Morgunblaðið - 30.10.2005, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. OKTÓBER 2005 29
Fræðsluerindi Landbúnaðarháskóla
Íslands á Keldnaholti
Erindið hefst kl. 3 e.h. og er haldið í fundarsal LbhÍ
(áður Rala) á Keldnaholti, 3. hæð.
Allir velkomnir.
Mánudaginn 31. október
flytur Haraldur Ólafsson,
veðurfræðingur, erindi sem hann nefnir
Veðurfarshorfur fram eftir öldinni.
Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100
39.900kr.
Netverðdæmi: 29. nóvember, 8 nætur
miðað við að 2 fullorðnir ferðist saman.
39.900kr.
miðað við að 2 fullorðnir ferðist saman.
Netverðdæmi: 7. janúar, 10 nætur
Innifalið er flug, gisting á Paraiso, íslensk fararstjórn og flugvallarskattar.
-frábær tilboð
NetPlús til
Kanarí
Thalassa“ (hafið á grísku)ervæntanlega eini þema-þátturinn í sjónvarpi þarsem lagt er mikið í vand-aða heimildaþáttagerð
um allt sem tengist hafinu. Þátturinn
er á besta útsendingartíma og sýnir í
heilar tvær klukkustundir stuttar
fræðslumyndir alls staðar að úr heim-
inum sem allar eiga það sameiginlegt
að tengjast hafinu á einhvern hátt.
Morgunblaðið náði tali af mannin-
um sem stendur á bak við hugmynd-
ina, sem í 30 ár hefur fært frönskum
áhorfendum heiminn beint heim í
stofu. George Pernoud er sérstök og
hæglát sjónvarpsstjarna, vel þekkt
andlit og gengur sjaldan óáreittur en
hann hefur þann eiginleika að bræða
hjörtu níræðra kvenna en kveikja
jafnframt áhuga unga fólksins á mál-
efnum hafsins.
– Hvað veldur vinsældum „Thal-
assa“?
„Við höfum verið á skjánum í 30 ár
af því að fólk horfir á okkur og höfum
líklega enst svona lengi vegna þess að
við reynum að komast hjá því að vera
of vísindaleg í umfjöllun okkar eða ala
upp einhverjar sjónvarpsstjörnur.
Við viljum gefa áhorfendum tækifæri
til að ferðast á framandi slóðir og upp-
lifa ferðalag í gegnum sjónvarpið.
Þáttagerðarfólk okkar reynir eftir
fremsta megni að kynna efnið þannig
að það sé skiljanlegt og það sé enginn
milliliður milli áhorfandans og efnis-
ins,“ segir Pernoud.
Hann tekur fram að enginn þátta-
gerðarmannanna sé sérhæfður í mál-
efnum hafsins, eins og oft er með sér-
staka sjónvarpsþætti um ferðalög,
heldur reyni þeir á sem hlutlausastan
hátt og að hætti fréttamanna að
fræða sig og aðra um efnið hverju
sinni. Það að hafa enst með sömu
þáttastjórnendurna og þáttagerðar-
fólkið í heil 30 ár er í sjálfu sér afrek
en það er meira sem liggur að baki
velgengni „Thalassa“.
„Við höfum áhuga á fólki og því sem
það er að gera. Sjónvarpstæknin er
sérstaklega hentug til þess að koma
því á framfæri og hentar okkur ákaf-
lega vel. Við reynum líka að nálgast
hafið með ákveðinni lotningu, eins og
sjómenn gera. Ég er hrifinn af þekktu
máltæki sem segir að þegar bóndi
fylgist með veðurspánni þá hætti
hann uppskerunni en þegar sjómaður
fylgist með veðurspánni geti hann
verið að hætta lífinu. Þannig getur
hafið verið vinur eða óvinur eftir at-
vikum og það er væntanlega þessi
nálgun okkar sem gerir það að verk-
um að við höfum gagnkvæma virð-
ingu þeirra sem hafa eitthvað með
hafið að gera,“ segir Pernoud.
Takmarkalaus uppspretta
Aðspurður hvort hann hræðist
samkeppni við auknar vinsældir
raunveruleikasjónvarps segist Pern-
oud ekki neita því að það þurfi stans-
laust að nútímavæðast og skipuleggja
þáttinn með góðum fyrirvara svo
hann haldist á dagskrá. Áhorfstölur
benda til þess að um fjórar milljónir
manna horfi reglulega á þáttinn, sem
verður að teljast nokkuð gott. Er
kannski meiri hætta á því að hann
vakni einn daginn og hafi ekkert
meira að segja um hafið?
„Hafið er ótrúleg uppspretta efnis
sem við þekkjum enn svo takmarkað
að við gætum haldið áfram í 30 ár í
viðbót,“ segir hann hlæjandi.
Á þessum 30 árum hefur Thalassa
fjallað um dýralíf, störf tengd hafinu,
umhverfisáhrif, vatnaíþróttir og
heimsótt fjölda landa, þar á meðal Ís-
land þó nokkrum sinnum.
Man eftir einu tré í Reykjavík
„Ég kom fyrst til Íslands sem töku-
maður í Vestmannaeyjagosinu, og
vildi festa á filmu þegar hraunið lok-
aði höfninni. Það var búið að banna
ferðir útí eyjuna en mér tókst ein-
hvern veginn að lauma mér þangað og
man eftir því að Ameríkanarnir voru
að reyna að kæla hraunið til að stoppa
það en það gekk auðvitað ekki.
„Thalassa“ hefur svo farið þangað í
nokkur skipti og árið 2001 tókum við
upp heilan þátt bara um Ísland.“
Pernoud á skýrar minningar frá
heimsóknum sínum hingað. „Ísland
er mjög fallegt, en það er heldur svalt
fyrir minn smekk. Ég man eftir að
það var aðeins eitt tré í Reykjavík í
fyrstu heimsókn minni og var það fyr-
ir framan franska sendiráðið. Lands-
lagið er stórkostlegt og átti væntan-
lega einhvern þátt í að Íslands-
þátturinn 2001 var á sínum tíma mjög
vinsæll í Frakklandi. Síðan þá höfum
við komið aftur og nýlega hittum við
verndara villta laxins, Orra Vigfús-
son, og fylgdumst með grásleppuveið-
um í Flatey.“
En á Pernoud sér eitthvert uppá-
haldsefni sem heillar hann meira en
önnur eftir öll þessi ár?
„Ég hugsa að allir þáttagerðar-
mennirnir eigi sínar eftirlætisminn-
ingar en það er erfitt að gera upp á
milli.“ Pernoud hugsar sig aðeins um
og bætir við: „Ég er sérstaklega hrif-
inn af öllu sem snertir 18. öld og einn-
ig er ég áhugamaður um kafbáta eftir
að hafa farið með vini mínum í neð-
ansjávarleiðangur fyrir mörgum ár-
um. Annars er ég sannfærður um að
hægt sé að finna drauminn alls staðar.
Við lifum nefnilega í draumaveröld.“
Hafið, hafið
Vikulegur sjónvarpsþáttur sem fjallar eingöngu um hafið er ekki á hverju strái. Í Frakk-
landi er þátturinn „Thalassa“ þó einn vinsælasti þáttur franska sjónvarpsins, sem sýndur
er í beinni útsendingu og fagnar 30 ára afmæli um þessar mundir. Sara M. Kolka fékk for-
sprakkann, George Pernoud, til að segja sér hver væri lykillinn að velgengninni.
George Pernoud á tökustað á síðasta
áfangastað fyrir París, við Ekhmül-
vita á Bretagne-skaga.
George og þáttagerðarmennirnir í Thalassa. Góður liðsandi er lykilatriði við þáttagerðina.
Einn af vitunum 30. Ekhmül-vitinn
var í efsta sæti vinsældarkosning-
arinnar meðal áhorfenda.
sara@mbl.is
Sjálfboðaliðar hafsins
ÞAÐ er áhrifamikið að fylgjast með afmælisupptöku „Thalassa“ við árbakka
Signu þar sem helsta sjónvarpsfólk Frakklands er samankomið til að fagna
30 ára afmælinu. Það er ekkert til sparað, ógrynni sjávarrétta á boðstólum
og veislutjöld hafa verið reist við skrifstofur þáttarins en þær hafa þá sér-
stöðu að vera á litlum báti við árbakkann þar sem hið stóra sjónvarpshús
„France television“ stendur. Á bátnum er einnig að finna hljóðverið þaðan
sem bein útsending þáttarins er í fullum gangi á meðan á veislunni stendur.
Það glittir í fræga leikara eins og Jean Rochefort og Gérard Depardieu,
en sá síðastnefndi kemur óvænt og óboðinn, en þar sem „Thalassa“ á í hlut
er honum tekið opnum örmum og skellt í viðtal í beinni.
Þátturinn er sá síðasti í afmælisferðalagi „Thalassa“ um hafnir Frakk-
lands, en á hverjum föstudegi undanfarið ár hefur teymið ferðast á milli og
glætt hafnir lífi í þá tvo tíma sem útsendingin stendur yfir. Það hefur fært
starfsliðið nær landanum og jafnframt verið umgjörð fyrir umfangsmikla
samkeppni um vinsælasta vita Frakklands. 30 vitar voru sérstaklega valdir
til kosningarinnar og rennur ágóðinn til hjálparsveita hafsins, SNSM, sem
vinna gjöfula vinnu sem sjálfboðaliðar. Síðustu tölur benda til þess að um
200.000 símtöl hafi borist og um hálf milljón króna safnast.
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn