Morgunblaðið - 30.10.2005, Side 50

Morgunblaðið - 30.10.2005, Side 50
50 SUNNUDAGUR 30. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR NÚ til dags hafa börn úr mörgum möguleikum að spila þegar kemur að því að velja sér tómstundagaman. Margir kjósa að hreyfa sig líkamlega á meðan aðrir tileinka sér tölvu- tæknina. Í þessari flóru afþreying- armöguleika væri rökrétt að skák- listin ætti undir högg að sækja hjá yngstu kynslóðinni. Skákhreyfingin hefur að sumu leyti reynt að svara kalli tímans og breytt áherslum sín- um til þess að fá börn og unglinga til að tefla. Að öðrum ólöstuðum hefur Skákfélagið Hrókurinn verið þar í broddi fylkingar en undanfarin miss- eri hefur starf Taflfélags Vest- mannaeyja vakið sífellt meiri at- hygli. Ef marka má upplýsingar sem borist hafa skákþættinum frá um- sjónarmanni barnastarfs TV, Karls Gauta Hjaltasonar, mega mörg félög um allt land taka starfsemi TV sér til fyrirmyndar en það ágæta félag hef- ur sett sér það markmið að fjölga skákiðkendum og að krakkarnir í fé- laginu skipi sér á meðal þeirra bestu á landinu. Þessum tveim höfuðmark- miðum hefur verið fylgt eftir með því að bjóða upp á reglulegar æfingar og keppnir í heimabyggð ásamt því að veita þeim tækifæri til að etja kappi við jafnaldra sína hvaðanæva af landinu. Það er einkar athyglisvert að félagið leitast við að bjóða upp öðruvísi keppnir og gera skákina skemmtilega fyrir sem flesta. Af þeim viðburðum sem TV skipu- leggur fyrir krakka er Skákævintýr- ið mest áberandi. Þessi skákhátíð hefur verið haldin tvö ár í röð í Vest- mannaeyjum þar sem margir af öfl- ugustu grunnskólanemendum í skák hafa tekið þátt. Síðast var keppnin haldin í maí sl. og náðu þar krakkar úr Eyjum afburðaárangri en í fjór- um af 8 flokkum hátíðarinnar urðu heimamenn hlutskarpastir. Þetta skemmtilega 100 krakkamót er ávallt rúsínan í pylsuendann fyrir unga skákiðkendur í Eyjum þar sem allan veturinn eru haldin innan- félagsmót sem vekja áhuga þeirra og halda þeim við efnið. Á hverjum sunnudegi eru æfingar haldnar þar sem yfirleitt 15-25 krakkar mæta og á þeim geta þátttakendur safnað stigum í bikarkeppi á hverri önn og sá efsti fær nafnbótina bikarmeistari TV. Nýlega var sú nýbreytni tekin upp í barnastarfi TV að halda deilda- keppni krakka sem hefur notið mik- illa vinsælda en fyrirkomulagið er sambærilegt og í Íslandsmóti skák- félaga nema að um einstaklings- keppni er að ræða. Þessi keppni er haldin einu sinni í mánuði yfir vet- urinn og tveir efstu í 2. og 3. deild vinna sér rétt til að taka þátt í deild- inni fyrir ofan en tveir neðstu í 1. og 2. deild falla niður um deild. Hverri keppni lýkur á einum degi og eftir veturinn er sá sem fær flesta vinn- inga í 1. deild útnefndur deildar- meistari TV. Ekki eru allar keppnir eins alvarlegar þar sem einstöku sinnum fá krakkarnir tækifæri til að kjósa í lið og stilla borðaröðinni á mismunandi máta. Oft er mikill handagangur í öskjunni í þessum sveitakeppnum og spillir það ekki fyrir fjörinu að hún endar í pitsu- veislu. Það er stefna TV að gefa fé- lagsmönnum sínum tækifæri til að takast á við jafninga sína og síðasta vetur tóku börn úr Eyjum þátt í Ís- landsmóti barna- og unglingasveita, Tívolísyrpu Hróksins og nú síðast í byrjun október tók sérstök ung- mennasveit TV þátt í Íslandsmóti skákfélaga í fyrsta skipti. Einnig hefur gott samstarf tekist á milli Eyjamanna og Salaskóla en sl. vor fóru liðsmenn TV í heimsókn í Kópa- voginn og var sú heimsókn endur- goldin laugardaginn 22. október sl. þegar 20 krakkar úr Salaskóla komu til Eyja. Fyrst öttu krakkarnir kappi í sveitakeppni þar sem 5 sveitir Sala- skóla tefldu við 5 lið Eyjamanna. Keppt var um veglegan farandbikar og fór svo að A-sveit Eyjamanna varði titil sinn frá því í vor en liðið fékk 17½ vinning af 20 mögulegum á meðan A-sveit Salaskóla fékk 17 vinninga. Sigurliðið var skipað Nökkva Sverrissyni, Ágúst Sölva Hreggviðssyni, Alexander Gauta- syni og Sindra Frey Guðjónssyni. Að sveitakeppninni lokinni var háð ein- staklingskeppni og var skipt í þrjá flokka eftir aldri. Í yngsta flokknum bar Eyjapeyinn Kristófer Gautason sigur úr býtum með 8 vinninga en næstir honum komu Nökkvi Dan Elliðason og Kristófer Orri Guð- mundsson. Flestir keppendur voru í flokki 4.-5. bekk og urðu þar Valur Marvin Pálsson úr Eyjum og Guð- mundur Kristinn Lee úr Salaskóla jafnir og efstir með 6 vinninga en Daði Steinn Jónsson kom næstur með 5½ vinning. Þegar gripið hafði verið til stigaútreiknings var Valur Marvin úrskurðaður sigurvegari. Nemendur Salaskóla röðuðu sér í efstu sætin í elsta flokknum sem var skipaður krökkum í 6.-7. bekk en Jó- hanna Björg Jóhannsdóttir varð hlutskörpust með 7½ vinning en í humátt á eftir komu Patrekur Mar- on Magnússon og Eiríkur Örn Brynjarsson. Eins og ofanritað ber með sér er barnastarf TV fjölbreytt og æfa reglulega hjá félaginu um 40 krakk- ar og eru þau mislangt komin í skák- listinni. Af þeim sökum er boðið upp á skákkennslu og farið yfir efni þar sem nemendur spreyta sig á æfing- um. Allur þessu fjöldi krakka er skipt í hópa og eru æfingarnar mis- þungar. Heimamenn sjá um þessa kennslu en það kemur fyrir að kenn- arar komi ofan af landi og eru þá settar upp aukaæfingar þar sem leit- ast er við að kafa dýpra ofan í skák- fræðin. Allt þetta góða starf hefur skilað sér í góðum árangri en í upphafi árs- ins varð Nökkvi Sverrisson Íslands- meistari 10 ára og yngri ásamt því að þrír ungir Eyjamenn urðu í efstu 11 sætunum. A-sveit Barnaskóla Vest- mannaeyja lenti í þriðja sæti á Ís- landsmóti barnaskólasveita auk þess sem Eyjapeyjar hafa síðustu tvö árin hirt alla titla á meistaramóti Suður- lands í flokki 1.-7. bekk. Hér er vert að taka fram að það eru ekki bara örfáir krakkar sem skara fram úr heldur eru hátt í tíu krakkar úr Eyj- um að ná verðlaunasætum á mótum þar sem keppt er við þá bestu á land- inu. Ef áfram heldur sem horfir er sannarlega bjart framundan í skák- lífi Eyjamanna. Eyjapeyjar fagna sigri yfir Salaskóla. Blómlegt barna- starf í Eyjum Ungir Eyjamenn að tafli. SKÁK Taflfélag Vestmannaeyja UM BARNA- OG UNGLINGASTARF daggi@internet.is HELGI ÁSS GRÉTARSSON Nánari uppl. veitir Óskar. SÍÐUMÚLI - VERSLUNARHÚSNÆÐI TIL LEIGU Vandað 103 fm atvinnuhúsnæði á götuhæð við Síðumúla í Reykjavík. Eignin skiptist í opið rými, snyrtingar, kaffistofu, geymslu og tvö skrifstofuherbergi. Linoleum-dúkur á gólfum. Kerfisloft með innfelldri lýsingu í loftum. Eignin er öll nýstandsett að innan og getur hentað ýmist undir verslun, þjónustu eða skrifstofur. Laugavegi 170, 2. hæð. Opið virka daga kl. 8-17. Sími 552 1400 ● Fax 552 1405 www.fold.is ● fold@fold.is Þjónustusími eftir lokun er 694 1401. Hringbraut 83, 107 Reykjavík Opið hús í dag milli kl. 14-15 Viðar Böðvarsson, viðskiptafr. og lögg. fasteignasali. Mjög góð jarðhæð í þríbýli við Hringbraut í vesturborginni. Sér- inngangur er að íbúð- inni. Gott svefnher- bergi og rúmgóð stofa. Falleg íbúð í vesturborginni á góðu verði. Verð 12,9 millj. 7077 Suðurlandsbraut 4a • 108 Rvk. • Fax 533 4811 • midborg@midborg.is 533 4800 Laugavegur 182 • 105 Rvík • Fax 533 481 • mid idborg.is HRAUNTUNGA 39 – OPIÐ HÚS 214,3 fm raðhús á tveimur hæðum á rólegum stað í suður- hlíðum Kópavogs. Húsið skiptist í forstofu, bílskúr, geymslu og 2ja herbergja íbúð á jarðhæð. Á efri hæð er stofa, eldhús, baðherbergi, þrjú herbergi og u.þ.b. 50 fm svalir. Húsið klætt að utan. Eldhús og baðherb. endurnýjað fyrir u.þ.b. 4 árum. Skipti koma til greina á minni eign. 5881. V. 38,6 m. Brandur sími 897 1401 sýnir í dag milli kl. 13.00 og 14.00. Björn Þorri hdl., lögg. fastsali, Karl Georg hrl., lögg. fastsali.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.