Morgunblaðið - 30.10.2005, Qupperneq 52
52 SUNNUDAGUR 30. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Guðbjörg Petrea Jóns-
dóttir fæddist á
Barði í Fljótum 3.
júní 1920. Hún lést á
hjartadeild LSH
laugardaginn 15.
október síðastlið-
inn. Foreldrar
hennar voru Jón
Jónsson, frá Flugu-
mýri í Skagafirði, f.
20. jan. 1887, d. 22.
nóv. 1961 og Anna
Egilsdóttir frá
Tjörnum í Sléttu-
hlíð, f. 10. ág. 1882, d. 9. jan. 1959.
Systkini hennar voru Áslaug, f.
1913, d. 2004, Hólmfríður, f. 1914,
d. 1993, Jóhannes Pétur, f. 1915,
d. 1967, Guðvarður Sigurberg, f.
1916, d. 1996, Ingibjörg Egilsína,
f. 1917, d. 1989, Sigvaldi, f. 1919,
d. 1993, Marsibil, f. 1923, d. 1991,
og Þóra, f. 1926, d. 1997.
Eiginmaður Guðbjargar er
Þorvaldur Runólfsson, f. í Heið-
arseli í Kirkjubæjarhreppi í
V-Skaft. 4. jan 1920. Þau gengu í
hjónaband 1944. Dætur þeirra
eru: 1) Pálína Skagfjörð, f. 1942,
maki Rúnar Sigurbjörnsson, f.
1949. Þau búa í Kópavogi. Börn
hennar og Guðmundar Jónasson-
ar, f. 1943, eru Guðbjörg Valdís, f.
1961, hún á tvö börn og tvö
barnabörn, Jónas, f. 1963, hann á
þrjú börn, og Erla, f. 1966, hún á
tvö börn. Barn hennar og Jóhann-
usar Poulsen, f. 1942, d. 1970, er
Jóhanna, f. 1970,
hún á fjögur börn.
Synir hennar og
Rúnars eru Hlífar
Sigurbjörn, f. 1973,
hann á tvö börn, og
Hlynur, f. 1978,
hann á eitt barn. 2)
Sóley, f. 1952. Hún
býr í Kópavogi.
Börn hennar og
Reynis Línberg
Marteinssonar, f.
1949, eru Guðrún
Jóna, f. 1972, hún á
tvö börn og Mar-
teinn Ari, f. 1978. 3) Auður Þor-
valdsdóttir, f. 1954, maki Anfinn
Jensen, f. 1953. Þau búa í Kaup-
mannahöfn. Börn þeirra eru Þor-
valdur, f. 1974, hann á eitt barn,
og Áslaug Jóhanna f. 1975, hún á
tvö börn. 4) Dröfn, f. 1956, maki
Páll M. Skúlason. Þau búa í Laug-
arási í Biskupstungum. Börn
þeirra eru Egill Árni, f. 1977,
Þorvaldur Skúli, f. 1979, Guðný
Rut, f. 1984 og Brynjar Steinn, f.
1989.
Guðbjörg flutti til Reykjavíkur
um 1940, þar sem hún var um
tíma í vist hjá Pálma Hannessyni,
rektor. Eftir það fékkst hún að-
allega við verslunarstörf, lengst
af í Fossvogsbúðinni og Verslun-
inni Vogum við Víghólastíg í
Kópavogi.
Útför Guðbjargar fór fram frá
Kópavogskirkju 25. október, í
kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Þegar maður er orðinn 85 ára er
svo sem við öllu að búast. Undir
það síðasta var eins og Bubba teldi
sig vera búna að neyta fylli sinnar
af þeim skammti sem hún hlaut af
gnægtaborði jarðlífsins. Hún var
líklegast tilbúin þegar kom að
kveðjustund. Þeir sem eftir lifa
þurfa að sætta sig orðinn hlut þótt
það geti verið sárt um stund.
Þeirra upplifun af ömmu í Kópa-
vogi breytist í góðar minningar og
þakklæti fyrir samfylgdina.
Það er ekki annað hægt að segja
en að tengdamamma hafi farið
hljótt um jarðlífið; giftist Valda
sínum og saman komu þau 4 dætr-
um á legg við Álfhólsveginn í
Kópavogi. Hún vann lengst af
starfsævinnar við verslun og þegar
starfi hennar á vinnumarkaðnum
lauk tók hún eins mikinn þátt í
tómstundastarfi með eldri borgur-
um í Kópavogi og henni reyndist
unnt. Hún fór reglulega á spila-
kvöld og var þátttakandi í sund-
hópi eins lengi og heilsan leyfði.
Hún var mikil félagsvera og ég
held að henni hafi þótt það miður
síðustu mánuðina að geta ekki
sinnt félagslífinu eins mikið og hún
hefði kosið. Heima við stytti hún
sér stundir með því að leggja kap-
al eða spila við þá sem komu í
heimsókn og deildu með henni
spilaáhuganum. Snjáður spila-
stokkurinn var alltaf á vísum stað.
Þegar reynt að gera manneskju
einhver skil eftir 30 ára kynni, get-
ur verið vandi að finna rétta flöt-
inn, en það fyrsta sem mér kemur
til hugar um persónueinkenni
tengdamömmu er, að mér finnst
hún hafa verið hálfgerður grallari.
Ekki veit ég nákvæmlega hvers-
vegna þessi mynd birtist mér; lík-
legast þó í tengslum við umræður
okkar um menn og málefni gegn-
um árin. Hún var alltaf tilbúin til
að fjalla um stjórnmálaástandið á
hverjum tíma; oft lét hún gamminn
geisa í þeim efnum og í þeirri um-
ræðu hallaði á hægri öflin og pen-
ingahyggjuna í samfélaginu.
Almennt held ég að megi segja
að Bubba hafi átt góða ævi, þrátt
fyrir að hún hafi fengið sinn skerf
af erfiðum áföllum. Þau hjónin
misstu tvö börn við fæðingu og það
hefur tekið á þegar bóndinn veikt-
ist alvarlega á blómaskeiði lífsins
og hún þurfti að sjá um öll mál á
stóru heimili.
Ég heyrði Bubbu aldrei hafa
mörg orð um byrðar sem voru
lagðir á herðar henni, enda má
segja að þegar hún stendur upp
frá borðinu og vaskar upp eftir
borðhaldið, geti hún bara verið
stolt af afkomendunum 39, tengda-
börnunum og honum Valda sínum,
sem hún gekk með í gegnum súrt
og sætt í ríflega sextíu ár.
Blessuð sé minning Guðbjargar
Jónsdóttur.
Páll M. Skúlason.
Elskuleg amma mín er látin. Við
vorum góðar vinkonur við amma.
Hún kenndi mér að spila rommí en
spilamennska var hennar líf og
yndi. Ég minnist hennar við eld-
húsborðið með spilin í hönd og ef
enginn var til að spila við hana, þá
lagði hún bara kapal. Amma
kenndi líka syni mínum rommí og
nú er hann farinn að kenna litlu
systur sinni það sem langamma
kenndi honum. Þegar ég var í
barnaskóla fór ég alltaf heim til
ömmu í hádegismat. Nær undan-
tekningarlaust var fiskur í matinn,
en stundum keypti hún sérstak-
lega pylsur handa mér. Þá skar
hún alltaf endana af pylsunni
minni, svo ég fengi „endalausa
pylsu“. Hún hugsaði vel um mig
hún amma mín.
Amma var dálítill ærslabelgur í
sér, var stríðin og hafði mikið
keppnisskap. Ein sterkasta minn-
ing mín um hana er síðan 1988
þegar við vorum öll saman fjöl-
skyldan á Kanarí. Amma og Matti
bróðir, sem þá var tíu ára, stóðu
við sundlaugarbakkann að spila
fótboltaspil. Ærslagangurinn var
mikill við að snúa fótboltakörlun-
um og koma boltanum í markið.
Leikar enduðu svo að amma vann.
Hún snéri sér við sigri hrósandi,
steytti hnefann út í loftið og æpti:
„Ég vann, ég vann“. Hún var svo
upptekin hún amma yfir sigrinum
að hún tók ekki eftir að hún stóð
beint fyrir framan sundlaugina,
arkaði af stað og steyptist á bóla-
kaf í laugina. Þögn sló á hótelgarð-
inn, þar til hún kom upp úr með
andköfum, en þá skelltu allir upp-
úr. Svona man ég ömmu: lífsglöð,
félagslynd, hafði yndi af að spila
og vinna! Ég sakna þín amma mín
en ég veit að Guð passar þig.
Þín
Guðrún.
Elsku amma.
Nú þegar þú ert farin reikar
hugurinn til baka og rifjast þá upp
gamlar og góðar stundir. Þegar
þið afi opnuðuð arma ykkar fyrir
mér þegar ég var með heimþrá í
Færeyjum og leyfðuð mér að búa
hjá ykkur og þar með sátuð þið
uppi með mig. Í hjarta mínu mun
ég alltaf vera ykkur þakklát fyrir
það.
Elsku amma mín, síðustu sam-
verustundirnar voru í sumar þegar
þú í tilefni 85 ára afmælisins
komst til Danaveldis. Voru það
skemmtilegar stundir og mun ég
þannig alltaf minnast þín, hress og
kát í faðmi fjölskyldu þinnar í
Danmörku.
Hvíldu í friði, amma mín.
Þúsund kossar, þín
Guðbjörg.
Síminn hringdi kl. 3 um nótt,
það var mamma sem sagði mér að
þú værir dáin. Mér brá mikið, því
fyrr um kvöldið hafði ég fengið
þær fréttir að þér liði miklu betur.
Restina af nóttinni sat ég niðrí
stofu og hugsaði um þær stundir
sem við áttum saman.
Mér er það sérstaklega minnis-
stætt þegar ég gisti hjá þér og afa
eitt skiptið, ég hef verið svona 12
ára, mér leiddist og þú sagðir mér
að lesa, en ég var með enga bók og
ekki fann ég neina barnabók hjá
þér.
Þú fórst og fannst ástarsögu,
eftir það las ég ekki barnabækur
heldur lá ég öllum stundum yfir
ástarsögum. Öll skiptin sem ég
kom upp til þín og spilaði við þig
rommí voru mjög skemmtileg,
þrátt fyrir að ég hafi sjaldan unn-
ið. Einnig get ég ekki gleymt ynd-
islegu kleinunum þínum sem eru
án efa bestu kleinur sem ég hef
smakkað.
Elsku afi, mamma, Auður, Sól-
ey, Dröfn og fjölskyldur, ég vona
að Guð styrki ykkur í sorg ykkar.
Ég kveð þig, amma mín, með
hendingu úr ljóði sem þú raulaðir
stundum.
Oh my darling, oh my darling,
Oh my darling Clementine
You are lost and gone forever,
Dreadful sorry, Clementine.
Blessk, amma mín.
Erla Guðmundsdóttir.
GUÐBJÖRG PETREA
JÓNSDÓTTIR Elskuleg móðir okkar,
GUÐRÍÐUR ÓLAFSDÓTTIR,
Hlíðargötu 4,
Akureyri,
sem andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri
þriðjudaginn 25. október, verður jarðsungin frá
Akureyrarkirkju föstudaginn 4. nóvember
kl. 13.30.
Guðmundur Haraldsson,
Gunnar Haraldsson,
Halldóra Haraldsdóttir,
Ólafur Haraldsson
og aðrir aðstandendur.
Elskulegur eiginmaður minn, bróðir, tengdasonur
og mágur,
GYLFI JÓNSSON
vélvirki,
Fannafold 116,
Reykjavík,
sem andaðist á Landspítalanum í Fossvogi föstu-
daginn 21. október, verður jarðsunginn frá Graf-
arvogskirkju miðvikudaginn 2. nóvember kl. 13.00.
Sigurlaug Einarsdóttir,
Hulda Jónsdóttir, Þráinn Þorsteinsson,
Dagmar Jónsdóttir,
Guðlaug Sigurjónsdóttir, Einar J. Gíslason,
Ólöf Einarsdóttir, Bogi Þórðarson,
Erna Óskarsdóttir, Bergþór Einarsson,
Einar Örn Einarsson, Hulda Haraldsdóttir
og systkinabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamamma og amma,
ÞURÍÐUR JÓNSDÓTTIR
frá Grafardal,
til heimilis á Kársnesbraut 135,
Kópavogi,
sem lést á Landspítalanum í Reykjavík miðviku-
daginn 26 október sl., verður jarðsungin frá
Áskirkju í Reykjavík miðvikudaginn 2. nóvember
nk. klukkan 13:00.
Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast
hennar, er bent á Blindrafélag Íslands.
Daníel Sigurbjörnsson,
Margrét Sigurbjörnsdóttir,
Bergþór Valur Þórisson,
Jóhann Þorvaldur Bergþórsson,
Ingibjörg Andrea Bergþórsdóttir,
Ingibjörg Rannveig Ingólfsdóttir.
Ástkær faðir okkar, vinur, afi, langafi og
langalangafi,
KJARTAN ÓLAFSSON
frá Strandseli,
Ögurhreppi við Ísafjarðardjúp,
Birkihvammi 8,
Kópavogi,
lést á Landspítalanum við Hringbraut þriðju-
daginn 25. október,
Útför hans fer fram frá Digraneskirkju föstudaginn
4. nóvember kl. 13.00.
María Erla, Bolli, Einar, Guðríður og Halldór Kjartansbörn,
Sigríður Helgadóttir
og afabörnin.
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur
hlýhug og samúð við andlát og útför mannsins
míns og föður okkar,
LEIFS EIRÍKSSONAR,
Akurgerði 1,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til hjúkrunarfólks á 13D Landspí-
tala við Hringbraut.
Inga Jóna Ingimarsdóttir,
Ingi Leifsson,
Jónas Leifsson.
Ástkær móðir mín, tengdamóðir mín, amma okkar
og langamma,
SIGRÍÐUR GUÐRÚN BENÓNÝSDÓTTIR,
Fossagötu 10,
Reykjavík,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni mánudaginn
17. október, verður jarðsungin frá Háteigskirkju
þriðjudaginn 1. nóvember kl. 13.00.
Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Minningarsjóð Kvenfélags
Háteigssóknar.
Elísabet S. Magnúsdóttir,
Sigríður Dóra Jóhannsdóttir,
Sigríður Erla Eysteinsdóttir, Jóhannes Hermannsson,
Magnús Þór Gylfason, Elva Dögg Melsteð,
Þóra Björk Eysteinsdóttir, Gunnar Wedholm Helgason,
Helga Björg Gylfadóttir, Gunnar Theodór Eggertsson
og barnabarnabörn.