Morgunblaðið - 30.10.2005, Síða 67
einhvern tíma og því kannski ekki
rétt að telja hann með, en honum var
þó dreift sem demói til blaðamanna.
Músíkin einskonar þungarokk, ekki
slæm en mjög slakur hljómur, engin
fylling og lítill kraftur fyrir vikið.
Umslagið gott en engar upplýsingar
um hljómsveitina.
Músík: Umbúðir: Notagildi:
Biogen bindur bagga sína ekki
sömu hnútum og samferðamennirnir
og eins er með diska hans, þeir lúta
ekki sömu lögmálum og annarra.
Hann handdreifði til að mynda
kynningareintökum á Airwaves og
lét engar upplýsingar fylgja á um-
slagi, hafði ekkert umslag reyndar.
Á diskinum, sem heitir Biopop, er þó
að finna upplýsingar um net- og vef-
fang örsmáu letri – fer eflaust
framhjá flestum. Fyrir vikið er erfitt
að meta notagildið, en tónlistin er
mjög góð.
Músík: Umbúðir:
Notagildi: ?
Ragna Kjartansdóttir, sem kallar
sig Cell 7, dreifði skemmtilegu
demói, fimm lög tilgreind á umslagi
en sex á diski. Fjögur þeirra laga
eru reyndar bara brot úr lögum,
sem er sniðug leið til að kynna tón-
list og eiga ekki á hættu á að hún
fari víðar en ætlað var. Sumt á skíf-
unni er einkar gott, en vissulega
erfitt að meta að fullu ef maður
heyrir ekki fullt lag. Umslagið úr
pappa en einkar skemmtilegur frá-
gangur og diskurinn mjög svalur
svartur.
Músík: Umbúðir: Notagildi: Dimma fer álíka leið og Nilfisk-
menn, dreifir diskinum í pappírs-
umslagi, en fínar upplýsingar eru
prentaðar á diskinn. Lögin eru þrjú
á diskinum, hádramatískt þunga-
rokk. Hljómur er afbragð, kraft-
urinn skilar sér einkar vel.
Músík: Umbúðir:
Notagildi: Besta umslag kynningardisks er
umslag Pan, en þeir fara þá leið að
setja diskinn í umbúðir fyrir tölvu-
leik eða DVD-disk. Í umbúðunum er
mikið af upplýsingum, söguágrip og
mynd af þeim félögum. Lögin eru
fimm, hátt í hálftími af músík. Af
umbúðum má ráða að pakkinn hafi
upphaflega verið settur saman á
síðasta ári, en það kemur ekki að
sök.
Músík: Umbúðir: Notagildi: Ef Pan eru bestir hvað varðar frá-
gang og notagildi þá reka þeir
Noise-piltar lestina. Diskurinn er
brenndur í óunnu umslagi og engar
upplýsingar nema nafn hljómsveit-
arinnar og orðið Promu framan á og
inni í umslagi nöfn laganna. Engar
upplýsingar um hvað Noise sé eða
hvernig hægt sé að ná í viðkomandi
ef vill. Músíkin er aftur á móti í lagi,
lögin fín og vel spilað.
Músík: Umbúðir:
Notagildi:
Ein af þeim sveitum sem stóðu sig
hvað best á Airwaves að þessu sinni
var Ég sem hélt frábæra tónleika á
Grand rokk. Ég dreifði líka kynning-
ardiski með sex lögum, gömlum og
nýjum. Umslagið einfalt og ekki
ýkja aðlaðandi, en lágmarksupplýs-
ingar.
Músík: Umbúðir: Notagildi: Tony the Pony dreifði vel heppn-
uðu fjögurra laga demói á Airwaves,
músíkin fín, hljómur góður og um-
slagið vel heppnað með kappnógum
upplýsingum.
Músík: Umbúðir: Notagildi: Tvær erlendar sveitir að minnsta
kosti dreifðu kynningardiski,
breska hljómsveitin The Rushes
og dansk-íslenska hljómsveitin Bob
Volume. Ágætis poppraul hjá The
Rushes, sungið mærðarlega og
prýðilega útsett. Bob Volume rokka
liðlega, en hljómboðaspilirí spillir og
slæmur framburður. Umbúðir The
Rushes pappaumslag með álímdum
miða með upplýsingum. Bob Vol-
ume er í plastumslagi með mjög
skemmtilegu umslagi og grunn-
upplýsingum.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. OKTÓBER 2005 67
MEÐ kvikmyndinni Manndrápið
(Drabet), sem hlaut Kvikmynda-
verðlaun Norðurlandaráðs nú í vik-
unni, hefur danski leikstjórinn Per
Fly lokið þríleik sínum um þá
breysku samfélagsveru sem mann-
skepnan er. Myndirnar þrjár fjalla
um manneskjur sem lenda í öng-
stræti sem að hluta má rekja til
samfélagsaðstæðna og að hluta til
þeirra eigin misvitru ákvarðana. Í
hverri mynd er sjónum beint að
ólíkum lögum samfélagsins, í
Bekknum (Bænken) er sögusviðið
lágstéttin í Danmörku, í Arfinum
(Arven) var það aðallinn, en í
Manndrápinu er sjónum beint að
millistéttinni.
Manndrápið er eins og nafnið
gefur til kynna saga um manndráp
og afleiðingar þess, ekki síst á líf
hinna seku. Aðalsögupersónan er
hinn 52ja ára félagsfræðikennari
Carsten, sem reynir að end-
urheimta eitthvað af eldmóði og
hugsjónum æskunnar með því að
eiga í ástarsambandi við Pil, fyrr-
um nemanda sem er bæði ung og
falleg og róttækur aðgerðasinni.
Þegar Pil stendur frammi fyrir
ásökunum um morð á lögreglu-
manni í kjölfar mótmælaaðgerða,
fyllist Carsten örvæntingu og snýr
baki við eiginkonu sinni og ráðsettu
millistéttarlífi til þess að styðja ást-
konuna.
Manndrápið er kröftuglega leikin
og vandlega unnin átakasaga. Þar
fylgjumst við með elskendum sem
reyna af veikum mætti að breiða
yfir óafturkræfan glæp en óhjá-
kvæmilega steypir vitneskjan um
hann gerendunum og fórnarlömb-
unum smám saman í glötun. Ferlið
er hæggengt og sársaukafullt en
þökk sé frábærri frammistöðu
þeirra Jespers Christensens sem
leikur Carsten, Pernille August
sem leikur Ninu, eiginkonu Car-
stens og Charlotte Fich sem leikur
ekkju hins myrta spilast dramað út
á áhrifamikinn hátt. Beate Bille
leikur ástkonuna Pil sem er öllu
óræðari persóna sem fyrir vikið
veikir söguna. Hún flöktir milli
þess að vera fullgildur þátttakandi
í tilfinningalegum afleiðingum
þeirrar angistar sem hún átti þátt í
að valda, og öllu klisjukenndari
ímynd kaldlynds tálkvendis sem
leiðir hinn miðaldurskreppta Car-
sten afvega í lífinu. Þá eru tilraunir
til þess að tengja dæmisöguna um
sekt sögupersóna við andvaraleysi
millistéttarinnar gagnvart mann-
réttindaglæpum í heiminum ekki
nógu vel útfærðar í myndinni, þó
svo að þær gefi henni vissulega
dýpt. Styrkleikar myndarinnar eru
hins vegar fólgnir í því hversu
átakanlega er tekist á við afleið-
ingar þess harmleiks sem dauði
lögreglumannsins er, og áhorfand-
anum ekki sleppt fyrr en hann hef-
ur fylgt þeim sem hlut eiga að máli
alla leið.
Afleiðing-
ar glæps
KVIKMYNDIR
Októberbíófest
Manndrápið (Drabet) „Styrkleikar myndarinnar eru
fólgnir í því hversu átakanlega er
tekist á við afleiðingar þess harm-
leiks sem dauði lögreglumannsins
er,“ segir meðal annars í dómi.
Heiða Jóhannsdóttir
Leikstjórn: Per Fly. Aðalhlutverk: Jesper
Christensen, Beate Bille, Pernille August
og Charlotte Fich. Danmörk, 108 mín.
Sjáið Wallace & Gromit í sinni fyrstu bíómynd.
Viggo Mortensen, Maria Bello, Ed Harris
og William Hurt fara á kostum í þessari frábæru spennumynd.
Sýnd kl. 8 og 10 B.i. 16 ára
Sýnd kl. 2, 4 og 6
Africa United
“Fótfrá
gamanmynd”
Variety
Þeir eru hér til að spila fótbolta,
ekki til að gera mistök
Ný Íslensk
heimildarmynd
sem hefur farið
sigurför um
heiminn
S.V. Mbl.
On a Clear Day • Sýnd kl. 2 Enskt tal/Ótextuð
Kung Fu Hustle • Sýnd kl. 2 Enskur texti
Adams Æbler • Sýnd kl. 4 Danskt tal/Ótextuð
The Aristcrats • Sýnd kl. 4 Enskt tal/Ótextuð
Oh Happy Day • Sýnd kl. 6 Danskt tal/Ótextuð
Crónicas • Sýnd kl. 6 Spænskt tal/Ens. texti
Separate Lies • Sýnd kl. 8 Ens. tal/Ísl. texti
Pusher lll • Sýnd kl. 8 Danskt tal/Ótextuð
Pusher ll • Sýnd kl. 10 Danskt tal/Ótextuð
Solkongen • Sýnd kl. 10 Danskt tal/Ótextuð
októberbÍófest | 26. október - 14. nóvember
Miðasala opnar kl. 17.30
Sími 551 9000
VJV Topp5.is
Kóngurinn og Fíflið, XFM
Tom Stall lifði
fullkomnu lífi...
þangað til hann
varð að hetju.
Frá leikstjóranum David Cronenberg
kemur ein athyglisverðasta mynd ársins.
Sýnd kl. 2.30, 5.20, 8 og 10.40
TOPP5.is
„Meistarastykki“
H.E. Málið
ó.H.T. Rás 2
TILBOÐ Á FYRSTU SÝNINGAR DAGSINS - AÐEINS 400 KR.
ATH! SÝNINGAR SÉRMERKTAR MEÐ RAUÐU400 KR. 400 KR.
(besti leik-
stjóri, besta
heimildarmynd,
besta handrit)
Tilnefnd til þriggja
Edduverðlauna
400 kr. í bíó!* * Gildir á allar sýningar merktarmeð rauðu
Bráðfyndin og kolsvort kómedía sem
virðir pólítíska réttsýni að vettugi.
Á dönsku. Engin texti.
Þriðja myndin í hinum
ofbeldisfullu og blóðugu
Pusher myndaflokki.
Pusher III Crónicas
Magnaður þriller með John
Leguizamo. Spænskt tal.
Enskur texti.
Upplifðu upphafið af
töffaraskap hjólabrettana.
"FLOTTASTA HROLLVEKJA ÁRSINS"
KÓNGURINN OG FÍFLIÐ / X-FM
"“hörku spennandi barátta upp
á líf og dauða þar sem öll tiltæk
meðöl eru notuð...”"
S.V. MBL
EMPIRE MAGAZINE. UK
Sýnd kl. 8 og 10 B.i. 16 ára
H.J. Mbl.
ATH! Á undan myndinn er stuttmyndin “Madagascar
Mörgæsirnar halda í jólaleiðagur sýnd.
Sýnd kl. 2, 4 og 6 Ísl. tal Sýnd kl. 2 Ísl. tal
ENGINN SLEPPUR LIFANDI
FARÐU TIL HELVÍTIS!
Hörku hasarmynd byggð á einum vinsælasta
og hrottalegast tölvuleik allra tíma!
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 B.i. 16 áraSýnd kl. 1.45, 3, 5.30, 8 og 10.30-POWER
POWER
SÝNIN
G
KL. 10
.30 á s
tærst
a
thx tj
aldi l
andsi
ns
553 2075bara lúxus ☎