Morgunblaðið - 30.10.2005, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. OKTÓBER 2005 35
MENNING
Akranes Ófeigur Gestsson 431 4383 892 4383
Akureyri Skrifstofa Morgunblaðsins 461 1600
Bakkafjörður Stefnir Elíasson 473 1672
Bifröst Bára Rúnarsdóttir 435 0054 897 4236
Bíldudalur Gísli Snær Smárason 456 2207 456 2158
Blönduós Björn Svanur Þórisson 452 4019 864 4820
Bolungarvík Nikólína Þorvaldsdóttir 456 7441 867 2965
Borgarnes Þorsteinn Viggósson 437 1474 898 1474
Breiðdalsvík Marenia Kristín Hrafnkelsd. 475 6662 8606849
Búðardalur Aron Snær Melsteð 434 1449
Dalvík Halldór Reimarsson 466 1039 862 1039
Djúpivogur Helgi Týr Tumason 478 8161 864 9207
Egilsstaðir Þurý Bára Birgisdóttir 471 2128 8620543
Eskifjörður Björg Sigurðardóttir 476 1366 868 0123
Eyrarbakki R. Brynja Sverrisdóttir 483 1513 699 1315
Fáskrúðsfjörður Jóhanna S. Eiríksdóttir 475 1260/475 0522/691 1262
Flateyri Hjördís Guðjónsdóttir 456 7885
Garður Erla Ösp Ísaksdóttir 848 5361
Grenivík Hörður Hermannsson 463 3222 848 3397
Grindavík Kolbrún Einarsdóttir 426 8204/847 9458/426 8000
Grímsey Ragnhildur Hjaltadóttir 467 3148
Grundarfjörður Bjarni Jónasson 4386858/8549758/894 9758
Hella Brynja Garðarsdóttir 487 5022 892 1522
Hellissandur Hafdís Gísladóttir 436 6925 894 9284
Hofsós Bylgja Finnsdóttir 453 7418 893 5478
Hólmavík Ingimundur Pálsson 451 3333 893 1140
Hrísey Siguróli Teitsson 466 1823
Húsavík Elísabet Sigurðardóttir 894 0387 464 1987
Hvammstangi Harpa Vilbertsdóttir 451 2455 892 0644
Hveragerði Úlfar Andrésson 483 4694 893 4694
Hvolsvöllur Helgi Ingvarsson 4878172/8931711/853 1711
Höfn Ranveig Á. Gunnlaugsdóttir 478 2416 862 2416
Ísafjörður Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478
Keflavík Elínborg Þorsteinsdóttir 421 3463 896 3463
Kirkjubæjarkl. Birgir Jónsson 487 4624 487 4634 892 8724
Kjalarnes Haukur Antonsson 566 8372 895 7818
Kópasker Hrönn Guðmundsdóttir 465 2112
Laugarás Hjörtur Freyr Snæland 486 8874
Laugarvatn Berglind Pálmadóttir 486 1129 865 3679
Neskaupstaður Sólveig Einarsdóttir 477 1962 477 1124
Ólafsfjörður Árni Björnsson 466 2650 866 7958
Ólafsvík Laufey Kristmundsdóttir 436 1305 899 6904
Patreksfjörður Sigríður Valdís Karlsdóttir 456 1119 846 8346
Raufarhöfn Örvar Sigþórsson 456 1287
Reyðarfjörður Guðmundur Fr. Þorsteinsson 474 1488 892 0488
Reykholt Bisk. Oddur Bjarni Bjarnason 486 8900
Reykhólar. Ingvar Samúelsson 434 7783
Reykjahlíð v/Mýv. Þórunn Snæbjörnsdóttir 464 4464
Sandgerði Jóhanna Ósk Gunnarsdóttir 423 7330 821 7330
Sauðárkrókur Ólöf Jósepsdóttir 453 5888 854 7488
Selfoss Sigdór Vilhjálmsson 846 4338
Seyðisfjörður GB Bjartsýn ehf, Birna 472 1700 897 0909
Siglufjörður Sigurbjörg Gunnólfsdóttir 467 1286 467 2067
Skagaströnd Birna Velemir 452 2916 896 6105
Stokkseyri Kristrún Kalmansdóttir 867 4089
Stykkishólmur Erla Lárusdóttir 438 1410 430 1414
Stöðvarfjörður Sunna Karen Jónsdóttir 475 8864
Suðureyri Tinna Sigurðardóttir 456 6244
Súðavík Anna Elísa Karsldóttir 456 4945
Tálknafjörður María Berg Hannesdóttir 456 2655
Vestmannaeyjar Harpa Björgvinsdóttir 586 8036 695 2599
Vík í Mýrdal Björn Ægir Hjörleifsson 487 1474 896 1790
Vogar Vilborg S. Helgadóttir 424 6653 616 2075
Vopnafjörður Svanborg Víglundsdóttir 473 1289 820 6788
Ytri-Njarðvík Elínborg Þorsteinsdóttir 421 3463 820 3463
Þingeyri Hildur Sólmundsdóttir 456 8439 867 9438
Þorlákshöfn Íris Valgeirsdóttir 483 3214 8486214
Þórshöfn Ragnheiður Valtýsdóttir 468 1249 468 1515
DREIFING MORGUNBLAÐSINS
Hér eru upplýsingar um þá sem dreifa blaðinu á landsbyggðinni
Staður Nafn Símanúmer Staður Nafn Símanúmer
Frábært tilboð til Kanarí 5.-20. desember. Njóttu lífsins á þessum
vinsæla áfangastað við frábæran aðbúnað í 15 nætur. Bjóðum
nokkrar íbúðir á þessum vinsæla gististað á frábæru verði. Sama
verð, hvort sem 2, eða 3 eru saman í íbúð. Allar íbúðir eru með 1
svefnherbergi. Skelltu þér til Kanarí, gerðu hagstæð jólainnkaup á
Kanarí og búðu vel meðan á dvölinni stendur.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Kanarí
5.–20. des.
Sértilboð á Roque Nublo
frá kr. 49.990
Frábært tilboð 5.-20. desember
Verð kr. 49.990
Flug, skattar, gisting og íslensk fararstjórn, m.v.
2, eða 3 saman í íbúð á Roque Nublo í 15 nætur
5. des. Netverð á mann.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Í SAFNI hafa verið sett upp verk
til minningar um Hörð Ágústsson
sem lést í september síðastliðnum.
Um er að ræða fimm teikningar
og tvö litbandsverk eftir Hörð sem
eru í eigu safnsins. Hörður til-
heyrði kynslóð konkretlistamanna,
Hjörleifs Sigurðssonar, Karls
Kvaran o.fl. sem voru leiðandi á
vettvangi nýsköpunar í myndlist á
Íslandi á sjötta og sjöunda áratug
síðustu aldar.
Hugtakið „konkretlist“ var upp-
haflega samið af hollenska listmál-
aranum Theo van Doesburg og
átti við um strangflatarlist sem
snýst fyrst og fremst um rann-
sóknir með liti, form og rými,
hreyfingu og ljós. Er konkretlistin
nokkuð áberandi í Vestur-Evrópu
um og eftir 1950 en um 1960 hafa
þónokkrir konkretmálaranna tekið
að vinna kerfisbundin verk sem
framkalla sjónblekkingar og hlutu
slík verk nafngiftina „Op list“
(Bliklist), s.br. „optical“ (sjón) og
„optics“ (ljósfræði). Ég er að tala
um listamenn á borð við Francois
Morellet, Gunter Fruhtrunk,Veru
Molnar og Richard Paul Lohse (í
Safni má einmitt sjá tvö þrykk eft-
ir þann síðastnefnda).
Hörður Ágústsson hefur þá sér-
stöðu á meðal konkretlistamanna á
Íslandi að vera sá eini sem þróaði
konkretverk sín í átt til op-listar.
Ég vil þó ekki sniðganga Eyborgu
Guðmundsdóttur í því sambandi.
En Eyborg hóf hins vegar ekki að
stunda myndlist fyrr en á sjöunda
áratugnum þegar op-listin var í
blóma og er þar af leiðandi af ann-
arri kynslóð konkretlistamanna en
Hörður þótt að-
eins tvö ár hafi
skilið á milli
þeirra í aldri.
Teikningar
Harðar eru
nokkuð dæmi-
gerðar fyrir
hans kynslóð
konkret- eða op-
listamanna og
þrælgóðar sem
slíkar. Línu-
teikningar inni-
halda ennþá
hugsun um
myndbyggingu
eða uppbrot á
myndfletinum
þar sem næsta
kynslóð á eftir
vann nær ein-
göngu með
strúktúr.
Litbandsverkin eru af sama
toga og línuteikningarnar nema
þau eru áleitnari fyrir augað. Efn-
ið gefur verkunum svo aukið hug-
myndalegt gildi í ljósi þess að þau
eru formuð og lituð með litbönd-
um úr striga sem annars eru not-
uð við bókbandsgerð og vísa þann-
ig séð til hefðbundins málverks á
striga en eru að sama skapi tilbúið
efni.
Hörður Ágústsson og konkretlistin
MYNDLIST
Safn
Safn er opið miðvikudaga til sunnudaga
kl. 14–17.
Hörður Ágústsson
Jón B.K. Ransu
Litbandsverk eftir Hörð Ágústsson.
Innihaldið skiptir máli
„Dauðir stjórnmálamenn rokka“,
„Hvað kostar þú?“. Hann og Ólaf-
ur Ísfjörð nýta rýmið skemmti-
lega, loka unglinganna inní heimi
fullorðinna. Og tekst með fallegri
lýsingu Sólveigar Eggertsdóttur
að láta verkið renna hratt á milli
stuttra atriðanna, áreynslulaust úr
einu í annað undir skemmtilegri
og spaugsamri hljóðmynd Halls
Ingólfssonar. Leikmunir voru
hinsvegar full natúralískir og
klunnalegir fyrir minn smekk.
Vinna Jóns Páls með leikurunum
er skínandi, Sigurður Skúlason
dregur upp ógnvekjandi mynd af
ofbeldi, snyrtimennsku og ein-
staklingshyggju í hlutverki föður,
og vert umræðu hvernig sumum
leikurum tekst stöðugt að verða
betri og betri. Lilja Guðrún
Þorvaldsdóttir býr sömuleiðis til
með fáum en sláandi dráttum
brjóstumkennanlega mynd af konu
sem reynir að lifa af með því að
flýja inní heim sjálfsblekkinga og
lygi. Anna Kristín Arngrímsdóttir
túlkar einstæða móður þrúgaða
andlega og líkamlega af aðstæðum
sem hún ræður engan veginn við,
sviplaust andlit hennar, vanmáttur
hennar til að skilja lífið einkar
áhrifamikill. Ég verð alltaf glöð
þegar ég sé Arnbjörgu Hlíf
Valsdóttur á sviði, hún er svo
einstök, öðruvísi og vinnur svo vel
og Brynhildur hennar, ungling-
urinn, gróf í kjaftinum en ljóðræn
í anda er afskaplega trúverðug og
skemmtileg. Við þetta má bæta að
væri mér lagið að nota hástig
lýsingarorða hefði ég notað það
hér um leik þessara fjögurra.
Ungu leikararnir Ólafur Steinn
Ingunnarson, Gísli Pétur Hinriks-
son og Ísgerður Elfa Gunn-
arsdóttir falla eðlilega í skuggann
af reyndu leikurunum, ná ekki að
draga upp jafn heildstæðar mynd-
ir, en bæta það upp með æsku
sinni.
Það sem er hvað gleðilegast við
þessa sýningu er að hér er verið
að fjalla um aðstæður okkar tíma,
og það er ekki gert með því að
sækja fyrirmyndir í amerísk
myndbönd heldur reynt að höndla
okkar eigin raunveruleika. Hrund
og Jón Páll horfa á okkur með
samúð en hæðnislega, beintengd
inní heildarmynd þjóðfélagins.
Spyrja má hins vegar hvað það sé
sem fylgi áhorfandanum útúr saln-
um. Hver er boðskapurinn? Er
engin von? Ekkert til ráða?
Það hlýtur að verða gaman og
upplýsandi fyrir aðstandendur
sýningarinnar að fá viðbrögð ung-
linga við þessari sýningu, en fyrir
þá er hún sett á svið. Og full
ástæða er til að óska Þjóðleikhús-
inu til hamingju með þetta metn-
aðarfulla átak til að nálgast ung-
linga.
María Kristjánsdóttir