Morgunblaðið - 07.11.2005, Page 36
36 MÁNUDAGUR 7. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Enn eitt snilldarverkið frá Tim Burton
(“Charlie and the ChocolateFactory”).
Með hinum eina sanna Johnny Depp.
Ein frumlegasta mynd ársins.
S.V. / MBL
DV
hörku spennumynd frá
leikstjóra 2 fast 2 furious
og boyz´n the hood
Þeir voru leiddir í gildru...
nú þarf einhver að gjalda!
Four brothers kl. 5.40 - 8 - 10.20 b.i. 16 ára
Corpse Bride kl. 6 - 8 - 10 b.i. 14 ára
Cinderella man kl. 5.15 b.i. 12 ára
OKTÓBERBÍÓFEST
Guy X • Sýnd kl. 6
Frozen Land • Sýnd kl. 8
Drabet (Morðið) • Sýnd kl. 8
La Marche De L´empereur • Sýnd kl. 10
The Merchant of Venice • Sýnd kl. 10,10
Voices Inocentes • Sýnd kl. 10,30
26. október -
14. nóvember
“Meistaraverk!” - San Fran Chronicle
“Fullkomin!” - The New Yorkera
“Langbesta mynd ársins!” - Slate
Mörgæsamyndin sem er að slá í gegn
um allan heim og mun heilla alla
Íslendinga upp úr skónum.
ÞEGAR ÞÚ ERT
ÞETTA LÍTILL ÞÁ
VERÐUR ÞÚ AÐ
HUGSA STÓRT
Á LAUGARDAGSKVÖLDIÐ var
mikið stuð í Kaupmannahöfn þar
sem Sálin hans Jóns míns tryllti lýð-
inn á Vega tónleikastaðnum. Þetta
voru fyrstu tónleikar Sálarinnar í
Kaupmannahöfn í fjórtán ár og
virtist sem fólk væri orðið þyrst í
tóna þeirra því stuðið var gríð-
arlegt að sögn viðstaddra.
Virtist sem Íslendingar í Dan-
mörku hafi fjölmennt á tónleikana
því sagan segir að ekki hafi heyrst
neitt annað tungumál en íslenska á
staðnum, nema þá danska hjá dyra-
vörðum og barþjónum.
„Stemningin var eins og Íslend-
ingar væru að halda árshátíð í
Kaupmannahöfn,“ sagði einn tón-
leikagesta og bætti við að staðurinn
hafi verið stappfullur, enda löngu
uppselt, og að allir hafi sungið með
og dillað sér.
Sálin naut sín á sviðinu og hélt
uppi stuðinu langt fram eftir nóttu.
Þeir spiluðu gömul lög sem ný og
kynntu fólk fyrir lögum af nýju
plötunni sinni „Undir þínum áhrif-
um“ sem kom út í lok október, en
platan var að mestu hljóðrituð í
Danmörku síðasta sumar.
Sérstakir gestaspilarar með Sál-
inni í þetta skipti voru Samúel Sam-
úelsson og Kjartan Hákonarson,
lúðrablásarar úr Jagúar.
Vega tónleikastaðurinn er einn
besti og þekktasti staður sinnar
tegundar í Danmörku, heims-
þekktir listamenn troða oft þar upp
og er Sálin nú komin í þeirra hóp.
Tónleikar | Sálin hans Jóns míns sló í gegn í Kaupmannahöfn
Sungið og dillað
sér með Sálinni
í Danmörku
Ljósmynd/Aldís Pálsdóttir
Stebbi og Gummi í Sálinni keyrðu allt í botn í Kaupmannahöfn.
Að sögn viðstaddra virtust flestir ef ekki allir tónleikagestir kunna sál-
arlögin því fólk söng og dillaði sér mikið með tónlistinni.
Anna Björk, eiginkona Stefáns Hilm-
arssonar, var stolt af manni sínum
enda hélt Sálin uppi ótrúlegu stuði.
Margt fólk var á tónleikunum. Margir flugu frá Íslandi eingöngu til að fara
á tónleikana, auk þess sem fjöldi Íslendinga er búsettur í Danmörku.
Stórvinur Stebba í Sálinni lét sig ekki vanta á Vega, hér eru Eyjólfur Krist-
jánsson og Sara, eiginkona hans, mætt í Kaupmannahöfn.