Morgunblaðið - 30.10.2005, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. OKTÓBER 2005 55
AUÐLESIÐ EFNI
Mahmoud Ahmadinejad,
for-seti Írans, sagði á
ráð-stefnu í vikunni að það
ætti að eyða Ísrael. Hann
hefur verið for-dæmdur víða
um heim fyrir um-mælin.
Ísraelar segja þau brot á
stofn-skrá Sam-einuðu
þjóðanna og að þau jafn-gildi
glæp gegn mann-kyninu. Þeir
vilja að að Íranir verði reknir
úr SÞ.
Tony Blair,
forsætis-ráðherra Bret-lands,
sagði að heimurinn yrði að
líta á Íran sem raunveru-lega
ógn ef af-staða þeirra til
Ísrael, hryðju-verka og
kjarnorku-vopna breytist ekki.
„Ég hef aldrei vitað til þess
að forseti ríkis segðist vilja
eyða öðru ríki,“ sagði Tony
Blair.
For-dæmd
um-mæli
Jóhann Árni Ólafsson,
leik-maður
unglinga-flokks
Njarð-víkur í
körfuknatt-leik, skoraði
89 stig í leik gegn
Haukum um sl. helgi.
Það er að öllum
líkindum met í yngri
flokkum á Íslandi.
Jóhann er 19 ára
gamall og er í
íþrótta-akademíu
Suður-nesja.
Hann segir að
mót-spyrnan hafi verið
ágæt þótt þeir hafi
unnið leikinn 143:79.
„Þetta var einn af
þessum dögum þar
sem allt fór ofaní.
Karfan var eins og
vaska-fat að stærð, að
mér fannst,“ sagði
Jóhann.
Skoraði
89 stig
Jóhann Árni Ólafsson
Rit-höfundurinn Sjón tók á
miðviku-daginn við
Bókmennta-verðlaunum
Norðurlanda-ráðs árið 2005.
At-höfnin var haldin í
Borgar-leikhúsinu. Sjón fékk
3,5 milljónir í verð-laun fyrir
skáld-söguna Skugga-Baldur,
sem gerist á 19. öld og fjallar
um stúlku með
Downs-heilkennið. Sjón var
valinn úr hópi 13 rit-höfunda
sem voru til-nefndir, og segist
hann mjög stoltur af að hafa
hlotið verð-launin. Við sömu
at-höfn tók danski
leik-stjórinn Per Fly tók við
kvikmynda-verðlaunum
Norðurlanda-ráðs fyrir
kvik-mynd sína Drabet, sem
sýnd er nú á
kvikmynda-hátíðinni
Október-bíófest sem hófst á
fimmtu-daginn.
Sjón mjög
stoltur
Morgunblaðið/Sverrir
Sjón með verð-launin fínu.
Á mánu-daginn var haldinn
fjöl-mennasti báráttu-fundur
hér á landi frá upp-hafi. Þá
mættu um 50.000 konur
niður í mið-bæ Reykja-víkur til
að minnast 30 ára af-mælis
Kvenna-frídagsins.
Margar konur tóku til máls
á fundinum og var
launa-misréttið baráttu-mál
dagsins.
„Konur eru ekki metnar að
verð-leikum og hefð-bundin
kvenna-störf eru enn
láglauna-störf.
Launa-misréttið er
tíma-skekkja og
smánar-blettur á íslensku
sam-félagi,“ sagði Marín
Þórsdóttir full-trúi
heildar-samtaka laun-þega.
Amal Tamimi stjórnar-kona
í sam-tökum kvenna af
er-lendum upp-runa sagði
sagði þær vilja frían að-gang
að íslensku-kennslu, bætta
atvinnu-löggjöf, og fá
menntun sína metna.
„Allt breytist, en jafn-framt
ekkert,“ sagði Valgerður H.
Bjarnadóttir, sem tók þátt í
kvenna-frídeginum fyrir 30
árum,
„Við þurfum byltingu,“
sagði Katrín Anna
Guðmundsdóttir, full-trúi
kvenna-hreyfingarinnar.
Kvenna-frídagurinn var
haldinn hátíð-legur víða um
land. Má þar nefna að á
Hvann-eyri tóku 40% íbúa
þátt í baráttu-fundi og
kröfu-göngu.
Kvenna-frídagurinn 30 ára
Morgunblaðið/Þorkell
Áfram stelpur!
Hermann Hreiðarsson
liðs-maður í knattspyrnu-liðinu
Charlton á Bretlandi, átti
stór-leik þegar lið hans sló
risann Chelsea út úr enska
deilda-bikarnum. Staðan eftir
venju-legan leik-tíma og
fram-lengingu var 1: 1, og
haldin var vítaspyrnu-keppni.
Hermann skoraði af ör-yggi úr
4. spyrnunni en Bryan Hughes
inn-siglaði sigurinn með þeirri
fimmtu. „Ég heimtaði að fá að
taka víti,“ sagði Hermann
sem var viss um að geta
skorað.
Hermann
átti
stór-leik
Um 2.200 fyrir-tæki greiddu
íröskum stjórn-völdum mútur
vegna olíusölu-áætlunar
Sam-einuðu þjóðanna á
árunum 1996-2003. Vildu
fyrirtækin hreppa við-skipti í
sam-bandi við
mannúðar-áætlunina um
olíu fyrir mat.
Þetta kom fram í vikunni í
skýrslu nefndar sem
rann-sakaði málið. Þykir
skýrslan sýna hvernig
Saddam Hussein tókst að
leika sér að kerfinu til að
græða á því.
Rannsóknar-nefndin
gagn-rýnir yfir-stjórn
Sam-einuðu þjóðanna fyrir
að hafa ekki komið í veg
fyrir spillinguna og vill að
framkvæmda-stjórn SÞ verði
betrum-bætt.
Kofi Annan,
framkvæmda-stjóri SÞ, vill
að fyrirtæki, sem eru
grunuð um
mútu-greiðslurnar verði
lög-sótt.
Mútur í Írak
Ný stjórnar-skrá fyrir Írak var
sam-þykkt í
þjóðar-atkvæðagreiðslu 15.
október, sem var mun
frið-samlegri en í janúar. Þá
dóu 36 manns í árásum á
kjör-degi. 6 létu lífið, og bara
1 eftir opnun kjörstaða.
78% kjósenda sam-þykktu
stjórnar-skrána, þrátt fyrir
mikla and-stöðu súnníta.
Þeir réðu öllu í tíð Saddams
Husseins og fyrri
ríkis-stjórna, og eru um 20%
lands-manna.
Íraska stjórnin og
við aðra lands-menn, sjíta og
Kúrda. Margir eru þó
hræddir um að niður-staðan
muni skipta þjóðinni og
landinu í þrennt, þar sem
sjítar og Kúrdar fái alla
olíuna, en súnnítar sitja uppi
olíu-lausir á
eyðimerkur-svæðum.
Sumir telja að það geti
haft hörmu-legar af-leiðingar
fyrir alla Íraka.
Bjartsýnis-menn segja hins
vegar að nú muni
hryðjuverka-menn bíða
endan-legan ósigur og spá
þeir friðsam-legri tímum.
Ný stjórnar-skrá í Írak
Bandaríkja-menn vona að
úrslitin muni auðvelda
þing-kosningar í desember,
og fá súnníta til að sættast
Reuters
Ibrahim Jaafari,
forsætis-ráðherra Íraks,
ræðir við frétta-menn.
Harriet Miers hefur beðið um
að nafn hennar verði dregið
til-baka, en George W. Bush
for-seti Banda-ríkjanna,
til-nefndi
hana í
em-bætti
dómara við
hæsta-rétt
landsins.
Þetta þykir
enn eitt
áfallið fyrir
for-setann, sem hefur
klúðrað mörgum málum
undan-farið.
Miers er lögfræði-legur
ráð-gjafi forsetans, og kom
mörgum á óvart að hann
skildi til-nefna hana.
Miers hefur enga reynslu
af dómara-störfum og ekki
nokkra sér-þekkingu á
hæsta-rétti Banda-ríkjanna.
Því sögðust bæði
and-stæðingar og margir
sam-herjar for-setans
alger-lega á móti því að hún
fengi emb-ættið. Í stað þess
að skipa tryggan undir-mann
sinn, ætti Bush að leita að
hæfum ein-staklingi í
emb-ættið.
Miers
hættir
við
Miers og Bush.
Netfang: auefni@mbl.is