Morgunblaðið - 30.10.2005, Qupperneq 69

Morgunblaðið - 30.10.2005, Qupperneq 69
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. OKTÓBER 2005 69 Ég held það sé best að þúsegir mér fyrst um hvaðLords of Dogtownsnýst. Í stuttu máli má segja að mynd- in sé um vandamál táninga sem alast upp við erfiðar aðstæður og þurfa að kljást við ýmsa erfiðleika, bæði innan heimilisins og og utan. Slíkir krakkar finna sér yfirleitt einhvers konar áhugamál sem deyfir sársaukann og gerir þeim kleift að verða metin að eigin verð- leikum. Í þessari mynd er það hjólabrettið sem gegnir hlutverki öryggisventilsins. Það verður einn- ig að einhvers konar tákni fyrir frelsi en ekki síður eitthvað sem unglingarnir geta sameinast um. Þarf maður að vera áhugamaður um hjólabretti til að skilja mynd- ina? Nei, nei. Það er algjört auka- atriði í sjálfu sér fyrir framvindu sögunnar. Hjólabrettið gæti alveg eins verið bolti eða frisbídiskur. En út af því að líf persónanna í mynd- inni snýst um hjólabretti verður hún líklega vel sótt af hjóla- brettafólki og í myndinni er fullt af mjög flottum hjólabrettaatriðum. Hún er að einhverju leyti byggð á heimildamyndinni Dogtown and Z-boys ekki satt, sem fjallar um upphaf hjólabrettaæðisins. Sú mynd fjallar meira um tækni- leg atriði hjólabrettamenning- arinnar á meðan að þessi mynd fjallar að mestu um sálarlíf persón- anna. En jú, persónurnar eru byggðar á nokkrum aðalpersónum heimildamyndarinnar. Þú hefur áður leikstýrt myndinni Thirteen sem einnig fjallar um tán- inga. Hvað er það við táningslífið sem heillar þig? Táningsaldurinn er mjög merki- legur tími því að þá er allt að breytast. Líkaminn breytist, kyn- hvötin vaknar, þú mátt keyra, drekka og verður um leið að ákveða framtíðina svo að það er allt að gerast á mjög stuttum tíma þegar táningurinn er síst undir það búinn. Þetta er mjög merkilegt ferli sem mér finnst mjög skemmtilegt að skoða. Þú hefur unnið lengi í kvik- myndaiðnaðinum, bæði sem fram- kvæmdahönnuður (production de- signer) og nú síðast sem leikstjóri, hvort starfið á betur við þig? Mér fannst frábært að vinna að framkvæmd kvikmynda, skapa útlit myndanna og vinna með öllu tæknifólkinu en munurinn er núna sá að ég vinn meira með leik- urunum og með handritið sjálft sem mér finnst mjög skemmtilegt. Ég fór meira að segja í leiklist- artíma til að skilja betur hvað leik- ararnir ganga í gegnum þegar þeir standa fyrir framan myndavélina. Eru margir leikstjórar sem gera það? Já, ég held að þeir sem ekki byrja sem leikarar geri það alla jafna. Flestir held ég. Var það alltaf ætlun þín að vinna við kvikmyndir? Ég held það. Ég er að vísu menntuð sem arkitekt en þegar ég kom fyrst til Los Angeles hafði ég búið til nokkrar stuttmyndir. Hins vegar stungu allir upp á því þegar þeir fréttu að ég væri arkitekt að ég sæi um að skipuleggja útlit kvikmynda og ég þá fékk að vinna með leikstjórum eins og Cameron Crowe sem ég lærði mikið af. Sú vinna held ég að hafi treyst mína trú á að verða leikstjóri. Af hverju ákvaðstu að búa til þessa mynd? Ástæðan er nú frekar einföld. Ég bý í Venice þar sem myndin gerist og meira að segja í sömu götu og Tony Alva (ein aðal- persóna Dogtown and Z-boys) og ég hef áður unnið að brettamynd auk þess sem ég stunda brimbretti og hitti því marga af hinum upp- runalegu „Z-boys“ á degi hverjum. Hvar er þetta fólk í dag? Það er flest við sama heygarðs- hornið. Sumir vinna til dæmis ennþá í brettabúðum og í kringum brettaiðnaðinn, einn er atvinnugolf- ari, annar grafískur hönnuður – út um allt eiginlega. Nú þegar þessi mynd er full- gerð, ertu byrjuð að undirbúa næstu kvikmynd? Já. Ég er að vinna að mynd sem mun kallast The Monkey Vrench Gang og er byggð á skáldsögu eftir Edward Abbey sem var í sama vinahópi og Robert Redford og Dennis Hopper. Myndin fjallar um fjórar persónur sem fara um Bandaríkin og reyna að virkja fólk til að huga að náttúrunni og um- hverfinu. Þetta verður mjög skemmtileg mynd, ég get sagt það strax. Kvikmyndir | Lords of Dogtown sýnd á kvikmyndahátíðinni Októberbíófest Reuters Þau John Robinson, Victor Rasuk og Emile Hirsch sýna leikni sína á hjóla- brettum í Lords of Dogtown. Kvikmyndin Lords of Dogtown er ein þeirra mynda sem boðið er upp á á Októberbíófest. Myndin byggist á einni vinsælustu heimildamynd síðari ára, Dogtown and Z-boys sem fjallar um upphaf hjólabrettaæðisins í Kaliforníu. Leikstjórinn Catherine Hardwicke ræddi við Höskuld Ólafsson um kvikmyndina og feril sinn í Hollywood. Eftir Höskuld Ólafsson hoskuldur@mbl.is Arkitektinn og leikstjórinn Kalli og sælgætisgerðin KRINGLANÁLFABAKKI Spenntu beltin og undirbúðu þig undir háspennumynd ársins með Óskarsverðlaunahafanum Jodie Foster. ATH! Á undan myndinn er stuttmyndin “Madagascar Mörgæsirnar halda í jólaleiðangur sýnd. Sjáið Wallace & Gromit í sinni fyrstu bíómynd. Frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna SÉRHVER DRAUMUR Á SÉR UPPHAF Frá leikstjórum There´s Something About Mary, eftir bók frá höfundi About a Boy DREW BARRYMORE JIMMY FALLON Hún fílar vinnuna, Hann íþróttir . Munu þau fíla hvort annað? TOPPMYNDIN Í USA 2 VIKUR Í RÖÐ M.M.J. / Kvikmyndir.com Kvikmyndir.is  Roger Ebert S.V. / MBL  "Fyrirtaks skemmtun sem hægt er að mæla með" MMJ - kvikmyndir.com  V.J.V. TOPP5.IS KISS KISS BANG BANG kl. 6.05 - 8.15 - 10.30 B.i. 16 ára KISS KISS BANG BANG VIP kl. 1.40 - 3.45 - 6.05 - 8.15 - 10.30 FLIGHT PLAN kl. 1.40 - 3.50 - 6.05 - 8.15 - 10.30 B.i. 12 ára WALLACE AND GROMIT - Ísl. tali kl. 1.50 - 4 - 6.05 WALLACE AND GROMIT - m/ensku tali kl. 6.05 - 8.15 - 10.30 CINDERELLA MAN kl. 10.30 B.i. 14 ára. THE 40 YEAR OLD VIRGIN kl. 5.30 - 8 - 10.30 B.i. 14 ára. GOAL kl. 8.15 VALIANT m/Ísl. tali kl. 1.50 - 3.40 SKY HIGH kl. 1.40 - 3.50 CHARLIE AND THE... kl. 1.40 - 3.50 KISS KISS BANG... kl. 6 - 8.15 - 10.30 B.i. 16 ára. PERFECT CATCH kl. 4.10 - 8.15 - 10.30 FLIGHT PLAN kl. 8 - 10.15 B.i. 12 ára. WALLACE & GROMIT - m/Ísl. tali kl. 12 - 2 - 4 - 6 MUST LOVE DOGS kl. 6 VALIANT m/Ísl. tali kl. 12 - 2 - 4 SKY HIGH kl. 12 - 2.05  S.V. / MBL Vinsælasta myndin í USA og á BRETLANDI Í dag. OG FRÁ FRAMLEIÐENDUM H.J. Mbl. Ð Á ALLAR MYNDIR KL. 12 & 2 UM HELGAR Í SAMBÍÓUNUM KRINGLUNNI
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.