Morgunblaðið - 30.10.2005, Page 57
Einar Skúlason, framkvæmdastjóri Alþjóðahússins, og Jónas Guðmunds-
son, fjármálastjóri Heilsugæslunnar, handsala samninginn.
Alþjóðahúsið starfa saman að því
að kynna sjúklingum túlkaþjón-
ustu, sem gætu þurft á henni að
halda.
Skoðað verður að setja upp á
vegum Alþjóðahússins almenn
fræðslunámskeið fyrir starfsmenn
Heilsugæslunnar, s.s. á sviði
menningarfærni og um þjónustu í
fjölmenningarumhverfi. Jafnframt
verða sérstaklega skoðaðir mögu-
leikar á þátttöku í evrópskum sam-
starfs- og rannsóknarverkefnum
sem koma að gagni fyrir báða aðila
samkomulagsins, segir í frétta-
tilkynningu.
NÝVERIÐ gerðu Alþjóðahúsið
ehf. og Heilsugæslan á höfuðborg-
arsvæðinu með sér samstarfs-
samning um þjónustu við innflytj-
endur. Tilgangur þessa samstarfs
er að tryggja að innflytjendur njóti
öryggis og traustrar þjónustu til
jafns við aðra meðlimi samfélags-
ins og bæta þjónustu til sjúklinga
af erlendum uppruna. Samstarfið
tekur sérstaklega til túlka- og þýð-
ingarþjónustu og til fræðslu- og
kynningarmála, ásamt fleiri verk-
efnum.
Samningurinn felur m.a. í sér
samstarf á sviði túlka- þýðingar-
þjónustu, en á vegum Alþjóðahúss-
ins eru starfandi um 200 túlkar,
sem túlka á yfir 50 tungumál alls.
Alþjóðahúsið og Heilsugæslan
munu starfa saman að frekari upp-
byggingu túlka- og þýðingarþjón-
ustunnar, sem miðar að því að
auka gæði túlkaþjónustu, færni og
fagmennsku túlka, þekkingu heil-
brigðisstarfsmanna á notkun
túlkaþjónustu og frekari þjónustu
með hag sjúklinga að leiðarljósi.
Ennfremur munu Heilsugæslan og
Alþjóðahúsið og Heilsugæslan
gera samstarfssamning
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. OKTÓBER 2005 57
Veiði
Rjúpnaveiði í Mývatnssveit.
Bjóðum upp á rjúpnaveiði, gist-
ingu á hóteli eða í sumarhúsum
og mat. Gott pakkaverð í boði.
Upplýs. veitir Pétur Gísla. í síma
845 2424, reykjahlid@islandia.is
og 861 3859.
Hjólbarðar
Óska eftir negldum vetrardekkj-
um. Stærð ca 245/70R16. Helst
á 5 gata felgum fyrir Cherokee.
Upplýsingar í síma 698 6501.
Október tilboð
195/65 R 15 nagladekk 4 stk. +
vinna kr. 26.900.
Kaldasel ehf.,
Dalvegi 16b, 201 Kópavogi,
s. 544 4333.
Október tilboð
175/65 R 14 nagladekk 4 stk. +
vinna kr. 24.900.
Kaldasel ehf.,
Dalvegi 16b, 201 Kópavogi,
s. 544 4333.
Nær óslitin 31 negld jeppadekk.
Eru á orginal Pajero (15") felgum,
6 gata. Verð 50 þús. kr. Upplýs-
ingar í síma 896 3910.
Smáauglýsingar
Vegna aukinna umsvifa í blaðadreifingu óskar Morgunblaðið eftir að
ráða fólk á öllum aldri í blaðburð víða á höfuðborgarsvæðinu sem fyrst.
Blaðberi hjá Morgunblaðinu fær að meðaltali 31.160 kr. á mánuði fyrir klukkustundarlangan
hressandi göngutúr.* Til viðbótar kemur þungaálag og greiðslur fyrir aldreifingar tvisvar í viku.
Vinsamlegast hafið samband í síma 569 1440 eða
sendið tölvupóst á netfangið bladberi@mbl.is.
*Miðað við að 65 eintökum af Morgunblaðinu sé dreift í 30 skipti.
Vel launuð líkamsrækt
− fyrir fólk á öllum aldri
Pera vikunnar:
Í 50 manna hópi eru 38 dökkhærðir, 29 brúneygðir og 23 eru bæði
dökkhærðir og brúneygðir.
Hve margir í þessum 50 manna hópi eru hvorki dökkhærðir né brúneygð-
ir?
Skilafrestur fyrir réttar lausnir er til kl. 12 mánudaginn 7. nóvember.
Lausnir þarf að senda á vef skólans, www.digranesskoli.kopavogur.is,
en athugið að þessi Pera verður ekki virk þar fyrr en eftir hádegi hinn 31.
október.
Ný þraut birtist sama dag fyrir kl. 16 ásamt lausn þessarar og nöfnum
vinningshafanna.
Stærðfræðiþraut Digranes-
skóla og Morgunblaðsins
Body Shop styður Blátt áfram
Í VERSLUNUM Body Shop hefur
að undanförnu verið seldur vara-
salvi til styrktar starfsemi Blás
áfram. Nýlega afhenti starfsfólk
Body Shop Blátt áfram ágóðann
fram að þessu eða samtals 170 þús-
und kr. Peningunum er varið í
rekstur verkefnisins og styður það í
því að halda uppi þeirri fræðslu
sem boðið er upp á.
Á myndinni má sjá starfsfólk
Body Shop og Sigríði Björnsdóttur
frá Bláu áfram en hún heimsótti
Body Shop á dögunum og ræddi við
starfsfólk um verkefnið og fræddi
um forvarnir gegn kynferðislegu
ofbeldi á börnum, segir í frétta-
tilkynningu.
UM 4 milljónir króna söfnuðust í
klinksöfnun Rauða krossins í sam-
vinnu við Sparisjóðinn og Póstinn í
átaki sem byrjaði í maí en um er að
ræða 1,3 tonn af erlendu klinki.
Þetta er í þriðja sinn sem klinksöfn-
un er haldin þar sem almenningur er
hvattur til að koma með erlent klink
á næsta afgreiðslustað Sparisjóðs
eða Póstsins. Samtals hafa safnast
25 milljónir króna í þessum þremur
söfnunum.
Í fréttatilkynningu segir að fjár-
munirnir verði notaðir til að efla enn
frekar innanlandsverkefni Rauða
kross Íslands.
Um 4 milljónir króna
söfnuðust í klinksöfnun
Vörubíll valt við
Markarfljót
VÖRUBÍLL valt við Markarfljót um
kvöldmatarleytið sl. föstudag. Sam-
kvæmt upplýsingum frá lögregl-
unni á Hvolsvelli var þar um að
kenna mikilli hálku á veginum og
hvassviðri. Ökumaður slapp án
meiðsla en bifreiðin var nokkuð
skemmd.
Ekki reyndist unnt að draga bíl-
inn af vettvangi þá um kvöldið sök-
um þess hversu vont veður var, svo
það beið morguns.