Morgunblaðið - 30.10.2005, Síða 58
Mímí og Máni
Kalvin & Hobbes
VIÐ ERUM VONDIR
OG ILLA LYKTANDI
SJÓRÆNINGJAR!
OG VIÐ VERÐUM AÐ SJÁ TIL
ÞESS AÐ ENGAR STELPUR
KOMIST UM BORÐ Í SKIPIÐ
H0TUM VIÐ
STELPUR?
AUÐVITAÐ! VIÐ ERUM
SKÍTUGIR SJÓRÆNINGJAR!
ÞAÐ MEGA ENGAR STELPUR
KOMA UM BORÐ Í SKIPIÐ!
Risaeðlugrín
© DARGAUD
VIÐ FÁUM ALDREI
HEITAN MAT
EN HVER Á
AÐ GANGA
PLANKANN?
Dagbók
Í dag er sunnudagur 30. október, 303. dagur ársins 2005
Eitt er það sem Vík-verja gremst stór-
lega, og það eru svo-
kallaðir SMS-leikir.
Sífellt eru auglýstir
nýir leikir þar sem
hægt er að vinna ein-
hverja vitleysu og
óþarfa með því að
senda skilaboð. Vík-
verja virðist sem
skilaboðin kosti í
hvert skipti allt að 199
krónum og oft þarf að
senda tvenn og jafnvel
þrenn skilaboð til að
taka þátt í „leiknum“.
Þátttakandinn borgar
því allt að 600 krónum til að geta átt
von um að vinna bíómiða eða spólu
sem kostar ekki miklu meira. Ekki
þarf að taka fram að vinningshlut-
fallið er vitaskuld nær alltaf afleitt.
Þetta er að mati Víkverja ekkert
annað en happdrætti, og ætti sem
slíkt, að því er Víkverja sýnist á lög-
um um þessi mál, ekki að vera heim-
ilt nema félagasamtökum og stofn-
unum sem nota happdrættið til
fjáröflunar í góðgerðarskyni.
Raunin er hins vegar sú að það
eru eingöngu fyrirtæki sem nota
þessa leiki, engum til góðs nema
sjálfum sér.
Mest svíður Víkverja að auglýs-
ingum um SMS-leiki
eru iðulega gagngert
beint til ungra neyt-
enda. SMS-sniðið
veldur því að ungu vit-
leysingarnir, sem allir
eiga farsíma, geta
glapst til að taka þátt,
og enginn milliliður
gætir að hver aldur
þátttakenda er. Það er
ekki að ástæðulausu
að börn og ungmenni
eru sérstaklega vernd-
uð í lögum um happ-
drætti, enda þurfa þau
verndar við.
Víkverja virðist sem
algengast sé að viss raftækjaverslun
í bænum standi fyrir SMS-leikjum.
Víkverja þykir, af auglýsingum fyr-
irtækisins að dæma, að oftast sé
hafður einn ágætlega eftirsóknar-
verður aðalvinningur en aukavinn-
ingarnir fyrst og fremst umfram-
lager af kvikmyndum og tölvu-
leikjum sem mesti glansinn er farinn
af. Auðvitað bráðsnjallt að losna við
þriðja flokks vörur með þessum
hætti, og fá jafnvel gott betur en
fullt verð fyrir.
Allt fer þetta síðan fram eftirlits-
laust og verð og vinningslíkur rituð
með agnarsmáu letri neðanmáls.
Vikverji vill að þessu linni.
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Leikhús | Starfsmenn Granda fengu óvænta gesti á dögunum en þeir Atli
Rafn Sigurðarson og Jóhann Sigurðarson litu við og glöddu nærstadda með
atriði úr leikritinu Halldór í Hollywood. Starfsmenn þurftu þó senn að hverfa
aftur til starfa sinna, en óvíst hvort þeim hafa þá verið minnisstæð orð
skáldsins í Sölku Völku, að „þegar öllu er á botninn hvolft þá er lífið þó um-
fram alt saltfiskur en ekki draumaríngl“.
Morgunblaðið/Golli
Hollywood á hafnarbakka
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug-
lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569
1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811,
gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.600 kr. á mánuði
innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Orð dagsins: Honum bera allir spámennirnir vitni; að sérhver, sem á
hann trúir, fái fyrir hans nafn fyrirgefningu syndanna. (Post. 10,43.)