Morgunblaðið - 30.10.2005, Page 64

Morgunblaðið - 30.10.2005, Page 64
64 SUNNUDAGUR 30. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ MENNING ÞORSTEINN Helgason opnaði á dögunum með pompi og pragt sýn- ingu í Gallerí Fold. Vel á fjórða hundrað gesta mættu og djassband lék listir sínar: „Þau tengjast, djass- inn og þessi stefna sem ég er með í verkunum. Þetta er létt og leikandi; tónfall og hrynjandi,“ sagði Þor- steinn þegar blaðamaður tók hann tali. Sýninguna nefnir Þorsteinn Lit- vörp en hún kemur í kjölfarið á ann- arri sýningu Þorsteins, Ljósvörp: „Þetta eru rúmlega 20 olíumálverk í mismunandi stærðum. Flokka mætti verkin sem abstrakt-expressjónisk og náttúran, litirnir og ljósaspilið hér heima fær að koma fram en sjálfsagt spila líka inn í þau ár sem ég átti í Danmörku – ætli guli lit- urinn komi ekki þaðan. Svo er þetta líka örlítið afsprengi af arkitekt- úrnum, hálfpattinn á gráu svæði. Byggist á því sama: formum, hlut- föllum og litasamsetningu, sem flæðir allt á milli.“ útskýrir Þor- steinn sem einnig starfar sem arki- tekt á, og er meðeigandi í, Ask- arkitektar og er menntaður sem slíkur við Arkitektaskólann í Kaup- mannahöfn auk þess að hafa lært við Myndlistaskólann í Reykjavík og Myndlistar- og handíðaskólann. „Ætli litirnir séu ekki mitt sérkenni: sterkir litir og litasamsetningin. Ef tala má um einhverja þróun þá er kannski í verkunum meiri lína, meiri teikning. Þetta er góður ballans frá nákvæmninni í arkitektafaginu. Listin er rýmri en um leið er í henni nákvæmni líka, bara á annan hátt.“ Áningarstaður „Það er gott að halda þessar sýn- ingar, því maður er á vissan hátt að gera upp. Þegar maður málar hvert einstakt verk, einbeitir maður sér aðeins að því en á sýningunni getur maður séð heildina og stillt mynd- unum upp þannig að maður leyfi þeim að tala saman. Þetta er líka viss áningarstaður til að líta yfir far- inn veg. Maður staðnæmist aðeins, íhugar hvað er spennandi í stöðunni og hvaða stefnu á að taka.“ Þorsteinn á þegar að baki nokkrar sam- og einkasýningar en nánar má fræðast um listamanninn, verk hans og feril á www.formnatura.com. Sýningin í Gallerí Fold stendur til 30. október. Litir og ljósaspil Morgunblaðið/Brynjar Gauti Þorsteinn Helgason arkitekt og myndlistarmaður innan um verk sín í Fold. Eftir Ásgeir Ingvarsson asgeiri@mbl.is TVÆR gestasýn- ingar á vegum Kon- unglega leikhússins í Kaupmannahöfn verða á Stóra sviði Þjóðleikhússins á sunnudaginn kl. 14 og 16. Um er að ræða ballettsýningu fyrir börn þar sem nemendur listdans- skóla Konunglega leikhússins taka þátt. Þegar H.C. And- ersen var ungur drengur lét hann sig dreyma um að verða ballettdansari við Konunglega leik- húsið í Kaupmanna- höfn, en þessi langi og mjói strákur með stóru fæturna fann ekki náð fyrir augum ballettmeistarans. En nú fær hann loksins tækifæri til að spreyta sig í þess- ari nýju danssýn- ingu! Í barnaball- ettsýningunni Klippimyndum höld- um við í æv- intýralega ferð með H.C. Andersen, sem dansar aðal- hlutverkið og leiðir okkur í gegn- um vinsæl ævintýri á borð við Ljóta andarungann, Nýju fötin keisarans, Næturgalann og Tindát- ann staðfasta. Klippimyndir æv- intýraskáldsins verða smám saman til eftir því sem líður á sýninguna, vaxa og fylla loks leiksviðið. Tuttugu og sjö börn dansa í sýn- ingunni og fara sum þeirra með veigamikil hlutverk, enda er aðeins einn fullorðinn dansari í sýning- unni. Í sýningunni hér á Íslandi verður ballettinn fluttur í styttri útgáfu, auk þess sem dansararnir sýna Bournonvillespor undir stjórn skólastjóra listdansskólans, Anne Marie Vessel Schlüter, sem jafn- framt fræðir áhorfendur um spor- in. Sýningin í heild er klukku- stundar löng. Það eru Konunglegi danski ball- ettinn og listdansskóli Konunglega danska leikhússins sem standa að sýningunni. Danshöfundur Klippi- mynda er Svíinn Pär Isberg, en hann samdi meðal annars barna- ballettinn Hans og Grétu sem hef- ur notið mikilla vinsælda í Dan- mörku. Höfundur leikmyndar í Klippimyndum er Bo Ruben Hed- wall, búningar eru í höndum Ann- Mari Anttilla, um lýsingu sér Torkel Blomkvist, tónlistin er eftir Niels W. Gade, Edvard Grieg, Alexander Glazunow og fleiri en um tónlistar- og leikstjórn sér Martin Åkerwall. Listdans | Klippimyndir í Þjóðleikhúsinu Ævintýraferð með H.C. Andersen Tuttugu og sjö börn dansa í sýningunni. KANADÍSKI leikarinn Shawn Kinley heldur tvö námskeið í fræðslu- deild Þjóðleikhússins í dag og á morgun. Hið fyrra nefnist Improv- isation eða Spunatækni og verður í dag milli kl. 13 og 16, en hið síðara verður haldið annað kvöld kl. 19.30-22 og nefnist Group Dynamics, eða Hóp- efli. Kinley starfar með Loose Moose- leikhópnum í Calgary í Kanada, en stofnandi hans hefur af sumum verið talinn frumkvöðull á sviði spunalist- arinnar. Að sögn Kinley kom hann sér sjálfur á framfæri við Þjóðleik- húsið, sem tók vel í þá hugmynd hans að halda námskeið í húsinu. „Sérsvið mitt er líkamlegt leikhús, sem virðist vera vinsælla í Evrópu og Asíu en í Ameríku, sjálfsagt vegna hefðarinnar og hversu mörg mál eru töluð þar. Í Ameríku snýst leiklist að mestu um líkamshlutann frá hálsi og upp,“ segir hann. Spuni frá mörgum sjónarhornum Á námskeiðinu í dag verður spuna- tækni tekin fyrir, grundvallaratriði hennar, frásögn og skipulag. „Spuni snýst fyrst og fremst um að spinna upp hluti á staðnum, en það er hægt að horfa á hann frá ólíkum sjón- arhornum. Í leikhúsinu er litið á hann sem sérstakt listform, en hann er líka notaður í skólum til að kenna börnum hluti eins og samvinnu, tillitssemi og sjálfsvitund. Í atvinnulífinu hefur spuni verið notaður til að hjálpa fólki við að hugsa á staðnum og laga sig breyttum aðstæðum. Spuni hefur því margvíslega möguleika sem kennslu- aðferð og ég mun laga námskeiðið mitt að þeim sem þangað mæta og þörfum þeirra,“ segir Kinley. Hópefli skiptir máli Á námskeiðinu á morgun verður farið í hópefli; hvernig á að mynda, efla og styrkja hópavinnu. Nám- skeiðið er ætlað öllum þeim sem starfa í hópum og vilja styrkja sam- starf innan þeirra, og tekist verður á við hvaða vandamál geta komið upp og hvernig þau ber að leysa. Kinley segir hópefli nýtast öllum hópum sem starfa saman, hvort sem það er á sviði leiklistar eða annars. „Sambandið milli samstarfsfólks skiptir miklu máli. Fólk heldur stund- um að vinna snúist fyrst og fremst um hæfa einstaklinga sem komi með þekkingu í vinnuna, en samskiptin skipta ekki síður máli. Fólk getur verið hæft til vinnu, en ef það á í örð- ugleikum með samskipti við aðra, er það einskis vert í vinnu,“ segir hann. Námskeið fyrir alla Bæði námskeiðin verða kennd á ensku og segir Kinley námskeiðin ætluð hverjum sem er, og alls ekki bara leikhúsfólki. „Meirihluti þeirra sem sækja námskeiðin mín er ekki leikhúsfólk. Raunar er það svo að margir sem ekki eru menntaðir til þess að koma fram eru oft hræddir við svona námskeið og telja að þeir geti ekki gert hitt eða þetta vegna þess að þeir hafi ekki hlotið til- hlýðilega þjálfun. Oft stendur þetta fólk sig hins vegar betur, einfaldlega vegna þess að það er opnara og ekki með fyrirframgefnar hugmyndir. Það hefur báða fætur á jörðinni, og það hjálpar,“ segir Kinley að síðustu. „Ég get ímyndað mér fáa, sem ekki hefðu gott af námskeiðum af þessu tagi.“ Leiklist | Námskeið í spuna og hópefli í Þjóðleikhúsinu Spuni er frábær Morgunblaðið/Árni Sæberg Shawn Kinley mun halda námskeið í spuna og hópefli í Þjóðleikhúsinu. Eftir Ingu Maríu Leifsdóttur ingamaria@mbl.is SINDRA Freyssyni rithöfundi hefur verið boðið að koma fram á Tertulia-bókmennta- og listahátíðinni í bænum Deia á spænsku eyjunni Mallorca, en hún er haldin í annað skipti nú um helgina. Sindri treð- ur upp á dag- skrá alþjóð- legs ljóða- kvölds er kallast Ljóð án undirtitla, en á meðal annarra höfunda er þar koma fram má nefna rússneska skáldið Xènia Dyakonova, velska höfundinn Gwyneth Lewis, japanska höf- undinn Omitsu Yoshida, franska höfundinn Didier Malherbe, katalónska skáldið Josep Pedrals og Bretann Ralph Cardwell. Á meðal þess sem hæst ber á hátíðinni nú má nefna upplestur Ians McEwans. Þá mun Roger McGough lesa úr ljóðum sínum og kynna nýútkomna sjálfs- ævisögu sína, Cynthia Lennon, fyrrverandi eiginkona bítilsins góðkunna, mun kynna minning- arbók sína um hans og einnig verður á hátíðinni sýnd ný heim- ildamynd um John Lennon. Á hátíðinni kynnir breski rit- höfundurinn Julia Blackburn ennfremur bók sína um ævi söngkonunnar Billie Holiday. Þá mun bandaríski kvikmynda- leikstjórinn Peter Bogdanovich fjalla um æviminningar sínar og hið sama gerir Hugh Cornwell, fyrrverandi söngvari hljóm- sveitarinnar Stranglers. Spænski metsöluhöfundurinn Rafael Reig les úr verkum sín- um og sömuleiðis þrjár von- arstjörnur breskra bókmennta, Kamila Shamsie, Niall Griffiths og Peter Hobbs, og píanóleik- arinn, rithöfundurinn og út- varpsmaðurinn Ben Sidran mun kynna bók sína um helstu djass- snillinga sögunnar, svo eitthvað sé nefnt. Sindra boðið á Tertulia- hátíðina Sindri Freysson NÝFUNDIN aría eftir Bach verður frumflutt á Íslandi í Langholtskirkju í dag. Arían ber heitið Alles mit Gott und nichts ohn’ ihn (Allt með Guði og ekkert án hans), BWV 1127. Þessi áður óþekkta aría eftir Bach fannst hinn 17. maí 2005 í geymslum bóka- safns greifynj- unnar Önnu Amalíu í Weimar. Það er skemmtileg tilviljun að flutning- inn ber upp á sama dag og arían var frumflutt, 30. október. Þegar hertoginn af Weimar, Wil- helm Ernst, hélt upp á 52 ára afmæl- ið sitt hinn 30. október 1713, ákvað Johann Anton Mylius (Buttstädter superintendant) að leggja eitthvað af mörkum í tilefni dagsins. Mylius, sem var þekktur fyrir áhrifamiklar predikanir og fagran skáldskap, valdi einkunn- arorð hertogans, Omnia cum Deo et nihil sine eo (Alles mit Gott und nichts ohn’ ihn) og samdi ljóð í tólf erindum út frá þýskri þýð- ingu á orðunum. Á síðustu tveimur blaðsíðunum á öðru af tveimur eintökum ljóðsins sem til eru í dag er að finna nótna- handrit Bachs af aríunni (Soprano solo è ritornello). Þessi aría verður flutt í messu í Langholtskirkju í dag kl. 11 af Þóru Einarsdóttur ásamt strengja- kvartett. Nýfundin aría Bachs flutt Þóra Einarsdóttir J.S. Bach Þú getur alltaf emblað.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.