Morgunblaðið - 07.11.2005, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. NÓVEMBER 2005 33
Stóra svið
Salka Valka
Lau 12/11 kl. 20 Fi 17/11 kl. 20
Fi 24/11 kl. 20 Fö 25/11 kl. 20
Su 4/12 kl. 20 Su 11/12 kl. 20
Woyzeck
Fi 10/11 kl. 20 Græn kort
Fö 11/11 kl. 20 Blá kort
Fö 18/11 kl. 20 Lau 19/11 kl. 20
Kalli á þakinu
Su 13/11 kl. 14 Su 20/11 kl. 14
Lau 26/11 kl. 14 Su 27/11 kl. 14
Id - HAUST
Wonderland, Critic ´s Choice?
og Pocket Ocean
Su 13/11 kl. 20 Su 20/11 kl. 20
Mi 23/11 kl. 20
Aðeins þessar sýningar!
Nýja svið/Litla svið
Lífsins tré
Fi 10/11 kl. 20
Fö 11/11 kl. 20 UPPSELT Fö 18/11 kl. 20
Lau 19/11 kl. 20 Fö 25/11 kl. 20
Alveg brilljant skilnaður
Su 13/11 kl. 20 UPPSELT
Su 20/11 kl. 20 UPPSELT
Su 27/11 kl. 20 UPPSELT
Má 28/11 kl. 20 AUKASÝNING
Síðustu sýningar!
Manntafl
Lau 12/11 kl. 20 Fi 17/10 kl. 20
Fi 24/10 kl.20
Miðasala á netinu
Einfalt og þægilegt er að kaupa leikhúsmiða á
heimasíðu Borgarleikhússins
www.borgarleikhus.is Þar er einnig að finna ým-
san fróðleik um verkin sem sýnd verða í vetur.
BENJAMIN
BRITTEN
the turn of the screw
ef t i r
25 ára
og yngri:
50%
afsláttur
af miða-
verði
í sal
Íslenska óperan v/Ingólfsstræti Pósthólf 1416 - 121 Reykjavík Sími: 511 6400
12. nóv. kl. 20 - 6. sýning
www.opera.is opera@opera.is Sími: 511 4200
Kynning fyrir sýninguna kl. 19.15
Kynningin fer fram á sviðinu og er innifalin í miðaverði.
„Spennuhlaðið viðfangsefnið
gerir sig bráðvel fyrir
augu og eyru.”
MORGUNBLAÐIÐ
DV
ATH! Allra síðasta sýning
PARS PRO TOTO - Dansverkið VON
& ÁRÓRA BÓREALIS - Brot úr nýju verki á gömlummerg
Laugardaginn 19. nóv - kl. 20 - Sunnudaginn 20. nóv - kl. 20
Aðeins þessar tvær sýningar
MIÐASALA Í SÍMA 4 600 200
MIÐASALA LA ER OPIN FRÁ KL. 13-17
W.LEIKFELAWW G.IS
ALA@LEIKFELAGMIDAS .IS
Fullkomið brúðkaup kl. 20
Lau 12. nóv. kl. 21. 9. kortas. UPPSELT
Sun 13. nóv. kl. 20 í sölu núna AUKASÝNING
Fim. 17.nóv. nokkur sæti laus AUKASÝNING
Fös. 18.nóv Örfá sæti
Lau. 19.nóv kl. 19 UPPSELT
Lau. 19.nóv kl. 22 Örfá sæti AUKASÝNING
Sun. 20.nóv AUKASÝN. UPPSELT
Fös. 25.nóv. í sölu núna
Lau. 26.nóv. í sölu núna
Lau. 26.nóv. í sölu núna
2/12, 3/12, 9/12, 10/12
Edith Piaf - gestasýning frá Þjóðleikhúsinu
Fim. 10.nóv. kl. 20.00 1. kortas. UPPSELT
Fim. 10.nóv. kl. 22.00 AUKAS. UPPSELT
Fös. 11.nóv. kl. 20.00 2. kortas. UPPSELT
Fös. 11.nóv. kl. 22.00 3. kortas. UPPSELT
Lau. 12.nóv. kl. 16.00 4. kortas. UPPSELT
JPV útgáfa hefur sent frá sér Játn-
ingar Láru miðils eftir Pál Ásgeir Ás-
geirsson.
Þetta er opinská ævisaga byggð á
hennar eigin frásögn og skjölum
sem aldrei hafa
komið fram í
dagsljósið.
Ingibjörg Lára
Ágústsdóttir er
einn þekktasti og
umdeildasti miðill
sem Ísland hefur
alið og eina
manneskjan sem
hefur verið dæmd
í Hæstarétti fyrir svik á miðils-
fundum.
Lára lét eftir sig handrit af sjálfs-
ævisögu sem fært var í letur árið
1945 en aldrei gefið út. Handrit
þetta er nýlega komið fram í dags-
ljósið og var meðal annars stuðst
við það við ritun þessarar bókar og
því kemur innihald þess nú í fyrsta
sinn fyrir almennings sjónir. Höfund-
ur leitar líka fanga víða annars stað-
ar, meðal annars í málsskjölum sem
hafa ekki verið aðgengileg almenn-
ingi frá árinu 1940.
Höfundurinn, Páll Ásgeir Ásgeirs-
son blaðamaður, er einkum þekktur
sem höfundur vinsælla leiðsögu-
bóka, en hefur áður ritað um sögu
sálarrannsókna á Íslandi.
Játningar
Láru miðils
TVÆR leiksýningar sem voru frum-
sýndar um helgina setja bíómyndir á
svið. Um sýningu Stúdentaleikhúss-
ins á Magnolia er fjallað í öðrum
dómi en þar er lýst þeirri skoðun að
vandasamt sé að leikgera bíómyndir
og hæpið að slíkt takist vel nema
sérstök frumsköpun komi til. Sýning
Listafélags Verzlunarskólans er
ekki beinlínis endurgerð en styðst að
stórum hluta við mynd Tarantinos,
Pulp Fiction, og vísar líkar til Guð-
föðurins.
Ólafur S.K. Þorvalds skrifar leik-
ritið og leikstýrir sjö leikurum
ásamt hljóðfæraleikara sem tekur
þátt í gangi verksins með kvik-
myndatónlist sinni. Yfir sýningunni
er skemmtilegur andi kæruleysis-
legrar lífsgleði sem felst í því mót-
sagnakennda at-
hæfi að velta sér
upp úr fyndni
sem snýst um
búksorgir, blóð
og dauða þar sem
allt er staðsett
hér og nú á Ís-
landi. En lífs-
gleðin og akkur
sýningarinn felst
líka í því hvernig Ólafur nýtir sér
töfra leikhússins til þess að fara yfir
mörk raunveruleikans. Krakkarnir
lífsglöðu áttu góða spretti í leik sín-
um og hvíldu sumir fallega í kyrrum
stundum. Framburðarvandi var hins
vegar nokkur ljóður á annars ágæt-
um leik.
Sýningin er ólíkindaleg því að það
tekst að fara alla leið í kaldhæðni
sem dregur fram aumustu hliðar
mannanna. Enn einu sinni verður þó
að spyrja af hverju aðstandendur
skrifa ekki nýtt leikrit saman frekar
en að endurgera bíómynd; slíkt er
alltaf þakklátt.
Tarantino og
Guðfaðirinn
LEIKLIST
Listafélag Verzlunarskóla
Íslands
Leikgerð og leikstjórn: Ólafur S.K.
Þorvaldz.
Verzlunarskólinn, 4. nóvember 2005.
Guð og Tarantino
Hrund Ólafsdóttir
Quentin Tarantino
TVÆR sálumessur á einum og sömu
tónleikum, eins og buðust í þétt set-
inni Hallgrímskirkju um helgina, eru
trúlega sjaldgæft fyrirbrigði í ís-
lenzku tónlistarlífi. Hversu sjaldgæft
er aftur á móti á huldu nema elztu og
stálminnugustu tónleikagestum,
enda mér vitandi hvergi hægt að
fletta slíku upp.
Hitt var þó ljóst, að sálumessur W.
A. Mozarts og Gabriels Fauré – í
þeirri röð – fóru undravert vel sam-
an, enda hæfilega ólíkar. Sú seinni
var í þokkabót dável fallin til að róa
niður hlustendur fyrir heimför eftir
dómsdagsdramatísku þætti Mozarts,
sem magnast kannski enn meir í vit-
und þeirra er ósjálfrátt tengja til-
drög þessa meistaralega torsó-verks
(fullgert af nemanda Wolfgangs,
Süssmayr) hinum átakanlegu loka-
senum í Amadeus-kvikmynd Milosar
Forman. Enda kom sá eðlismunur
verkanna einnig fram í fróðlegum og
vel skrifuðum tónleikaskrárpistli
Halldórs Haukssonar – þ.e. að Fauré
fer mun léttar yfir ógnir efsta dags
en fyrri tíma requiemtónskáld;
sleppir t.a.m. að mestu sekvenzunni
Dies irae, en leggur í staðinn því
meiri áherzlu á eilíft ljós og sælu.
Í rauninni er til lítils að smágreina
alþekkt verk og Requiem Mozarts,
og því síður túlkun þess á umrædd-
um tónleikum, er var til fyrirmyndar
sannfærandi hjá jafnt einsöngv-
urum, kór og hljómsveit. Hvað hröð-
ustu kaflana varðar var aðeins óvið-
ráðanlegum staðháttum um að
kenna að glæsileg snerpa og sam-
takamáttur flytjenda nutu sín ekki
til jafnmikillar fullnustu og í almennt
hæggengara verki Faurés. Hljóm-
sveitin var nefnilega í einu og öllu
óaðfinnanleg. Hraðavöl stjórnand-
ans voru háklassísk fram í fing-
urgóma, og hjá einsöngvurum var
bókstaflega valinn maður í hverju
rúmi, þó að bassahlutverkið hefði að
mínum smekk mátt vera skipað
heldur dýpri og feitari basso prof-
ondo raddgerð en barýtonrödd
Andreasar Schmidt var eiginleg,
þótt annars væri vel með farin. Að
því leyti virtist hann eiga aðeins bet-
ur heima í Fauré.
Mótettukórinn var að vanda stór-
glæsilegur í öllu sínu, og fer raunar
að draga úr eftirvæntingarspennu
hvað hann reynist alltaf langt fyrir
ofan meðallag. Nema kannski að
einu leyti – þ.e.a.s. hvað virðist hafa
fækkað í karlaröddum. Þar kann ég
að vísu að vera fórnarlamb eigin mis-
minnis, hafi ekki viðkomandi sjónar-
mið nýverið færzt í aukana. En samt
er ég ekki frá því að bassar og ten-
órar hefðu víða mátt heyrast betur
en raun bar vitni. Að þessu leyti virð-
ist m.ö.o. jafnvel höfuðkór eins og
Mótettukórinn eiga við nákvæmlega
sama erkivanda karlaeklu að stríða
og nánast allir blandaðir kórar lýð-
veldisins.
Requiem Faurés var hrein og
ómenguð unun á að hlýða frá upphafi
til enda. Ef það er einhver mælistika
á snilld og frumleika, þá væri sér-
staklega til takandi hvað franska
tónskáldinu tekst ótrúlega vel að við-
halda fullri athygli á í meginatriðum
blíðum og hlustvænum nótum. Hafa
sennilega fáir komizt jafnlangt,
hvorki fyrr né síðar, í þeim efnum og
hann. Aðeins tveir einsöngvarar
komu hér við sögu. Andreas Schmidt
var í bezta faglega formi í Hostias og
Libera me, og drengjasópraninn í
Pie Jesu, hinn kornungi Ísak Rík-
harðsson sem nýlega vakti athygli
sem Miles í Britten-óperunni Tökin
hert, söng sitt kristalstæra hlutverk
án minnstra misfellna. Það, ásamt
bráðfallegum kórsöng og hljómsveit-
arleik, gerði að verkum að hæst-
ánægðir tónleikagestir gátu yfirgefið
Hallgrímskirkju í beztu vímu sem til
er – upphafningu sannrar listar.
Morgunblaðið/Eggert
„Hæstánægðir tónleikagestir gátu yfirgefið Hallgrímskirkju í beztu vímu sem til er – upphafningu sannrar listar.“
Ógn og sæla
TÓNLIST
Hallgrímskirkja
Mozart: Requiem*. Fauré: Requiem**.
Ísak Ríkharðsson S**, Jeanne Pascale
Schulze S*, Alina Dubik A*, Gunnar Guð-
björnsson T*, Andreas Schmidt B*/**.
Mótettukór og Kammersveit Hallgríms-
kirkju. Stjórnandi: Hörður Áskelsson.
Laugardaginn 5. nóvember kl. 19:30.
Kórtónleikar
Ríkarður Ö. Pálsson
Innihaldið skiptir máli