Morgunblaðið - 30.10.2005, Síða 44

Morgunblaðið - 30.10.2005, Síða 44
44 SUNNUDAGUR 30. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN VIÐ SEM keppum í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins um sæti á listum flokksins í sveitarstjórn- arkosningunum gerum það á mis- munandi forsendum þótt grunntónn stefn- unnar sé hinn sami. Við leggjum mismun- andi reynslu okkar undir mat flokks- manna og viljum með því tryggja fjölbreyti- leika og treysta sem verða má öfluga sókn okkar og sigur í næstu kosningum. Öryggi í umferðinni Í tuttugu ár starf- aði ég hjá Slökkviliði Reykjavíkur síðustu ár mín sem varðstjóri og sviðsstjóri. Ég tel að reynsla mín á þeim vettvangi muni gagnast vel verði ég valinn til þess að skipa 7. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í næstu kosningum. Úrbætur í sam- göngumálum borgarinnar eru meðal þess sem brenna á flestum borgarbúum. Sofanda- og hringlandaháttur R-listans í þeim málaflokki er óþolandi og hér verður að vinna hratt og ákveðið að úrbótum. Greiðar samgöngur sem tryggja öllum öryggi í umferðinni eru ein helsta forsenda lifandi og öruggr- ar borgar. Ný hugsun í málefnum aldraða Verði ég valinn mun ég berjast fyrir því að sveitarfélögin með al- þingismenn kjördæmanna hér á suðvesturhorni landsins komi fram sem einn aðili gagn- vart heilbrigðisráðu- neytinu og marki stefnu sem afnemi skortinn á hjúkrunar- og dvalarrýmum fyrir aldraða á næstu ár- um. Það er kominn tími til að fjármagn þessa málaflokks fari þar sem þörfin er mest og þá um leið að stoppa fyrirgreiðslu- pot dreifbýlisþing- manna í þessum mála- flokki. Það verður ekki gert nema með samstilltu átaki og fyrir því vil ég beita mér. Það verður að finna nýjar leiðir, við verðum að búa öldruðum Reykvíkingum það öryggi sem þeir eiga skilið til jafns við aðra í þessu landi. Endurskipuleggja nýbyggingarhverfin Það vantar sárlega lóðir fyrir lítil og meðalstór einbýli. Það á að taka skipulagið í Hamrahlíðar- og Úlfarsfellslöndum til endurskoð- unar auk þess sem skipuleggja verður Geldinganesið með þetta í huga. Ungt fólk sem vill byggja lítil og meðalstór hús hefur ekki átt annars úrkosta en fara í önnur sveitarfélög, borgin á að stuðla að framboði lóða svo fólk hafi val. Ég vil beita mér fyrir því að ungt fólk sem vill byggja þessa borg geti gert það á eigin forsendum og hrekist ekki annað vegna lóða- skorts. Öflugt íþrótta- og æskulýðsstarf Börnin okkar þurfa hvata til hreyfingar og útiveru til þess að vega upp á móti hinum neikvæðu áhrifum kyrrsetu fyrir framan sjónvarp og tölvur. Ég mun beita mér fyrir því að auka samstarf skóla, félagsmiðstöðva og íþrótta- félaga í þeim tilgangi að efla starf þeirra svo fleiri börn fái notið þjónustunnar lengur og betur. 7. sætið Ef þú, lesandi góður, ert sam- mála mér um að reynsla mín muni gagnast við stjórn borgarinnar næstu fjögur árin skora ég á þig að veita mér stuðning með því að velja mig í 7. sæti listans í kom- andi prófkjöri Sjálfstæðisflokksins vegna borgarstjórnarkosninga 2006. Frekari upplýsingar um fram- boð mitt má sjá á slóðinni www.bjorngislason.is Reykjavík – Örugg borg Eftir Björn Gíslason ’Ég mun beita mér fyr-ir því að auka samstarf skóla, félagsmiðstöðva og íþróttafélaga í þeim tilgangi að efla starf þeirra svo fleiri börn fái notið þjónustunnar lengur og betur.‘ Björn Gíslason Höfundur gefur kost á sér í 7. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Prófkjör í Reykjavík Fréttir í tölvupósti Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is AUÐBREKKA - KÓP. Gott 214 fm iðnaðar og/eða íbúðarhúsnæði í mið- bæ Kópavogs á 1. hæð í góðu húsi. Hefur verið samþykkt sem íbúð/léttiðnarðar svæði af Kópa- vogsbæ. Verð 22,5 millj. BÆJARHRAUN - HF. TIL LEIGU Til leigu 250 - 535 fm atvinnuhúsnæði. Um er að ræða gott húsnæði, tilvalið undir lager, léttan iðnað o.fl. LAUST STRAX Uppl. gefur Helgi Jón hjá Hraunhamri í S. 893-2233 RAUÐHELLA - HF. Nýkomið gott ca 150 fm. atvinnuhúsnæði tvennar innkeyrsludyr (3,5 metrar) auk 50 fm milliloft (kaffistofa, skrifstofa o.fl.) góð eign. Verð. 15,7 millj. HÓLMGARÐUR - KEFLAVÍK Höfum fengið í sölu mjög gott ca. 120 fm verslunar og þjónusturými á jarðhæð í verslunarmiðstöð- inni Hólmgarði í Keflavík. Mjög góð staðsetning, næg bílastæði og góð aðkoma. Verðtilboð. MÓHELLA 4A - BÍLSKÚRAR Tilvalið sem geymslupláss undir tjaldvagna, fellihýsi o.fl. Bílskúrar eða geymslubil, 26,3 fm, sem eru að rísa við Móhellu í Hafnarfirði. Bílskúrarnir eru byggðir að mestu úr einingum frá Límtré og afhendast fullbúnir með frág. lóð. Nánari upplýsingar á Hraunhamar.is eða hjá sölumönnum. Til afhend- ingar strax. Verð 2.350 millj. SUÐURHRAUN - GBÆ. Nýkomið vandað nýlegt 225 fm atvinnuhúsnæði á þessum vinsæla stað, góð lofthæð, innkeyrsludyr, afhending fljótlega. Upplýsingar gefur Helgi Jón á skrifstofu Hraunhamars. Verð 23 millj. SKÚTAHRAUN - HF. Nýkomið gott ca. 730 fm atvinnuhúsnæði (stálgrindarhús) á sérhæð (rúmgóð) 2500 fm. Húsnæðið skiptist í 3 bil (tvö útleigð), góð lofthæð og innkeyrsludyr. Góð aðkoma, frábær staðsetning. Verð 65.000 pr. fm. HRINGHELLA - HF. Nýkomið í einkasölu nýtt 170 fm atv.húsnæði m/möguleika á samþ. millilofti. Góð lofthæð og inn- keyrsludyr. Afhendist fljótlega fullbúið að utan, tilbúið undir tréverk að innan. Lóð frágengin. Verð 18 millj. BÆJARHRAUN - HF. TIL LEIGU Nýkomið sérlega gott ca. 227 fm verslunar- og/eða skrifstofupláss. Laust strax. Frábær staðsetning og gott auglýsingagildi. 107370 MIÐHRAUN GARÐABÆ Glæsilegt nýlegt 140 fm atvinnuhúsnæði auk steyptsmillilofts ca 100 fm (skristofur og fl.) innkeyrslu- dyr, góð lofthæð og staðsetning. VESTURVÖR - KÓP. Hafin er smíði á Stálgrindarhúsi klæddu með einangruðum stálklæddum einingum. Húsnæðið er í heild 2819 fm en um er að ræða sölu á tveimur hlutum í húsnæðinu 763,6 fm að grunnfleti hvort um sig eða samtals 1,527,2 fm auk millilofts. Lofthæð er frá 7,1 m uppí 8,5 m og mögul. á millilofti að hluta eða öllu leiti. Mögulegt er að skipta húsnæðinu niður í smærri bil, það er hvert bil gæti skipst í þrennt 254 fm hvert bil og mögul. á millilofti eftir þörfum. Allir möguleikar eru opnir með skipulag, glugga og hurðir. Gott útisvæði er allt í kringum húsið, það er 15m frá húsi að lóðarmörkum. Eignin selst í stærri eða smærri einingum. Eignin er mjög vel staðsett rétt við hafnarbakkann. Til leigu þetta vandaða og glæsilega hús við Álfabakka í Mjódd Ingólfur G. Gissurarson, lögg. fast. www.valholl.is Opið virka daga frá kl. 9.00-17.30. Um er að ræða fyrrum höfuðstöðvar Visa. Húsið skiptist í kjallara, jarðhæð, 2. og 3. hæð. Húsið er staðsett á áberandi og góðum stað í næsta nágrenni við Strætó bs í Mjódd. Góð aðkoma og næg bílastæði. Hentar vel undir hvers konar þjónustu og skrifstofurekstur. Eignin er í eigu Landsafls sem er sérhæft fasteignafélag. Upplýsingar veitir Magnús Gunnarsson, sími 588 4477 eða 822 8242 www.landsafl.is 4ra hæða verslunar- og skrifstofuhúsnæði við Hafnarstræti l08. Heildar- stærð er um 585 fm. Verslun hefur verið á neðstu hæð, en skrif- stofur, læknastofur og íbúðir á 2.-4. hæð. Húsið er í góðu ásigkomulagi og býður upp á ýmsa möguleika. Selst það í einu lagi og afhending er samkomulag. Frábært tækifæri. Verð kr. 58.500.000. Stór og vel staðsett húseign í hjarta Akureyrar til sölu Eggert B. Ólafsson: Vegagerð- in hafnar hagstæðasta tilboði í flugvallarrútuna. Örn Sigurðsson: Bornir eru saman fjórir valkostir fyrir nýj- an innanlandsflugvöll. Jónína Benediktsdóttir: Sem dæmi um kaldrifjaðan siðblind- an mann fyrri tíma má nefna Rockefeller sem Hare telur einn spilltasta mógúl spilltustu tíma Prófkjörsgreinar á mbl.is www.mbl.is/profkjor PRÓFKJÖR Sturlaugur Þorsteinsson styður Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Gísli Freyr Valdórsson styður Kjartan Magnússon í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykja- vík. Leifur Helgason og Viðar Hall- dórsson styðja Jón Kr. Óskars- son í prófkjöri Samfylkingarinn- ar í Hafnarfirði. Heimir L. Fjeldsted styður Kjartan Magnússon í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykja- vík. Aðsendar greinar á mbl.is www.mbl.is/greinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.