Morgunblaðið - 30.10.2005, Síða 7
Stóraukin lóðaúthlutun – lægra verð
Stóraukin úthlutun lóða og lóðaverð lækkað. Geldinganesið verði
deiliskipulagt á árinu 2006 og á árinu 2007 byrjað að úthluta lóðum til
einstaklinga og byggingarfyrirtækja á kostnaðarverði. Framboð lóða
undir sérbýli verði aukið. Lóðauppboð verði afnumin.
Fasteignagjöld lækki um 25%
Fasteignagjöld á íbúðarhúsnæði lækkuð um 10% frá 1. janúar 2007 og
síðan um 5% árlega á næsta kjörtímabili, eða samtals um 25%.
Kraft í skipulagið
Samhliða uppbyggingu í Úlfarsfelli, sem hefst á næsta ári, verði strax
hafist handaumdeiliskipulag áGeldinganesi. Í framhaldinu verði lóðum
úthlutað og gefin fyrirheit þar um 3500 íbúðir. Byggðin í Úlfarsfelli
verði endurskipulögðmeð það aðmarkmiði að hafa þar fámennari
byggð ogmeira sérbýli. Hafinn verði undirbúningur að íbúða- og
atvinnubyggðmeð stækkunÖrfiriseyjar að Akurey. Tenging við Engey
og þaðan yfir á uppfyllingu í framhaldi Kringlumýrarbrautar verði
skoðuð ítarlega.
Næsti eða samhliða áfangi íbúðarbyggðar verði uppbygging í
Vatnsmýrinni, semþegar er hægt aðhefjast handa við. Vilhjálmur hefur
lýst því yfir að á næsta kjörtímabili ætli hann að beita sér fyrir því að
tekin verði ákvörðun um hvenær og hvert innanlandsflugið verði flutt
úr Vatnsmýrinni og því fundinn annar staður í Reykjavík eða í næsta
nágrenni.
Aukinn stuðningur við íþrótta- og æskulýðsstarf
Átak verði gert í að styrkja fjárhagsgrundvöll íþrótta- ogæskulýðsfélaga
í Reykjavík. Aukinn fjárhagsstuðningur verði veittur til lækkunar
þátttökugjalda grunnskólanema í íþróttastarfi.
Bætt þjónusta við börn og foreldra
Sjálfstæði grunnskólans verði aukið og ýtt undir fjölbreytni í
rekstrarformumogvalfrelsi foreldraumskóla.Tíminnáfrístundaheimilum
verði nýttur betur þannig að börnum og unglingum verði gert kleift
að njóta þjónustu íþróttasamtaka, félagasamtaka og listaskóla.
Leikskólagjöld verði lækkuð í áföngum. Foreldrumverði tryggð samfelld
dagvistarþjónusta frá því að fæðingarorlofi lýkur. Biðlistum eftir
leikskólaplássum verði eytt og þjónusta leikskóla yfir sumartímann
ákveðin af leikskólastjórnendum í samráði við foreldra. Starfsemi
dagforeldra verði efld.
Vilhjálmur Þ.Vilhjálmsson
– reynsla til forystu!
Stuðningsmenn sætið
Hefjumst handa!Með reynslu í farteskinu
og samstilltu átaki við stjórnvöl borgarinnar
getum við lyft grettistaki.
Fyrsta skrefið tökum við með stuðningi við Vilhjálm Þ. í prófkjörinu.
Gæsluvellir starfræktir allt árið
Starfsemi gæsluvalla verði sett á fót á nýjan leik og þeir starfræktir allt
árið með nýju sniði. Starfskonum gæsluvalla, sem sagt var upp á árinu
2005 þegar starfsemi gæsluvalla var lögð niður, verði boðinn forgangur
að störfum þar.
Öflugri og öruggari umferðaræðar
Þegar verði hafist handa um gerð mislægra gatnamóta Miklubrautar
og Kringlumýrarbrautar og Suðurlandsvegar og Vesturlandsvegar og
gerð Sundabrautar alla leið að Vesturlandsvegi. Jafnframt verði lögð
áhersla á gerð Hlíðarfótar frá Hringbraut að Reykjanesbraut til að
minnka umferðarálag á Hringbraut, Miklubraut og Bústaðavegi.
Átak í íbúðahverfum
Farið verði í samræmt hreinsunarátak í hverfum borgarinnar og leitast
við að útrýma veggjakroti nema á stöðum, sem borgin og aðrir
húseigendur leggja sérstaklega til. Viðhald opinna leiksvæða og göngu-
og hjólreiðastíga verði stóraukið. Hverfalöggæsla verði efld í góðri
samvinnu við dómsmálaráðuneytið.
Umhyggja og öryggisnet
Stórátak verði gert í byggingu vist- og hjúkrunarheimila og framboð
félagslegra leiguíbúða verði aukið. Félagsþjónusta eldri borgara verði
efld og þátttökugjöld í því starfi lækkuð.
Aukinn stuðningur við listir og menningu
Lögð verði aukin áhersla á stuðning við listamenn og stuðlað að öflugu
menningarlífi í Reykjavík.
Miklatún og Laugardalur
Þessi svæði verði skipulögð sem fjölskylduvæn útivistarsvæði, með
kaffihúsum, leiktækjum og aðstöðu til sýninga- og hljómleikahalds.
Starfsemi fjölskyldugarðsins í Laugardal verði efld.
Nýtt líf í Viðey
Viðey verði gerð að útivistarparadís og ferðakostnaður út í eyjuna verði
sá sami og ferðakostnaður með strætó.
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
Kosningaskrifstofa Suðurlandsbraut 14
Sími 520 3700, opið:
www.vilhjalmurth.is
Frá mánudegi til föstudags kl. 14–20
Laugardaga og sunnudaga kl. 13–18
Verið velkomin