Morgunblaðið - 30.10.2005, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. OKTÓBER 2005 45
UMRÆÐAN
BRÉF TIL BLAÐSINS
Morgunblaðið Kringlunni 1 103 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
EVRÓPSKA vinnuverndarvikan
beinir í þetta skiptið sjónum manna
að hávaða og er það vel, því alltof
mikið andvaraleysi ríkir gagnvart
þessum hvimleiða og skaðlega vá-
gesti, sem virðist fylgja nútíma
tæknivæddu þjóðfélagi. Má vera að
ástæða fyrir andvaraleysinu sé sú
að hávaðinn er fylgifiskur tækja og
tóla, ósýnilegur og óáþreifanlegur.
Fólki hættir því til að verða sam-
dauna honum og vanmeta hættuna
sem af honum stafar.
Það eru óneitanlega skuggalegar
upplýsingar að 70% af unglingum
séu komnir með forstigseinkenni af
varanlegri heyrnardeyfu eins og
bandarískur prófessor heldur fram.
Óneitanlega koma upp í hugann
tæki þar sem ungmenni geta spennt
hljóðstyrk upp úr öllu valdi. Það er
vitað að hávaði veldur skemmd á
heyrn fari hann yfir viss mörk. Því
er að finna í byggingarreglugerðum
ákvæði um heyrnarvernd á stöðum
þar sem vitað er að mikill hávaði
fylgir starfsemi.
Hitt er svo annað mál að færri
vita að hávaði getur átt sinn þátt í
að skemma rödd. Vegna náttúrulög-
máls hækkar fólk röddina í takt við
þann hávaða sem það talar í og í
takt við aukna fjarlægð hlustanda.
Þar með getur áreynslan orðið of
mikil á raddbönd og það kerfi sem
myndar röddina. Í nútíma þjóð-
félagi er rödd verðmætt atvinnu-
tæki sem veldur bæði einstaklingi
og þjóðfélagi fjárhagsskaða ef hún
bregst
Sú atvinnustétt sem þarna er í
einni mestu hættu eru kennarar,
einkum vegna þeirra starfsskilyrða
sem þeim er búin. Kennari er í raun
gangandi hátalari sem nemendur
verða að geta heyrt í, en vegna há-
vaða og fjarlægðar er ekki nóg að
rödd kennara sé hætta búin heldur
er líka hætt við að nemendur heyri
ekki það sem kennarinn er að segja.
Í byggingareglugerð er kveðið á
um að hávaði megi ekki fara fram
úr ákveðnum mörkum eigi samræð-
ur eða einbeiting að geta átt sér
stað. Þessum viðmiðum er ekki
hægt að mæta í kennslustofu, til
þess er hávaði of mikill. Það eru því
engin reglugerðarákvði til hvað há-
vaða í kennslustofu eða viðlíka hús-
næði varðar. Hins vegar mætti setja
inn ákvæði um notkun magnara-
kerfis þar sem vitað er að hávaði og
fjarlægð er of mikill.
Annað sem vert er umhugsunar
er að við hönnun tækja og tóla sé
gefinn gaumur að hávaða sem frá
þeim kunna að stafa. Óþarfa skellir,
væl, suð, brak og brestir fylgja allt-
of mörgum hlutum og við verðum
því miður samdauna þessum óþarfa
hávaða sem kannanir hafa sýnt
fram á að veldur streitu og hver vill
ekki vera laus við hana?
DR. VALDÍS INGIBJÖRG
JÓNSDÓTTIR,
heyrnar- og talmeinafræðingur,
Akureyri.
Hávaði skemmir fleira en heyrn
Frá dr. Valdísi Ingibjörgu
Jónsdóttur:
VIÐ KJÓSUM í prófkjöri Sjálf-
stæðismanna 4. og 5. nóvember.
Það er mjög áríðandi að þeir sem
kjósa í prófkjörinu geri sér ljóst að
ekki er nóg að setja kross við þá
frambjóðendur sem við viljum
kjósa. Það verður að númera kjós-
endurna svo ekki verði ógildur seð-
ill.
Setjum 1 fyrir framan þann sem
við viljum í fyrsta sæti, 2 fyrir þann
sem við kjósum í annað sæti, 3 fyr-
ir næsta og svo koll af kolli.
Gott er fyrir okkur kjósendur að
vita að ef við verðum kannski ekki
heima á kjördögum er hægt að
kjósa utankjörstaðar í Valhöll, og
það er hægt að skrá sig í flokkinn á
kjördag, um leið og kosið er.
Ég skora á alla þá sem ætla að
kjósa að kjósa sem fyrst. Það hefur
komið fyrir að fólk sem fer t.d. úr
bænum í góðu veðri og ætlar að
verða komið fyrir kjördaga, lendi
svo í umferðarteppu, eða tefjist af
öðrum ástæðum verði of seint og
búið verði að loka. Þó að við, sem á
kjörstöðum eru, reynum allt til að
greiða fyrir fólki, er sniðugt að
vera búinn að velja frambjóðendur
á sérstakan lista áður en við mæt-
um til kosninga. Það flýtir fyrir
kosningu.
Mig langar að segja hér að lok-
um smá sögu sem gerðist fyrir
nokkuð mörgum árum í sambandi
við alþingiskosningar:
Einn kjörstaður var í Langholts-
skóla. Það var að vori í alveg ynd-
islegu veðri. Fólk fór svokallaðan
Þingvallahring, eða í sumarbústað,
og ætlaði að vera komið í bæinn
fyrir lokun kjörstaða. Ekki veit ég
hvernig var við aðra kjörstaði í
bænum, en við Langholtsskóla var
ég, og þegar dyraverðir skelltu í lás
kjörstaðnum var alveg sneisafullt
portið við skólann, stappað eins og
síld í tunnu, tvö til þrjú hundruð
manns sem ekki gátu kosið, það
voru mikil vonbrigði.
KARL JÓHANN ORMSSON,
fv. deildarfulltrúi.
Um kosningar
Frá Karli Jóhanni Ormssyni:
Hlíðasmára 11, Kópavogi
sími 517 6460
www.belladonna.is
Réttu stærðirnar
Innihaldið
skiptir máli
Jón bóndi í Ölfusi veit hvað hann syng-
ur þegar kemur að sölu bújarða
Ef þú ert að leita að bújörð þá ertu í
traustum höndum með Jón þér við hlið
Til þjónustu reiðubúinn í síma
896 4761
Jón tekur á móti viðskiptavinum Hóls
samkvæmt samkomulagi á Skúlagötu 17.
Franz Jezorski, hdl. og lögg. fasteignasali
Hóll er landsþekkt fyrir fagleg vinnubrögð og úrvals-
þjónustu í á annan áratug.
Taktu enga áhættu með þína fasteign.
Skiptu við heiðarlega og ábyrga fasteignasölu
sem hefur hagsmuni þína að leiðarljósi.
Einna fremstir í bújörðum
Bjarghús í Vesturhópi
Í einkasölu er jörðin Bjarghús í
Vesturhópi, Húnaþingi vestra.
Um er að ræða athyglisverða,
grasgefna jörð að stærð um 400
hektarar. Jörðinni tilheyrir um
3 km strandlengja meðfram
Vesturhópsvatni, sem er gjöfult
veiðivatn. Ekki er veiðifélag um
vatnið. Á jörðinni er endurbætt íbúðarhús, ásamt stórum gripa-
húsum og hlöðu. Jörðin er án bústofns og framleiðsluréttar.
Ásett verð 40 milljónir eða tilboð.
Ölfus - 91 hektara landspilda
Til sölu er um 91 hektara landspilda í Ölfusi. Landið er að hluta til
grasgefið votlendi með fuglalífi - gott beitiland fyrir hross. Jarð-
hitaréttindi og veiðiréttur í Varmá (Þorleifslæk). Um er að ræða vel
staðsett land, sem hentar vel hestamönnum og fuglaskoðurum.
Nánari upplýsingar hjá sölumanni í síma 896 4761.
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
FENSALIR - KÓP. - 2JA - LAUS
Mjög glæsileg 96,9 fm íbúð á 1. hæð í nýju litlu
fjölbýli. Forstofa, hol, eldhús, borðstofa, stofa
með útgangi út á stóran afgirtan sólpall, gott
útsýni. Gott herbergi, baðherbergi, þvottahús
og geymsla. Gólfefni eru parket og flísar.
Glæsileg vel staðsett eign. Íbúðin getur verið
laus við kaupsamning. Verð 22,9 millj.
ASPARHVARF - KÓP.
Glæsileg 134,3 fm efri hæð í tvíbýli m. sérinng.
ásamt stæði í bílag. Mikið útsýni. Anddyri,
gestasn., eldhús, stofa, borðst., hjónah., 2
barnah., baðh., geymsla og þvottah. Glæsil.
eikarinnr., vönduð tæki og flísar. Tilb. til af-
hendingar.
BÆJARHOLT – HF – 4RA
Hraunhamar fasteignasala hefur fengið í einka-
sölu mjög fallega 117,9 fermetra endaíbúð á
efstu hæð í góðu vel staðsettu fjölbýli á Holtinu
í Hafnarfirði . Eignin skiptist í forstofu, gang,
eldhús, þvottahús, þrjú góð herbergi, baðher-
bergi, stofu, borðstofu og geymslu. Stórar suð-
ursvalir, glæsilegt útsýni. Getur verið laus
strax. Verðtilboð.
SUNDLAUGAVEGUR – RVK. – 3JA
DOFRABERG - HF. - „PENTHOUSE“
Hraunhamar fasteignasala hefur fengið í einka-
sölu mjög fallega mikið endurnýjaða 79,4 fer-
metra íbúð í risi í virðulegu steinhúsi vel stað-
sett við Sundlaugaveg í 105 Reykjavík. Eignin
hefur verið endurnýjuð á mjög smekklegan hátt
þar sem allt rými er nýtt til hins ýtrasta. Eignin
skiptist í inngang, stiga upp á pall, hol, eldhús,
gott hjónaherbergi, bjarta og falleg stofu, gott
vinnuherbergi, baðherbergi og geymsluloft.
Suðursvalir. Gólfefni eru massíft eikarparket og
flísar. Sameiginlegt þvottahús í mjög snyrtilegri
sameign í kjallara. Verð 18,9 millj.
Hraunhamar kynnir stórglæsilega „penthouse“-
íbúð á tveimur hæðum á þessum frábæra stað
í Setbergslandinu. Íbúðin er 166,3 fm með
geymslu. Skipting eignarinnar: Neðri hæðin:
Forstofa, hol, 2 svefnherbergi, eldhús, borð-
stofa, baðherbergi, stofa. Efri hæðin: Stofa
(sjónvarpshol), 2 svefnherbergi, hol og baðher-
bergi. Auk þess er geymsla, sameiginlegt
þvottahús og hjólageymsla. Þetta er eign sem
hægt er að mæla með. Verð 31,9 millj.
– HÚSEIGN VIÐ LAUGAVEG - TILBOÐ ÓSKAST! –
Öll húseignin viðLaugaveg nr. 36,
ásamt baklóð með
byggingarétti.
Um er að ræða götu-
hæð sem í dag er nýtt
sem bakarí (konditori)
og verslun. Tvær efri
hæðir og ris.
Grunnflötur hússins
er ca. 120 fm.
Heildarlóð er 498 fm
eignarlóð. Á baklóð
eru lágreistar bygg-
ingar til niðurrifs.
Eign sem gefur mikla möguleika.
Allar nánari upplýsingar og
teikningar á skrifstofu okkar.Suðurlandsbraut 46
www.skeifan.is
Sími 568 5556 Fax 568 5515