefur bent á að Ostahúsið/
Ostamaðurinn hafi fengið undanrennu-
duft keypt á lægra verðinu í 13 ár. Þetta
er ekki rétt. Um tveggja ára skeið fékk
Ostahúsið/Ostamaðurinn undanrennu-
duft á lægra verði vegna mistaka af
hálfu Osta- og smjörsölunnar. Þau mis-
tök hafa nú verið leiðrétt. Sambærileg
mistök leiddu til þess að Mjólka, fyr-
irtæki Ólafs, fékk sjálf undanrennuduft-
ið upphaflega á lægra verðinu. Það hefur
nú einnig verið leiðrétt. Þar með sitja
allir mjólkurvöruframleiðendur á Íslandi
við sama borð, lögum samkvæmt.
Osta- og smjörsalan sf. er markaðs-
og sölufyrirtæki í eigu fjögurra mjólk-
ursamlaga og kaupfélaga sem starf-
rækja níu afurðastöðvar. Fyrirtækið var
stofnsett árið 1958. Osta- og smjörsalan
selur tugi tegunda mjólkurafurða.
Starfsmenn Osta- og smjörsölunnar eru
92 talsins.“
Yfirlýsing frá Osta-
og smjörsölunni
Allir sitja við
sama borð
SNJÓNUM hefur kyngt niður á Norðurlandi síðustu daga. Mörg börn
gleðjast vafalítið yfir því enda þá hægt að fara út og búa til snjókalla
og snjókellingar eða leggjast í snjóinn og mynda engla með höndum
og fótum. Hins vegar fylgir ofankomunni sú kvöð að moka þarf frá
tröppum og innkeyrslum. Davíð Hjálmar Haraldsson, íbúi við Flata-
síðu á Akureyri, var kominn út á bílaplan um miðjan dag á föstudag
og farinn að moka snjó af miklum móð.
Morgunblaðið/Kristján
Snjór og aftur snjór
ERFIÐ færð var fyrir norðan
aðfaranótt laugardags. Hjá lög-
reglunni á Húsavík fengust þær
upplýsingar í gærmorgun að
slæm færð væri í bænum sem
og út til sveita þar sem mikið
slabb væri á veginum. Að sögn
varðstjóra á Akureyri lokaðist
Víkurskarðið aðfaranótt laugar-
dags og var óvíst hvenær hægt
yrði að opna það, en að sögn var
veður það vont að ekki var hægt
að athafna sig á svæðinu. Einn-
ig var ófært milli Dalvíkur og
Ólafsfjarðar.
Rólegt var hjá lögreglunni á
Akureyri að kvöldi föstudags,
en í morgunsárið var einn tek-
inn með lítilræði af fíkniefni.
Hald var lagt á efnið og mann-
inum sleppt að skýrslutöku lok-
inni.
Af færð á vegum er það ann-
ars að frétta að Holtavörðuheið-
in var lokuð og ófær aðfaranótt
laugardags þar sem bílar sátu
fastir og aðrir höfðu farið út af.
Var heiðin opnuð skömmu fyrir
hádegi laugardag samkvæmt
upplýsingum frá Vegagerðinni.
Á sama tíma var verið að moka
Ísafjarðardjúp og verið var að
kanna leiðina um Bröttubrekku
og Laxárdalsheiði. Ófært var
yfir Þverárfjall í Skagafirði og
við Ólafsfjarðarmúla. Óveður
var komið á Möðrudalsöræfum
og á Oddsskarði. Vegagerðin
vildi beina þeim tilmælum til
vegfaranda að fara varlega þar
sem mikil hálka og hálkublettir
eru víða um land og töluverð of-
ankoma og skafrenningur, sér-
staklega á norðanverðu landinu.
Víkurskarð lokað
ÖKUMAÐUR flutningabíls
slasaðist í árekstri á veginum
við Húnaver, yst í Langadal, sl.
föstudagskvöld.
Samkvæmt upplýsingum
lögreglunnar á Blönduósi voru
tildrög málsins þau að tveir
vörubílar höfðu stöðvað á
rampi til þess að setja keðjur á
bílana. Voru áhöld uppi um að
þriðji vörubíllinn hefði ekið
framhjá og rekist í fremri bíl-
inn með þeim afleiðingum að
ökumaður féll út úr bíl sínum,
en bíllinn var í bakkgír og fór
við þetta á aftari vörubílinn.
Talið er að um lítilsháttar
meiðsl hafi verið að ræða. Er
málið enn í rannsókn.
Árekstur við
Húnaver