Morgunblaðið - 07.11.2005, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 07.11.2005, Blaðsíða 4
4 MÁNUDAGUR 7. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Heimsferðir bjóða frábært tilboð á síðustu sætunum til Búdapest þann 14. nóvember. Þú bókar 2 flugsæti en greiðir aðeins fyrir 1 og kynnist þessari glæsilegu borg á einstökum kjörum. Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is 2 fyrir 1 til Búdapest 14. nóv. frá kr. 19.990 Síðustu sætin Verð kr. 19.990 Flugsæti með sköttum. 2 fyrir 1 tilboð. Út 14. og heim 17. nóv. Netverð á mann. Gisting frá kr. 2.800 Gisting pr. nótt á mann í tvíbýli á Hotel Tulip Inn með morgunverði. Netverð. Munið Mastercard ferðaávísunina NOKKUR umræða hefur átt sér stað undanfarið um vatn og sú spurning vaknað hvort skilgreina þurfi eignarhald á því hérlendis. Einnig hefur verið rætt um nýt- ingu og varðveislu vatns og litið til framtíðar í þeim efnum. Arnar Sigurðsson hjá Loft- myndum ehf. spyr því hvort ekki sé grunnforsenda að vita að minnsta kosti hvar vatn landsins liggi áður en farið er út í umræðu um vatn af einhverri alvöru. Loft- myndir eiga í dag háupplausna- loftmyndir af öllu Íslandi sem teknar hafa verið undanfarin 8 ár til stafrænnar kortagerðar. Hægt að greina hugsanlega mengun Úr þessum myndum hafa Loft- myndir unnið vatnafarsgrunn sem inniheldur lagskipt landfræðilegt vatnafarslíkan af öllu Íslandi. Í líkanið eru skráðar rennsl- isstefnur og hæðir svo afmarka megi vatnasvið helstu vatnsfalla og þjónar rannsóknarhagsmunum en einnig sem hjálpartæki við náttúruvöktun. Grunnurinn er unninn með nákvæmni sem svarar til mælikvarða 1:5.000 (um 1 metri). Teiknaðar eru bæði miðl- ínur vatnsfalla og bakkar þeirra þar sem það á við. Segir Arnar að grunnurinn innihaldi allar ár, skurði, læki, tjarnir og vötn eða allt yfirborðs- vatn á landinu. Einnig er yf- irborðið flokkað eftir t.a.m. hvort um sé að ræða yfirborðsvatn sem þornar upp á sumrin og eftir þeim sem renna allt árið um kring. Segir Arnar þennan grunn hugsaðan til að nota í sérhæfðum upplýsingakerfum fyrir aðila eins og Umhverfisstofnun, yf- irdýralækni eða Orkustofnun. Ef olíubíll færi til dæmis á hliðina einhvers staðar þá er hægt að skoðað vatnafarið á því svæði og reikna út hvert vatnið rennur og skilgreina hvar hugsanleg meng- un gæti legið. Eins er hægt að nota slíkan grunn ef smit eða sjúkdómar koma upp, þá er hægt að skoða hvar drykkjarból eða vatnsuppsprettur liggja sem vald- ið geta sýkingu. Segir Arnar slík- ar kröfur vera gerðar til land- upplýsinga erlendis en nú blasi einmitt við að Ísland þurfi að full- nægja Vatnatilskipun Evrópusam- bandsins en til þess þurfi einmitt réttan vatnafarsgrunn. Mikil nákvæmni Spurður um Landmælingar Ís- lands og þeirra hlutverk segir Arnar þá stofnun ekki eiga neitt sem jafnist á við vatnafarsgrunn Loftmynda. Segir Arnar að vatna- farsupplýsingar Landmælinga Ís- lands sé afar grófar og fullnægi engan veginn þeim kröfum sem gerðar eru til slíkra gagna. Eins sé markmið Landmælinga Íslands að skrá slík gögn með +/-100 metra nákvæmni en Loftmyndir vinni með +/-1 metra nákvæmni. Því spyr Arnar hvers vegna við ættum að eyða skattpeningum í að búa til gögn sem eru 100 sinn- um ónákvæmari en þau gögn sem nú eru til. Þá segir Arnar að vatnafars- grunnurinn hafi verið kynntur hinu opinbera og hafi Orkustofn- un lýst miklum áhuga. Jafnframt hafi fyrirtækið nýverið gert um- hverfisráðuneytinu tilboð í yf- irtöku á öllum rekstri og skuld- bindingum Landmælinga Íslands gegn 100 milljóna króna lækk- unar tilkostnaðar fyrir ríkissjóð. Aðspurður sagðist Arnar fastlega gera ráð fyrir að umhverfisráðu- neytið muni sýna vatnafarsgrunn- inum áhuga en svör ráðuneytisins hafi ekki enn borist við fyrra til- boðinu. Loftmyndir hafa unnið vatnafarsgrunn af Íslandi Sýnir allt yfirborðsvatn landsins Eftir Sigurhönnu Kristinsdóttur sigurhanna@mbl.is ÍBÚAR í Reykhólahreppi felldu á ný með afgerandi hætti tillögu um að hreppurinn sameinist Dalabyggð og Saurbæjarhreppi í sameiningarkosningu á laugardaginn var og eru úrslitin nánast þau sömu og þau voru í sameiningarkosningunum fyrir mán- uði síðan. Á kjörskrá voru 195. 119 kusu eða 61%. Já sögðu 37, eða 31% en nei sögðu 82, eða tæp 69%. Íbúar í hreppnum felldu sameiningartil- lögu fyrir mánuði, eins og fyrr sagði, en íbúar hinna sveitarfélaganna tveggja sam- þykktu tillöguna og því þurfti að endurtaka kosninguna.                       !                  "#$%     &'%   (  ! %  )%*+$ !   ,"'%   Reykhóla- hreppur felldi á ný sameiningu ÍBÚAR í Tjörneshreppi, Skútustaðahreppi og Aðaldælahreppi felldu afgerandi tillögu um sameiningu þessara sveitarfélaga við Húsavíkurbæ, Raufarhafnarhrepp og Öx- arfjarðarhrepp, en íbúar í Kelduneshreppi samþykktu tillöguna naumlega í sameining- arkosningum sem fram fóru á laugardag. Þessi fjögur sveitarfélög felldu samein- ingu í sameiningarkosningunum 8. október síðastliðinn og var kosningin endurtekin nú. Í Skútustaðahreppi voru 313 á kjörskrá og greiddu 197 atkvæði, eða tæp 63%. Já sögðu 57 en nei 138. Í Aðaldælahreppi voru 189 á kjörskrá og greiddu 132 atkvæði, eða tæp 70%. Já sögðu 27 en nei 105. Í Tjörnes- hreppi voru 53 á kjörskrá og greiddu 45 at- kvæði eða 85%. Já sögðu 17 og nei 27. Í Kelduneshreppi var 81 á kjörskrá og greiddu 65 atkvæði, eða 80%. Já sögðu 34 og nei 30. .          /   !   "# $ ,01,"%   (  ! %  )%#0&"1 %& '   ##$%  (   $'#%   ! '  '  ,#&%   )*   "1%   +   ,"2%   #    1#+%                3 af 4 sveit- arfélögum felldu samein- ingu í S-Þing. ÞRÍR voru fluttir á sjúkrahús til að- hlynningar eftir bílveltu á Suður- landsvegi skammt frá Bláfjalla- afleggjaranum laust fyrir miðnætti á laugardagskvöld. Meiðsl fólksins munu þó ekki hafa verið mikil. Aðdragandi óhappsins var sá, að bíl var ekið á miklum hraða austur Suðurlandsveg og lenti hann aftan á bílnum sem fór út af. Skömmu síðar velti tjónvaldurinn einnig sínum bíl. Er hann talinn hafa verið ofurölvi. Að sögn lögreglunnar í Kópavogi mun ofsaakstur hins ölvaða hafa staðið nokkuð lengi og hafi hann far- ið fram úr mörgum bílum áður en áreksturinn varð. Ölvaður maður olli tveim bílveltum RÁÐIST var á pítsusendil í Árbæj- arhverfi í fyrrinótt og hann barinn, auk þess sem skemmdir voru unnar á bílnum sem hann var á. Árás- armennirnir virðast hafa veist að sendlinum að tilefnislausu og er þeirra leitað. Þeir rændu þó ekki af honum verðmætum. Málið er í rannsókn hjá lögreglunni. Þá voru tveir menn handteknir vegna tveggja innbrota í borginni í fyrrinótt. Laust fyrir klukkan fimm í gær- morgun voru tveir 16 ára drengir handteknir vegna gruns um að hafa stolið bíl og ekið honum undir áhrifum áfengis. Á milli klukkan 7 og 10 í gær- morgun voru fjórir ökumenn teknir vegna gruns um ölvun í borginni. Ráðist á pítsusendil TVÖ fíkniefnamál komu til kasta lögreglunnar á Akureyri í fyrri- nótt. Í hvoru fyrir sig voru fjórir aðilar handteknir og hald lagt á lít- ils háttar magn af hassi og amfeta- míni. Eftir yfirheyrslur voru þeir látnir lausir og eru málin upplýst. Þá hafði lögreglan afskipti af sex líkamsárásarmálum í fyrrinótt. Tvö fíkni- efnamál upplýst

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.