Morgunblaðið - 30.10.2005, Page 34
34 SUNNUDAGUR 30. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Skotveiðimenn eru þegar farnirað velta fyrir sér mögulegumáhrifum fuglaflensu á íslenskaveiðistofna. Sérstaklega bein-
ast áhyggjur veiðimanna að far-
fuglastofnunum, öndum og gæsum,
en samkvæmt fréttum hefur andfugl-
um verið hætt við smiti. Þá hafa menn
velt því fyrir sér hvort staðbundnum
stofnum eins og t.d. rjúpu, sé hætt við
smiti vegna lítils ónæmis og náins
sambýlis að sumarlagi við t.d. heiða-
gæs.
Halldór Runólfsson yfirdýralæknir
sagði í samtali við Morgunblaðið að
yfirdýralæknisembættið fylgdist
fyrst og fremst með þróun mála með
hliðsjón af smiti í alifuglastofnana.
„Okkar aðalmarkmið er að koma í veg
fyrir að smit berist í alifuglastofn-
ana.“
Að sögn Halldórs er þegar hafið
samstarf milli Yfirdýralæknis og
Náttúrufræðistofnunar um að fylgj-
ast með hugsanlegum smitleiðum frá
villtum fuglum í alifuglastofna. „Við
viljum hafa þann möguleika að geta
hindrað allan samgang milli alifugla
og villtra fugla og það er einfaldast að
gera með því að banna lausagöngu ali-
fugla utandyra. Við getum hinsvegar
hvorki haft stjórn á ferðum villtra
fugla né hindrað smit á milli þeirra. “
Íslensku gæsastofnarnir hafa vet-
ursetu á Bretlandseyjum og þar hef-
ur verið staðfest eitt tilfelli fugla-
flensu þar sem var innfluttur
búrfugl. „Breskir vísindamenn fylgj-
ast mjög náið með gæsastofnunum á
vetrarstöðvunum og við munum fá
upplýsingar þaðan svo að við vitum
hverju eiga megi von á þegar fugl-
arnir koma til landsins í vor.“
Halldór segir eðlilegt að veiði-
menn velti því fyrir sér, hvort óhætt
sé að veiða og meðhöndla villta fugla
þegar svona stendur á. „ Menn eru
ónæmir fyrir flestum afbrigðum
fuglaflensunnar svo á þessu stigi er
óþarft að hafa áhyggjur,“ segir Hall-
dór.
„Við munum einnig taka sýni úr
fuglum sem hér hafa vetursetu í vet-
ur til að átta okkur betur á hver stað-
an er en það hafa engar ákvarðanir
verið teknar um takmarkanir á veið-
um á villtum fuglum vegna hugs-
anlegrar smithættu. Menn þurfa
einnig ekki að óttast neitt vegna
fugla sem veiddir hafa verið í haust.“
Halldór bendir jafnframt á að
inflúensuveirur í fuglum séu ekkert
nýtt fyrirbæri. „Það sem er nýtt er
að eitt ákveðið afbrigði hennar,
H5N1, getur smitast í menn en það
er líka sjaldgæfasta afbrigðið enn
sem komið er. Engu að síður er full
ástæða til að hafa allan vara á sér og
fylgjast vel með þróuninni.“
Jón Gunnar Ottósson forstjóri
Náttúrufræðistofnunar tók í sama
streng. „Okkar farfuglar hafa flestir
vetursetu í Bretlandi og þar verður
fylgst mjög náið með þróuninni í vet-
ur. Við erum ennþá alveg pollrólegir
yfir þessu.“ Aðspurður sagði Jón
Gunnar að veiðimenn þyrftu ekki að
óttast smit úr fuglum sem veiddir
eru í haust. Hvort staðbundnum
fuglastofnum eins og rjúpu væri
hættara við inflúensusmiti en far-
fuglum sagði Jón að það væri ekki
meira en alla jafna.
„Það eru alls konar flensur í gangi
í fuglastofnunum og þær hafa engin
áhrif. Vísindamenn eru fyrst og
fremst að fylgjast með þeim eina
veirustofni sem getur smitast í ali-
fugla og fólk.“
SKOTVEIÐI | MUN FUGLAFLENSAN HAFA ÁHRIF Á SKOTVEIÐAR 2006?
Vel fylgst með gæsastofnum í vetur
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Vel verður fylgst með gæsastofnunum á Bretlandi í vetur.
Morgunblaðið/Sigurður Sigm.
Rjúpu er ekki hættara við inflúensu-
smiti en öðrum fuglum.
Eftir Hávar Sigurjónsson
havar@mbl.is
ÞAÐ blása nýir og ferskir vindar
um Þjóðleikhúsið. Það er búið að
mála anddyrið og salinn á Smíða-
verkstæðinu og það eru komin ný
og góð sæti. En það sem kannski
er meira um vert er að á föstu-
dagskvöld breiddist frá sviðinu
nýr og hressandi blær yfir áhorf-
endur.
Huld Ólafsdóttir fjallar í fyrsta
leikriti sínu í fullri lengd um
frelsi, eða kannski um ranghverf-
una á frelsi, frelsið til að beita of-
beldi og hvernig ofbeldi leiðir af
sér ofbeldi. Hér segir frá fjórum
ungum manneskjum í mennta-
skóla, tvö þeirra hafa orðið að
horfa upp á eða þola ofbeldi innan
veggja heimilisins, tvö ekki. En öll
eiga þau foreldra sem hafa lítinn
tíma til að hlúa að þeim ýmist
vegna fátæktar, eftirsóknar eftir
veraldlegum gæðum eða jafnvel
pólitísks áhuga. Og flest eru þau
meðvituð um þjóðfélagið sem þau
hrærast í, þola ekki fullorðna fólk-
ið, hræsnisfullan heiminn sem þau
lifa í og eitt þeirra vill ráðast til
atlögu gegn valdamönnunum og
fær hin til liðs við sig.
Hrund hefur vissulega hvorki
þróað enn sterkan persónulegan
stíl, né handverkið til fullnustu en
það er eitthvað ákaflega ferskt við
þetta leikrit, þarsem teflt er sam-
an í stuttum senum „frelsi“ ung-
linga í bílskúr og „frelsinu“ í
heimilislífi tveggja unglinganna,
annars vegar „frelsinu“ til að
græða og hins vegar „frelsinu“ til
að púla. Og Hrund ræðst gegn
ýmsum tabúum í íslensku þjóð-
félagi og orðar hluti og hugsanir
sem helst hefur ekki mátt segja
upphátt í langan tíma í leikhúsi
okkar. Verkið er fyndið og persón-
ur lifna á sviðinu. Reyndar fannst
mér hún í upprunalegum text-
anum þróa persónur lengra og
gera lokin skiljanlegri en lokatexti
sýningarinnar gerir. En aðrar
styttingar og viðbætur sem hún
hefur unnið á æfingatímabilinu
styrkja tvímælalaust allar verkið.
Jón Páll Eyjólfsson er einnig að
vinna sitt fyrsta verk fyrir Þjóð-
leikhúsið. Hann staðsetur áhorf-
endur strax í unglingaheimi, þar
sem allir veggir sem umlykja þá
eru útkrotaðir slagorðum gegn
heimi okkar fullorðnu og valda-
manna:„Er ég það sem ég á?“,
Erum við frjáls?
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið
Eftir Hrund Ólafsdóttur.
Leikstjóri: Jón Páll Eyjólfsson, leikmynd
og búningar: Ólafur Jónasson, tónlist:
Hallur Ingólfsson, lýsing: Sólveig Eiríks-
dóttir. Leikarar: Ólafur Steinn Ingunn-
arson, Ísgerður Elfa Gunnarsdóttir, Arn-
björg Hlíf Valsdóttir, Gísli Pétur Hin-
riksson, Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir,
Sigurður Skúlason og Anna Kristín Arn-
grímsdóttir. Smíðaverkstæðið föstud.
28. okt., kl. 20.
FRELSI
Arnbjörg Hlíf Valsdóttir. „Brynhildur hennar, unglingurinn, gróf í kjaftinum en ljóðræn í anda er afskaplega trú-
verðug og skemmtileg,“ segir María Kristjánsdóttir í umsögn sinni um Frelsi, eftir Hrund Ólafsdóttur.