Morgunblaðið - 30.10.2005, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 30.10.2005, Qupperneq 42
42 SUNNUDAGUR 30. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN ÞRÁTT fyrir að íbúum Reykja- víkur hafi fjölgað frá árinu 1983 úr 87 þúsund í tæp 114 þúsund árið 2004 hefur ráðstöfun Reykjavíkurborgar á lóðum undir íbúðar- húsnæði dregist veru- lega saman. Á fyrstu tíu heilu árunum í stjórnartíð R-listans, þ.e. frá og með árinu 1995 til og með ársins 2004 voru úthlutaðar og seldar lóðir undir 3.816 íbúðir þar af um 75% undir fjöl- býli. Í samanburði var á fyrstu tíu heilu árunum, þ.e. frá og með 1983 til og með 1992 í stjórnartíð sjálfstæðismanna, út- hlutað lóðum undir 4.447 íbúðir sem eru 17% fleiri íbúðir. Þar af voru lóðir undir fjölbýli um 60%. Hlutfall fullgerðra íbúða á þessum tímabilum var svipað þrátt fyrir að Reykvíkingar væru færri þá en nú. Afleiðingar þessarar óstjórnar R-listans í skipulagsmálum borg- arinnar eru afdrifaríkar. Fólks- flótti, skortur á fjölbreytni í íbúða- gerðum, hækkandi íbúðaverð og hærri skattar á íbúa Reykjavíkur. Ef skoðaðar eru tölur um flutn- inga milli sveitarfélaga á höf- uðborgarsvæðinu, þ.e.a.s. flutn- inga til og frá Reykjavík, kemur í ljós að mun fleiri flytja frá Reykjavík til nágrannasveitar- félaganna en öfugt. Á árunum 2001–2004 fluttu um 1300 fleiri íbúar frá Reykjavík en til Reykjavíkur á meðan íbúum Kópa- vogs fjölgaði um nær 1.100 á sama tíma. Þegar þessar tölur eru greindar nánar kemur í ljós að áber- andi er að barnafólk flytji sig frá Reykja- vík sem einnig birtist í því að á meðan leik- skólaplássum fjölgaði um 548 í Kópavogi á árunum 1994–2003 fjölgaði þeim aðeins um 536 í Reykjavík. Þessar tölur eru hreint ótrúlegar ef maður ber saman íbúafjölda þessara tveggja sveitarfélaga árið 2003, Reykvík- ingar voru rúmlega 113 þúsund á meðan íbúar Kópavogs voru að- eins rúmlega 25 þúsund. Áhrif á lífsgæði fjölskyldna Það að barnafjölskyldur skuli flýja borgina ætti ekki að koma á óvart þar sem aðgerðir R-listans á undanförnum árum hafa gengið þvert á þá grundavallarstefnu í skipulagningu nýrra íbúðahverfa að það sé fjölbreytni í íbúðagerð. Í þeim tveimur hverfum sem skipu- lögð hafa verið í stjórnartíð R- listans, Grafarholti og í Norð- lingaholti eru fjölbýlishús um 80%, rað- og parhús 13% og lóðir undir einbýlishús einungis 7%. Þá hefur sú stefna R-listans að bjóða upp þær lóðir sem í boði eru undir íbúðarhúsnæði stuðlað að því þeir Reykvíkingar sem hafa áhuga á sækja um lóð eru í samkeppni við fjármagnsfyrirtæki og verktaka. Sífellt virðist vera erfiðara fyrir einstaklinga að keppa um þessar fáu lóðir sem R-listinn hefur í boði. Áralangur lóðaskortur hefur leitt til þess að ekki er lengur á færi hins venjulega borgarbúa að kaupa þær lóðir sem í boði eru. Lóðaverð hefur hækkað stöðugt og á síðastliðnu ári um rúmlega 100%. Meðalverð á lóð fyrir einbýlis- hús var í júní 2004, 6,7 milljónir en nú apríl hafði það hækkað um 109% eða í 14 milljónir. Meðalverð lóða fyrir raðhús hafði hækkað um 102% og fyrir fjölbýlishús um 88%. Lóðaskortur og lóðauppboð leiða af sér hærra lóðaverð, hærra lóðaverð leiðir af sér hærra fast- eignaverð, hærra fasteignaverð leiðir af sér hærra fasteignamat, sem á endanum leiðir til hærri fasteignaskatta íbúðareigenda. Af- leiðingar lóðaskortsstefnu R- listans hefur því viðtæk áhrif, hún hefur haft þau áhrif að lífsgæði Reykvíkinga hafa versnað á með- an Reykjavíkurborg hefur grætt á aukinni skattheimtu. Tekjur Reykjavíkurborgar af fast- eignasköttum og holræsagjaldi voru 28 þúsund krónur á hvern íbúa árið 1993 en eru orðnar 61 þúsund krónur á hvern Reykvík- ing á þessu ári. Fasteignagjöld hafa einnig hækkað langt umfram verðbólgu og launavísitölu og vega því þyngra í útgjöldum heimilanna en áður. Við eigum land Reykjavíkurborg verður að tryggja nægt framboð af lóðum og sjá til þess að fólk geti búið í góðu húsnæði sem það fær á viðráð- anlegu verði. Þessu verður aðeins náð ef við aukum verulega fram- boð lóða og lækkum skattheimtu á íbúa Reykjavíkur. Við eigum nóg land, það er ekki vandamálið, vandamálið er að R-listinn hefur rekið lóðaskortsstefnu og ekki tekið á þeim vandamálum sem upp hafa komið í kjölfarið. Það er kominn tími til að breyta. Nýjan kraft í skipulags- málin í Reykjavík Eftir Kristján Guðmundsson ’Sífellt virðist vera erf-iðara fyrir einstaklinga að keppa um þessar fáu lóðir sem R-listinn hefur í boði.‘ Kristján Guðmundsson Höfundur er húsasmiður og varaborgarfulltrúi, og gefur kost á sér í 5. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Prófkjör Reykjavík Mikið úrval af fallegum rúmfatnaði Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050 mbl.isFRÉTTIR Innihaldið skiptir máli Vorum að fá í einkasölu 87 fm gullfallega 3ja her- bergja íbúð í þessu vinsæla hverfi. Tvö góð svefnher- bergi, baðherbergi, rúmgóð stofa, glæsilegt eldhús, þvottahús innan íbúðar. Mjög snyrtileg sameign, gott ástand á húsinu að utan. Íbúðin er á þriðju hæð í 4ra hæða fjölbýlishúsi. Þetta er björt og vel skipulögð eign á góðum stað, stutt í alla þjónustu, þ.e.a.s leik- skóla, skóla og verslanir. Verð 22,4 millj. kr. Vorum að fá í einkasölu mjög glæsilegt 277 fm rað- hús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr. Mikið hefur verið lagt í eignina og er hún mjög vel skipulögð og fallega innréttuð. Á neðri hæð er rúm- gott anddyri með skápum og hita í gólfi. Inn af and- dyri er gestasalerni sem er flísalagt upp á miðjan vegg. Sjónvarpshol er rúmgott með gluggum sem ná frá gólfi uppí loft (möguleiki að breyta þessu rými í fimmta svefnherbergið). Stofan er björt með sólstofu og útgengi á suðurverönd. Borðstofan er rúmgóð með útgengi í bakgarð sem snýr í norður. Fallegt eldhús með fallegri ljósgrárri sprautaðri inn- réttingu, vönduðum tækjum og borðkrók. Útgengi er á grillverönd sem snýr í norður. Þvottahús og geymsla inn af eldhúsi. Efri hæðin skiptist í fjögur mjög rúmgóð svefnherbergi og er eitt þeirra með fata- herbergi innaf. Baðherbergi með baðkari, sturtuklefa og fallegri innréttingu. Á gólfum eru flísar, parket og sérinnflutt ullarteppi. Fallegur garður í góðri rækt. STÓRGLÆSILEG EIGN Í FJÖLSKYLDUVÆNU UM- HVERFI. Allar nánari upplýsingar á skrifstofu DP FASTEIGNA. TJARNARMÝRI - RAÐHÚS Á TVEIMUR HÆÐUM GALTALIND - KÓPAVOGI Ragnar Ingvarsson tekur á móti gestum frá kl. 16-18 í dag Sími 530 6500 Finnbogi Hilmarsson, Einar Guðmundsson og Bogi Pétursson löggiltir fasteignasalar Opið mán.- fös. frá kl. 9-17 Nýleg rúmgóð 68 fm 2ja herbergja íbúð með sérinngangi og sérgarði. Íbúðin er á 2. hæð að norðanverðu en jarðhæð að sunnanverðu. Útgangur úr stofu á afgirta hellulagða verönd. Flísar og parket á gólf- um og vandaðar innréttingar og fataskáp- ar. Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf með tengi fyrir þvottavél. Sérgeymsla, hjóla- og vagnageymsla í góðri sameign. Íbúðin er laus til afhendinga fljótlega. V. 16,9 m. BREIÐAVÍK 27 – ÍBÚÐ 202 - 112 RVÍK OPIÐ HÚS Í DAG FASTEIGNASALAN GIMLI GRENSÁSVEGI 13, SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810 Traust þjónusta í 20 ár Árni Stefánsson, viðskiptafræðingur og lögg. fasteignasali Vorum að fá í sölu góða og bjarta 130 fm neðri sérhæð með 24 fm bílskúr (íbúð 106 og bílskúr 24 fm) í fallegu þríbýli á góðum stað í Norðurmýrinni. Tvö stór herbergi og stór og björt stofa. Stórt eldhús með eldri innr. Parket og flísar á gólfum. Verð 24,9 millj. EIGNIN ER LAUS Í DESEMBER. Áslaug Nanna sýnir eignina í dag, sunnudag, frá kl. 16:00-18:00. OPIÐ HÚS - GUNNARSBRAUT 40 - OPIÐ HÚS NEÐRI SÉRHÆÐ AUK BÍLSKÚRS www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli Vorum að fá í einkasölu fallega og vel um- gengna 92 fm 3ja herb. íbúð í kjallara í fal- legu þríbýli í þessu vinsæla hverfi í austur- bæ Reykjavíkur. Tvö stór herbergi og stór og björt stofa. Eldhús með góðum viðar- innréttingum og góðum borðkrók. Sam- eign vel umgengin. Lóð stór og falleg. Verð 16,9 millj. LAUS FLJÓTLEGA. Inga sýnir eignina í dag, sunnudag, frá kl. 14.00-16.00. OPIÐ HÚS - LANGHOLTSVEGUR 101 - OPIÐ HÚS FALLEG EIGN - 3JA HERB. ÍBÚÐ Í KJALLARA Sveinbjörn Halldórsson • sími 892-2916 Grétar Kjartansson • simi 696-1126 Ingólfur G. Gissurarson, lögg. fast. www.valholl.is Opið virka daga frá kl. 9-17:30 Sími 588 4477 Valhöll fasteignasala kynnir 3 stórglæsilegar 130-145 fm sérhæðir á frábærum stað innst í lokuðum botnlanga. Húsið er allt nýstandsett að utan og málað. Lóðin er öll nýstandsett og tryrfð sem og stéttar og bílastæði, allt nýhellulagt. Að innan eru íbúðirnar allar nýstandsettar á glæsilegan hátt. Rafmagn og rafmagnslagnir og ofnar og ofnalagnir allar nýjar. Allar innréttingar og hurðir eru nýjar og mjög glæsilegar úr eik. Gólfefni eru ný og eru parket/kanadískur hlynur. Vönduð ný tæki í eldhúsi sem og á baði. Allar innréttingar og skápar eru frá Innex. Eignir í sérflokki. Tveir 25 fm nýir bílskúrar. Til afhendingar strax. Sölumenn sýna eignina. Safamýri – glæsilegar sérhæðir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.