Morgunblaðið - 30.10.2005, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. OKTÓBER 2005 47
FRÉTTIR
Vegmúla 2, 108 Reykjavík.
LÓÐ TIL SÖLU Í MOSFELLSBÆ
Einbýlishúslóð við Þrastarhöfða 37 í Mosfellsbæ. Lóðin en
835,6 m² að stærð og er tilbúin til byggingar. Öll gjöld eru
greidd nema skipulagsgjald. Lóðin er til afhendingar nú
þegar. Óskað er eftir tilboðum í lóðina og skal skila þeim á
skrifstofu Bifrastar eigi síðar en 20.08.2005. Teikningar og
nánari upplýsingar á skrifstofu eða í síma 533 3344.
Pálmi B. Almarsson, löggiltur fasteignasali.
Fallegt, vel skipulagt og afar vel staðsett 152 fm einbýlishús á tveimur hæðum auk 42,0
fm sérstæðs bílskúrs með mikilli lofthæð. Á neðri hæð eru forstofa, sjónvarpshol, gesta-
salerni, rúmgott eldhús með eyju, borðstofa, setustofa með miklum frönskum gluggum
og eitt herbergi. Á efri hæð eru þrjú rúmgóð herbergi með skápum og flísalagt baðher-
bergi. Ræktuð lóð með hellulagðri verönd og skjólveggjum. Hiti í innkeyrslu og hluta af
stéttum. Góð staðsetning efst í götu í lokuðum botnlanga. Verð 49,0 millj.
Eignin verður til sýnis í dag, sunnudag, frá kl. 14-16
Verið velkomin
FASTEIGNA
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteigna- og skipasali.
Heiðargerði 64 - Opið hús frá kl. 14-16
Guðrún tekur á móti áhugasömum og sýnir
mjög góða 115 fm íbúð á 1. hæð (vinstri),
auk 30 fm bílskúrs, samtals 145,5 fm. Mjög
gott og vel staðsett hús. Stutt í alla þjón-
ustu.
Sölumaður: Þórhallur (896 8232)
OPIÐ HÚS Í DAG KL. 14-16
ASPARHOLT 10 - ÁLFTANESI
Glæsilegt 180 fm (með bílskúr) raðhús á
besta stað á Álftanesinu. Húsið er fullbúið
með fyrsta flokks gólfefnum og glæsilegum
innréttingum og tækjum, þ.m.t. uppþvotta-
vél og tvöf. amerískum ísskáp. Örstutt í
skóla og ýmsa aðra þjónustu.
Sölumaður: Þórhallur (896 8232).
Verð 37,9 millj.
ASPARÁS - GARÐABÆ
Glæsileg 100 fm íbúð á frábærum stað í nýj-
asta hverfi Garðabæjar. Stórar suðursvalir.
Húsið er nánast viðhaldsfrítt að utan (ál-
klætt). Fallegar innrétingar. Toppíbúð á
þessum eftirsótta stað.
Sölumaður: Sigurður (898 3708).
Verð 25,0 millj.
EINIVELLIR 7
Íbúðir í glæsilegu 5 hæða 35 íbúða
lyftuhúsi. 2ja, 3ja og 4ra herbergja íbúðir.
12 stæði í bílakjallara. Mjög góður frá-
gangur á húsi og íbúðum. Íbúðirnar skilast
fullbúnar án gólfefna á stofu og her-
bergjum. Hús, sameign og lóð fullfrágengin.
Vandaðar innréttingar og tæki. Íbúðir á
jarðhæð eru með sérverönd og íbúðir á
hæðum með stórum svölum, frábært útsýni.
Skil í maí 2006.
Sölumaður: Þórhallur (896 8232).
OPIÐ HÚS Í DAG KL. 14-16
HRÍSMÓAR 9 - GARÐABÆ
OPIÐ HÚS Í NEÐSTALEITI 1
ENDAÍBÚÐ Á 1. HÆÐ OG JARÐHÆÐ MEÐ
SÓLSTOFU OG STÆÐI Í BÍLAGEYMSLUHÚSI
Til sýnis og sölu óvenju björt og
vönduð 140,6 fm endaíbúð á
1. hæð og jarðhæð með sólstofu,
suðvestursvölum og stæði í bíla-
geymsluhúsi. Innangengt er úr
stigagangi í bílageymsluna.
Verð 34,9 millj.
EIGN Í SÉRFLOKKI.
Elín Guðmundsdóttir sýnir
eignina í dag, sunnudag,
milli kl. 13.00 og 16.00.
Sími 594 5000 - Fax 594 5001
Lynghálsi 4//110 Reykjavík//Lögg. fasteignasali Halla Unnur Helgadóttir
BYGGINGALÓÐIR
Til sölu 6 glæsilegar byggingalóðir undir einbýlishús í Mosfells-
bæ. Staðsetningin er einstök í landi Ása.
Hér er á ferðinni sannkölluð perla, þar sem fer saman útivistar-
paradís með fjöll og dali á aðra hönd ásamt nánd við höfðuð-
borgarsvæðið. Reiðleiðir um svæðið fyrir þá er það kjósa.
Staðsetningin á engan sinn líka og er sannkölluð „sveit“ í borg.
Þetta er gullið tækifæri fyrir þá, sem una sér í kyrrð með
frábæru útsýni, vilja vera út af fyrir sig en jafnframt hafa stutt
aðgengi til vinnu.
Lóðirnar eru frá ca 720 fm til ca 2.240 fm og er gert ráð fyrir
veglegum húsum.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu Akkurat.
24 fm upphitaður bílskúr við Flyðrugranda
í Reykjavík til sölu.
Bílskúrshurð 220 hæð, í skúrnum er rafmagn og
rennandi vatn. Hurð skúrsins er nýleg og sjálfvirk.
Verðtilboð óskast
Upplýsingar gefur
Guðrún Hulda Ólafsdóttir
hdl./löggiltur fasteignasali,
sími 861 1032
BÍLSKÚR TIL SÖLU
ALÞJÓÐAHÚSIÐ hefur frá og með
septembermánuði boðið upp á ís-
lenskukennslu fyrir innflytjendur og
hefur ráðið Ingibjörgu Hafstað til
að stýra þessari nýju áherslu í starf-
seminni. „Tungumálakunnátta er
lykill að samfélaginu og þess vegna
er það mikið ánægjuefni að Ingi-
björg hafi fallist á að koma til liðs
við Alþjóðahúsið, til þess að bjóða
upp á íslenskukennslu í fremstu
röð,“ segir Einar Skúlason, fram-
kvæmdastjóri Alþjóðahússins, en
Ingibjörg rak áður fyrirtækið Fjöl-
menningu ehf. sem sérhæfði sig í ís-
lenskukennslu fyrir innflytjendur.
Að sögn Einars verður megin-
áherslan lögð á vinnustaðatengda ís-
lenskukennslu, sem Ingibjörg hefur
þróað og kennt á fjölda vinnustaða
undanfarin ár. Námsefnið er sér-
hannað fyrir hvern vinnustað og
tekur mið af daglegum veruleika
starfsmanna. Slíkt námsefni hefur
verið hannað fyrir fjölda fisk-
vinnslufyrirtækja og aðra mat-
vælaframleiðendur, fyrir starfsfólk í
leik- og grunnskólum, fyrir þernur á
hótelum, fyrir prentsmiðjur og
fleiri.
Ingibjörg Hafstað hefur áratuga
reynslu í íslenskukennslu fyrir út-
lendinga og störfum sem snúa að að-
lögun í nýju samfélagi. Hún hefur
tekið þátt í stefnumótun Reykjavík-
urborgar og ráðuneyta í kennslu
barna og fullorðinna innflytjenda í
íslensku og tekið þátt í fjölda sam-
starfsverkefna í Evrópu í þróun
tungumálakennslu innflytjenda. Þá
hefur hún rannsakað ólæsi meðal
innflytjenda, hannað námsefni fyrir
þá og haldið námskeið í lestrar- og
ritunarkennslu.
Bætir starfsandann og minnkar
starfsveltu fyrirtækja
Að sögn Einars stendur námið
starfsfólki til boða endurgjaldslaust,
kennslan er fjármögnuð með fram-
lögum úr Starfsmenntasjóði at-
vinnulífsins, en vinnustaðirnir
leggja til aðstöðuna og fer kennslan
fram á vinnutíma, sem Einar segir
skipta mjög miklu máli. „Þannig
myndast ákveðin hópstemning og
góður mórall á vinnustaðnum sem
virkar afar hvetjandi,“ segir Einar
og tekur fram að námið snúi jafnt að
samskiptum milli vinnufélaga sem
og í afgreiðslu við viðskiptavini, auk
þess sem starfsfólkið fái upplýs-
ingar um heiti verkfæra og vara á
íslensku. „Þetta er praktískt nám að
því leyti, því þú átt að geta byrjað að
nota það strax frá fyrsta degi,“ segir
Einar og bendir á að reynsla fyr-
irtækja þar sem boðið er upp á
starfstengda íslenskukennslu sé að
starfsandinn verði betri, minni
starfsmannavelta er og minni fjar-
vera vegna veikinda þar sem fólki
líður betur í vinnunni. Að sögn Ein-
ars hafa þegar farið af stað starfs-
tengd íslenskunámskeið hjá Eim-
skip, McDonalds og fyrir leikskóla-
og skólaliða hjá Reykjavíkurborg.
Aðspurður segir hann fjölda fyrir-
tækja hafa sýnt náminu áhuga og
vera að velta fyrir sér að bjóða upp
á starfstengt íslenskunám. „Mér
finnst vera hálfgerð vakning fyrir
því í samfélaginu að það er ekki
hægt að ætlast til þess að menn geri
það algjörlega á eigin spýtur að
læra íslensku. Það þarf oft að koma
til hvatning og fyrirtækin eru í lang-
bestri aðstöðunnni til að ýta undir
þetta hjá starfsfólki sínu.“
Tungumálakunnátta
lykill að samfélaginu
Morgunblaðið/Kristinn
Ingibjörg Hafstað stýrir íslenskukennslu fyrir innflytjendur.
Alþjóðahúsið býður upp á starfstengda íslenskukennslu
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
Varnarsamn-
ingi verði
sagt upp
ALMENNUR félagsfundur Sam-
taka herstöðvaandstæðinga, hald-
inn fimmtudaginn 20. október,
hvetur til þess að slitið verði á öll
tengsl milli alþjóðaflugvallar Ís-
lendinga í Keflavík og veru er-
lends setuliðs á Miðnesheiði. Ís-
lendingar hafa fulla burði til þess
að reka flugvöll án styrkja frá er-
lendu herveldi.
„Fundurinn bendir á að einfald-
asta og besta lausnin á þessu milli-
ríkjadeilumáli íslenskra og banda-
rískra stjórnvalda er að
Íslendingar segi upp hinum svo-
kallaða varnarsamningi frá 1951
og erlent herlið hverfi héðan úr
landi innan 18 mánaða,“ segir í
ályktun fundarins.