Morgunblaðið - 30.10.2005, Síða 38
38 SUNNUDAGUR 30. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
ÞAÐ er fagnaðarefni að Jón
Kristjánsson heilbrigðisráðherra
hefur boðað átak til
að sporna gegn offitu-
fárinu og Læknafélag
Íslands ályktar um
nauðsyn aukinnar
hreyfingar og bætts
mataræðis í samræmi
við skýrslu Alþjóða-
heilbrigðismálastofn-
unar (WHO).
Þetta eru orð í tíma
töluð. Ekki aðeins er
alkunn fegurð ís-
lenskra kvenna og
hreysti íslenskra
karla óðum að hverfa
í skugga ístru og fitukeppa, heldur
hefur almenningur allt of lítið ver-
ið uppfræddur um eðli þessa öm-
urlega sjúkdóms.
Faraldurinn harðnar
Offitufaraldurinn heldur áfram
að sverfa að þjóðinni og heilbrigð-
iskerfinu. Æ fleiri skilja nú loks
að þótt ástandið sé orðið slæmt
eru þetta aðeins fyrstu spor plágu
sem kann að verða sú versta sem
yfir þjóð þessa hefur dunið.
Eru nú 56% fullorðinna Íslend-
inga komin með „sjúkdóminn“ (of
þungir og/eða of feitir), þ.e. með
líkamsþyngdarstuðul yfir 25 (IMG
Gallup, 2002). Sama gildir t.d. um
nær fjórðung af níu ára börnum
(Brynhildur Briem, 1999).
Nú þegar hefur þessi hörmulegi
sjúkdómur valdið meiri usla en
annars staðar á Norðurlöndum. Ef
ekki verður gripið harkalega í
taumana bendir allt til að Íslend-
ingar fari verr út úr þessum far-
aldri en flestar aðrar þjóðir.
Liggja til þess margar ástæður.
Í fyrsta lagi er Ís-
land það norðarlega
að þrúgandi skamm-
degi, langir vetur og
misjöfn veður stóran
hluta ársins hamla
mjög gegn hreyfingu
sem er eitt af frum-
skilyrðum þess að
hægt verði að sporna
gegn þessari ægilegu
sýki.
Ekki bætir úr skák
að mjög hefur sigið á
ógæfuhliðina varðandi
hreyfingu almennt.
Við sem nú erum á miðjum aldri
vorum „útiverur“ á yngri árum, en
flestir krakkar í dag eru „inniver-
ur“ sem kjósa vídeó og tölvuleiki
fram yfir útivist.
Verra er þó að neyslumynstur
Íslendinga – þrátt fyrir aukna
grænmetisnotkun – er með óhag-
stæðasta móti. Við gosþamb og
heimsmet í sælgætisáti bætist nú
síaukin áhersla á orkuhlaðna
skyndibita og ruslfæði meðan fisk-
neysla skreppur saman.
Skaðsemi offitu
Það er ekki ýkja langt síðan
ístran var einkum talin útlitsgalli.
Í dag vitum við að ístran er sam-
safn eiturspúandi fitufrumna sem
magna upp hrörnunarsjúkdóma á
borð við sykursýki, háþrýsting og
krabbamein.
Er offitan nú þegar orðin næst-
algengasta fyrirbyggjanlega dán-
arorsökin á Vesturlöndum (á eftir
sígarettureykingum) og telja flest-
ir að það sé bara spurning um
tíma hvenær hún veltir reykingum
af stalli og kemst í dauðasæti #1!
Afdrif fórnarlambanna eru vel
kunn: Því feitari þeim mun
hörmulegri „hliðaráhrif“ á borð
við sykursýki, háþrýsting, þung-
lyndi o.s.frv. uns eina vonin er
gagnslítil lyf og lífshættulegar
skurðaðgerðir eins og maga-
skammhlaup (sjá t.d. CNN á dög-
unum)!
Megrun
Erfiðasti þáttur offitunnar er
auðvitað sá að það er ekki hlaupið
að því að losna við aukakílóin.
Engin lyf eða töfraformúlur eru
enn til sem gera okkur kleift að
halda þessum sjúkdómi í skefjum,
hvað þá að brjóta hann á bak aft-
ur.
Telja helstu sérfræðingar að
fyrir þorra fólks sé besta leiðin til
að ná og halda kjörþyngd (sem ég
hef persónulega ástundað í tíu ár)
að leysa af hólmi 1–2 máltíðir á
dag með bætiefnaríkum prótín-
hristingi ásamt með líkamsrækt
og hollu fæði.
Áherslan í þessum kúrum er
ekki að skera hitaeiningar niður í
tiltekið lágmark heldur fremur að
auka prótínneyslu upp í kjör-
skammt til að auka hlutfall vöðva
(á kostnað fitu) í æskilegasta horf
á sama tíma og líkaminn fær öll
nauðsynleg efni.
Nýja hollustubyltingu!
Síðasta heildarráðstefna um
tengsl lífshátta og heilsu á Íslandi
var haldin árið 1977. Í kjölfarið
stóð heilbrigðisráðuneytið, undir
stjórn Matthíasar Bjarnasonar
ráðherra og Páls Sigurðssonar
ráðuneytisstjóra, fyrir marg-
víslegum endurbótum.
Þannig var m.a. Manneldisráð
Íslands endurskipulagt og stofnuð
námsbraut í matvæla- og næring-
arfræðum við Háskóla Íslands.
Jafnframt varð bylting í mat-
vælaiðnaði með stórauknu fram-
boði á grænmeti, grófari brauðum,
mögrum mjólkurmat o.m.fl.
Þessar víðtæku aðgerðir urðu til
þess að sá faraldur hjarta-
sjúkdóma sem þá var í uppsigl-
ingu var brotinn á bak aftur! Ef
við eigum að ná sama árangri
gagnvart offitunni þurfum við að
bregðast við af enn meiri hörku en
þá!
Loksins, loksins!
En þótt meirihlutinn sé dottinn
í ofát og offitu er harðsnúinn
minnihluti kominn í ræktina, slök-
un, reykingavarnir, hollt mataræði
og bætiefni o.s.frv. Heilsubylting
og eldmóður þessa fólks er lykill-
inn að því að stöðva offitubölið.
Til þess að þetta takist verða
allir sem búa yfir sérþekkingu eða
framleiða vörur eða efni sem
snerta heilsu að reyna að virða og
skilja hver annan og vinna saman
með þjóðarheilsu Íslendinga eina
að leiðarljósi!
Ef háttvirtur heilbrigð-
isráðherra vinnur verk sitt í þess-
um anda gæti hann brotið blað í
Íslandssögunni og aftrað því að
gervallt forvarnarstarf þjóð-
arinnar á sviði heilbrigðismála síð-
ustu áratugina verði að engu!
Afstýrum þjóðarslysi
Dr. Jón Óttar Ragnarsson
fjallar um offitu og forvarn-
arstarf þar að lútandi ’Ef ekki verður gripiðharkalega í taumana
bendir allt til að Íslend-
ingar fari verr út úr
þessum faraldri en flest-
ar aðrar þjóðir.‘
Jón Óttar Ragnarsson
Höfundur er B.Sc (honors), M.Sc.,
Ph.D. og fyrrverandi yfirmaður
matvæla- og næringarfræði við
Háskóla Íslands.
Ármúla 1, sími 588 2030 – fax 588 2033
Ægir Breiðfjörð, löggiltur fasteignasali
SKIPTU VIÐ FAGMENN - ÞAÐ BORGAR SIG
Falleg og vel staðsett 98 fm íbúð, þriggja
herbergja í tveggja hæða húsi, auk þess
bílskúr 28 fm. Sérinngangur er í íbúðina.
Gott útsýni og stutt í þjónustu.
Stutt í afhendingu ef óskað er.
GARÐATORG - FYRIR
ELDRI BORGARA - SÉRHÆÐ
Mjög falleg 111 fm efri sérhæð ásamt 30
fm bílskúr. Mikið útsýni - stórar suður-
svalir. Íbúðin skiptist m.a. í 3 herbergi,
stór stofu, þvottahús í íbúðinni. Íbúðin er
laus við kaupsamning.
AÐALLAND - FOSSVOGI - SÉRHÆÐ
Efri hæð og ris, 127 fm auk 36 fm bíl-
skúrs, á mjög góðum stað nærri Laugar-
dalnum. Íbúðin er mikið endurnýjuð m.a.
eldhús og baðherbergi. Gott útsýni.
SPORÐAGRUNN - HÆÐ MEÐ BÍLSKÚR
4ra herbergja vel staðsett hæð á frábær-
um stað sem skiptist í forstofu, innra hol,
3 svefnherbergi, þar af eitt forstofuher-
bergi, stofu, eldhús og baðherbergi. Búið
er skipta um gler og glugga á austur- og
suðurhlið. Svalahurð er ný og stofan er
ný parketlögð. Sameignlegt þvottahús
fylgir í kjallara. Sérgeymsla upp á lofti
fylgir. V. 19,5 m.
SKJÓLBRAUT - KÓPAVOGI
Vel skipulagt og fallegt raðhús, 194 fm
auk bílskúrs, 24 fm. Húsið er í mjög
góðu ásigkomulag innan sem utan, fal-
legur garður með stórri verönd.
KJALARLAND - GLÆSILEGT RAÐHÚS
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
HVASSALEITI - FYRIR ELDRI BORGARA
HÆÐARGARÐUR - ÞJÓNUSTUÍBÚÐ
3ja herb. falleg og björt 85 fm 3ja herbergja þjónustuíbúð á 2. hæð í lyftuhúsi við Hæð-
argarð. Auk þess fylgir íbúðinni 24 fm merkt stæði í bílageymslu sem er innangengt í.
Íbúðin skiptist m.a. í stóra stofu, eldhús, tvö herbergi, baðherbergi og geymslu. Svalir til
suðurs eru út af stofu. Húsvörður. Vönduð og snyrtileg sameign er í húsinu. Reykjavíkur-
borg rekur þjónustumiðstöð í húsinu og er innangengt í hana. 5367
KAMBASEL - ALLT SÉR
3ja herbergja 102,9 fm íbúð með sérinngangi á jarðhæð, sérgarð og verönd. Eignin
skiptist í anddyri, hol, geymslu/tölvuherbergi, stofu, eldhús, baðherbergi og 2 stór svefn-
herbergi. Sérþvottahús er inn af eldhúsi. V. 19,5 m. 5396
OPIÐ HÚS - LEIFSGATA 26
BÚSTAÐAVEGUR - SÉRINNGANGUR
Fimm herbergja efri hæð í fjórbýlishúsi með
sérinngangi. Íbúðin er í klæddu húsi og
skiptist í anddyri, sameiginlegt þvottahús,
tvö barnaherbergi, tvær stofur, hjónaher-
bergi, eldhús, baðherbergi og risloft. Íbúðin
er í vinsælu hverfi þar sem stutt er í þjónustu
og skóla. V. 21,5 m. 5326
3ja-4ra herbergja 108 fm íbúð á 5. hæð í VR-húsinu sem er fyrir eldri borgara, 63 ára og
eldri. Íbúðin skiptist í hol, eldhús, stofu, borðstofu, opið sjónvarpsherbergi, baðherbergi
og svefnherbergi. Sérgeymsla er í kjallara. Sam. þvottahús er á hæð. Í sameign og á 1.
hæð er þjónusta, matur, hárgreiðsla, snyrting, salur o.fl. Íbúðin er laus strax. V. 27,9 m.
5357
AKURGERÐI - PARHÚS
Þriggja hæða 205 fm parhús með góðum
bílskúr og aukaíbúð í kjallara. Húsið er
klætt að hluta með Steni. Eignin skiptist
þannig: 1. hæð: Forstofa, gestasnyrting,
eldhús og tvær stórar stofur. 2. hæð: Þrjú
svefnherb. og baðherbergi. Kjallari: For-
stofa, þvottaherb., geymsla og lít-
il aukaíbúð með eldhúskrók og salerni.
Rúmgóður bílskúr fylgir og er hann með
rafmagni og heitu og köldu vatni. Lóðin er
falleg. V. 32 m. 5217
Falleg og vel skipulögð 91 fm 4ra-5 her-
bergja íbúð sem skiptist í gang, baðherb.,
þrjú svefnherbergi, stofu, eldhús/borðstofu
og lítið vinnuherbergi. Á jarðhæð er sér-
geymsla og sameiginlegt þvottahús. Í bak-
garði er 31,2 fm skúr með rafm. og hita
sem væri hægt að breyta í séríbúð. Nýtt
þak og fallegur bakgarður til suðurs. OPIÐ
HÚS Í DAG, SUNNUDAG, MILLI KL. 13.00
OG 16.00. V. 24,0 m. 5285
KAPLASKJÓLSVEGUR
4ra herbergja björt og falleg 100,4 fm endaíbúð á 2. hæð með útsýni yfir KR-völlinn.
Íbúðin skiptist í hol, baðherbergi, 3 svefnherbergi og eldhús. Möguleiki er á að sameina
eitt herbergi stofunni. Suðursvalir eru út af stofunni. Stutt er í alla þjónustu. V. 20,7 m.
5362
REIÐVAÐ - LAUS STRAX
Vönduð fullbúin 3ja herb. 83 fm íbúð í fallegu og vel staðsettu nýju fjölbýlishúsi á glæsi-
legum útsýnisstað í Norðlingaholti, rétt austan Elliðavatns. Sérbílstæði í upphitaðri bíla-
geymslu í kjallara. Íbúðin skiptist í stofu, 2 svefnherb., eldhús, baðherb. og sérþvotta-
hús. Sérinngangur er af svölum. 5398