Morgunblaðið - 30.10.2005, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. OKTÓBER 2005 43
UMRÆÐAN
REYKJAVÍK er góð borg. Með
auknu vali, lægri sköttum og aukinni
áherslu á framúrskarandi lífsgæði
getur hún orðið heimsins besta höf-
uðborg. Að því markmiði vill Sjálf-
stæðisflokkurinn í borgarstjórn
vinna, enda eiga Reykvíkingar og
Reykjavík ekkert ann-
að en það allra besta
skilið.
Aukið val fyrir alla
Eitt brýnasta verk-
efnið í borginni okkar
er að skoða alla mála-
flokka og alla þjónustu
með það að markmiði
að auka val íbúa. Þetta
er nærtækt í stærstu
málaflokkunum eins og
menntamálum, leik-
skólamálum og mál-
efnum eldri borgara,
þar sem fólk á að hafa
raunverulegt val um þjónustu, óháð
mörkum hverfa eða sveitarfélaga og
óháð rekstrarformi. Sveitarfélagið á
þannig ekki að taka afstöðu til þess
hvort foreldrar kjósa að senda barnið
sitt í borgarrekinn eða einkarekinn
leikskóla eða hvort barninu hentar
betur grunnskólinn í sínu hverfi eða
skóli rekinn af einkaaðilum eða fé-
lagasamtökum. Öll börn eiga að
hljóta sambærilegan stuðning, óháð
vali foreldra eða barns, og slíkt val á
að vera fyrir hendi strax að loknu
fæðingarorlofi. Með sama hætti á
sveitarfélagið að veita eldri borg-
urum aukið val um þá þjónustu sem
þeir njóta, enda þarfir þeirra jafn
misjafnar og ólíkar og þeir eru marg-
ir. Alla aðra þjónustu sem borgin
veitir á að skoða með sama hætti og
með það eitt að markmiði að tryggja
fólki fjölbreytt val og aukið vald til
ákvarðana um eigið líf.
Lægri skattar
Það er forgangsatriði að lækka
skatta í Reykjavík, enda hafa skattar
á Reykvíkinga aldrei verið hærri en
nú. Það er ekki hægt að sætta sig við
að í stærsta sveitarfélagi landsins sé
heimild til útsvars nú í fyrsta sinn
nýtt til fulls. Hag-
kvæmni stærðarinnar á
auðvitað að gefa okkur
tækifæri til að bjóða hér
lægri skatta en annars
staðar og markmið okk-
ar hlýtur að vera að
tryggja að Reykjavík
verði aftur það sveitar-
félag sem leggur metn-
að sinn í að bjóða lága
skatta. Sjálfstæðis-
flokkurinn hefur ítrek-
að lagt fram tillögur um
skattalækkanir í borg-
arstjórn. Þær tillögur
hafa ekki fengið hljóm-
grunn, enda sýn vinstri manna á
skattheimtu og álögur því miður allt
önnur en sú að þeim skuli haldið í
skefjum til að auka svigrúm ein-
staklinganna.
Framúrskarandi lífsgæði
Lífsgæði borgaranna ráðast af
ýmsu. Skipulag, samgöngur og hið
manngerða umhverfi hafa þar mikil
áhrif. Talsvert hefur skort á metnað í
þessum málaflokkum á undanförnum
árum, sem einkum birtist í því að ekki
er komið nægilega til móts við óskir
og þarfir íbúanna. Skipulag nýrra
hverfa, samgönguúrbóta og umhverf-
is almennt hefur því miður tekið
meira mið af því sem borgaryfirvöld
vilja en því sem borgarbúar vilja. Það
er slæm þróun og þess vegna hefur
Sjálfstæðisflokkurinn í borgarstjórn
lagt mikla áherslu á að kynna nýjar
hugmyndir til úrbóta. Undir yfir-
skriftinni „Búum til betri borg“ höf-
um við kynnt sýn okkar á framtíð-
arþróun borgarinnar, þar sem öll
áhersla er lögð á fjölbreytni, aukið val
og raunhæfar lausnir í þessum mik-
ilvægu málum sem hafa svo mikið um
almenn lífsgæði borgaranna að segja.
Þessum hugmyndum okkar hafa íbú-
ar tekið fagnandi og ljóst að þær
verða undirstaða áherslna Sjálfstæð-
isflokksins fyrir komandi borgar-
stjórnarkosningar.
Gerum vel fyrir Reykjavík
Í borginni okkar blasa alls staðar
við tækifæri til að gera vel og enn bet-
ur en gert hefur verið. Skilaboð okkar
sem störfum á vettvangi borgarmál-
anna hljóta að vera þau að blása þurfi
til nýrrar sóknar í höfuðborginni. Sú
sókn getur aldrei orðið undir forystu
þeirra pólitísku afla sem hér hafa ríkt
alltof lengi. Sú sókn getur aðeins átt
sér stað fyrir tilstilli nýrra hugmynda
og aukins metnaðar í málefnum höf-
uðborgarinnar og sú sókn getur að-
eins orðið í kjölfar góðs árangurs
Sjálfstæðisflokksins í komandi borg-
arstjórnarkosningum.
Heimsins besta höfuðborg
Eftir Hönnu Birnu
Kristjánsdóttur ’Skilaboð okkar semstörfum á vettvangi
borgarmálanna hljóta
að vera þau að blása
þurfi til nýrrar sóknar í
höfuðborginni.‘
Hanna Birna
Kristjánsdóttir
Höfundur er borgarfulltrúi og gefur
kost á sér í 2. sætið í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins.
Prófkjör í Reykjavík
Bæjarhrauni 10 - Hafnarfirði
Sími 520 7500 - www.hraunhamar.is
Í SMÍÐUM - KIRKJUVELLIR 7 - FJÖLB.
Glæsilegt 23 íbúða
fjölbýlishús á sex hæðum
● 2ja, 3ja og 4ra herbergja íbúðir.
● 4 íbúðir á hæð.
● Lyfta í stigagangi.
● Bílastæði í bílakjallara.
● Glæsilegar innréttingar frá Brúnás.
● Eldhústæki frá AEG.
● Vandað myndasímakerfi.
● Vandaður frágangur.
Byggingaraðili er Gunnar og Ólafur ehf.
www.hofdi.is
Runólfur Gunnlaugsson, viðskiptafr. og löggiltur fasteigna- og skipasali.
Suðurlandsbraut 20
Sími 533 6050
Bæjarhrauni 22
Sími 565 8000
Í dag býðst þér og þinni fjöldkyldu að skoða þessa glæsilegu og mikið end-
urnýjuði sérhæð í þessu vinsæla hverfi. Íbúðin 102,9 fm og er á annarri hæð
í fallegu og nýlega endursteinuðu þríbýlishúsi. Íbúðin skiptist í tvær stofur,
þrjú svefnherbergi, eldhús og bað. Sérgeymsla og bílastæði. Verð 26,6 millj.
Kristjón og Bjarnheiður taka vel á móti gestum.
skráð eign er seld eign
Kristín Pétursdóttir löggiltur fasteignasali
Opið hús í dag á milli kl. 14 og 16
Barmahlíð 19 - sérhæð
Hólmfríður býður ykkur að skoða þetta stórglæsilega og mikið endurnýjaða
128 fm raðhús. Húsið er á einni hæð auk 31 fm bílskúrs. Alnó innrétting er
í eldhúsi. Arinn. Verönd er í garði. Mikið endurnýjuð eign. Verð 36,9 millj.
Opið hús í dag á milli kl. 14 og 16
Vesturberg 86 - raðhús
Í allar lúgur á höfuðborgarsvæðinu