Morgunblaðið - 07.11.2005, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 07.11.2005, Blaðsíða 40
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MÁNUDAGUR 7. NÓVEMBER 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. Sími 568 6625 STARTARAR FYRIR BÁTA OG BÍLA UM 100 listamenn, aðallega Ís- lendingar, taka þátt í einni um- fangsmestu íslensku menningar- og listahátíð sem efnt hefur verið til í Þýskalandi fram til þessa í Köln síðar í þessum mánuði. Há- tíðin er haldin í tilefni 50 ára af- mælis Þýsk-íslenska vináttu- félagsins í Köln. Hátíðin, sem ber yfirskriftina „Íslandsmyndir“ nær til myndlistar, ljósmyndunar, kvikmynda, bókmennta, tónlistar og hönnunar. Þýsk-íslenska vináttufélagið í Köln hefur um langt skeið staðið að kynningu á landi og þjóð í Þýskalandi. Ljósmyndasafnið Alfred-Ehrhard-Stiftung í Köln er meðal frumkvöðla og aðalskipu- leggjenda hátíðarinnar en Alfred Ehrhard var ljósmyndari sem starfaði á Íslandi á fjórða áratugn- um og varð mikill Íslandsvinur. Geir H. Haarde utanríkisráð- herra og Jürgen Rüttgers, for- sætisráðherra sambandslandsins Nordrhein Westfalen, eru vernd- arar hátíðarinnar og mun utanrík- isráðherra opna „Íslandsmyndir“ 18. nóvember. Hann ávarpar hátíðarsamkomu Þýsk-íslenska vináttufélagsins degi síðar. Fjölmenn íslensk menningarhátíð í Köln  Um eitt hundrað | 17 FJÖLDI fólks lagði leið sína á Sólvang í Hafnarfirði á Sólvangsdeginum svonefnda sem haldinn var á laugardaginn, 5. nóvember. Var ýmislegt sér til gamans gert á deginum. ráðgjöf hjá sjúkraþjálfara svo nokkuð sé nefnt. Á myndinni spilar Þórður Marteinsson á harmonikkuna fyrir gesti Sólvangsdagsins. Myndlistarsýning á verkum Sigurbjörns Krist- inssonar var á 1. hæð og sölumarkaður á mun- um sem heimilisfólkið hafði unnið. Þá var boð- ið upp á vöfflukaffi, blóðþrýstingsmælingar og Morgunblaðið/Kristinn Gerðu sér glaðan dag á Sólvangsdeginum „PRÓFKJÖRIÐ er fyrsti áfangi okkar á leið til sigurs í vor,“ segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn. Vilhjálmur var í fyrsta sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins um helgina. Vilhjálmur hlaut 6.424 atkvæði í fyrsta sætið, eða 53,9% greiddra atkvæða, en Gísli Marteinn Baldursson hlaut 5.193 atkvæði, eða 43,6%. 12.453 tóku þátt eða rúm 59% þeirra sem voru á kjörskrá Hanna Birna Kristjánsdóttir fékk góða kosningu í annað sæti listans og hlaut flest atkvæði allra í prófkjörinu. Gísli Marteinn hafnaði í þriðja sæti, Kjartan Magnússon í því fjórða og Júlíus Vífill Ingvars- son í fimmta sæti. Þær fimm konur sem gáfu kost á sér komust allar í efstu tíu sætin. Alls tóku 12.453 þátt í prófkjör- inu eða 59,4% þeirra sem voru á kjörskrá og að sögn Kjartans Gunnarssonar, framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins, er um að ræða stærsta prófkjör sinnar tegundar sem haldið hefur verið hér á landi.  Miðopna „Fyrsti áfangi okkar á leið til sigurs í vor“ Morgunblaðið/Eggert Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson mætir glaður í bragði á kosningavöku sína sem haldin var á skemmtistaðnum Nasa í Reykjavík á laugardagskvöldið. HÚSNÆÐI í vesturbæ Kópavogs hækkaði um allt að 49% á þriðja árs- fjórðungi 2005 miðað við sama tíma í fyrra. Um er að ræða mestu hækkun húsnæðis á höfuðborgarsvæðinu á þessum tíma. Þetta kemur fram í samantekt Fasteignamats ríkisins um þróun íbúðaverðs í fjölbýli eftir borgarhlut- um frá fyrsta ársfjórðungi 2004 til þriðja ársfjórðungs 2005. Hækkunin á húsnæði í Garðabæ frá þriðja ársfjórðungi á árinu 2004 til þriðja ársfjórðungs 2005 er um 45%. Íbúðir á öðrum svæðum sem hækka ótvírætt umfram almennar hækkanir á höfuðborgarsvæðinu eru Hafnarfjörður, Laugarnes og Kópa- vogur sunnan Lækjar. Allt að 49% hækkun í vesturbæ Kópavogs  Fasteignir/40 ALLS hefur 52% aukning átt sér stað í fjölda tollafgreiðslu skipa á Austurlandi frá sama tíma og í fyrra og vegna vaxandi umsvifa og íbúa- fjölgunar á svæðinu hafa spurningar vaknað um skilvirkni tollgæslu í höfnum þar. Nú starfa tveir tollverðir á svæð- inu, einn hjá Sýslumannsembættinu á Eskifirði og annar á Seyðisfirði. Fram kemur í fréttaskýringu í blaðinu í dag að áhyggjur eru uppi af ónógri tollgæslu á svæðinu og hefur ítrekað verið reynt að fá annan toll- vörð til embættisins á Eskifirði því tvö stöðugildi tollvarða eru fyrir hendi. Ekki hefur tekist að manna stöðugildið þó auglýst hafi verið tvisvar eftir umsóknum. Allur helsti innflutningur er varðar álverið fyrir austan og byggingu Kárahnjúka- virkjunar fer um Reyðarfjarðarhöfn. Þá er ekki gert ráð fyrir fleiri toll- vörðum á Seyðisfirði en á tímabili voru þeir tveir. Áhyggjur eru af ónógri tollgæslu á Austurlandi  Tollgæslan | 8 ALLS varð 21% fækkun á samþykktum undanþágum fyrir leiðbeinendur í grunn- skólum milli síðustu skólaára. Kemur þetta fram í nýútkominni ársskýrslu undanþágu- nefndar grunnskóla fyrir skólaárið 2004– 2005 en nefndin metur umsóknir skóla- stjóra um heimild til að lausráða starfs- menn, sem ekki hafa leyfi mennta- málaráðherra til að nota starfsheitið grunn- skólakennari. Samkvæmt skýrslunni voru 527 undanþágur samþykktar skólaárið 2004–2005 en skólaárið 2003–2004 voru þær 667 sem er 21% fækkun milli ára. Menntunarstig leiðbeinenda fer hækk- andi ár frá ári. Fjölgaði undanþágum til leiðbeinendum sem hafa BA, BS, Fil kand, MA, Cand mag, Cand phil, Cand psyk og dr. án fullnægjandi menntunar í uppeldis- og kennslufræðum. Skólaárið 2003-2004 voru þessar undanþágur 19,8% allra samþykktra undanþága en skólaárið 2004-2005 voru þær 29,8%. Í þessum hópi eru einnig leikskóla- kennarar, þroskaþjálfar og iðjuþjálfar. Þó stendur nánast í stað sá fjöldi undanþága til leiðbeinenda sem hafa lokið námi til kennsluréttinda en mega ekki nota starfs- heitið grunnskólakennari. Færri undan- þágur fyrir leiðbeinendur Eftir Sigurhönnu Kristinsdóttur sigurhanna@mbl.is EIGENDUR að hænum af stofni landnámshænsna hafa áhyggjur af stofninum komi til þess að fuglaflensa berist hingað til lands og á aðalfundi félags þeirra sem haldinn var á laug- ardag var skorað á landbúnaðarráðu- neytið að ganga þegar til samstarfs við félagið til að verja stofninn. „Aðalfundur eigenda og ræktenda- félags landnámshænsna haldinn 5. nóv. 2005 hefur áhyggjur af gömlu erfðaefni landnámshænunnar sem gæti farið forgörðum ef H5N1 (fugla- flensa) smit berst til landsins. Aðalfundur ERL skorar á land- búnaðarráðuneytið og embætti yfir- dýralæknis að ganga strax til sam- starfs við stjórn félagsins til varnar stofninum“, segir í ályktun félagsins sem samþykkt var á aðalfundinum. Hafa áhyggjur af landnámshænunni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.