Morgunblaðið - 07.11.2005, Side 20
7
%%!%.!5 % !
%,''"%
!" #"" $%&"'
!"&()
*)% %+,(-
.('( (+)#"" *#%#"" /+/(+)#"" 0 '
&"$1##"" 2(/32(
!" $1
$%
*# 4 /%
5/(1
3" 3"
!"
#!$%
&
!%"
!"
#
#
#
%
%
#
&
$"
&%
!&'
$
%
!
!"$
!!
'"
!
!
!
!
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti sjálfsborgarstjórn, mun leiða lista flokksins íarkosningunum í vor en hann hlaut 6.4253,9%, í fyrsta sætið í prófkjöri sjálfstæ
helgina.
Keppinautur Vilhjálms um fyrsta sæti listans, G
Baldursson, fékk 5.193 atkvæði eða 43,6% í fyrsta sæ
þriðja sæti listans.
Hanna Birna Kristjánsdóttir fékk afgerandi kos
sæti listans með 6.290 atkvæði. Hún hlaut einnig flest
prófkjörinu, eða 10.142 atkvæði í það heila. Júlíus Víf
sem einnig sóttist eftir öðru sætinu, fékk 2.924 atkvæð
og hafnaði í því fimmta í heildina.
Niðurstöður prófkjörsins eru bindandi gagnvart k
efstu níu sætin og samkvæmt prófkjörsreglum Sjálfs
er nefndinni skylt að gera tillögu til fulltrúaráðsfun
isfélaganna í Reykjavík um að framboðslistinn verði
niðurstöður prófkjörsins.
Stærsta prófkjörið til þessa
Alls tóku 12.453 þátt í prófkjörinu og var kosið
Reykjavík á laugardaginn en einnig var hægt að kj
föstudag.
Kjartan Gunnarsson, framkvæmdastjóri Sjálfs
segir að aldrei hafi fleiri tekið þátt í prófkjöri á Íslan
kvæmd prófkjörsins hafi tekist afar vel.
„Þetta fór glæsilega fram og það ber að þakka því f
stóð mjög myndarlega,“ segir Kjartan. Um 3.000 nýs
ust í Sjálfstæðisflokkinn í aðdraganda prófkjörsins.
Alls buðu 24 sig fram í prófkjörinu og hefur góður á
vakið athygli en þær fimm konur sem buðu fram voru
efstu í kjörinu. Eins og áður sagði hafnaði Hanna B
dóttir í öðru sæti, Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir í því
Frímannsdóttir í sjöunda, Sif Sigfúsdóttir í áttunda
Guðjónsdóttir í því tíunda.
Um 12.500 manns gr
Vilhj
fékk 5
Eftir Árna Helgason
arnihelgason@mbl.is
20 MÁNUDAGUR 7. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Hallgrímur B. Geirsson.
Styrmir Gunnarsson.
Framkvæmdastjóri:
Ritstjóri:
STOFNAÐ 1913
Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík.
Aðstoðarritstjórar:
Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen.
Fréttaritstjóri:
Björn Vignir Sigurpálsson.
STERKUR FRAMBOÐSLISTI
Það er augljóst að prófkjörSjálfstæðisflokksins vegnaborgarstjórnarkosninganna
í Reykjavík næsta vor hefur leitt til
þess að flokkurinn býður fram
sterkari framboðslista í þeim kosn-
ingum, en hann hefur gert um ára-
bil. Það er jafnvægi á milli kynja í
tíu efstu sætum. Það er jafnvægi á
milli manna með mikla reynslu af
borgarmálum og nýrrar kynslóðar.
Það er jafnvægi á milli yngra fólks
og eldra. Það er óvenjulegt að próf-
kjör leiði til svo heppilegrar niður-
stöðu fyrir stjórnmálaflokk.
Prófkjörið, sem fram fór vegna
alþingiskosninganna 2003 á vegum
Sjálfstæðisflokksins, virtist leiða í
ljós umtalsverðan veikleika meðal
kvenna, sem augljóslega áttu erfitt
með að ná tökum á prófkjörsbarátt-
unni. Því er ekki að heilsa nú. Ár-
angur kvenna í þessu prófkjöri er
glæsilegur og augljóst að þar eru á
ferð mjög sterkir frambjóðendur
fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Væntan-
lega er þetta prófkjör vísbending
um að konur muni ná meiri árangri í
prófkjörkjöri vegna alþingiskosn-
inganna næstu.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, sem
mun leiða kosningabaráttu Sjálf-
stæðisflokksins í vor, býr yfir meiri
reynslu en flestir ef ekki allir
fulltrúar sem sitja í borgarstjórn
nú. Hann á að baki langan feril í
borgarstjórnarmálum og hefur
áunnið sér það orð meðal borgarbúa
að til hans sé gott að leita. Frá því
Vilhjálmur tók við forystu núver-
andi borgarstjórnarflokks Sjálf-
stæðismanna hefur hann lagt
áherzlu á miðjupólitík. Morgun-
blaðið hefur áður lýst þeirri skoðun,
að eigi Sjálfstæðisflokkurinn að
eiga möguleika á að endurheimta
meirihluta sinn í borgarstjórn
Reykjavíkur hljóti flokkurinn að
leita til kjósenda á miðjunni. Undir
forystu Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar
er tryggt að svo verði.
Gísli Marteinn Baldursson, sem
sóttist eftir að skipa fyrsta sæti
framboðslistans, er fulltrúi nýrrar
kynslóðar í íslenzkum stjórnmálum
og á áreiðanlega eftir að láta að sér
kveða á vettvangi stjórnmálanna
næstu árin, þótt hann hafi ekki náð
þeim árangri nú, sem hann stefndi
að.
Hanna Birna Kristjánsdóttir,
sem á næsta kjörtímabili mun verða
einn af helztu leiðtogum Sjálfstæð-
isflokksins í borgarstjórn, er
fulltrúi ungra kvenna, sem gera
kröfu til meiri áhrifa innan Sjálf-
stæðisflokksins og hefur verið tals-
maður þeirra sjónarmiða, að á öll-
um sviðum þjónustu við íbúa á
vettvangi sveitarstjórna eigi fólk að
eiga val en verði ekki bara að taka
við því sem að því er rétt. Telja má
víst að þar séu á ferðinni hugmynd-
ir, sem eiga eftir að breiðast út.
Þegar á heildina er litið hljóta
sjálfstæðismenn því að vera ánægð-
ir með niðurstöðu prófkjörsins.
Þeir stilla nú upp framboðslista,
sem hefur meiri möguleika á sigri
en þeir hafa haft árum saman.
Sundrung milli fyrrum liðsmanna
Reykjavíkurlistans mun auðvelda
Sjálfstæðismönnum þetta ætlunar-
verk.
PRÓFKJÖR OG KOSTNAÐUR
Í Morgunblaðinu á laugardaginnkom fram, að áætlaður kostn-
aður helztu frambjóðenda í próf-
kjöri sjálfstæðismanna gæti orðið
allt að 10 milljónir króna. Þessar
tölur sýna, að kostnaður við próf-
kjör er kominn úr böndum.
Það er augljóst, að frambjóð-
endur ná ekki að safna svona upp-
hæðum með litlum framlögum frá
einstaklingum. Þeir hljóta að leita
til fyrirtækja um fjárhagslegan
stuðning. Og öllum er ljóst að þá
getur verið hætta á ferðum.
Það er tímabært að stjórnmála-
flokkarnir taki upp viðræður sín í
milli um þennan vanda. Prófkjör í
öllum flokkum eru komin í öng-
stræti. Það má reyndar segja um
fleiri tegundir kosninga eins og
vel kom í ljós í formannskjörinu í
Samfylkingunni sl. vor, sem aug-
ljóslega kostaði báða frambjóð-
endur umtalsvert fé.
Lýðræðið á Íslandi er í hættu,
ef úrslit kosninga fara eftir því
hver hefur mesta fjármuni handa
í milli. Í Bandaríkjunum er opið
talað um það, að tiltekinn forseta-
frambjóðandi hafi forskot fram
yfir annan hafi hann náð að safna
meiri peningum en andstæðingur
hans. Við viljum ekki að stjórn-
málabaráttan hér þróist í þann
farveg.
Hún er bersýnilega ekki komin
á það stig ef marka má þær tölur,
sem Morgunblaðið fékk uppgefn-
ar hjá kosningaskrifstofum Vil-
hjálms Þ. Vilhjálmssonar og Gísla
Marteins Baldurssonar fyrir
helgi, þar sem hinn síðarnefndi
gerði ráð fyrir að verja umtals-
vert meiri fjármunum en sá fyrr-
nefndi, sem vann prófkjörið. En
hættumerkin eru augljós.
Þetta er hins vegar ekki einfalt
mál. Ef frambjóðendum í próf-
kjöri verður bannað t.d. að taka
við fjárframlögum frá fyrirtækj-
um gæti stjórnmálabaráttan
þróast á þann veg, að einungis
þeir, sem hafa sjálfstæð efni á að
fara í framboð gefi kost á sér til
þátttöku í stjórnmálum og ekki er
það betri kostur.
Þess vegna þarf að ræða þenn-
an þátt prófkjöranna vandlega og
komast að skynsamlegri niður-
stöðu í þágu lýðræðisins. Það er
áreiðanlega vilji allra, sem þátt
taka í stjórnmálum að koma í veg
fyrir að peningarnir ráði ferð í
kosningum á Íslandi.
„MÉR er efst í huga mikið
þakklæti fyrir þann stuðn-
ing og það traust sem þátt-
takendur í prófkjörinu
sýndu mér og vil nota tæki-
færið og fá að þakka öllum
þeim fjölda stuðningsmanna
sem gerðu þennan árangur
að veruleika,“ segir Vil-
hjálmur Þ. Vilhjálmsson,
oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn,
þegar Morgunblaðið innti hann eftir við-
brögðum við niðurstöðu prófkjörsins.
„Það er ljóst að kjósendur hafa ákveðið að
stilla upp sigursælum lista, þar sem er gott
jafnvægi kynjanna, reynsla og þekking á borg-
armálunum og góð skipting milli aldurshópa,
þannig að listinn höfðar til allra aldurshópa,“
segir Vilhjálmur.
Þegar hann var inntur eftir því hvort slag-
urinn um leiðtogasætið milli hans og Gísla
Marteins muni hafa áhrif á starfið fram undan
segir Vilhjálmur að svo sé ekki. Núverandi
borgarstjórnarflokkur hafi verið mjög sam-
hentur í sínum störfum og niðurstaða próf-
kjörsins breytir engu þar um.
„Átta af þeim tíu sem fara á listann eru nú-
verandi borgarfulltrúar eða varaborg-
arfulltrúar fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Það er
ekkert sem bendir til annars en að það góða
starf sem við höfum unnið að undanförnu haldi
áfram,“ sagði Vilhjálmur sem er bjartsýnn á
framhaldið.
„Þessi glæsilega þátttaka í prófkjörinu og
endurteknar skoðanakannanir sem sýna mik-
inn stuðning við Sjálfstæðisflokkinn í Reykja-
vík er okkur sjálfstæðismönnum gott vega-
nesti og sýna um leið þann mikla styrk og
stuðning sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur hjá
borgarbúum. Prófkjörið er fyrsti áfangi okkar
á leið til sigurs í vor, sem er næsti áfangi,“ seg-
ir Vilhjálmur.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
Sýnir hve sterkt
stjórnmálaafl Sjálf-
stæðisflokkurinn er
„ÉG ER mjög ánægð með
þetta og kom mér í raun dá-
lítið á óvart,“ segir Sif Sig-
fúsdóttir sem lenti í áttunda
sæti í prófkjörinu og skipar
því að öllum líkindum bar-
áttusæti Sjálfstæðisflokks-
ins í kosningunum í vor.
Hún segist ekki hafa rekið
kostnaðarsama baráttu en
fengið vini og vandamenn til að hringja og
reynt að notast við netið í baráttunni og því
hafi úrslitin komið henni nokkuð á óvart. „Það
verður gaman að starfa með þessu fólki og ég
er mjög tilbúin í það,“ segir Sif.
Spurð um hvort það breyti einhverju fyrir
hana að lenda í baráttusætinu, segir hún að
það hafi vakið hjá sér blendnar tilfinningar en
sé mjög spennandi verkefni og ljóst að um
verði að ræða baráttu fram á vor. Sif segir það
ánægjulegt að kynjahlutföll á listanum séu jöfn
og að það hafi náðst án þess að notast sé við
fléttulista eða kvóta eða annað slíkt.
Kom dálítið á óvart
Sif Sigfúsdóttir
JÚLÍUS Vífill Ingvarsson,
lögmaður, segir að aðal-
atriðið varðandi prófkjör
helgarinnar sé sá öflugi
listi sem til varð og segist
hann fullviss að þetta verði
sigurlisti Sjálfstæðisflokks-
ins í maí.
Júlíus sóttist eftir öðru
sæti í prófkjörinu en hafn-
aði í því fimmta og mun hann taka það sæti.
Júlíus segir aldrei annað hafa komið til
greina en að taka því sæti sem hann fengi í
prófkjörinu, þótt það yrði neðar á listanum
en annað sætið.
„Prófkjörsreglurnar eru eins og menn
þekkja og geta leitt til þess að menn færist
til og frá. Af þeim sem tóku þátt í prófkjör-
inu voru einungis tveir sem fengu það sæti
sem þeir óskuðu eftir. Aðrir verða auðvitað
að sæta því að fara í þau sæti sem þeir eru
valdir á listanum. Þetta er lýðræðislegt
kjör.“
Spurður hvort slagurinn um efsta sætið
muni hafa áhrif á starfið framundan segist
hann ekki eiga von á því. Prófkjörum fylgi
þó hætta á að slagur manna á milli skilji eft-
ir sig ör. „En það er sem betur fer reynsla
manna að frambjóðendur ná sáttum og
vinna saman eftir prófkjör.“
Júlíus Vífill Ingvarsson
Öflugur listi
aðalatriði
„ÉG ER afar ánægð
og þakklát því fólki
sem studdi mig,
bæði þeim sem
unnu fyrir mig og
þeim sem kusu
mig,“ segir Hanna
Birna Kristjáns-
dóttir, sem hafnaði í
öðru sæti í prófkjör-
inu og fékk flest atkvæði allra fram-
bjóðenda. Hún segist hafa góða til-
finningu fyrir listanum úr kjörinu og
að hann eigi góðar sigurlíkur í vor.
Aðspurð hvort hún hafi óttast að
slagurinn um fyrsta sætið myndi
valda því að hún færðist neðar á
listann, segist Hanna aldrei hafa litið
svo á að hún væri örugg með eitt-
hvert ákveðið sæti.
„Ég fann alltaf að ég fékk góðar
undirtektir en ég var ekki örugg með
eitt né neitt og er því mjög sátt við
þetta,“ segir hún.
Konur fengu góða kosningu í próf-
kjörinu og spurð um ástæður þess
„Er afar ánægð“
Hanna Birna Kristjánsdóttir
BOLLI
dallar, h
kjörinu
eins 24
fulltrúin
efstu sæ
segist v
urstöðu
Stór
Bolli T
segir Ha
ar konu
góðu ko
„Ég h
að eiga
í talsver
sýndi nú
kosning
þetta sý
hafi söm
isflokkn
Birna.
Hún k
að hópu
kringum
„Ég held
ganga v