Morgunblaðið - 28.11.2005, Side 20
20 F MÁNUDAGUR 28. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
GARÐASTRÆTI - TVÆR NÝJAR ÍBÚÐ-
IR Í 101
GRÆNLANDSLEIÐ
LÆKJARGATA - HAFNARFIRÐI
„RAFHA REITURINN“
SUMARHÚS - BORGARLEYNI GRÍMS-
NESI
MIKIL SALA - VANTAR ALLAR STÆRÐIR EIGNA Á SKRÁ
www.husakaup.is
GRÆNLANDSLEIÐ - NÝBYGGINGAR Á
EINSTÖKUM ÚTSÝNISSTAÐ Glæsilegar
og óviðjafnanlega vel staðsettar sérhæðir í nýj-
um parhúsum á einstökum útsýnisstað. Húseign-
irnar skiptast annars vegar í glæsilegar efri sér-
hæðir með óvenju stórum innbyggðum bílskúr
þar sem allt er sér, s.s. inngangur, þvottahús og
hiti. Húseignirnar eru fullbúnar að utan en tilbún-
ar til innréttinga að innan. Staðsetningin er mjög
skemmtileg á stórkostlegum útsýnisstað.
GVENDARGEISLI - FRÁBÆRT TÆKI-
FÆRI Glæsilegt 315 fm einbýlishús með inn-
byggðum 31 fm bílskúr á mjög góðum stað í Graf-
arholti í Reykjavík. Húsið er á einni hæð ásamt
24 fm millilofti og suðursvölum. Húsið skilast full-
frágengið að utan en rúmlega fokhelt að innan,
þar sem búið er að einangra þak og leggja ofna-
lagnir. Hiti er kominn á húsið. Rafmagnsinntök
eru komin í húsið. ÓSKAÐ ER EFTIR TILBOÐUM.
ÁLFASKEIÐ HFJ. Björt og falleg 5 herbergja
125 fm endaíbúð á annarri hæð í góðu fjölbýli í
Hafnarfirði. Tvennar svalir. Fallegur garður og
góð staðsetning. LAUS STRAX. Verð 18,9 millj.
BLÖNDUBAKKI Rúmgóð og björt 4ra her-
bergja íbúð á þriðju og efstu hæð í góðu fjölbýli
ásamt herbergi í kjallara. Húsið er tiltölulega ný-
málað og sameign er snyrtileg. Íbúðinni fylgir
stór geymsla á jarðhæð ásamt herbergi sem
hægt er að leigja út. Húseignin er einstaklega vel
staðsett með tilliti til skóla, samgangna og allrar
þjónustu, s.s. verslana sem eru á næstu grösum
og stutt er í Mjóddina. Verð 17,9 milljónir.
DUNHAGI - VESTURBÆR Um er að ræða
4ra herbergja íbúð á fyrstu hæð í vel staðsettu
fjölbýli í nágrenni við Háskólann auk herbergis í
kjallara. Íbúðin skiptist í tvær góðar stofur með
svölum út af annarri, tvö góð herbergi, baðher-
bergi og eldhús auk smá geymslu. Í kjallara er
sérgeymsla auk herbergis sem hefur aðgang að
salerni og sturtu. Íbúðin er rúmgóð og nýtist mjög
vel. Staðsetning íbúðarinnar hentar nemendum í
Háskóla Íslands einkar vel og einnig þeim sem
vilja hafa góða tengingu við miðborg Reykjavíkur.
Verð 20,8 milljónir.
4 - 6 HERBERGJA
SÉRBÝLI
HJALTABAKKI
KELDULAND - FOSSVOGUR
LÆKJARGATA - HAFNARFIRÐI
„RAFHA REITURINN“
BARÐASTAÐIR - ÚTSÝNISSTAÐUR
SAMTÚN
GARÐASTRÆTI - FIMM ÍBÚÐIR EFTIR
Íbúðirnar eru í húseign sem hefur verið mikið endurnýjuð bæði að utan og innan á síðustu miss-
erum. Byggð var heil hæð ofan á húsið sem bæði breytir útliti hússins mjög og fegrar heildar
götumyndina að auki. Samfara þessari yfirbyggingu var framhlið hússins endurkvörsuð. Í húsinu
eru skráðar sjö séreignir sem allar eru 2ja herbergja auk þess sem tveimur íbúðum fylgja ein-
staklingsíbúðir. Tvær nýjar íbúðir eru á efstu hæð hússins en þær eru eins og eldri íbúðirnar full-
búnar og nýstandsettar á mjög vandaðan hátt. Allar íbúðirnar eru með eikarinnréttingum, parketi
á gólfum og böð eru flísalögð.
STIGAHLÍÐ - STÓR EIGNARLÓÐ Í HLÍÐUNUM
Til sölu er einbýli á tveimur hæðum sem um langa hríð hefur verið nýtt sem dagheimili og því er
húsið ekki innréttað sem íbúðarhús. Ytra byrði hússins virðist við einfalda skoðun vera í ágætu
ástandi og er húsið klætt með bárujárnsklæðningu. Aðalverðmæti eignarinnar liggur í hinni gríð-
arstóru og einstaklega vel staðsettu lóð. Stærð hennar er 2.190 fermetrar og ætti því að vera
möguleiki á að byggja annað hús á lóðinni. Það liggur hins vegar ekki fyrir leyfi til slíks. ÓSKAÐ
ER EFTIR TILBOÐUM.
TORFUFELL - RAÐHÚS - AUKAÍBÚÐ
EIGNIR ÓSKAST FYRIR ÁKVEÐNA
KAUPENDUR
Húsakaup auglýsir eftir ákveðnum eignum fyrir trausta aðila. Góðar
greiðslur og rúmur afhendingartími.
• 200-300 fm einbýlishús í Smárahverfi í Kópavogi.
• Einbýli, raðhús eða sérhæð í Vesturbæ eða á Seltjarnarnesi.
• Einbýli, raðhús eða parhús í Suðurhlíðunum í Reykjavík.
• Góð 3ja-4ra herbergja íbúð í hverfi 101, 105 og 107.
• Glæsilegt ca 700 fm skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu.
• Gott 200 fm verslunarhúsnæði í miðbæ Reykjavíkur.
• 500-700 fm lagerhúsnæði á jarðhæð með góðri lofthæð og
innkeyrsludyrum á höfuðborgarsvæðinu.
• Sterkur fjárfestir óskar eftir góðu atvinnuhúsnæði í miðborg
Reykjavíkur fyrir ca 150 milljónir.
• Sterkur fjárfestir óskar eftir ca 1.500 fm atvinnuhúsnæði við
aðalumferðaræðar höfuðborgarsvæðisins.
Höfum einnig trausta kaupendur að öllum gerðum atvinnuhúsnæðis á
höfuðborgarsvæðinu.
HJALLAVEGUR - FRÁBÆR STAÐSETNING
Falleg 3ja herbergja risíbúð á þessum rólega og skemmtilega útsýnisstað. Rishæðin var byggð
árið 1985. Óvenju mikil lofthæð, allt að 4 metrar, og stórir kvistar sem gera íbúðina mjög bjarta og
vistlega. Mjög góðar og stórar svalir eru í vestur sem gengið er út á bæði frá eldhúsi og hjóna-
herbergi. Falleg ræktuð lóð og mjög skemmtilegur sólpallur aftan við húsið í góðu skjóli. Stutt í
alla þjónustu og skóla. Í göngufæri við útivistarparadísina í Laugardalnum. Verð 18,5 milljónir.
SÆLUREITUR VIÐ LÆKINN!
Eigum enn eftir nokkrar 2ja, 3ja og 4ra herbergja íbúðir í seinni áfanga þessa glæsilegu lyftuhúsa
við Lækinn í Hafnarfirði. Frábær staðsetning í göngufjarlægð við miðbæ Hafnarfjarðar. Stutt í nýj-
an barnaskóla, leikskóla, þjónustu og út á stofnbrautir. Sérinngangur og sérþvottahús í hverri
íbúð, stórar suðursvalir og vandaður frágangur. Hafið samband við sölumenn okkar eða fáið
sendan litprentaðan bækling með nánari upplýsingum. Sjá www.tjarnarbyggd.is
JÓNSGEISLI - GLÆSILEGT EINBÝLI
Stórglæsilegt 233 fm einbýlishús á tveimur hæðum með tvöföldum bílskúr á frábærum útsýnis-
stað í Grafarholtinu. Húsið skilast fullbúið að utan og lóð grófjöfnuð. Að innan er húsið u.þ.b. til-
búið til innréttinga. Búið er að einangra húsið, sandsparsla útveggi sem og milliveggi, hitakerfið
er komið og búið er að flota öll gólf. Einnig er komin í bæði baðherbergin veggfesting fyrir upp-
hengd klósett. Húsið er steinsallað að utan og er gríðarlega fallegt. Um er að ræða einbýlishús á
frábærum útsýnisstað þar sem vandað hefur verið til verka. Verð 42 milljónir.
SKARPHÉÐINSGATA - NORÐURMÝRI
Rúmgóð og björt 3ja herbergja 71 fm íbúð á fyrstu hæð með svölum í Norðurmýrinni. Á stofu eru
fallegar gólffjalir sem hafa verið pússaðar upp og olíubornar. Íbúð á vinsælum stað sem býður
upp á mikla möguleika. Verð 14,9 milljónir.
TEIGASEL - BARNVÆNT HVERFI
Björt og rúmgóð 3ja herbergja 90 fm íbúð á 3. hæð í góðu fjölbýlishúsi í Seljahverfinu. Úr íbúðinni
er fallegt útsýni yfir borgina og Esjuna. Mjög stórar suðursvalir. Sameign er snyrtileg og vel um-
gengin. Á jarðhæð er sameiginlegt þvottahús, hjóla- og vagnageymsla og stór sérgeymsla á
geymslugangi. Íbúðin er vel staðsett í rólegu og barnvænu hverfi þar sem stutt er í skóla, leik-
skóla, íþróttir og alla þjónustu. Verð 15,7 milljónir.
SÓLHEIMAR - STÓRKOSTLEGT ÚT-
SÝNI
SPORHAMRAR - GLÆSILEG ENDA-
ÍBÚÐ MEÐ BÍLSKÚR
STEINASEL - LÍTIÐ „SÉRBÝLI“
BOÐAGRANDI - VESTURBÆ