Morgunblaðið - 07.11.2005, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. NÓVEMBER 2005 31
DAGBÓK
FASTEIGNASALAN
GIMLI GRENSÁSVEGI 13, SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810
Traust þjónusta í 20 ár
LÓÐIR ÓSKAST TIL KAUPS
Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU
Hef sérhæft mig í sölu á lóðum og öðru tengdu
byggingarrétti. Til mín hafa leitað aðilar sem hafa
áhuga á kaupa nýbyggingarlóðir/byggingarétt
ásamt atvinnuhúsnæði. Hef einnig til sölu gistihús í
fullum rekstri á höfuðborgarsvæðinu.
Ég óska einnig eftir eignum með byggingarrétti/nið-
urrifs. Áhugasamir vinsamlega hafið samband og
ég mun fúslega veita nánari upplýsingar.
Hákon Svavarsson, lögg.
fasteignasali, sími 898 9396.
Árni Stefánsson viðskiptafræðingur
og lögg. fasteignasali
www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli
Ný úttekt á mötuneytum grunnskólaReykjavíkur verður kynnt á fundisem SAMFOK – samband foreldra-félaga og foreldraráða í grunnskólum
Reykjavíkur, stendur fyrir næstkomandi laug-
ardag. Að sögn framkvæmdastjóra SAMFOKS
eru mötuneyti grunnskóla Reykjavíkur með
stærstu seljendum tilbúins matar á landinu.
Það var Valgerður Hildibrandsdóttir mat-
arfræðingur og næringarráðgjafi sem hafði um-
sjón með úttektinni og á fundinum á laugardag
mun hún kynna niðurstöður hennar. Að sögn
Bergþóru Valsdóttur, framkvæmdastjóra SAM-
FOKS, náði könnunin til svokallaðra fram-
leiðslueldhúsa. Hún segir úttektina hafa leitt ým-
islegt forvitnilegt í ljós. „Það var mjög framsækið
af menntaráði að ráðast í þessa úttekt. Í henni er
leitast við að kanna hvernig starfsemi mötuneyt-
anna er háttað og hvort maturinn sem þar er til-
reiddur uppfyllir staðla og ráðleggingar um
manneldismarkmið sem Lýðheilsustöð hefur
kynnt. Það verður að segjast eins og er að það er
kannski svolítið misjafnt hversu vel það gengur.
Sömuleiðis var í úttektinni spurt um ýmislegt
sem lýtur að innra eftirliti, hvernig t.d. er staðið
að hreinlæti, geymslu matvæla og svo fram-
vegis.“
Hún segir úttektina hafa gefið góða mynd af
starfsemi mötuneytanna. „Á mörgum stöðum er
þetta algerlega til fyrirmyndar. Krakkarnir fá
góðan mat, starfsfólkið leggur sig mikið fram.
Eins er vel staðið að matartímanum sjálfum þar
sem kennarar sitja með börnunum svo matartím-
inn verði róleg og góð stund. Annars staðar er
það ekki gert og þá getur ríkt hálfgert stríðs-
ástand. Yfirleitt leggur fólk sig þó allt fram þann-
ig að við getum verið nokkuð sátt. Hins vegar er
alltaf hægt að gera betur og að okkar mati er
ýmislegt í þessari skýrslu sem kallar á ákveðin
viðbrögð.“
Á fundinum mun Anna Kristín Sigurðardóttir,
skrifstofustjóri grunnskólaskrifstofu mennta-
sviðs Reykjavíkurborgar, greina frá því með
hvaða hætti borgaryfirvöld munu bregðast við
úttektinni auk þess sem Gunnar Kristinsson frá
umhverfissviði Reykjavíkurborgar verður með
innlegg á fundinum. „Hann ætlar að segja frá því
í hverju eftirlit þeirra með mötuneytunum felst.
Nú eru mötuneytin í Grunnskólum Reykjavíkur
að verða einn stærsti seljandi tilbúins matar á
öllu landinu og því ríður á að þetta eftirlit sé gott
og skilvirkt.“
Fundurinn verður haldinn í nýja salnum í
Langholtsskóla laugardaginn 12. nóvember og
stendur frá klukkan 9:30 til 12:30. Allir foreldrar
í Reykjavík eru velkomnir og er aðgangur ókeyp-
is.
Skólamál | Úttekt á mötuneytum grunnskóla Reykjavíkur kynnt á fundi
Alltaf hægt að gera betur
Bergþóra Valsdóttir
er fædd í Reykjavík 11.
september 1958. Hún
varð stúdent frá MS
1978 og stundaði nám í
landafræði, þjóðhag-
fræði og stjórnmála-
fræði við Óslóarháskóla
1982–86. Hún var ritari
á Rala 1978–81, vann
síðan á leikskóla, í
grunnskóla og á skóla-
dagheimili í Noregi 1986–91. Bergþóra hefur
starfað sem framkvæmdastjóri SAMFOK frá
árinu 1998 og verið áheyrnarfulltrúi í Mennta-
ráði Reykjavíkurborgar frá árinu 2002. Hún
er gift og á fjögur börn.
HM í Portúgal.
Norður
♠DG54
♥10763 V/NS
♦–
♣G9763
Vestur Austur
♠10973 ♠ÁK862
♥ÁDG9 ♥K542
♦K75 ♦D102
♣54 ♣2
Suður
♠–
♥8
♦ÁG98643
♣ÁKD108
Bandaríkjamenn unnu Bermúda-
skálina 2003 með því að sigra Ítali
með einu stigi í 128 spila úrslitaleik.
Sömu menn mættust aftur í síðustu
umferð raðkeppninnar í Estoril:
Vestur Norður Austur Suður
Rodwell Lauria Meckstorth Versace
1 tígull Pass 2 spaðar *3 tíglar
4 spaðar Pass Pass 5 lauf
Dobl Pass Pass Pass
Eftir létta Precision-opnun Rod-
wells á tígli sýnir stökk Meckstroths í
tvo spaða 5-4 í spaða og hjarta. Vers-
ace fer með löndum og meldar tígul-
inn á þriðja þrepi og svo fimm lauf við
fjórum spöðum, sem Rodwell doblar.
Eins og sést, eru tólf slagir á borð-
inu með því að trompa tígulinn frían
og Ítalir skráðu 1.150 í plúsdálkinn
fyrir yfirslag í fimm laufum dobluð-
um.
En það var ekki nærri því nóg, því
á hinu borðinu gerðist þetta:
Vestur Norður Austur Suður
Bocchi Soloway Duboi Hamman
Pass Pass 1 spaði 2 grönd *
3 lauf * 4 lauf 4 hjörtu 5 lauf
5 spaðar Dobl Pass 6 lauf
Dobl Pass Pass Pass
Bocchi sá ekki ástæðu til að vekja á
vesturspilin og því opnaði Duboin á
spaða í þriðju hendi. Hamman gat þá
komið láglitunum í spilið með einni
sögn. Þegar Soloway studdi laufið var
Hamman ákveðinn í að segja slemmu,
en til að kaupa sögnina örugglega (og
helst doblaða) sagði hann fimm lauf
„til að byrja með“. Bocchi reyndi
fimm spaða og Hamman tók út úr
dobli makkers í sex lauf.
Slemman vannst auðvitað og það
gaf NS 1.740 og Bandaríkjamönnum
11 stig.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
1. d4 f5 2. Rc3 d5 3. Bf4 c6 4. e3 Rf6 5.
Bd3 g6 6. Rf3 Bg7 7. Re2 Be6 8. O-O
Rbd7 9. b3 O-O 10. c4 Kh8 11. h3 Bg8
12. Dc2 De8 13. Bh2 h6 14. Hac1 Hc8
15. Re5 Rxe5 16. Bxe5 Rd7 17. Bxg7+
Kxg7 18. Db2 e5 19. cxd5 Bxd5 20. Bc4
Bf7 21. dxe5 Dxe5 22. Da3 a5 23. Hfd1
Rf6 24. Rd4 Hfd8
Staðan kom upp í fyrri hluta Íslands-
móts skákfélaga sem lauk fyrir
skömmu í Menntaskólanum í Hamra-
hlíð. Tiger Hillarp-Persson (2533)
hafði hvítt gegn Guðmundi Halldórs-
syni (2267). 25. Re6+! og svartur gafst
upp enda taflið gleðisnautt eftir
25...Bxe6 26. De7+.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.
Mokstri gangstétta
ábótavant
NÚ er snjórinn kominn og byrjað að
skafa götur en ekki gangstéttir, en
það er borgarstjórnin sem ber
ábyrgð á snjómokstri.
Ég ætlaði í Kringluna í morgun og
er með göngugrind til að kaupa inn
til dagsins. Ég komst út í Suðurver
með því að bera göngugrindina
mestan part af Hamrahlíð. Það er
mokað fyrir bíla en ekki gangandi,
það má bíða þar til seinna um dag-
inn.
Það er ein setning fyrir þá sem
moka: Þeir kunna ekki að moka. Það
ætti að senda þessa menn til Norð-
urlandanna til að læra að moka snjó.
Það er hörmulegt að sjá gamalt fólk
vera að paufast yfir snjóhrúgurnar.
Þetta sjá ekki ráðamenn því þeir eru
allir á bílum. Það líður að kosningum
og væri gott að sjá hverju lofað verð-
ur.
Viðbót: Ég fór í innkaup í Bónus í
Kringlunni og hélt að búið væri að
moka eyjarnar á milli gatna en það
var aldeilis ekki og ég mátti bera
göngugrindina yfir eyjarnar með
vörunum í.
Einn með göngugrind.
Sammála aðdáanda Mosaik
ÉG er hjartanlega sammála aðdá-
anda Mosaik-þáttanna sem skrifar í
Velvakanda í sl. fimmtudag. Ég skil
ekkert í þeim sem þessu ráða að
taka Mosaik út af dagskránni. Þetta
var frábær þáttur í umsjón Jónatans
Garðarssonar.
Þyri.
Össur segir
ÉG óska ríkisútvarpinu innilega til
hamingju með nýja fréttaskýringar-
þáttinn Össur segir. Þar er hóg-
værðin í öndvegi.
Þórir Óskarsson.
Bolli er týndur
BOLLI er hvítur og
svartur norskur
skógarköttur, mann-
elskur og kátur.
Hann er ómerktur.
Bolli á það til að
klifra upp í tré og yfir
á húsþök og þorir svo
ekki niður. Hann týndist frá Veg-
húsastíg 9 sunnudaginn 30. okt. Þeir
sem hafa orðið hans varir hafi sam-
band í síma 551 8356 og 699 8356.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Félagsstarf
Árskógar 4 | Bað kl. 8–16. Handa-
vinna kl. 9–16.30. Smíði/útskurður kl.
9–16.30. Söngstund kl. 10.30. Félags-
vist kl. 13.30. Myndlist kl. 16.
Bólstaðarhlíð 43 | Fótaaðgerð, al-
menn handavinna, bútasaumur, sam-
verustund.
Félag eldri borgara í Kópavogi |
Skrifstofan er opin í dag kl. 10–11.30.
Félagsvist spiluð í kvöld kl 20.30 í
Gullsmára.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Brids kl. 13. Kaffitár með ívafi kl.
13.30. Línudanskennsla kl. 18. Sam-
kvæmisdans framh. kl.19 og byrj-
endur kl. 20. Fræðslunefnd FEB held-
ur annan fund sinn í fundarröð um
málefni aldraðra föstud. 11. nóv. nk. kl.
15 í Stangarhyl 4. Ásta Möller mætir
fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Félagsmenn
fjölmennið.
Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 |
Gullsmárabrids. Bridsdeild FEBK í
Gullsmára spilar alla mánu- og
fimmtudaga. Skráning kl. 12.45 á há-
degi. Spil hefst kl. 13. Kaffi og með-
læti fáanlegt í spilahléi.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ |
Kvennaleikfimi kl. 9.15, 10.05 og 11,
bókband kl. 10, glerskurður og postu-
línsmálun kl. 13 í Kirkjuhvoli. Spænska
kl. 10.15 í Garðabergi og opið í Garða-
bergi kl. 12.30–16.30. Tölvur í Garða-
skóla kl. 17.
Hraunbær 105 | Kl. 9 perlusaumur,
almenn handavinna, kaffi, spjall, dag-
blöðin. Kl. 10 fótaaðgerð, bænastund.
Kl. 12 hádegismatur. Kl. 13.30 skraut-
skrift. Kl. 15 kaffi.
Hvassaleiti 56–58 | Opin vinnustofa
hjá Sigrúnu kl. 9–16. Kl. 9 og kl. 10
jógatímar. Kl. 13–16 frjáls spila-
mennska. Hádegisverður. Fótaað-
gerðir sími 588 2320. Dagblöð liggja
frammi til aflestrar.
Hæðargarður 31 | Félagsstarfið er
öllum opið. Fastir liðir eins og venju-
lega. Skráning á Halldór í Hollywood
og Vínarhljómleikana 6. nóv. Gestur
kl. 10 árdegis þriðjudag 8. des. Þór
Túliníus leikari kynnir leiksýninguna
Manntafl. Tungubrjótar alla mánu-
daga kl. 13.30. Síminn er: 588 9533.
Korpúlfar, Grafarvogi | Sundleikfimi í
Grafarvogslaug á morgun kl. 9.30.
Laugardalshópurinn í Laugardals-
höll | Leikfimi í dag kl. 12.10.
Norðurbrún 1, | Kl. 9 smíði, kl. 9–
16.30 opin vinnustofa, kl. 11.30 upp-
lestur, kl. 13–16.30 opin vinnustofa.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla
og fótaaðgerðir. Kl. 9.15–15.30
handavinna. Kl. 9–10 boccia. Kl. 11–12
leikfimi. Kl. 11.45–12.45 hádegisverð-
ur. Kl. 13–16 kóræfing. Kl. 13.30–14.30
leshópur. Kl. 14.30–15.45 kaffiveiting-
ar.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl.
9–12.30, bókband kl. 9–13, hár-
greiðsla kl. 9–16, morgunstund kl. 9–
10, boccia og fótaaðgerðir kl. 10,
handmennt almenn kl. 13–16.30, gler-
bræðsla kl. 13–17, frjáls spilamennska
kl. 13.
Kirkjustarf
Árbæjarkirkja | 7–9 ára starf í Norð-
lingaholtsskóla kl. 15. Söngur, sögur,
helgistund og leikir. Helgi og fyrir-
bænastund í Hraunbæ 105 kl. 10–
10.30. Umsjón sr. Þór Hauksson og
Krisztina Kallo Szklenár orgnisti.
Kvenfélag Árbæjarkirkju | Fundur
Kvenfélagsins mánudaginn 7. nóv. kl.
20. Gestur fundarins Gunnbjörg Óla-
dóttir, guðfræðingur, fjallar um „Við-
horfsmeðferð.“ Konur eru hvattar til
að koma og eiga uppbyggjandi stund
í góðum félagsskap.
Háteigskirkja | Starf eldri borgara.
Félagsvist kl. 13. Kaffi, söngur og upp-
lestur.
Hjallakirkja | Æskulýðsfélag fyrir 8.
bekk er með fundi á mánudögum kl.
20–21.30.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Alfa 2
kl. 19–22. www.gospel.is www.alfa.is.
Laugarneskirkja | Kl. 18–20 Ferming-
arbörn ganga í hús í hverfinu og
safna fyrir Hjálparstarf kirkjunnar.
Takið vel á móti þeim! Kl. 20 Kven-
félag Laugarneskirkju heldur sinn
mánaðarlega fund. Allar konur hjart-
anlega velkomnar.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
ÍSLENSKAR bókmenntir og tónlist
verða í aðalhlutverki á Norður-
bryggju (Nordatlantensbrygge),
norrænu menningarmiðstöðinni í
Kaupmannahöfn, á þriðjudag. Einar
Kárason rithöf-
undur og hljóm-
sveitin Park Proj-
ect standa þar
fyrir upplestrar-
og tónlistar-
dagskrá sem
hefst kl. 20. Park
Project er skipuð
þeim Pálma
Gunnarssyni,
Kristjáni Edel-
stein, Agnari Má Magnússyni og
Gunnlaugi Briem.
Norðurbryggja er til húsa við
Strandgötu 91. Aðgangseyrir að við-
burðinum er kr.100 danskar.
Eftir viðburðinn á Norðurbryggju
halda Einar og Park Project til
bókasafnsins í Horsens á miðviku-
dag og í Flensborghus á laugardag.
Einnig verður málverkasýning ís-
lenskra listamanna í Danska aðal-
bókasafninu.
Danskir gestir til Íslands
Menningardagskráin er sam-
starfsverkefni Norrænu upplýs-
ingaskrifstofanna í Flensborg og á
Akureyri en í mars munu danskir
gestir sækja íslendinga heim með
menningarviðburði af svipuðum
toga.
Einar Kárason
og Park
Project í
Danmörku
Einar Kárason
Fréttir
í tölvupósti