Morgunblaðið - 30.10.2005, Síða 14
14 SUNNUDAGUR 30. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
L
oksins hefur verið gefið
grænt ljós. Öryggisráð
Sameinuðu þjóðanna
fól Kofi Annan, fram-
kvæmdastjóra SÞ, að
hefja viðræður um
framtíð Kosovo, sem
enn veldur hatrömmum deilum Serba
og Albana. Viðræðurnar gætu leitt til
þess að nýtt ríki verði til í Evrópu. En
fari allt úrskeiðis gæti upplausn blas-
að við á ný á Balkanskaga.
„Búast má við óróa,“ sagði stjórn-
arerindreki í Pristina, höfuðborg
Kosovo. Það má hins vegar ekki
gleyma stóru myndinni. Sú staðreynd
að stjórnarerindrekarnir eru stað-
ráðnir í að greiða úr málefnum Kos-
ovo er ekki einangrað fyrirbæri. Alls
staðar í Júgóslavíu fyrrverandi er nú
verið að hvetja og eggja hina ýmsu
hluta til að flýta umbótum og leið
sinni í Evrópusambandið.
Saga hatrammra átaka
Kosovo var á sínum tíma hérað í
Serbíu, sem var hluti af gömlu Júgó-
slavíu, sem liðaðist í sundur 1991. Þar
er að finna kirkjur og klaustur frá
miðöldum og Serbar líta á Kosovo
sem vöggu sinnar siðmenningar. Nú
er málum hins vegar svo komið að þar
búa tvær milljónir manna og 90%
þeirra eru Albanar að uppruna. Þeir
hafa alltaf litið það hornauga að vera
stjórnað frá Belgrað og 1998 hófu
þeir skæruhernað til að sparka Serb-
um út.
Stríðinu í Kosovo lauk þegar Atl-
antshafsbandalagið fór í stríð við
Júgóslavíu, sem þá hét enn svo. Eftir
að hafa varpað sprengjum á Serbíu í
78 daga gáfust Serbar undir forustu
Slobodans Milosevic upp. Herafli
Serba dró sig til baka í júní 1999.
Kosovo varð verndarsvæði Sam-
einuðu þjóðanna og var herafla undir
forustu NATO falið að tryggja öryggi
þar. Tugir þúsunda Serba lögðu á
flótta, en um 100 þúsund urðu eftir
meðal um tveggja milljóna fjandsam-
legra Albana. Serbarnir lifa flestir á
svæðum undir vernd erlendra friðar-
gæslumanna, sem einnig vernda
serbneskar kirkjur og klaustur und-
an árásum albanskra öfgamanna.
Nú hafa Sameinuðu þjóðirnar
ákveðið að rúmum sex árum eftir að
stríðinu lauk sé tímabært að ákveða
framtíð Kosovo. Stjórn Serbíu segir
að Kosovo geti fengið „meira en sjálf-
stjórn, en minna en sjálfstæði“. Kos-
ovo-Albanar sætta sig ekki við neitt
minna en sjálfstæði. Serbar halda því
fram að samkvæmt þjóðarétti heyri
Kosovo undir Serbíu og því sé ekki
hægt að taka héraðið af þeim án sam-
þykkis og þetta ítrekaði Vojislav
Kostunica fyrir öryggisráðinu. Sagði
hann að allt annað væri „lagalegt of-
beldi“.
Opinberlega kom öryggisráðið
saman í liðinni viku til að fara yfir
skýrslu um ástandið í héraðinu eftir
Kai Eide, færan, norskan stjórnarer-
indreka. Í raun var um leiksýningu að
ræða. Lykilákvarðanir um gang mála
í New York höfðu verið teknar í Róm
fjórum dögum áður. Þar komu saman
stjórnarerindrekar frá þeim löndum,
sem mest hafa haft af Kosovo af
segja; Bandaríkjunum, Bretlandi,
Frakklandi, Þýskalandi, Rússlandi
og Ítalíu. Sá fundur fylgdi í kjölfarið á
ströngum fundum um það hvað ætti
að gera við vandræðabarnið Kosovo.
Ahtisaari leiðir viðræðurnar
Auk þess að hrinda af stað viðræð-
um komið þeir sér saman um nokkur
atriði. Til dæmis liggur fyrir að
Martti Ahtisaari, fyrrverandi forseti
Finnlands, eigi að leiða viðræðurnar.
Í fyrstu má búast við flökkufunda-
lotu, en síðan er líklegt að Ahtisaari
og menn hans geri drög að samkomu-
lagi um framtíð Kosovo, sem lagt
verði fyrir aðila og þeim falið að
semja augliti til auglitis.
Óhjákvæmilegt er þó að það mun
slitna upp úr þeim viðræðum. Þegar
upp verður staðið munu Serbar og
Albanar ekki geta komið sér saman
um lykilspurninguna hvort Kosovo
eigi að fá sjálfstæði eða ekki. Þegar
þar verður komið munu stóru löndin,
sem eiga hlut að máli, verða tilbúin til
að knýja fram það sem kallað hefur
verið „sjálfstæði með skilyrðum“. Þar
er átt við að ekki verði lengur litið á
Kosovo sem hluta af Serbíu, en verði
þó ekki að fullu sjálfstætt í nokkur ár,
ef til vill þar til Kosovo gengur í Evr-
ópusambandið, sem gæti tekið áratug
eða meira.
„Sjálfstæði með skilyrðum“
Hvað þýðir „sjálfstæði með skil-
yrðum“? Það er óljóst í hverju það
verður fólgið og á eftir að ganga frá
smáatriðunum, en ákveðnir hlutir
liggja þó fyrir. Í fyrsta lagi mun her-
lið NATO verða þar áfram og líkt og í
Bosníu verður fulltrúi alþjóðasam-
félagsins skipaður með talsverð völd
til að fara með völd í Kosovo. Evrópu-
sambandið mun gegna lykilhlutverki,
einkum að því leyti að sambandið
mun yfirtaka ýmsa þætti, sem nú eru
í umsjá SÞ, sem nú fer að ljúka og
hefur veikst vegna frétta af spillingu
og getuleysi.
Serbar höfðu vonast til að Rússar
myndu skerast í leikinn og koma í veg
fyrir að þeir misstu Kosovo. Þeir hafa
hins vegar sagt vestrænum viðsemj-
endum sínum að það muni þeir ekki
gera.
Serbar segja að verði Kosovo tekin
frá þeim muni þeir aldrei viðurkenna
það. Serbneskir stjórnmálamenn
segja að það muni leiða til þess að
þjóðernisöfgasinnar komist til valda
og grafið verði undan jafnvægi á öll-
um Balkanskaga. Albanar segja að
ofbeldi muni brjótast út ef ekki líti út
fyrir að Kosovo sé á leið til sjálfstæð-
is. Í Kosovo vex nú hreyfingu ásmeg-
in, sem er alfarið andvíg viðræðum.
Albin Kurti, leiðtogi hennar, segir að
Kosovo eigi aðeins að tala við Serbíu
eftir að sjálfstæði hefur verið náð,
ekki áður.
Til einföldunar má segja að stjórn-
arerindrekarnir óttist hótanir Albana
meira en Serba, en líti á svæðið í
heild. Ljóst er að þeir eru með áætl-
un, sem tekur til fleiri þátta en Kos-
ovo.
Heildarhugmyndin er að taka allan
vesturhluta Balkanskaga – það er
alla gömlu Júgóslavíu að frádreginni
Slóveníu (sem þegar er gengin í ESB
og NATO) en viðbættri Albaníu – inn
í Evrópusambandið. Hvað sem líður
áhyggjum vegna stækkunar er hér
um að ræða langtímaverkefni og það
þarf ekki nema líta á kortið til að átta
sig á því hvers vegna stjórnarerind-
rekarnir telja þetta nauðsynlegt.
Þegar Búlgaría og Rúmenía ganga
í Evrópusambandið, sem verður
sennilega 2007, verður svæðið allt í
raun umkringt og girt af sem nokk-
urs konar svarthol utan ESB. Sér-
fræðingarnir eru á því að þetta sé
uppskrift að stórslysi. Betra sé að
fyrrverandi vandræðagemlingar séu
innan sambandsins, en að búa í „ör-
birgð“ utan þess, eins og einn stjórn-
arerindreki orðaði það.
Víkjum aðeins frá Kosovo og
virðum fyrir okkur það, sem hefur
gerst á undanförnum vikum. Serbar
hófu viðræður um að ganga þegar þar
að kemur í Evrópusambandið 10.
október. Króatar eru aðeins á undan
þeim í ferlinu og eru komnir á næsta
þrep. Evrópusambandið samþykkti
21. október að hefja viðræður við
Bosníu. Makedónar vonast til þess að
þeim verði einnig gefið grænt ljós til
að stíga næsta skref í aðildarviðræð-
um.
Árið 2001 liðast gamla júgóslav-
neska lýðveldið nánast í sundur þeg-
ar skæruliðar úr albanska þjóðar-
brotinu lýstu yfir stríði á hendur
ríkinu. Nú er staðan sú, þökk sé Evr-
ópusambandinu, sem vann afrek án
þess að vera hrósað fyrir, að fyrrver-
andi óvinir sitja saman í stjórn og
vinna að sama markmiði – inngöngu í
Evrópusambandið.
Merki vonar um allan Balkanskaga
Ef fólk á svæðinu er spurt af
hverju það hafi mestar áhyggjur um
þessar mundir er viðgangur þjóðar-
innar ekki fyrsta svarið og nær ekki
einu sinni fimmta sæti. Áherslan er
lögð á störf og ferðafrelsi. Efnahagur
Serbíu, sem hefur alla burði til að
verða öflugastur á svæðinu, er loks að
taka við sér. Satt að segja má finna
merki vonar um allan Balkanskaga,
en þau komast ekki í fréttir vegna
þess að þau eru ekki efni í krassandi
fyrirsagnir. Engu að síður er það nú
skylda leiðtoga ríkjanna á Balkan-
skaga og Evrópusambandsins að
nýta byrinn, sem hefur farið vaxandi í
Kosovo og annars staðar á svæðinu.
Eftir um tíu ár má búast við að
stækkunarþreytan, sem gripið hefur
um sig í ESB, heyri sögunni til, í það
minnsta hvað varðar Balkanskagann,
þótt annað gæti átt við um Tyrkland.
En brjótist út átök á ný í Kosovo mun
það bitna á svæðinu öllu og Evrópu-
vonirnar hverfa.
Óviss framtíð Kosovo
Reuters
Friðargæsluliðar undir stjórn NATO héldu á föstudag æfingu í viðbrögðum við óeirðum í Kosovo og vilja greinilega vera
við öllu búnir. Kai Eide, sérlegur erindreki Sameinuðu þjóðanna, hefur skilað af sér skýrslu um stöðu Kosovo og nú eiga að
hefjast viðræður um framtíð svæðisins, sem undanfarin sex ár hefur verið undir stjórn SÞ.
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur falið Kofi Annan að
hefja viðræður um framtíð Kosovo. Ljóst er hins vegar að
Serbar og Kosovo-Albanar munu aldrei verða á eitt sáttir
um hver staða Kosovo eigi að vera. Tim Judah var í Belgrað
og Pristina og kynnti sér stöðu mála.
Höfundur er blaðamaður og skrifaði
bækurnar Kosovo: War and Revenge og
The Serbs: History, Myth and Destruct-
ion of Yugoslavia, sem báðar komu út
hjá Yale University Press.
ÁKÖF barátta, sem hefur farið framhjá alþjóð-
legum fjölmiðlum, hefur átt sér stað um örlög
Ramush Haradinaj, fyrrverandi forsætisráð-
herra Kosovo, sem Stríðsglæpadómstóllinn í
Haag hefur ásakað um stríðsglæpi. Stjórnar-
erindrekum í Kosovo og á vegum UNMIK, borg-
aralegrar yfirstjórnar Sameinuðu þjóðanna þar,
tókst 14. október að fá banni við því að hann
tæki þátt í stjórnmálum í Kosovo aflétt, en
þremur dögum síðar kom saksóknaraembættið
í Haag í veg fyrir að það næði fram að ganga
og bíður málið nú áfrýjunar. Sagði í málatilbún-
aði saksóknaranna að þrátt fyrir að hafa verið
sakaður um einstaklega alvarlega glæpi væri
smám saman verið að setja Haradinaj „á stall
sem lykilmann í pólitíkinni í Kosovo“.
Sakaður um mannrán, morð, pyntingar
og þjóðernishreinsanir
Haradinaj er fyrrverandi yfirmaður úr Frels-
isher Kosovo (KLA), sem barðist við Serba
1998 og 1999. Hann er 37 ára. Ákæran á hend-
ur honum og tveimur undirmanna hans var birt
í mars. Þeir eru sakaðir um mannrán, morð,
pyntingar og þjóðernishreinsanir gegn Serbum,
sígaunum og Albönum árið 1998 í 37 ákærulið-
um.
Þegar kæran var birt var Haradinaj forsætis-
ráðherra Kosovo og var almælt að honum hefði
orðið mikið ágengt fyrstu hundrað dagana í
embætti. 6. júní var Haradinaj sleppt úr haldi á
meðan hann biði réttarhalda. Hann var látinn
laus með skilyrðum og var meðal annars leyft
að starfa takmarkað innan síns stjórnmála-
flokks. Verjendur hans fóru síðan fram á að
honum yrði gefið meira svigrúm og nutu þar
öflugs stuðnings UNMIK. 14. október samþykkti
dómstóllinn það, en með því skilyrði að Harad-
inaj mætti aðeins „koma fram opinberlega og
taka þátt í pólitískri starfsemi að svo miklu leyti
að UNMIK teldi það mikilvægt í þágu jákvæðrar
þróunar í pólitík og öryggismálum í Kosovo“.
Saksóknarar við dómstólinn segja að gangi
þetta eftir myndi ákvörðunin um að leyfa Har-
adinaj að snúa aftur á svið stjórnmálanna
skjóta fórnarlömbum hans skelk í bringu og
vitni myndu fá á tilfinninguna að „völdin séu
enn í höndum hins ákærða“. Þeir minntu dóm-
arana einnig á hið svokallaða Dukagjini-mál þar
sem að minnsta kosti fimm vitni í morðmáli á
hendur bróður Haradinaj, Daut, og Idriz Balaj,
hafi verið myrt.
Nytsemi meints stríðsglæpamanns
Ekki hefur verið ákveðið hvenær tekin verð-
ur ákvörðun um áfrýjunina, en búist er við að
það verði innan fárra vikna. Sú staðreynd að
UNMIK þrýsti á um að slakað yrði á kröfum um
skilmála lausnar Haradinajs staðfestir þær sög-
ur, sem gengið hafa í Pristina, að Sameinuðu
þjóðirnar og vestrænir stjórnarerindrekar séu
áfram um að hann leiki lykilhlutverk í stjórn-
málum í Kosovo á næstu mánuðum. Búast má
við því að mikil spenna ríki í kringum Kosovo á
næstunni vegna þess að líklegt er að viðræður
um framtíðarstöðu svæðisins hefjist á næstu
vikum.
Arftaki Haradinajs sem forsætisráðherra er
Bajram Kosumi. Vald hans hefur hins vegar
verið takmarkað, meðal annars vegna þess að
hann er ekki skæruliðaforingi, og fréttir í blöð-
um um meinta spillingu hafa grafið undan
stjórn hans. Að sögn eins stjórnarerindreka
gæti Haradinaj gegnt „nytsamlegu hlutverki
með því að segja harðlínumönnunum, sem
hann þekkir, að hafa sig hæga“.
Agron Bajram, ritstjóri dagblaðsins Koha
Ditore, segir að hann eins og flestir aðrir Alb-
anar yrði „hæstánægður“ ef Haradinaj gæti
snúið aftur til stjórnmála vegna þess að hann
hafi verið „mjög þarfur“ í pólitík meðan hann
var við völd og gæti átt stóran þátt í að sam-
eina albönsku hliðina í komandi viðræðum um
framtíð Kosovo.
Dusan Batakovic, háttsettur ráðgjafi Boris,
forseta Serbíu, um málefni Kosovo, var hins
vegar á öðru máli: „Þetta er fráleitt í okkar
augum. Þetta misræmi í afstöðunni til hinna
ákærðu eftir því úr hvaða röðum þeir koma
sendir röng skilaboð til bæði Serba og Albana.“
Ljóst er að frá því að honum var sleppt hafa
bæði Sameinuðu þjóðirnar og stjórnarerind-
rekar í Kosovo borið víurnar í Haradinaj með
hætti, sem talinn væri óviðunandi og hneyksli
ef hinn ákærði hefði verið Serbi eða Króati.
26. september var til dæmis haldin mikil
veisla í Hótel Grand í Pristina til að fagna brúð-
kaupi bróður Haradinajs. Meðal gesta var Larry
Rossin, aðstoðaryfirmaður UNMIK, auk ann-
arra háttsettra embættismanna og stjórnar-
erindreka.
Það vekur síðan furðu miðað við meint völd
og áhrif Haradinajs að grímuklæddir menn í
einkennisbúningum hófu nýverið að reisa varð-
stöðvar og leita í bílum ekki langt frá heimili
Haradinajs. Í albönskum blöðum í Kosovo var
greint frá því að „Sjálfstæðisher Kosovo“ hefði
hótað embættismönnum Sameinuðu þjóðanna
með dauða og mannránum ef þeir gerðu nokk-
uð, sem gæti komið í veg fyrir sjálfstæði Kos-
ovo.
Ákæra um stríðsglæpi og pólitísk endurreisn
AP
Ramush Haradinaj, fyrrverandi forsætisráð-
herra Kosovo, á flugvellinum í Pristina í mars á
leið til Haag þar sem hann var ákærður fyrir
stríðsglæpi.