Morgunblaðið - 07.11.2005, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. NÓVEMBER 2005 17
MENNING
Í TILEFNI 50 ára afmælis Þýsk-
íslenska vináttufélagsins í Köln
verður efnt til fjölbreyttrar ís-
lenskrar menningarhátíðar undir
heitinu „Íslandsmyndir“ í Köln,
18.–26. nóvember nk.
Þýsk-íslenska vináttufélagið í
Köln hefur um langt skeið staðið
að kynningu á landi og þjóð í
Þýskalandi. Ljósmyndasafnið Alf-
red-Ehrhard-Stiftung í Köln er
meðal frumkvöðla og að-
alskipuleggjenda hátíðarinnar en
Alfred Ehrhard var ljósmyndari
sem starfaði á Íslandi á fjórða ára-
tugnum og varð mikill Íslands-
vinur.
Geir H. Haarde utanrík-
isráðherra og Jürgen Rüttgers,
forsætisráðherra sambandslands-
ins Nordrhein Westfalen, eru
verndarar hátíðarinnar og mun ut-
anríkisráðherra opna „Íslands-
myndir“ 18. nóvember nk. Ráð-
herrann mun einnig ávarpa
hátíðarsamkomu Þýsk-íslenska
vináttufélagsins í Köln 19. nóv-
ember í tilefni af 50 ára afmæli fé-
lagsins.
„Íslandsmyndir“ er ein um-
fangsmesta íslenska menningar-
og listahátíð sem efnt hefur verið
til í Þýskalandi fram til þessa og
taka um 100 listamenn þátt í
henni, aðallega Íslendingar. Há-
tíðin nær til myndlistar, ljósmynd-
unar, kvikmynda, bókmennta, tón-
listar og hönnunar. Þungamiðja
„Íslandsmynda“ verður kynning á
íslenskri nútímalist á breiðum
grundvelli.
Auk Alfred-Ehrhard-Stiftung
standa margar þýskar menning-
arstofnanir að hátíðinni, m.a.
Cologne.Art.Temporary-safnið,
hönnunar- og nytjalistasafnið
Museum für Angewandte Kunst,
listasafnið Forum für Fotografie
und Kunst, Kvikmyndahúsið
Kölner Filmhaus, bókmennta-
stofnunin Literaturhaus Köln og
tónleika- og veitingahúsið Stadt-
garten. Jafnframt mun ein
stærsta útvarps- og sjónvarpsstöð
Þýskalands, West Deutscher
Rundfunk, auk nokkurra annarra
sjónvarps- og útvarpsstöðva, segja
frá öllum viðburðum hátíðarinnar.
Sýningarstjórar „Íslands-
mynda“ eru þýskir, Matthias
Wagner K., listfræðingur, Christ-
iane Stahl, forstöðukona ljós-
myndastofnunarinnar Alfred-
Ehrhard-Stiftung í Köln, og Dirk
Roul, tónlistarfræðingur. Þessir
aðilar tóku sér góðan tíma í að
kynna sér íslenskt listalíf og hittu
að máli fjölmarga aðila á Íslandi.
Þeir hafa unnið í náinni samvinnu
við sendiráð Íslands í Berlín og
ýmsar stofnanir og aðila á Íslandi.
Stefnt að kynningum
fram til ársins 2007
Margir af íslensku listamönn-
unum er þátt taka í hátíðinni verða
einnig kynntir víðar í Þýskalandi.
Stefnt er að kynningum allt fram
til ársins 2007, sem dæmi má
nefna að nokkrir myndlistarmann-
anna munu taka þátt í sýningum
annars staðar í Þýskalandi, hönn-
unarsýningin mun ferðast til
a.m.k. þriggja annarra borga í
Þýskalandi og nokkrir rithöfundar
munu lesa upp úr verkum sínum
víða í tengslum við hátíðina. Í
Þýskalandi hefur reynst góður
markaður að undanförnu fyrir ís-
lenskar bókmenntir og t.d. hefur
selst þar tæplega ein milljón ein-
taka af bókum Arnaldar Indr-
iðasonar.
Hátíðin „Íslandsmyndir“ er að-
allega kostuð af þýskum menning-
arstofnunum. Íslensk stjórnvöld
hafa einnig veitt henni styrk auk
íslenskra menningarstofnana og
fyrirtækja.
Hátíðir | Menningarhátíðin Íslandsmyndir haldin í Köln í mánuðinum
Um eitt hundrað listamenn
koma fram á hátíðinni
Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson
Mugison verður meðal þátttakenda í „Íslandsmyndum“.
www.islandfestival.de
EFTIRTALDIR listamenn taka þátt í hátíð-
inni „Íslandsmyndir“ í Köln:
Kvikmyndir
Róbert Douglas, Friðrik Þór Friðriksson,
Dagur Kári, Baltasar Kormákur.
Ljósmyndun
Alfred Ehrhardt, Magnús Ólafsson, Ragnar
Axelsson, Olaf Otto Becker.
Myndlist
Andreas M. Kaufmann, Anna Guðjónsdóttir,
Ásmundur Ásmundsson, Bernd Koberling,
Birgir Andrésson, Finnbogi Pétursson, Gabrí-
ela Kristín Friðriksdóttir, Guðmundur Ing-
ólfsson, Haraldur Jónsson, Sigurður Guð-
mundsson, Hrafnkell Sigurðsson,
Gjörningaklúbburinn, Inga Svala Þórsdóttir,
Jacob Kirkegaard, Katrín Elvarsdóttir, Magn-
ús Helgason, Ósk Vilhjálmsdóttir, Þorvaldur
Þorsteinsson.
Bókmenntir
Einar Kárason, Guðbergur Bergsson, Guð-
rún Eva Mínervudóttir, Hallgrímur Helgason,
Ingibjörg Haraldsdóttir, Jón Kalman Stef-
ánsson, Kristín Ómarsdóttir, Ólafur Gunn-
arsson, Ólafur Haukur Símonarson, Sig-
urbjörg Þrastardóttir, Sjón.
Tíska og hönnun
Aftur, Anna Þóra Karlsdóttir, Anna Guð-
mundsdóttir, Arndís Jóhannsdóttir, Ásta Vil-
helmína Guðmundsdóttir, Dóra Emilsdóttir,
Guðrún Gunnarsdóttir, Oddný Magnea Arn-
björnsdóttir, Óðinn Bolli Björgvinsson, Path of
Love (Ragna Fróðadóttir), Rósa Helgadóttir,
Saumagallerí JBJ, Spaksmannsspjarir, Stein-
unn Sigurðardóttir, Þorbjörg Valdimarsdóttir.
Tónlist
Apparat, Biogen, Claudio Puntin, Einar Örn
& Ghostigital, Frank Schulte, Gerður Gunn-
arsdóttir, GusGus, Heimir Björgúlfsson, Hilm-
ar Jensson, Jacob Kirkegaard, Jaki Liebezeit,
Jóhann Jóhannsson, Kippi Kaninus, Matthías
Hemstock, Mugison, Seria, Ozy, Skúli Sverr-
isson, Steintryggur, Stilluppsteypa, Thor DJ.
Þátttakendur
HAUST Íslenska dansflokksins
hófst á verki Jóhanns Freys Björg-
vinssonar, Wonderland. Jóhann
Freyr er afkastamikill danshöf-
undur. Hann hefur undanfarin ár
verið sjálfstætt starfandi og semur
nú dansverk í fyrsta sinn fyrir Ís-
lenska dansflokkinn. Glærir pla-
strenningar aðskildu áhorfendur frá
sviðinu. Dansararnir voru í húðlitum
sundbolum með stór gleraugu í lík-
ingu við þau sem notuð voru með
sólarlömpum sem ófáir Íslendingar
voru sendir í á seinni hluta síðustu
aldar. Sviðsmyndin samanstóð af
ljósastelli sem hékk neðarlega úr
loftinu og túnþökum á sviðinu.
Verkið fór rólega af stað undir sí-
endurteknu hátíðnihljóði. Dans-
ararnir framkvæmdu hraðar hreyf-
ingar og brutu þær upp með
skyndilegri stöðvun. Hreyfingarnar
voru athyglisverðar og nýjar frá
hendi höfundar. Þetta voru óform-
aðar og flæðandi hreyfingar. Nátt-
úrulegar er það sem kom upp í hug-
ann. Umgjörð dansverksins og
yfirbragð gaf til kynna tilfinn-
ingadeyfð og kulda. Kynlausir bún-
ingarnir, undarleg gleraugun og
tónlist án melódíu ýttu undir það.
Þegar hitna fór undir ljósunum og
þau roðnuðu fór verkið að taka
stefnu. Túnþökurnar sem farið var
með sem dýrasta djásn fengu hlut-
verk en þær voru í andstöðu við
kuldann í verkinu. Undraland býr
yfir óttablendinni sýn á ókomna
framtíð. Túnþökurnar voru tákn-
rænar fyrir náttúruauð, græn svæði,
sem í framtíðinni verða dýrmæt sem
demantar? Að öðru leyti var inni-
haldið óljóst og hefði innsýn í hug-
arheim höfundar verið vel þegin.
Dansflokkurinn býr nú sem aldrei
fyrr yfir sterkum karldönsurum.
Þeir Steve Lorenz, Brad John Syk-
es og Itamar Sahar fóru fremstir í
flokki. Danstæknin og hreyfigeta
þeirra var eftirminnileg. Einnig er
vert að minnast á Valgerði Rúnars-
dóttur sem hefur mikið eflst og þró-
að sinn hreyfistíl frá því hún hóf að
dansa með Íslenska dansflokknum.
Pocket Ocean
Pocket Ocean samdi Rui Horta
fyrst fyrir ÍD árið 2001. Verkið er
nú flutt á nýjan leik með öðrum
dönsurum. Dansverkið var hafið
þegar áhorfendur gengu í salinn að
undangengnu hléi. Straumharðri á
var varpað upp á tjald. Tveir dans-
arar slógust um orðið heaven í
míkrafón. Dansari hreyfði sig bak-
við tjald og á sviðinu var renningur
sem tákna átti á. Þung verksmiðju-
hljóð heyrðust og dansararnir fram-
kvæmdu stílhreinar hreyfingar
klæddir stuttbuxum og bol. Þeir
stukku flestir yfir ána og sá sem
gerði það ekki var skilinn eftir.
Tveir eins konar Bakkabræður fóru
í flækju yfir stúlku sem stóð hinum
megin við árbakkann og reyndu að
ná til stúlkunnar með tilheyrandi
klaufaskap. Pocket Ocean er að
mörgu leyti fallegt dansverk. Upp-
hafið, þar sem slegist var um míkra-
fóninn var þó þreytandi nú sem áður
og skært ljós undir tjaldinu skar
óþægilega í augu. Hreyfingarnar í
verkinu voru stílhreinar og fágaðar
en það var endirinn sem var eft-
irminnilegastur. Þar gáraði dansari
vatnið og á skjá fyrir ofan sást hann
og vatnið mynda fallega draum-
kennda heild undir hikandi; oh ah
heaven uh, I don’t know.
Critic’s Choice
Verk Peters Anderson byggist á
samtali gagnrýnanda við danshöf-
und. Höfundurinn situr heima í
stofu og svarar spurningum rýnisins
í beinni útsendingu á skjá. Rýnirinn
er með bjöllu sem hún þrýstir á, þá
stöðvast dansinn á sviðinu og verkið
er krufið með tilheyrandi spurn-
ingum. Sá hængur er hins vegar á
að höfundurinn á erfitt með að
staldra við og ræða verkið þar sem
barn hans er lasið og þarfnast at-
hygli. Þar af leiðandi verður sam-
talið nokkuð slitrótt að viðbættum
útsendingartruflunum. Dansararnir
dönsuðu undir tónlist Otis Redding,
tónlist sjöundaáratugs síðustu aldar.
Dansinn var í upphafi í stíl við tón-
listina, einfaldur, fönkaður og glað-
ur. Rýnirinn reynir milli dúetta og
hópdansa að ná sambandi við höf-
undinn og spyrja hann krefjandi
spurninga en höfundurinn sýnir
þeim lítinn áhuga. Á kafla var dans-
inn framsettur sem óáhugaverður,
pirraður eða eingöngu sætur sýn-
ingardans sem hafði ekkert að
segja. Hann varð öllu vandaðri í lag-
inu Try a little tenderness. Þar urðu
hreyfingarnar kómískar og það varð
endirinn á verkinu einnig. Critic’s
Choice er húmorískt dansverk eins
og reyndar fyrri verk höfundar. Það
var áhugavert að sjá hvernig hægt
var að gera dansinn að aukaatriði án
þess að rýra innihaldið. Gera dans-
inn að tæki, notað til að búa til dans-
verk um dansverk.
Dansverkin voru frumsýnd í
Kaupmannahöfn í lok síðasta mán-
aðar. Þau hafa því fengið pússun og
slípun og það skilaði sér á sýning-
unni. Danshöfundarnir fá mikilvægt
tækifæri til að semja fyrir atvinnu-
dansflokk og fara vel með það. Sýn-
ingin er í heild góð þótt ekkert
standi upp úr sem sé meira og betra
en gott.
Gott Haust
Morgunblaðið/ÞÖK
Úr verkinu Critic’s choice eftir Peter Anderson.
LISTDANS
Íslenski dansflokkurinn
í Borgarleikhúsinu
Haust
Wonderland eftir Jóhann Frey Björg-
vinsson. Tónlist: Davíð Þór Jónsson.
Sviðsmynd og búningar: Filippía Elísdótt-
ir og Jóhann Freyr Björgvinsson. Lýsing:
Jóhann Freyr Björgvinsson, Filippía El-
ísdóttir og Benedikt Aðelsson. Aðstoð
við höfund: Ólöf G. Söebech. Dansarar:
Brad John Sykes, Emelía Gísladóttir,
Guðmundur Elías Knudsen, Guðrún Ósk-
arsdóttir, Itamar Sahar, Hjördís Lilja Örn-
ólfsdóttir, Katrín Ingvadóttir, Lovísa Ósk
Gunnarsdóttir, Steve Lorenz og Valgerður
Rúnarsdóttir.
Pocket Ocean eftir Rui Horta. Tónlist
Yens og Yens, Andy Cowton, Death Ambi-
ent, Louis Andriessen. Búningar: Kathy
Brunner. Lýsing: Rui Horta, Elfar Bjarna-
son. Sviðsetning: Katrín Hall. Aðstoð:
Cameron Corbett. Dansarar: Emelía
Gísladóttir,Guðmundur Elías Knudsen,
Itamar Sahar, Hjördís Lilja Örnólfsdóttir,
Katrín Ingvadóttir, Lovísa Ósk Gunn-
arsdóttir, Peter Anderson, Steve Lorenz,
Valgerður Rúnarsdóttir.
Critic’s Choice eftir Peter Anderson. Tón-
list: Otis Redding. Búningar: Stefanía
Adolfsdóttir. Lýsing: Benedikt Aðelsson.
Dansarar: Guðmundur Elías Knudsen,
Hjördís Örnólfsdóttir, Itamar Sahar, Katr-
ín Ingvadóttir, Steve Lorenz, Valgerður
Rúnarsdóttir og Lovísa Ósk Gunn-
arsdóttir.
Lilja Ívarsdóttir