Morgunblaðið - 30.10.2005, Blaðsíða 26
26 SUNNUDAGUR 30. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Reykingabann tók gildi áÍtalíu 10. janúar 2005.Lögin um bannið erukennd við lækninn Girol-amo Sirchia, þáverandi
heilbrigðisráðherra Ítalíu, en hann
var tæknilegur ráðherra í ríkisstjórn
Berlusconi. Á þessu ári hefur verið
skipt um heilbrigðisráðherra og við
embættinu tekið reykingamaðurinn
Francesco Storace. Þegar Storace
settist í ráðherrastól vildi hann láta
fjölga reykingasvæðunum á Ítalíu en
það hefur ekki verið gert. Eina
breytingin sem gengið hefur í gegn
er að eigendur þeirra staða þar sem
reykingabann gildir eru ekki lengur
skyldugir til að sekta þá sem reykja
á bannsvæði. Það er nú hlutverk lög-
reglunnar. Sektirnar nema frá 25
evrum (1.800 ísl. kr.) upp í 250 evrur
(18.000 ísl. kr.).
Hálftíma vinnutap
Ítalía er þriðja Evrópulandið, sem
tók upp reykingabann á eftir Írlandi
og Belgíu.
Reykingabannið gildir á öllum al-
menningsstöðum og í stigagöngum í
fjölbýlishúsum. Bannað er því að
reykja á börum, veitingastöðum,
diskótekum og svo framvegis. Einu
staðirnir þar sem má reykja er í
heimahúsum og úti á götu. Innan við
þriðjungur fyrirtækja hafa komið
upp reykingaherbergjum og margir
veiktust af kvefi og bronkítis síðast-
liðinn vetur við að þurfa að fara út að
reykja illa klæddir. Reiknað hefur
verið út að reyki starfsmaður 6 síg-
arettur í 8 tíma vinnu nemi vinnutap-
ið 30 mínútum. Hafa margir reyk-
ingamenn kvartað undan því að geta
ekki einbeitt sér án sígarettna. Aðrir
verða mjög pirraðir og jafnvel árás-
argjarnir.
Talið er að 2,8 miljónir af þeim 57
miljónum sem byggja Ítalíu, finni
hjálp gegn vinnustreitu í sígarettun-
um. Flesta reykingamennina er að
finna í höfuðborginni Róm og er
verkamannastéttin stærsti hópur
reykingamanna ef farið er eftir
stéttaskiptingu.
Veitingahúsaeigendum til mikillar
undrunar hefur viðskiptavinum hins
vegar fjölgað. Aðeins 3% veitinga-
staða hafa komið upp reykingasöl-
um, en kostnaðurinn við uppsetningu
slíks rýmis nemur frá 10.000 (737.300
ísl. kr.) upp í 25.000 evrur (1,843
milljónir ísl. kr.). Veitingahúsa-
eigendurnir, sem hafa lagt í slíkar
framkvæmdir verða síðan að ábyrgj-
ast að verðlag hækki ekki. Í Mílanó
hefur einn veitingastaður þá komið
sér upp all sérstöku reykingarými,
en Cadillac bíl er lagt fyrir utan veit-
ingastaðinn og þar mega reykinga-
menn reykja í friði. Á veitingastað
einum í Bologna varð eigandinn hins
vegar fyrir fjárhagslegu tjóni þegar
vel til haft par hafði pantað og borð-
að dýrustu réttina á matseðlinum,
bað síðan um að fá að fara út að
reykja og stakk af frá reikningnum!
Viðskiptavinum diskóteka hefur
hins vegar fækkað um 30 prósent.
Auk þess sem ónæði í nágrenni við
skemmtistaði hefur aukist í kjölfar
reykingabannsins, enda safnast fólk
nú í hópum saman fyrir utan staðina
og kvörtunum frá íbúum í nágrenni
við staðina þar með fjölgað. Sumir
stelast þó til að reykja inni á salern-
um og í skóla nokkrum í Róm hefur
skólastjórinn ákveðið að loka salern-
unum í frímínútunum.
Þeir sem ættu að vera til fyrir-
myndar hvað reykingabannið varðar
eru þingmennirnir, en þeim leyfist
engu að síður að reykja á göngum
þingsins og á skrifstofum sínum.
Eftir að reykingabannið tók gildi
hafa 50 prósent fleiri haft samband
við forvarnastofnun gegn lungna-
krabbameini til að fá ráðleggingar
um hvernig þeir geti hætt.
Sala á sígarettum hefur sömuleiðis
minnkað um 11 prósent. Tóbakssölu-
staðir á Ítalíu eru 58 þúsund og
starfa 140 þúsund manns við söluna,
en þeir fá 10 prósent af verði hvers
sígarettupakka. 90 prósent falla hins
vegar í hlut Philip Morris Italia og
British American Tobacco Italia sem
sjá fram á 5 prósent samdrátt í sölu
miðað við árið 2004.
Tvö skaðabótamál vegna reykinga
10. mars 2005 var Ente tabacchi
italiani (Eti) dæmt til að greiða fjöl-
skyldu Mario Stalteri 200.000 evrur
(14,5 miljónir ísl. kr.) í skaðabætur,
en Stalteri lést árið 1991. Vann fjöl-
skylda hans málið á þeim röksemd-
um að vantað hefði upplýsingar um
hættu af reykingum. Málaferlin hóf-
ust árið 1994, á þeim tíma sem mála-
ferlin stóðu yfir var Ente tabacchi
italiani, sem tók á sínum tíma við af
Tóbaksverslun ríkisins, orðið að
einkafyrirtækinu British-American
Tobacco Italia sem hefur áfrýjað
málinu með þeim rökum að þeir ætli
ekki að borga skaðabætur fyrir fyr-
irtæki sem sé ekki lengur til. Árið
1997 tapaði Stalteri fjölskyldan mál-
inu þar sem talið var að hinn látni
hefði reykt af frjálsum vilja. Eti var
þó dæmt til að greiða fjölskyldunni
20.000 evrur (tæpar 1,5 milljónir ísl.
kr) í lögfræðikostnað auk greiðslu
vegna læknisráðgjafar sem staðfesti
að dánarorsök hins látna hefði verið
reykingar.
Á ári hverju látast um 80.000
manns á Ítalíu vegna reykinga og 11.
maí 2005 var ítalska menntamála-
ráðuneytið dæmt til að greiða erf-
ingjum skrifstofumanns nokkurs
263.725 evrur (19 milljónir ísl. kr.)
fyrir líffræðilegt tjón og 132.000 evr-
ur (9,5 milljónir ísl. kr.) til viðbótar
fyrir siðferðislegt tjón af völdum
óbeinna reykinga. Starfsmaðurinn
hafði aldrei reykt, en fékk lungna-
krabbamein eftir að hafa unnið á
skrifstofu með reykingakonum í sjö
ár.
Vítahringur kókaíns
ÞÓ REYKINGABANNIÐ gefist vel gerir eiturlyfjavandinn þó vart við sig á
Ítalíu sem annars staðar. Það kom þó öllum að óvörum þegar fréttist að
Lapo Elkann, dóttursonur Giovanni Agnelli heitins, eiganda Fiat-bíla-
verksmiðjanna, hefði verið fluttur á sjúkrahús eftir að hafa blandað saman
kókaíni, heróíni, maríújana og áfengi nú í október. Lapo Elkann er 28 ára
og hefur verið mikið í sviðsljósinu, en hann sér um markaðsmál Fiat auk
þess að hafa látið gera fatalínu merkta Fiat í takmörkuðu upplagi sem hef-
ur notið mikilla vinsælda. Lapo Elkann þykir líkur afa sínum í útliti. Hann
var trúlofaður gullfallegri 21 árs gamalli ítalskri leikkonu, Martina Stella,
en það slitnaði upp úr tveggja ára trúlofun þeirra í sumar. Lapo Elkann er
núna í afvötnun í Arizona á sömu meðferðarstofnun og Kate Moss.
Nú í september lést síðan brasilísk dansmær á heimili þekkts ítalsks sápu-
óperuleikari, Paolo Calisano, eftir að hafa blandað saman kókaíni og ró-
andi lyfjum. Leikarinn er nú í stofufangelsi í meðferðarstofnun á Ítalíu, en
hann er ákærður fyrir að vera ábyrgur fyrir dauða dansmeyjarinnar þar
sem hann útvegaði henni kókaínið. Svo virðist sem fræga fólkið þurfi að
lenda í vítahring kókaíns og annarra eiturefna til að vandamálið komist í
umræðuna. Að vísu var farið að tala um hvað verð á kókaíni hafi lækkað,
þar sem það sé orðið mjög útþynnt. Neysla þess sé þá sömuleiðs farin að ná
til barna um 13 ára aldur enda auðvelt að útvega sér þetta fíkniefni.
Umræðuþáttur var á Stöð eitt í ítalska ríkissjónvarpinu sama kvöld og
Lapo Elkann var fluttur á sjúkrahús. Hingað til hafði verið talað um kókaín
sem eiturlyf hinna ríku og að það væri samkvæmislyf. Nú virðist neyslan þó
vera búin að taka á sig þá mynd að kókaínneytandinn sé einn í sinni neyslu,
en ekki tekur nema nokkra mánuði að verða háður kókaíni. Eiturlyfið
greinist í þvaginu í 48 klukkustundir frá því að þess var neytt. Eiturlyfja-
meðferðarheimili eru mörg á Ítalíu en þau telja sig ekki ennþá hafa fundið
meðferðarúrræði sem dugar gegn kókaíninu.
Ítalir settu reykingabann í upphafi þessa árs og þykir reynslan af því hafa verið góð. Þing-
menn landsins standa sig þó ekki sem best við að vera löndum sínum sú fyrirmynd sem
við hæfi væri. Bergljót Leifsdóttir Mensuali fjallar um reykingabannið.
Reuters
Dóttursonurinn Lapo Elkann.
Reuters
Agnelli skömmu fyrir andlát sitt.
Reuters
Höfundur er fréttaritari
Morgunblaðsins á Ítalíu.
Góð reynsla af
reykingabanni á Ítalíu
Helgin
öll
á morgun