Morgunblaðið - 30.10.2005, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 30.10.2005, Blaðsíða 20
20 SUNNUDAGUR 30. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ P úðurkerlingarnar þeytast yfir fólkið og sjá má bæði gleði og hræðslu í andlitum þess. Það er hrætt við að meiðast en gleðin stafar af því að þetta er trúarathöfn. Við erum stödd fyrir dögun á Alborada sem er hluti af há- tíðahöldum íbúa San Miguel de Allende í Guanajuato-fylki í Mexíkó í tilefni af Mikjálsmessu. Mikil hátíðahöld eru alltaf í San Miguel á Mikjálsmessu, 29. septem- ber, og dagana þar í kring enda er Mikjáll höfuðengill aðalverndareng- ill borgarinnar. Borgin hefur frá stofnun dregið nafn sitt af erkiengl- inum en seinna var hún einnig tengd nafni Ignacio Allende sem var einn af foringjum sjálfstæðisbaráttu Mexíkóa í upphafi. Hátíðahöldin fel- ast í endalausum skrúðgöngum, dönsum, tónlist, tilbeiðslu og flug- eldasýningum. Áður en ég segi frá hátíðahöldun- um á Mikjálsmessu er rétt að nefna það að íbúar San Miguel de Allende eru frægir fyrir bæjarhátíðir sínar, sem eru fjölmargar. Þeir finna tilefni allt árið. Margir Mexíkóar eru fá- tækir og þurfa að vinna mikið til að eiga í sig og á og erfið fortíð með ný- lendukúgun, ósigrum, borgarastyrj- öld og óstjórn hefur hvílt þungt á þjóðarsálinni. En á fíestunum fær fólkið útrás og gleymir öllum áhyggjum. Mexíkóinn fær nýjan persónuleika um stund. Fjölskyld- urnar koma úr sveitaþorpunum á há- tíðirnar í bæjunum. Það er keypt eitthvað fallegt fyrir börnin og heim- ilisfeðurnir staupa sig og tala meira en þeir hafa kannski gert í heilan mánuð. Stundum endar þetta með ósköpum en þykir bara sjálfsagður hluti af lífinu í Mexíkó. Svona er þetta á Mikjálsmessu. Þar sér maður íbúa borgarinnar og fólk úr sveitaþorpunum. Fólk er að fylgjast með skrúðgöngunum, biðst fyrir í kirkjunum, sest á bekki á að- altorginu eða gengur um og kaupir sér ís eða maísstangir til að borða á meðan beðið er eftir næsta atriði. Á kvöldin eru börnin svæfð í fangi föð- ur eða móður. Mikjálsmessu ber að þessu sinni upp á fimmtudag og þá byrja hátíða- höldin en meginþungi þeirra er þó aðfaranótt laugardags og á laugar- deginum. Púðurkerlingar yfir fólkið í dögun Klukkan fjögur aðfaranótt laugar- dagsins hófst mikil flugeldasýning á götunni framan við sóknarkirkjuna, Parroquia, eftir að þangað höfðu marserað ýmsar fylkingar. Þessi hluti hátíðarinnar sem fram fer fyrir dögun nefnist Alborada. Ég mætti tímanlega og fann mér góðan stað fyrir framan einn flugeldaturninn og kirkjuna. En um leið og kirkjuklukk- urnar byrjuðu að glymja og flugelda- sýningin hófst áttaði ég mig á því að þetta var kannski ekki besti staður- inn. Þegar rakettuhringirnir fóru að snúast á turninum spýttust púður- kerlingar í allar áttir, upp í loftið og yfir áhorfendur. Ég átti fullt í fangi með að verja mig og þegar ég fór að hugsa um að hörfa áttaði ég mig á því að ég var orðinn skjöldur fjölda fólks og gat lítið komist frá. Sam- kennd var innan hópsins sem ég til- heyrði nú. Fólk hjálpaðist að við að verjast, slá púðurkerlingarnar hvert af öðru og reyna að drepa í þeim ef þær féllu ósprungnar á götuna. En hávaðinn var óskaplegur og eins og í nautahlaupinu þá þurftu nokkrir of- urhugar að sýna hvað í þeim býr, í þessu tilviki með því að hlaupa undir mestu eldglæringarnar við turnana. Mér fannst ég greina gleði í andlit- um fólksins sem var næst mér, ekki bara hræðslu. Það og athöfnin öll á sér væntanlega þær skýringar að fólkið lítur á það sem blessun Guðs að fá yfir sig þessar púðurkerlingar og logandi pappír og prik úr flug- eldum sem einnig er skotið upp og yfir fólkið, og sumir líti á þetta sem litla fórn af sinni hálfu til heilags Mikjáls. Ég taldi mig ekki hafa neina þörf fyrir þessa blessun og forðaði mér þegar mér fannst að látunum myndi aldrei linna. Hoppaði yfir girðingu á aðaltorginu, tróð mér gegnum runna og kom mér í skjól á bak við tré þar sem margir höfðu frá upphafi fundið sér öruggan stað til að fylgjast með. Flugeldasýningin stóð eitthvað á annan tíma og lýkur venjulega með því að konur og börn syngja afmæl- issönginn til Mikjáls erkiengils við kirkjuna klukkan sex um morgun- inn. En þá var ég farinn að sofa til að safna kröftum fyrir daginn enda margt um að vera þá. Skrautleg blómaganga Messu til heiðurs Mikjáli okkar var útvarpað frá kirkjunni um há- degið og þá riðu inn á torgið tugir hestamanna frá nálægum þorpum til að fá blessun prestsins. Síðdegis var stærsta skrúðganga helgarinnar, svokölluð blómaganga, xúchiles. Þá koma dansarar víða að úr Mexíkó saman við gömlu braut- arstöðina og ganga um götur bæj- arins og inn á aðaltorgið. Við braut- arstöðina er fyrst athöfn til minningar um þá sem létu lífið í frægum bardaga við Spánverja árið 1531. Bæjarbúar taka á móti skrúð- göngunni með því að setjast eða standa á gangstéttunum við þær göt- ur sem hún fer um. Ég fann mér slík- an stað og fylgdist í upphafi með úr þeirra hópi. Karlmenn bera miklar Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Risabrúður sem allar áttu sína fyrirmynd í hetjum eða skúrkum úr sögu þjóðarinnar gegndu miklu hlutverki í göngunum. Los Voladores fóru með mikil ritúal frá Aztekatímanum áður en þeir hoppuðu fram af stönginni og svifu til jarðar. Þetta er hreinræktuð trúarathöfn. Endalausar skrúðgöngur voru um San Miguel á Mikjálsmessu og dagana þar í kring. Mikið bar á stjörnum sem bornar voru til heiðurs framliðnum hetjum. Fórnir og útrás á Mikjálsmessu Mikjálsmessu fylgja mikil hátíðahöld í borginni San Miguel de Allende í Mexíkó og setja skrúðgöngur, nauta- at og flugeldasýningar svip sinn á fögnuðinn. Helgi Bjarnason brá sér til Mexíkó og fylgdist með hátíðahöldunum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.