Morgunblaðið - 07.11.2005, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. NÓVEMBER 2005 9
FRÉTTIR
Mán. 7.11. Speltpizza
m/baunasalati
Þri. 8.11. Aloo-Saag spínatpottur
& buff
Mið. 9.11. Próteinbollur
m/chasewhnetusósu
Fim.10.11. Ratatouille
m/brokkolísalati
Fös. 11.11. Fyllt paprika
m/pastasalti
Helgin 12.11.-13.11.
Karrýkorma &
naanbrauð
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• Sími 581 2141
Sparikápur
með refaskinni
Kærar þakkir!
Ég vil þakka kjósendum í prófkjöri sjálfstæðismanna
fyrir það traust, sem þeir sýndu mér með því að
velja mig til þess að skipa 4. sæti Sjálfstæðisflokksins
í komandi borgarstjórnarkosningum. Um
leið vil ég nota tækifærið og þakka þeim
harðsnúna hópi stuðningsfólks míns,
sem lagði hendur á þennan plóg.
Baráttan er rétt að hefjast, því við tekur
kosningabaráttan um borgina. Ég veit að í henni
munu allir sjálfstæðismenn leggjast á eitt og með
fulltingi borgarbúa er okkur sigurinn vís í vor.
Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi.
ALMENNT séð er mjög áhrifamik-
ið að stjórna aðgengi og stýra notk-
un áfengis til að hafa áhrif á neyslu
þess. Er þá meðal annars átt við
lágmarksaldur kaupenda, ríkis-
einkasölu og takmarkaðan sölutíma
en allar þessar aðferðir eru víðfeðm-
ar, kostnaðarlitlar og skilvirkar.
Kom þetta fram í máli Robins
Rooms, prófessors við Háskólann í
Stokkhólmi, en hann hélt nýlega
fyrirlestur um aðgerðir og aðferðir í
áfengisvarnarmálum og opinbera
stefnumótun. Byggist fyrirlesturinn
á bókinni Alcohol: No Ordinary
Commodity – Research and Public
Policy (Áfengi: engin venjuleg
neysluvara – rannsóknir og opinber
stefnumótun) en Robin er einn af
höfundum þeirrar bókar. Í bókinni
er þess freistað að leggja vísinda-
legt mat á gagnsemi mismunandi
aðgerða sem gripið hefur verið til í
því skyni að koma í veg fyrir eða
draga úr skaða sem rakinn er til
áfengisneyslu, ekki síst með það í
huga að niðurstöðurnar komi þeim
að gagni sem eru að vinna að áfeng-
isstefnu.
Flestar aðgerðir gegn ölvunar-
akstri fengu einnig góða einkunn
fyrir árangur. Þessar aðferðir eru
ekki eingöngu vel staðfestar með
rannsóknum heldur virðast þær
gera gagn í flestum löndum en eru
jafnframt frekar einfaldar í fram-
kvæmd og auðvelt að viðhalda þeim.
Hins vegar er ekki hægt að búast
við miklum árangri af skólafræðslu
og upplýsingaherferðum um áfengi
eða gegn því. Þrátt fyrir að auðvelt
sé að ná til fjölda nemenda er ár-
angurinn lítill svo að þessi aðferð
svarar ekki kostnaði og skilar litlum
árangri.
11% sjúkdómstilfella í Evrópu
Talið er að neysla áfengis valdi
um 4% allra sjúkdómstilfella í heim-
inum og tæplega 11% sjúkdómstil-
fella í Evrópu. Árið 2002 létust um
600 þúsund Evrópubúar vegna
áfengisneyslu en þar af voru rúm-
lega 63 þúsund á aldrinum 15–29
ára. Búist er við að á árinu 2005
muni um 1,8 milljónir manna um all-
an heim látast vegna áfengistengdra
vandamála.
Unga fólkið áhyggjuefni
Anna Elísabet Ólafsdóttir, for-
stjóri Lýðheilsustöðvar, segir að að
mörgu leyti standi Ísland ágætlega
hvað áfengisstefnu varðar, en skatt-
ar á áfengi hafi þó ekki hækkað í
raun vegna verðbólgu, kaupmáttur
hafi vaxið mikið og því hafi verð á
áfengi í raun dregist saman. Segir
hún helsta áhyggjuefnið unga fólkið
og markmiðið sé að laga til drykkju-
mynstur þannig að minna verði um
fyllirí og að börn byrji seinna að
drekka.
Segir hún að þó neysla hafi
minnkað meðal 10. bekkinga þá eru
þeir sem drekka að drekka meira í
hvert skipti. Því sé að verða til
áhættuhópur og fylgjast þurfi vel
með þessari þróun.
Lýðheilsustöð hefur að tilefni
komu Robins til landsins gefið út
bæklinginn Áfengi – engin venjuleg
neysluvara en um er að ræða þýð-
ingu á úrdrætti bókarinnar sem
Robin byggði fyrirlestur sinn á.
Hægt er að nálgast bæklinginn í
heild sinni á vef Lýðheilsustöðvar,
www.lydheilsustod.is.
Robin Room prófessor fjallaði um áfengisvarnir og opinbera stefnumótun á ráðstefnu
Áhrifamikið
að stjórna
aðgengi
að áfengi
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Robin Room segir að flestar aðgerðir gegn ölvunarakstri hafi einnig fengið góða einkunn fyrir árangur.
Eftir Sigurhönnu Kristinsdóttur
sigurhanna@mbl.is
SPÁ 365 Nýmiðla um gengi Gísla
Marteins Baldurssonar í viðureign
hans við Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson í
prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík var ómarktæk vegna
skorts á hefðbundnum og viður-
kenndum aðferðum við gerð kannana
að mati Ólafs Þ. Harðarsonar prófess-
ors við HÍ. Spá 365 Nýmiðlunar gerði
ráð fyrir sigri Gísla Marteins en spurt
var hvorn svarendur vildu frekar sjá
sem næsta borgarstjóra.
Ólafur tekur fram að ekki hafi verið
tekið slembiúrtak í könnuninni heldur
stuðst við póstlista og því sé ekki
hægt að ganga út frá því að úrtakið
gefi rétta mynd af heildinni. Niður-
stöður 365 Nýmiðlunar spáðu Gísla
Marteini 52,6% fylgi en Vilhjálmi Þ.
47,4%. Niðurstaða úr prófkjörinu
sjálfu var þveröfug og vel ríflega það.
Ólafur segir einnig þann galla hafa
verið á könnun 365 Nýmiðlunar að
ekki hafi verið spurt meðal sjálfstæð-
ismanna sérstaklega heldur án tillits
til flokksstöðu. Ólafur telur langlík-
legast að niðurstaða 365 hafi verið
röng þar sem ekki hafi verið unnið á
grundvelli hefðbundinna og viður-
kenndra fræðilegra aðferða. Hann
segist þeirrar skoðunar að þegar fjöl-
miðlar ákveði að birta niðurstöður
kannana sem ekki byggjast á viður-
kenndum aðferðum, þá eigi að undir-
strika það mjög vandlega.
Ómarktæk könnun vegna
rangra vinnubragða
Mývatnssveit | Um helgina var
vinnuflokkur frá Arnarfelli að fjar-
lægja dælupramma Kísiliðjunnar,
bæði þann búnað sem þessu til-
heyrði og var geymdur á bakka Mý-
vatns og einnig búnaðinn sem áður
var notaður á miðlunarþrónni í
Kringlu. Arnarfell keypti allan
þennan búnað við lok verksmiðju-
starfseminnar en hafði ekki sótt
hann fyrr en nú.
Þarna var meðal annars um að
ræða tvo öfluga dælupramma með
rana og geta þeir grafið upp sand
eða leðju af nokkru dýpi. Konráð
Vilhjálmsson hjá Arnarfelli var
bjartsýnn á að fyrirtækið muni geta
notað þennan búnað við hvers kon-
ar efnisnám af vatnsbotni eða úr ár-
farvegum.
Það var ekki vandalaust að ná
þessum stóru og þungu prömmum
upp á flutningabíla og þá ekki síst
við þær aðstæður sem voru á at-
hafnasvæðinu; snjór, svell og hálka.
Verkið tókst þó farsællega og undir
kvöld héldu þeir Arnarfellsmenn
brott úr sveitinni með allt dótið á
þrem stórum dráttarvögnum og í
lögreglufylgd.
Morgunblaðið/BFH
Vanir menn að verki