Morgunblaðið - 07.11.2005, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 07.11.2005, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. NÓVEMBER 2005 7 FRÉTTIR Harpa Sjöfn heitir nú Flügger litir Endurbættar verslanir • Gott vöruval • Tilboð • Skemmtileg getraun Málning og málarameistari! Þú getur unnið málningu og meistara til að mála fyrir þig að upphæð 200.000 krónur. 10 3 5 5 5 4 3 /0 5 Reykjavík: Stórhöfða 44 Sími 567 4400 Reykjavík: Skeifunni 4 Sími 568 7878 Reykjavík: Snorrabraut 56 Sími 561 6132 Kópavogur: Bæjarlind 6 Sími 544 4411 Hafnarfjörður: Dalshrauni 13 Sími 544 4414 Borgarnes: Sólbakka 8 Sími 430 5620 Akureyri: Austursíðu 2 Sími 461 3100 Hvolsvöllur: Hlíðarvegi 2-4 Sími 487 8413 Selfossi: Austurvegi 69 Sími 482 3767 Keflavík: Hafnargötu 90 Sími 421 4790 www.flugger.is ANNA Þóra Bragadóttir studdi ný- lega Krabbameinsfélag Íslands þegar hún afþakkaði afmælisgjafir en óskaði þess í stað að þeir fjár- munir sem annars hefðu farið í gjafir rynnu til Krabbameinsfélags- ins. Vill hún að þetta framlag verði notað til rannsókna á brjósta- krabbameini og vonar að sem flest- ir feti í fótspor hennar. Sérstakir söfnunarkassar Í tilkynningu frá Krabbameins- félaginu segir að það færist sífellt í vöxt að þeir sem eiga stórafmæli hafi samband við félagið þegar af- mælið nálgast og tilkynni að þeir óski eftir því að vinir og vanda- menn láti fé af hendi rakna til fé- lagsins í stað þess að keyptar séu gjafir. Undanfarna mánuði hafi slíkar gjafir numið á þriðja hundr- að þúsund krónum. Þá segir að vegna þess að félagið sé rekið að miklu leyti fyrir velvild almennings skipti framlag hvers og eins miklu máli. Félagið hefur látið gera sérstaka söfnunarkassa sem hægt er að hafa í afmælisveislunum til að safna í peningagjöfunum til Krabbameins- félagsins. Nánari upplýsingar um kassana er hægt að fá hjá skrifstofu félagsins í síma 540-1900. Margir vilja láta Krabbameinsfélag Íslands njóta gjafa á stórafmælum, líkt og Anna Þóra Bragadóttir gerði nýlega, skv. upplýsingum félagsins. Með henni á myndinni eru dætur hennar, Eygló Lilja og Sóley Lind. Afþakkaði gjafir og styrkti rannsóknir á krabbameini ÖLL tilboð í byggingu heilsugæslu- stöðvar á Skagaströnd reyndust yfir kostnaðaráætlun. Tilboðin eru nú til yfirferðar hjá Framkvæmdasýslu ríkisins. Heilsugæslustöðin verður 250 fer- metrar að stærð með 17 m² tengi- gangi sem tengir hana dvalarheimili aldraðra á sömu lóð, að því er fram kemur í Húnahorninu, fréttavef Húnvetninga. Í útboðinu var miðað við að húsið yrði fokhelt um áramót og að fullu byggt um miðjan maí á næsta ári. Trésmiðja Helga Gunnarssonar ehf. var með lægsta tilboðið sem hljóðaði upp á tæplega 51,5 milljónir kr., eða 110,7% af kostnaðaráætlun. Trésmiðjan Stígandi var með svipað tilboð en tilboð Kráks var nokkru hærra. Kostnaðaráætlun hljóðar upp á 46,5 milljónir. Öll tilboð yfir kostn- aðaráætlun SIGRÍÐUR Jónsdóttir hefur ákveð- ið að gefa kost á sér til embættis for- seta Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands á íþróttaþingi ÍSÍ sem haldið verður næsta vor. Sigríður hefur verið varaforseti ÍSÍ frá sameiningu Íþróttasambandsins og Ólympíu- nefndarinnar árið 1997. Hún sat áð- ur í stjórn ÍSÍ og var formaður bad- mintonsambandsins í 7 ár. Gefur kost á sér í kjöri forseta ÍSÍ FERMINGARBÖRN úr 57 sókn- um, í öllum landshlutum, munu í dag safna fé til verkefna Hjálp- arstarfs kirkjunnar í Afríku með því að ganga í hús og biðja um framlög. Þetta er í sjöunda sinn sem fermingarbörn safna fyrir Hjálp- arstarfi kirkjunnar í Afríku. Í fyrra söfnuðust 5,5 milljónir króna. Söfnunin er stór liður í fjár- öflun Hjálparstarfsins og gott tækifæri til að ná markvisst til ungmenna með fræðslu um hjálp- arstarf. Prestarnir hafa verið að fræða börnin um þá erfiðleika sem jafn- aldrar þeirra í fátækum löndum Afríku eiga við að etja og um ár- angur af verkefnum Hjálparstarfs kirkjunnar. Fermingarbörnin ganga hús úr húsi í dag milli kl. 17.30 og 21.00. Fermingar- börn ganga í hús STÆKKUN Listasafnsins á Akur- eyri var nýlega til umfjöllunar á fundi stjórnar Fasteigna Akureyrar- bæjar. Lagt var fram erindi frá Hannesi Sigurðssyni þar sem hann óskar eftir niðurstöðum í máli safns- ins sem fyrst. Menningarmálanefnd vísaði því til Fasteigna Akureyrar- bæjar á fundi sínum nýlega að láta gera þarfagreiningu og kostnaðar- mat á nauðsynlegum breytingum á núverandi og fyrirhuguðu húsnæði. Framkvæmdastjóra var falið að vinna að undirbúningi verksins og leggja tillögur fyrir næsta fund. Ræða stækkun Listasafns Akureyrar ♦♦♦ ♦♦♦ ♦♦♦ Fréttir á SMS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.